Leita í fréttum mbl.is

Stökkbreyttur ESB-vírus, sem komst í hross, veldur usla

dog3Jæja, þá hefir taugabilun yfirfallið blessaða hestana okkar, - sem sé ESB-taugaveiki, einhver hin hroðalegasta sem kunnug er á byggðu bóli. Þessi hræðilega bilun hófst með því að krataeðlisveiran stökkbreyttist og smitaðist í kjölfarið í búfénað í ESB, þar á meðal hrossin og blessaðar kýrnar, sem gefa okkur mjóklina svo öll vér verðum hraust,- hraust, hraust, hraust, hraust hraust.

Nú, svo komu ólánssamir krataeðlissjúklingar, sem ferðast höfðu um alla króka og kima ESB, uppfullir af taugaveiklunarvírúsnum úr hestunum í ESB, og létu verða sitt fyrsta verk, eftir heimkomuna, að valsa út í sveit og smita íslenska hestinn. Og þeir reyndi líka að smita íslensku sauðkindina, sem gefur okkur ullina so öllum verði hlýtt. En þá urðu óþverrarnir fyrir því slysi að mannýgur hrútur, sem vildi ekki þiggja slíkar kræsingar, réðist á þá slasaði þá hryllilega, einn þeirra hér um bil til ólífis. Þegar komið var með smittdjöflana, nærri því í dauðateygjunum, á sjúkrahús komst upp um sjúkdóm þeirra og voru þeir þegar í stað settir í einangrun og aunginn veit á þessari stundu hvort þeir eru dauðir eða lifandi.

Taugabilunarsjúkdómurinn frá ESB lýsir sér þannig í hestum, að sjúklingurinn fær skjálfta í framfætur, hósta og fer að drepa tittlinga ótt og títt. Eftir um það bil viku er hinn veiki hestur kominn niður á knén, æðisglampi einkennir augnaráðið og umbrotin í kviðarholinu heyrist langar leiðir. Ef hesturinn deyr ekki drotni sínum þegar þar er komið, fær hann ævintýralega drulluspýju og fretar þarga metra út í loftið uns hann er samfallinn eins og loftlaus blaðra og tekur náfretinn.


mbl.is Veri vakandi fyrir einkennum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband