Leita í fréttum mbl.is

Ţegar rosknar, ölvađar konur koma og velta öllu viđ, brjóta og bramla

full2Já, var hún svona drukkin kérlíngaranginn? Ţađ getur gerst á bestu bćjum. Hinsvegar er ekkert gamanmál ađ fá roskna konu í annarlegu spíritusástandi inn á heimiliđ, ţá kann eitthvađ undan ađ láta. Nú ruddist hún inn til Helga og velti um innanstokksmunum. Ţađ hefir sennilega allt veriđ brotiđ og bramlađ á heimili Helga eftir ţá heimsókn. Eitt sinn birtist draugfull kvenpersóna, komin viđ aldur, inni á heimili frú Ingveldar og Kolbeins. Ţađ var nú meiri kerlíngin. Hún braut líka allt og bramlađi, međal annars nefiđ á Óla Apaketti og hótađi á kveikja í rassinum á honum ef hann héldi ekki kjafti.

Ţessa konu leiddi frú Ingveldur úr húsi, skilningsrík eins og ćvinlega, og stakk henni ofan í nćrliggjandi snjóskafl, ţví ţađ var hávetur og roskna konan ţurfti kćlingar međ. Í annađ sinn kom önnur svona kona í heimsókn til Máríu Borgargagns og lét fremur ófriđlega. Kom fram í máli kérlíngar, sem angađi af áfengisţef, ađ hún hefđi vissu fyrir ţví ađ karlinn hennar, frćgur göltur af endemum, hefđi gist ađ Máríu Borgargagns og hvílt í rúmi hennar allsnakinn. Ţetta kom Borgargagninu spánskt fyrir sjónir, ţví hana raka ekki minni til ađ gölturinn, karl kerlingarinnar, hefđi veriđ ađ snuđra hjónarúmi hennar og Indriđa Handređs. Seint og síđar meir kom upp úr dúrnum, ađ karlgölturinn hefđi lagst međ sjálfum Handređinum sem vćri hann kona.

En ţar eđ Máría Borgargagn er lítt gefin fyrir ofbeldisverk ţá tók hún ljúflega í erindi hinnar rosknu frúar ţrátt fyrir auđsjáanlegt og fyrirliggjandi ölvunarástand hennar og bauđ henni ađ éta jólaköku međ sér viđ eldhúsborđiđ. Máría skenkti konunni óblandađ Whiskey til ađ skola jólakökunni niđur og kćttist sú gamla ţá um allan helming. Stuttu síđar kom Indriđi Handređur heim og seldi ţá Borgargagniđ honum kerlingarstráiđ í höndur, en ţá var sú gamla orđin ţreifandi full, og fór Hadređurinn međ hana beint í hjónarúm sitt. 

Ćjijá, ţetta er hálf ósiđlegt fólk hún Máría Borgargagn og Handređsfjandinn. Ţau eiga sko eftir ađ finna sjálf sig fyrir ađ lokum. Já.


mbl.is Helena setti allt á hliđina hjá Helga
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur I B Guđmundsson

Vá, bíđ spenntur eftir nćstu sögu!

Sigurđur I B Guđmundsson, 31.1.2021 kl. 21:36

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband