Leita í fréttum mbl.is

Öfgafullir giljagaurar með slæm heilkenni

xd1_1243790.jpgÞað er ansi vinsælt hjá ,,stjórnmálafræðingunum" Eiríki Bergmann og Baldri Þórhallssyni að slá um sig með frösum um öfgahægri og öfgavinstri og popúlista. Þetta kjaftabull þeirra félaga er þeim mun hlálegra fyrir þær sakir, að báðir eru þeir heilmiklir öfgamenn, sem sé öfga ESB-sinnar og öfga kratasálir með harðlífi og aðra heldur leiðinlega krankleika.

Og samkvæmt krataeðlinu hatast þessir giljagaurar verulega við raunverulega róttæka vinstrimenn, sósíalista, en að sama skapi liggja þeir flatir flatir fyrir stórauðvaldi á borð við ESB, NATO og USA. Að sjálfsögðu er þessum skaðmenntuðu drengjum hálf illa við hægrigaura, sem vilja ekki gefa ESB fullveldi landa sinna bara sisona. Þeir eru nefnilega ekki ,,frjálslyndari" en þetta, blessaðir ungarnir, en það er alveg í samræmi við vanmetakemmd og fláttskap krataeðlisins. Svo kölluð ,,frjálslynd gildi" eru í augum þessara öskurapa það sem venjulegt og jarðbundið fólk kallar auðvirðilega tækifærismennsku og lágmennsku.

Já, þeir eru saman í hugmynda- og hugsjónatríói, þeir Baldur, Bergamann og Hanez nokkur Hólmsteinn. Allir eru þeir öfgamenn og grillufangarar, sem lagt hafa áherslu á að umvefja öfga sína og drullupopúlisma með eigin prófgráðum og meintri mennun, en þegar leiktjöldunum er svipt frá standa eftir þrír öfgakrangar með heldur sona ólánlega frjálshyggjuskitu, sem mun éta þá upp eins og aðra slíka furta. 



mbl.is Hægri- og vinstriöfgar vinni að sama marki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband