Leita í fréttum mbl.is

Fréttin skall yfir mann eins og voveiflegur brotsjór, segir karlmađur í Vesturbćnum

grjótŢegar ein báran rís er önnur vís. Ţetta spakmćli er einkar viđeigandi nú ţegar sagt er frá ţví ađ grjótkastar hafi fariđ hamförum í íbúahverfi strax í kjölfar ţess ađ Hálfdán Varđstjóri hafđi höndur í hári hryđjuverkaţorpara, sem vađiđ hafđi um byggđir Samfylkingarinnar međ skothríđ af rjúpnabyssu og hćft bifreiđ og glugga međ vopninu. En í ţví Hálfdán Varđstjóri var ađ ţví kominn ađ draga játninguna upp úr ţrćlnum međ glóandi töngum barst hin óhugnanlega frétt honum til eyrna, ađ grjótkastari vćri kominn á stjá og aungin bölvuđ leiđ ađ vita hvort byssukarlinn Samfylkingarinnar og grjótkastarinn hjá Ólafi Guđmundssyni varaborgarfulltrúa Sjálfstćđisflokksins sé ekki einn og sami mađurinn, - ef mann skyldi kalla, ţví ţetta getur líka sem best veriđ fémínísti.

Fréttin af grjótkastaranum hefir komiđ illa viđ marga. Karlmađur í Vesturbćnum fullyrđir ađ umrćdd frétt hafi skolliđ á sér eins og voveiflegur brotsjór. Kolbeinn nokkur Kolbeinsson kvađst hafa setiđ ađ vertshúsi og veriđ ađ eta steik ţegar vertinn bar honum tíđindin og segist Kolbeini svo frá ađ honum hafi svelgst svo á steikinni og víninu, ađ allt hafi frussast úr sér og upp á miđjan vegg í tveggja metra fjarlćgđ. Máría nokkur Borgargagn sat á toileti sínu og heyrđi sagt frá grjótkastaranum í útvarpinu, sem stađsett er í eldhúsinu. Eins og viđ manninn mćlt setti svo mikinn skelk ađ Máríu nokkurri Borgargagni ađ hún fékk freyđandi niđurgang og dćldi öllu úr iđrunum á svipstundu og skjögrađi á eftir fram á gang eins og slćgđur ţorskur.

Ekki bćtir úr skák, ađ Sjálfstćđishetjurnar í Valhöllu vóru rétt nýbúnar ađ reka Ólaf Guđmundsson varaborgarfulltrúa úr öllum nefndum fyrir ađ gera gys ađ skothríđinni á bifreiđina Dags. Ţađ var víst ekki densilegt upplitiđ á Ólafi Guđmundssyni varaborgarfulltrúa Sjálfstćđisflokksins ţegar hann lurđađist dapur í bragđi heim til sín eftir brottreksturinn og hann var varla sofnađur heima hjá sér ţegar stóreflis bjargi er varpađ inn um svefnherbergisglugg hans. Ţiđ getiđ rétt ímyndađ ukkur hvađ svona grjótkast er hćttulegt. En Hálfdán Varđstjóri er knár karl og hraustur og ţekki sitt heimafólk. Ţegar hann fékk tilkynninguna um tilrćđiđ í íbúahverfi Ólafs Guđmundssonar varaborgarfulltrúa Sjálfstćđisflokksins vóđ hann strax úr húsi, og skildi Samfylkingarhrellinn eftir í fangaklefanum, og hljóp inn hjá viđeigandi misyndismanni og dró hann á hárinu út í lögreglubifreiđina. Í ţessum töluđum orđum dundar Hálfdán Varđstjóri sér viđ, ber ađ ofan og angandi af ákavíti, ađ dorga játningarnar upp úr tveimur ţokkapiltum sem hann hefir til međhöndlunar í fangaklefanum.     


mbl.is Rúđur brotnar á heimili Ólafs varaborgarfulltrúa
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband