Leita í fréttum mbl.is

Ţá hefir ţeim tekist ađ buga ljúfling allra sannra samherja

x17Ţarna sjáiđi hvađ ţiđ eruđ búnir ađ gera, bölvađir ódámarnir ykkar. Nú hafa orđ ykkar, andstyggilega ljót og óţverraleg, gert ţađ ađ verkum ađ einn okkar bestu Íslands sona er orđin svo sálarmyrtur eftir ađsúg ykkar ađ honum ađ honum hafa nú fallist höndur og hyggst draga sig frá lífsstarfinu, sem var honum svo kćrt. Já, bölvuđu lítilmennin atarna, ykkar verđur minnst í Helvíti ţann dag sem okkar kćri samherji hrökklast frá kjötkatlinum í hinsta sinn.

Hinsvegar er ţađ alveg hárrétt hjá Kristjáni okkar, ađ ţetta er komiđ gott af hans hálfu í poletikinni. Honum hefir tekist sem sönnum samherja einum er lagiđ, ađ standa dyggan vörđ um hagsmuni samherjanna í kvótamálunum og auđlindaskattinum. Međal annars sýndi hann sinn fagra innri mann ţegar hann hringdi einn morguninn, nćstum ţví upp úr ţurru, í ađalsamherjann og spurđi hann hvernig honum liđi. Ţessi fallega hringing sýndi ţjóđinni hversu ljúft hans hjartalag er og hve sönn samhygđ hans er međ raunverulegum samherjum. Enda sagđi forsćtisráđherra viđ ţetta tćkifćri, ađ hann Stjáni vćri međ gullhjarta.

En nú er komiđ ađ leiđarlokum: Vondir menn og enn verri konur hafa hrakiđ Stjána af leiđ og má segja ađ hann komist ekki lengra, sitji fastur ofan í skurđi, samherjaskurđi. Í dag hrćrast hjörtu vor til samúđar og međaumkunar međ Stjána, enda erum vér öll samherjar hans ţegar öllu er á botninn hvolft. Ţó er huggun harmi gegn, ađ enn hefir óţjóđalýđnum ekki tekist ađ buga sjálfstćđishetjuna Bjarnaben, og Gölle a. er enn ađ öllu leyti ódauđur, sem og hnáturnar sem ţamba hvítvín, éta humar og öskra eins og naut af frjálshyggjukvölum. En humar er óţverramatur og eiginlega ekki matur, ţví kvikindiđ humar lifir á ţví ađ éta hrć. Vér skulum samt ţrauka gegnum sorgarferliđ sem ađ oss er rétt og heita ţví ađ hefna Stjána bónda og ryđjast međ vopn á höndur andskotum hans og óvildarskepnum.


mbl.is Kristján Ţór fer ekki fram
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband