Leita í fréttum mbl.is

Þá er þessu nú lokið með ómótstæðilegum gráthrinum í kverkunum

grenjJæja krakkar mínir, nú er komið nóg af umræðu um fullu kallana í klaustrinu. Niðurstaðan af því öllu er, að aunginn Íslendingur, sem berað hefir skoðun sína á brennivínsöskrum kallana, hefir aldrei á sinni lífsfæddri æfi heyrt annað eins klám og sóðakjaft, nema Sigmundur Davíð, hann hefir oft heyrt álíka og enn oftar mikið verra og samtvinnaðra klám, kvennfyrirlitningu, kvennhatur og kvennsemi og hafa menn núorðið talsverðan áhuga á hvaða endemi það eru í röðum þingmanna sem eru enn hroðalegri en Gunnar Bragi og Bergþór Óla í munnsöfnuði undir áhrifum Bakkusar gamla.

Jú, vissulega var raunarlegt að horfa upp á litlu ungfrú Alfredós berjast við grátinn, eða öllu heldur gráthrinurnar sem virtust vera við að springa fram úr öllu andliti hennar; og ósköpin öll minnti hún á aðra litla ungfrú, sem sé litlu úngfrú Gúðmúndsen þegar hún var að barma sér út af honum Garðari Hólm í Brekkukotsannáli. Já, þetta var virkilega flott númer hjá hjá þeirri stuttu í Kastljósinu í kvöld og féllu margir fyrir framgöngu hennar og frelsuðust inn í Framsóknarfjósið. Enda mun nú sjálf gamla Framsóknarmaddaman, jafn elliær og geggjuð sem hún er orðin, skriðið upp úr kör sinni og gjört litlu fröken Alfredós að klausturjómfrú í Framsóknarfjósinu, en því embætti fylgir að færa gömlu Maddömunni fullt vatnsglas af óblönduðu ákavíti klukkan sjö hvurn morgun er Guð gefur.

En klausturlífi Sigmundar Davíðs og þeirra er hér með formlega lokið, nema hvað enn á eftir að greiða dulítið úr sendiherraspillingunni sem upp komst eftir gáleysislegt tal í klaustrinu. Að vera sendiherra erlendis fyrir Ísland er eftirlaunastarf fyrir aflóga stjórnmálagarma, sem eru búinr að gera soleiðis í buxurnar að þeir geta hreinlega ekki meira. Þegar þar er komið sögu eru þeir sendir út fyrir landsteinana og látnir hafast við í góðum húsum, sem íslenska ríkið á, með þjónustufólki, ókeypis sendiherrabrennivíni og kvennaþjónustu sem er sko ekki í ætt við neina guðsþjónustu. Ef allt fer á versta veg, sem það gerir auðvitað ekki, verður víst að sópa stjórnmálaforingjum, fyrrverandi og núverandi, sendiherrum og einhverju fleirum saman og dæma þá refsingar, fangelsisvistar, hjóls og steglu. Þykir mörgum sem nú sé illa burtsofnaður og horfinn Guðmundur fjósarauður, sem hafði það embætti að flengja sakamenn opinberlega á Austurvelli og láta þá svo í gapastokk til að krakkar og hundar gætu pissað á glæpamennina.

 


mbl.is „Þeir eru ofbeldismenn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Rúnar Jónsson

Þú ættir að skammast þín...það eru einmitt svona kallar eins og þú sem þjóðfélagið getur og þarf að vera án.

Helgi Rúnar Jónsson, 5.12.2018 kl. 23:43

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Sæll Helgi Rúnar, hverskonar munnsöfnuður er á þér hér á heilögusvæði síðuhöfundar Jóhannesar Ragnarsssonar. Þetta er bókmenntatexti sem Jóhannes ritar og er mjög gamall og eini textin sem er hægt að rita við þær aðstæður sem nú ríkja hjá okkur. Hann er sprottin upp úr sálarlífi þjóðarinnar, þar sem sjómenn dorguðu fyrir fiski og bændur munduðu heynál í stálið og reyndu að átta sig á ástandinu á Graðnýjarstöðum án þess að flækjast inn í það ástand sjálfir, því allir vilja pota, pota heynálinni í stálið.

Við eigum að þakka fyrir að svona bókmenntatexti sé enn skrifaður, annars væri ekki líft í landinu ef allir héngju útaf með skeifu.

Grínið lifi og þér munuð lifa. sagði kallinn.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 6.12.2018 kl. 08:27

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Og mikioð er ég sammála þér Þorsteinn.

Við eigum að virða og heiðra þá sem pennanum kunna að beita.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.12.2018 kl. 08:52

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þorsteinn H. og Ómar. Ég hefi nú þegar gert gangskör að því að minnast Helga Rúnars í bænum mínum; ég bað sem sé Guð almáttkan að sjá í gegnum fingur sér við greyið hann Helga Rúnar og refsa honum ekki mjög mikið því strákurinn vissi ekki hvað hann var að gera þegar hann hreytti fúkyrðunum, sem sjá má hér að ofan, í mig ag fullburða vanstillingu. Drotinn sé með Helga Rúnari og klappi honum ljúflega á kollinn, en gefi honum selbita í rassinn ef hann sér ekki að sér. 

Jóhannes Ragnarsson, 6.12.2018 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband