Leita í fréttum mbl.is

Tani Seychelle-kóngur og spennandi norræn glæpasamtök

kol5Hvern fjandann ætli þessi Víncét Tan, eða Tani eins og hann er kallaður, viti ,,spennandi norræna upplifun"? Því er fljótsvarað: hreinlega ekki neitt. Hann ætti heldur að eyða tíma sínum í að gá hvort hann geti gruflað upp aura í eigu íslenska fjármálaráðherrans á eyjunum Seychelle, en vitað er að umræddur ráðherra hefir átt þar pénínga, hvernig sem á því stóð, og þókti eftir sem áður verðugur þess að vera forsætis- og fjármálaráðherra. Soleiðislagað er ekki hægt nema í löndum þar sem íllvíg og skipulögð bandíttasamtök eru rekin og andlegur menningaarþroski hinna óbreyttu þegna er á sömu breiddargráðu og fábjánaskapur. Já.

Frú Ingveldur og Kolbeinn maður hennar hafa átt og eiga enn leyndareikninga bæði á Tortólu og Seychelle eyjum og með þeim hafa þau aukið hróður sinn innan íslenski bófasamtakanna um leið að reikningarnir hafa ávaxtað sitt pund, en telja þau sæmdarhjónin það vera guðdómlegan veruleik að láta péééníííngana vinna fyrir sig. Og reikningar þeirra frú Ingveldar og Kolbeins eru með þeim ósköpum gerðir, eins og reikningar annarra fjársýslumanna á Tortólu og Seychelle, að þeir bólgna alltaf í hvurt skipti sem tekið er út af þeim, það er nú svo einkennilegt með það.

kol6En þegar lítil telpa, á að giska sjö ára gömul, spurði frú Ingveldi eftir farandi spurningar: Frú Ingveldur, hvað er arðrán? Þá sló frú Ingveldur telpuna utan undir með veskinu sínu þannig að blessuð litla stúlkan skondraði inn um kjallaraglugga og lá þar í öngviti inni á gólfi í góða klukkustund. Og Kolbeinn Kolbeinsso, þessi friðsæli og viðkunnanlegi skrifstofustjóri og framsóknarnarmaður reyndi að keyra launson Brynjars Vondulyktar niður úti á götu, af því að strákur hafði sagt að Kolbeinn væri helvítis rotta og auðvaldssvín. Launsonur Vondulyktarinnar, sem er snaggaralegur strákur og ráðagóður, gat með naumindum vikið sér undan bifreið Kolbeins, sem missti marks og þaut eins og eldflaug gegnum nálægt grindverk úr timbri og hafnaði á steinvegg íbúðarhúss, en Kolbeinn stökk út úr bifreið sinni, enda var upp kominn eldur í henni, og hvarf sporlaust af vettvangi; eftir á sagði hann Hálfdáni varðstjóra, að einhver óþokki hefði stolið bílnum og eyðilagt hann. Og þar við sat. 


mbl.is Geti boðið „spennandi norræna upplifun“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband