Leita í fréttum mbl.is

Hvaða Almætti er það sem aðstoðar frjálshyggjuhrunara í golfi

golf1Ekki er gott að segja hvað Almætti það er sem aðstoðar frjálshyggjuhrunsklerkinn Hjálmar við að berja golfkúlur með stafpriki. Að minnsta kosti er það ekki það almætti sem ræður ríkjum í því himnaríki sem Jésú kenndi oss að ríkir péníngagraddar ættu erfiðara með að komast inn í en úlfalda að skríða gegnum nálarauga.

Hinsvegar hafa forhertir golfdólgar oftar en ekki heitið á Pokurinn um liðsinni við að koma kúlufjandanum ofan í holuna. Og yfirleitt hefir Pokurinn brugðist vel við og stýrt kúlum þessara sveina beint í hina fyrirheitnu holu og golfarinn hefir þá orðið svo kátur að hann hefir drukkið sig mígandiaugafullann á staðnum og lofað að gefa Pokurnum sál sína í fyllingu tímans.

Það sannspurðist út eitt sinn, að Pokurinn hefði tekið sál andaðs golfmeistara að sér og komið þenni fyrir í einni af heitari vistarverunum í ríki sínu. Það orgaði golfarasálin og grét undan meðferð púkanna á sér og var komin á fremsta hlunn með að svíkja Pokurinn og stinga af úr sælunni. En þegar hann loks lét til skarar skríða og ætlaði að strjúka komst hann að því að honum vóru allar leiðir lokaðar til eilífðarnóns. 


mbl.is Með aðstoð frá almættinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband