Leita í fréttum mbl.is

Sjóđurinn hefir af ţjófsvöldum ţykknađ

monni.jpgSjóđir Tryggingastofnunar hafa af ţjófsvöldum ţykknađ og samkvćmt venju er aunginn sekur og ţví síđur ber einhver ábyrgđ á ađ rćna öryrkja, enda ţykir ţjófnađur af öryrkjum heldur lítilmótleg iđja. Ţó er svokölluđum frjálshyggjumönnum, en ţeim er innprentađ ađ vera í nöp viđ aumingja, svo sem ekki á móti skapi ađ eitthvert slangur af öryrkjum hrökkvi uppaf úr ófeiti. Á ţessari stundu er óvíst hvort frjálshyggjulýđur hefir hreiđrađ um sig í Tryggingastofnun og gert sér hćgt um vik og reynt ađ reikna öryrkja í hálfu verri hungursneyđ en lög og reglur segja til um; sem sé láta tölfrćđina velta ţessum óţurftaöryrkjum út af borđinu.

Og hafa ţau sćmdarhjón, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmađur rćtt öryrkjavandamáliđ viđ elhúsborđiđ heima hjá sér. Ţeirra meining hefir löngum veriđ ađ međ tíđ og tíma setji öryrkjaóbermin landiđ á hausinn og ţar međ sé ţjóđskipulagiđ fyrir bí og allt fari til Andskotans í Helvíti. Ţetta er vćgast sagt hrottafengin tilhugsun fyrir sćmdarfólk, sem hefir boriđ hitann og ţungann af velmegun borgarastéttarinnar, eđa burgeisanna, eins og öfundsjúkir drullugemlingar kalla ţađ.

Nú mćtti ćtla ađ lögreglan hafi veriđ kölluđ til út af hinum volduga og skipulagđa ţjófnađi af öryrkjunum. En, neinei, ekki alveg. Engin lögregla hefir enn veriđ kölluđ út og ennţá hefir ekki nokkrum manni í Tryggingastofnun eđa ráđuneyti örorkubóta komiđ til hugar ađ fá til ţess bćr yfirvöld til ađ gćta rannsóknarhagsmuna í ţessu dularfulla máli. Hvađ vćri gert viđ svangann drykkjurút sem vafrađi inn til öryrkja og stćli ţeim hinum litla mat frá honum? Sá ţrjótur fengi ađ fljúga öfugur í fangelsiđ upp á vatn og brauđ. En ţegar öryrkjar eru rćndir mil-jörđum á mil-jarđa ofan af einbeittum ţjófsvilja finnst aunginn ţjófur, aunginn sem ber ábyrgđ og á ađ fara í steininn, aunginn sem skipulagđi glćpinn.


mbl.is Skođa ţarf hvert einasta tilvik
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband