Leita í fréttum mbl.is

Hótuðu að berja hana með gluggaskrautinu

ing9Andskotinn sjálfur; íllt er það allt og bölvað. Og nú hefir elskuleg frú Andersen hrökklast úr ráðherrastóli með slitna brynju, sundrað sverð, og syndagjöld. Sumir segja að Bjarniben hafi verið orðinn hundleiður á henni og notað þetta déskotans mannréttindadómstólsmál til að reka hana úr ráðherraembættinu, bókstaflega fleygt henni út á skottinu. Mannvonskan tekur á sig ýmsa myndir og er aungin þeirra frýnileg.

Veslings frú Andersen reynir þó að bera sig mannalega, þrátt fyrir að hafa lent í ólgusjó kvenfyrirlitningar og kvenhaturs, og reynir að koma því til skila á penan og rósóttan hátt, að henni hafi ekkert verið hent út á skottinu, neinei; hún hafi farið í sona smá frí að eigin frumkvæði, og þó ekki frí; litla júngfrú Reykfjörð, uppáhaldið hans Bjarnaben, sé bara að leppa tímabundið fyrir hana í ráðuneytinu. Fólk á sem sé, einkum sjálfstæðisflokkssöfnuðurinn, að trúa á að frú Andersen rísi upp aftur, eitthvað í líkingu við að: ,,á öðrum degi upp reis hann eins og Þorgeirsboli."

Af Bessastöðum var hún borin út og beðin að láta ekki sjá sig meir; þeir sögðu hana þefja af þránuðum grút, þessvegna væri best að leggja hana í lút og látana syngja um landsdómsins geir. Já, góðir hálsar, sona fer nú Sjálfstæðisflokkurinn með sínar bestu sálir og leyfir sér að sleppa kvenfyrirlitningu sinni lausri á frú Andersen, sem aldregi hefir gjört annað en að strjúka kviðinn á auðvaldinu, frjálshyggjunni og útlendingastofnun; hvað vilja þessir fantar meira? Og meira að segja Swabbi Sendiherra, dóttir hans og Álfheiður Inga í hinum meiriháttar fémíníska VG taka þátt í ódæðinu gegn konunni frú Andersen. Það er dálaglegur fémínísmi atarna. Og svo hótuðu þau frú Andersen, þegar hún lá bjargarlaus í svaðinu, forinni, að berja hana með gluggaskrautinu ef hún hypjaði sig ekki úr rískisstjórninni! Þvílíkt og annað eins.  


mbl.is Óviss um að snúa aftur í embætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband