Leita í fréttum mbl.is

Vond lykt og girndarbruni

ingv5.jpgÞá vitum við það, að hann Sigmundur okkar Dávíð hefir áhuga á berrassínum. Áhugi hans er meira að segja svo mikill að hann er farinn að leita að þessháttar kykvendum á vinnustað sínum, sem hann heimsækir að jafnaði einusinni í mánuði og þá stutta stund í senn. Í dag skrönglaðist Sigmundur á sinn vinnustað og að sjálfsögðu varð honum fyrst fyrir að snuðra inni á kvennasalerni Alþingis og hafði hann ljóta sögu að segja af þeirri sóðakompu. Fyrir það fyrsta kvartaði drengurinn, sem er góðu vanur, undan þungum daun þar inni og sakaði þingkvennsur um að hafa ekki fyrir að sturta niður úr salernisskálunum eftir að hafa notað þær, hvort heldur væri til þykkra eða þunnra athafna. Að lokum sagðist Sigmundi svo frá að hann hafi komið að þingkonu einni sofandi á einu salerninu, að sjálfsögð í mjög dónalegri stellingu og í enn dónalegra ástandi; hún hafði að vísu rumskað þegar Sigmundur rak aðra löppina í hana, ropað ruddalega og haldið áfram að dorma.

Og Sigmundur hélt snuðri sínu áfram og tókst að lokum að þefa uppi tvo þingmenn í kærleiksríkum ástarleik. Þá umræddir þingmenn uðru Sigmundar varir ruku þeir upp eins og nöðrur og gerðu sig líklega til að berja hann og kölluðu hann Tortúlus og fleiri óþverranöfnum. 

Af rannsókn Sigmundar Davíðs á Alþingishúsinu má auðveldlega draga þá ályktun að vont fólk og sóðalegt og uppfullt af óbeisluðum fýsnum hafi lagt löggjafarsamkomu þjóðarinnar undir sig og hiki ekki við að útsvína þar allt sem það getur. Oss hefir um hríð verið kunnugt að Alþingi væri hálfgert lastabæli og ræningjabæli, en að nútímaþingmenn hefðu gert þingið að vettvangi fyrir vonda lykt og girndarbruna höfðum vér ekki gert oss grein fyrir. 

 


mbl.is Vill upplýsingar um „hálfnakið fólk“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Hvar var Brynjar vondalykt ?

Níels A. Ársælsson., 11.6.2018 kl. 19:05

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Tja, Vondalyktin er skjaldan langt undan á sona stundum ...

Jóhannes Ragnarsson, 11.6.2018 kl. 20:09

3 Smámynd: Aztec

Já, mér finnst Simmi vera óþarfa teprulegur í þessu brjóstmáli. Ef hann ber fyrir sig umhyggju fyrir virðingu Alþingis, þá ætti hann að vita að hún er löngu fokin út í veður og vind og hefur ekki sézt síðan 1995.

Auðvitað er mjósleginn kvenlíkaminn augnayndi þótt einungis sé ber að ofan, hins vegar er slæmt að þetta skuli hafa verið öfgafemínistar sem sífellt eru að þvaðra um merkingarlaus hugtök eins og karllæg feðraveldi, mæðrafyrirlitningu, klámvæðingu og hvaðeina, sem koma aðdáun á kvenlegum, nöktum eða hálfnöktum líkömum ekkert við, þrátt fyrir fyrirslátt Steingríms J.

Ég legg til að allar þingkonur (og -menn í nafni jafnréttis) verði héreftir ber að ofan alla daga, enda mun það auka áhorf á Alþingisrásina, sem í augnablikinu er núll.

Aztec, 12.6.2018 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband