Leita í fréttum mbl.is

Donkíkódíískur Amríku-Viddi í Kastljósi

donVar það erindi Amríku-Vidda og Bandaríkja-Sollu inn í Eflingu að fara í stríð við skrifstofufólkið þar? Ég get ekki að því gert, en mér þókti málflutningur Amríku-Vidda óttalega eitthvað Donkíkódíískur í Kastljósinu í kvöld og greinilegt að maðurinn er ekki alveg upp á rönd. Að kenna fáeinum kontóristum um að hann og Bandaríkja-Sólveig hafi skitið í sig og út um öll gólf, eru blátt áfram brjóstumkennanlegar viðbárur, sem minna helst á óráðshjal langdrukkins manns.

En það var svo sem ekki við öðru að búast en að svona færi. Fólk sem leggur upp í ferð með hrokann og yfirlætið sem leiðsögumenn endar oftast fyrir heimsku sinnar sakir ofan í djúpri mógröf þar sem menn hafa áratugum saman fleygt hundsskrokkum í. Það var til dæmis ekki beint vísindalegt, hvað þá heimspekilegt, hjá Bandaríkja-Sollu að ráða vinkonu sína sem skrifstofustjóra á Eflingarkontórinn og reka hana stuttu síðar og senda hana heim með níu mánaða starfslokasamning upp á vasann; það er líklega hátt í tíu millijonir króna, og ætla svo að leyna gjörningum fyrir stjórn félagsins. Enn hrapalegri mistök af hálfu Sólveigar var að hafa Amríku-Vidda með sér í þessa ferð og gera hann að einhverjum yfirkommissar á kontórnum. Það góða við þetta allt saman, er að nú fá þau bæði, Bandaríkja-Solla og Amríku-Viddi dýrlega starfslokasamninga hjá stjórn Eflingar fyrir að gefast upp með blautan botninn og svíkja fólkið sem gerði miklar væntingar til Sollu; Viddi var ekki kosinn af neinum, enda aldrei komist svo hátt á þroskabrautinni að dýfa hendi í kalt vatn.

En nú er þessu ömurlega ævintýri lokið og búið að strika nafn Bandaríkja-Sollu út úr bókum Starfsgreinasambandsins og Alþýðusambands Íslands. Það er enginn smá-árangur og upphefð að liggja í svaðinu fyrir örfáum afgömlum glugghrossum á skrifstofukontór og grénja og barma sér undan þeim. Það hefði eitthvað orðið lítið úr þessum byltingarhetjum hefðu þær fyrir tilviljun mætt þeim Gunnari, Gretti, Glámi og Skarphéðni, að viðbættum Agli Skallagrímssyni. Næsta vers er svo að taka Sósíalistaflokk Íslands af fémínístagroddunum, Gunnsasmára, Bandaríkja-Sollu og Amríku-Vidda og skila honum til sósíalistanna. Það dugar ekki að hafa Sósíalistaflokk Íslands í klístruðum lúkunum á hálfvitlausu fólki. Nei, það dugar sko ekki. 


mbl.is Segir ofbeldismenningu þrífast innan Eflingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband