Leita í fréttum mbl.is

Swandeesý ráđiđ frá ađ reyna ađ höggva Kára í herđar niđur međ öxi

öxiVerkefni lagt fram af vondri og hrokafullri persónu verđur aldrei barn í brók, ekki einusinni ţókt viss persóna hafi fengiđ mynd af sér, ţar sem hún viđrar sig upp viđ ţjóđţekktan forstjóra á ámćlisverđan hátt og ekki bćtir uppgerđarsmćliđ, helgaddađ og samanherpt, stöđuna um agnarögn. En hvađ gerir hrokafullt og snobbađ liđ međ tungur ţrjár og talar sitt međ hvurri, ţegar ţađ hefir gert illa í buxurnar og rýkur til ađ krafla upp óţverrann eftir sig? Jú, ţađ teygir sig og teygir, - teygir sig lengra en ţađ nćr og hrapar fyrir björg.

En Swandeesý Sendiherrans er vorkun. Hún hugđist jafna reikningana viđ Kára Stefánsson, en varđ fótaskortur á tungunni á ögurstundu, og lét sig hafa ađ svívirđa Kára og Erfđagreininguna međ ţví ađ minnast ekki einu orđi á ţađ gengi í frćgri ,,ţakkarrćđu", sem einhver ólánsgemlingurinn samdi fyrir hana. Eftirleikinn ţekkja allir: Kári rétti Swandeesý og VG harđfólskulegan snoppung, svo allt ţađ fólk lá í svađinu, dauđrotađ, í rúmlega hálfan sólarhring. Og nú goggast Swandeesý loks fram í dagsljósiđ, auđsjáanlega mökkringluđ eftir höggiđ, og tuldrar samhengislausan ţvćtting um stríđsöxi! Ţađ má vera ađ Swandeesý og Steingrímur Johođ liggi á einhverri andskotans öxi, en ég held samt ţađ borgi sig seint fyrir ţau ađ reyna ađ vađa í Kára til ađ höggva hann í herđar niđur ađ fornsögulegum siđ. Eđa hvađ heyrđist ekki gamli Swabbó raula fyrir munni sér um daginn nema ţetta: ,,I´m going to make a big sharp axe, Shining steel tempered in the fire." Hann ku hafa lćrt ţetta, karlskjóđan, ţegar hann var ađ sendiherrast vestur í Canada fyrir Davíđ og Dóra.

Nú hefir frú Ingveldur bođiđ Swandeesý ađ dvelja hjá sér á heimili hennar og Kolbeins Kolbeinssonar alla hvítisunnuhelgina, frá og međ kveldinu í kveld fram á ţriđjudagsmorgun. Frú Ingveldi ţykir alltso vćnt um Swandeesý og gamla Swabbó, en hefir bćđi súran og sterkan ímigust á Kára Stefánssyni eftir ađ hann lýsti ţví fjálglega yfir í fjölmiđlum, ađ hann vćri sosialist og fór ađ láta sjá sig í fyrsta maígöngum međ helvískum kommaskrílnum. Soleiđis karli treystir frú Ingveldur ađ sjálfsögđu ekki, enda er hún kona varkár og árvökul. Hinsvegar hafa Swandeesý og gamli Swabbó ekki sést í slíkum göngum svo lengi sem elstu menn muna, ţví ţeirra mađur í raun og sann, átrúnađargođ og ármađur, er Júel J. Júel, útgerđarmađur og ţingmađur Sviđinsvíkinga á öldinni sem leiđ. Nú er frú Ingveldur og Kolbeinn, eiginmađur hennar, búin ađ sjóđa hvítisunnugambrann, sem orđinn var rótáfengur, og öll ílát full međ níutíu prosént landa, sem ćtti ađ duga hundrađ manns fram yfir helgi.  



mbl.is Engar stríđsaxir til ađ grafa
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband