Leita í fréttum mbl.is

Kvennamanni byrluð hormónadepandi upplausn.

Fyrir dag frú Ingveldar var Kolbeinn svo mikið kvennagull, að allar vildu meyjarnar eiga hann. Og þó að Kolbeinn væri afburða sviphreinn og heiðarlegur í andliti og fas hans allt traustvekjandi, einlægt og aðlaðandi, var hann slóttugur eins og gamall refur og gjörnýtti kvenhylli sína á miskunarlausan hátt. Hann hafð gjarnan nokkrar í takinu í einu, sem hann fór á milli og fíflaði og flekaði að vild sinni. Svona gekk þetta fyrir sig í nokkur ár, eða allt þar til hann kynntist frú Ingveldi. Eftir það var engu líkara en hann hefði gengið á vegg, verið vængstýfður og brotinn á bak aftur. Það lék jafnvel grunur á að frú Ingveldur hefði strax í upphafi byrlað verðandi bónda sínum hormónadrepandi upplausn, sem gerði það að verkum að kynkirtlar hans drógust saman um 80%. Og ... hefur Kolbeinn verið til friðs á kynlífssviðinu síðan, eða svona hér um bil.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband