Leita í fréttum mbl.is

Drukknađi inn í Sjálfstćđisflokkinn og yljar sé nú viđ brjóst Mammons

judas1_847810.jpgOg óverđursskýin hrannast upp yfir Klaustri Miđfótunga, sem kennt er viđ heilagan Sigmund Davíđ. Ekki er nóg međ ađ landsmenn hafi í nýliđnum kosningum gjört ađsúg ađ Miđfótungum og hér um bil kosiđ ţá út af ţingi, heldur hefir nú einn klausturbrćđra, gjörst einn Júdas og svikiđ sinn herra ţegar verst stóđ á. Nú húka ţeir tveir viđ tíđasöng í Klaustrinu, heilagur Sigmundur og Beggó, sem er ţó hvergi öruggur, en ekki er öldungis útséđ hvort hann heldur ţingsćti, ţví kjörstjórn Sjálfstćđismanna í Norđvesturkjördćmi taldi illa og passađi atkvćđaseđlana enn verr.

En nú berst oss sem sé sú afleita og ljóta frétt, ađ einn klausturbrćđra, háheilagur Biggi frćndi Guđmundar Brynjólfssonar, hafi í nótt hrokkiđ fyrir borđ, ţá er ţeir höfđu einusinni sem oftar, róiđ út á Genesaretvatn íslenskrar poletikur. Skipti heldur aungvum togum ađ Biggi og drukknađi inn í Sjálfstćđisflokkinn. Hann er nú í Valhöllu og ţurrkar klćđi sín viđ yl frá Mommons hlýja barmi. En Sigmundur Davíđ og Beggó komust viđ illan leik í land á löskuđu skipi og í fjörunni biđu ţeirra skrímsl, afturgöngur, Bára međ símann og tilberi frá gömlu Framsóknarmaddömunni og gjörđu hróp ađ skipbrotsmönnum og hrintu ţeim til og frá um flćđarmáliđ.

judas.jpgŢađ stefnir ţví hrađbyri ađ ţví ađ Klaustur Miđfótunga og sánkti Sigmundar leysist upp og líđi undir lok, svo mjök riđar ţađ til falls, enda íllt ađ eiga eintóma júdasa ađ vinum. Aunginn flokkur vil neitt međ ţađ hafa ađ innbyrđa Sigmund Davíđ og Beggó, nema ef til vill VG eđa Fokkur Fólsins. Nei, vinir mínir, aunginn flokkur býr svo vel í dag ađ hafa skrokk sem passar hinum skipreika klausturjúnkum. Ţá hefir gamla Framsóknarmaddaman látiđ slag standa og bannfćrt Sigmund Davíđ og bannađ honum legstađ í Fjóshaugnum Framsóknarfjóssins. En hin auma kind, sporgöngumađur Júdasar Ískaríots, sem í nótt sveik sinn meistara, hann fćr um nú um hádegisbil greidd sin laun, ţrjátíu skildinga silfurs, sem hann leggur eflaust samstundis inn á Mammoni ţóknanlegar reikning á Tortólu eđa Seychelleseyjum. Mađurinn verđur náttúrlega ađ fá ađ ávaxta sitt pund í friđi fyrir íslenskum skattalögum.


mbl.is Birgir skilur viđ Miđflokkinn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband