Leita í fréttum mbl.is

Gjörđu kröfu um ađ ódámurinn vćri bađađur áđur en ţátturinn hćfist

tv1Eitt sinn gerđu  hálfvitlausir galgopar á einhverri blábjánastöđinni sér hćgt um hönd og fengu Brynjar Vondulykt í sérkennilegan viđtalsţátt ásamt tveimur uppskrúfuđum glimmerlontum úr Valhallarbarbaríinu, angandi ađ Tortólulykt. En ţegar Vondalyktin mćtti á stađinn ćrđust stúlkukerlurnar úr Valhöllu, ţví ţćr eru vandar ađ fínni virđingu sinni og skipuđu ţáttarstjórnendunum ađ fara međ ţetta ,,helvítis kvikindi", og áttu viđ Brynjar Vondulykt, og bađa ţađ upp úr klór áđur en settust međ honum í útvarpsspjall, ţví ţeim vćri strax fariđ ađ súra í augum ađ hafa ţetta fjandans viđrini nálćgt sér.

Nú var úr vöndu ađ ráđa fyrir stjórnendur og ekki vćnkađist hagur Strympu ţegar Vondalyktin lagđist ţungt gegn ţví ađ fara ađ kröfu kvensniptanna og taka sér bađ. Ţađ var ţá sem öđrum stjórnandanum hugkvćmdist ađ hringja í frú Ingveldi og Máríu Borgargagn og stefna ţeim niđur á útvarpsstöđina til ađ gá hvort ţćr gćtu ekki haft áhrif á gang mála og rekiđ andskotans Vondulyktina ađ minnsta kosti til ađ maka á sig grćnsápu og skola hana síđan af í sturtu. En Brynjar Vondalykt var ţrárri en versta sauđkind ţennan dag og svarađ frú Ingveldi og Borgargagninu međ klámi og svívirđingum og loks hótunum um ađ segja opinberlega frá ólifnađi ţeirra, hórdómi og víđfeđmri kynvillu í útvarpsţćttinum, sem nú ćtti rétt bráđum ađ fara í loftiđ. Ţćr frú Ingveldur svöruđu brigslyrđum og skćtingi Vondulyktarinnar međ ţví ađ teyma hann niđur í kjallara og ausa hann ţar vatni og fóru međ skrubbu á skapti á hann og hreinsuđu hann vel og vandlega; ţađ var haft til marks hvađ vönduđu verk sitt, ađ ţćr brúkuđu salernishreinsilút til ađ skafa kleprana af karlinum.

ing17Er hreinsunarátaki var lokiđ, settist Brynjar millum hinna heldu rosknu og uppskrúfuđu glimmergimbra úr Valhöllu og ţátturinn fór í loftiđ. Til ađ byrja međ virtist allt ćtla ađ fara vel, fraukurnar töluđu settlega og virđulega um áform Sjálfstćđisflokksins, en Vondalyktin horfđi óhlutdrćgur á svipinn út í loftiđ, nýbađađur og elegans. En svo tók helvítis endemiđ til máls og hóf, öllum ađ óvörum, eina mikla gagnsókn á höndur frú Ingveldar og Borgagnsins, sem sátu í mesta sakleysi frammi á kaffistofu og drukku sér kaffi međ smá-handsprittslögg útí. Ţađ var ekki fyrr en síđar um daginn sem ţćr fréttu af munnsöfnuđi Vondulyktarinnar í ţeirra garđ; en í ţeirri orđrćđu var fátt annađ á dagskrá en meint líferni ţeirra, sem Vondalyktin kvađ hraksmánarlegt og fullt af kynferđislegu óeđli, sem hann lýsti fjálglega í óţarflegum smáatriđum, og gleymdi ekki ađ tvinnan skammarlegri drykkjufýsn ţeirra og eiturlyfjanautn saman viđ óhugnađinn. Ţađ ţarf ekki ađ rekja hvernig frú Ingveldur og Máría Borgargagn brugđust viđ ţessari fólskulegu árás á ţćr, en svo mikiđ er víst ađ Brynjar Vondalykt sást ekki á almannafćri í marga mánuđi á eftir og fínlegur lonturnar út Valhöllinni hafa hvorki heyrst né sést í fjölmiđlum síđan.   


mbl.is Forsćti Katrínar skilyrđi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband