Leita í fréttum mbl.is

Mikill er Sathan en verri eru flatlendingar á Hollandi

run1Ekki mun þetta í fyrsta skipti sem Rotterdammur við Másfljót hefir reynst Íslendingum ofjarl. Jón hérna okkar frá Rein á Hvalfjarðarbökkum fór líka flatt á Hollendingum í þessum voðalega stað og mátti þakka fyrir að halda lífi eftir viðskipti sín þá djöfla.

Fótboltalandsliðið okkar var svo sem eins og timbraður útigangshundur í kveld og því létt verk og löðurmannlegt fyrir Hollendinga að yfirspila og kaghýða veslings drengina okkar, niðurlægja þá og smána og gjöra þá að algerðu athlægi um gjörvöll Niðurlönd. Fyrr má nú vera að rassskella piltana, nýbúna að troða Englendinga undir fótum sér, fjégur núll, og sennilega ræna af þeim gjaldeyrinum sem vesalingar ætluðu að gjöra sér glaðan dag með á vertshúsum með kvennaþjónustu.

fleng1En allt um það, þá er út af fyrir sig allt í lagi fyrir unga stráka að gera í sig í erlendum höfnum og lítið við því að gera, fyrir nú utan að þessháttar útreið er svo sem ekki einsdæmi. Hvernig fór ekki fyrir fulla drengnum sem tók misgrip á húsum og kom út með buxurnar á hælunum og blóðrauða þjóhnappana? Hann skreið upp í hjónarúmið og fór í algjörum misgripum að eiga við húsbóndann þarna undir sænginni. Karlinn brást við reiður, hlustaði ekki á neinar afsakanir, en reif niðrum okkar pilt og misþyrmdi honum með ofbeldisflengingu, og kérlíng hans stóð hjá og hló og hvatti karldjöfulinn, sem þurfti þó ekki því þessi húsbóndi naut þess innilega að handfjatla aumingja strákinn sem fór húsavillt á heldur misheppnaðri skemmtigöngu sinni.  


mbl.is Holland reyndist ofjarl Íslands í Rotterdam
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband