Leita í fréttum mbl.is

Abelsínugula viðundrið mun verða að uppþornaðri skítaklessu

fallHvað ætli abelsínugula viðrininu haldist lengi uppi að ljúga upp á heiðvirða og gáfaða forustumenn landa og alþjóðastafnanna eins og þá Xi Jinping, forstöðumann Kínverska kommúnistaflokksins, og herra Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóra WHO. Það verður ekki langt að bíð þess, að sá abelsínuguli gleðji oss Íslendinga með því að hella sér yfir forsætisráðherrann okkar, fjármálaráðherra og Framsóknarflokkinn með óbóta skömmum, hótunum og persónulegum svívirðingum.

Ja, nema þeim dökklituðu í Amríku takist að svæla helvískan karlódáminn út úr Hvíta húsinu eins og melrakka og reka hann með málamyndaskothríð út í skóg. Reyndar halda margir að þetta WHO sé bresk rokkhljómsveit, en það ku vera misskilningur. En það á eftir að fara illa fyrir abelsínugula viðundrinu, sjálfvirka náttúrlögmálið mun taka í taumana og kallhrossið mun falla saman eins og sprungin hlandblaðra. En áður en kemur að því, að lögmál náttúrunnar virkjast að fullu, má vera að þeim abelsínugula takist að gera enn meira af sér. Við munum öll hvernig fór fyrir Ólafi bónda. Hann var bölvaður ódráttur, barði konuna sína og sparkaði í skepnurnar. Svo kom smalahugurinn Snati til sögunnar, og það var einmitt hann, sem hrinti Ólafi bónda fyrir björg með trýninu.

Of þó að abelsínugula Trumpið telji til fyrirmyndar að svívirða Xi Jinping og Tedros Adhanom og siga lögreglu og landher á bandaríska alþýðu, þá er hann dæmdur til að tapa á öllum vígstöðvum og sviðum. Öll sund eru að lokast honum og brátt verður ekkert annað í spilunum hjá karli en að hrapa fyrir hin poletisku björg og verða þar með tíð og tíma að uppþornaðri skítaklessu, sem mun í mesta lagi vekja upp minningar um abelsínugult roðhænsni, sem að réttu lagi hefði átt að vera með góða da´tanum Svejk á vitfirringahælinu.


mbl.is Lofuðu Kína sem á sama tíma hélt eftir gögnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvernig komst mannkynið af áður en Jóhannes fór að hafa afskipti af þjóðmálum í Bandaríkjunum sem kusu þann appelsínugula yfir sig alveg án þess að ráðfæra sig fyrst við mannvitsbrekkuna í Ólafsvík?

Halldór Jónsson, 3.6.2020 kl. 13:07

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mannkynið komst bara ekki af áður en Jóhannes fóra að skipta sér af. Þannig var nú það. Og betur hefði farið vestra ef kjósendur þar hefðu haft Jóhannes með í ráðum, áður en þeir glæptust á að kjósa þann abelsínugula. 

Jóhannes Ragnarsson, 3.6.2020 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband