Leita í fréttum mbl.is

Með blóðbragð í kjaftinum

dog1Sko strákinn Óbama, hann ætlar að styðja ísraelsmenn, verði hann forseti, til að halda áfram að berja á palestínumönnum, öðruvísi er ekki hægt að skilja drenginn. Og auðvitað ætlar hann að hindra með öllum ráðum að íranar smíði sér kjarnorkuvopn, þannig að dágóðar blóðsúthellingar koma vel til greina frá sjónarhóli Baracks litla. Allt hljómar þetta hjal kunnuglega og gæti allt eins hafa komið útúr trantinum á Georgi Bush eða skjátunni Kondomlessu, vinkonu formanns Samfylkingarinnar.

Meðfylgjandi mynd sýnir hund nokkurn míga á skilti merkt Georgi Bush. Ætli sé ekki best að leyfa honum að míga líka á samsvarandi skilti frá Baracki og Hillarýju? -Jú ég held það. 


mbl.is Obama heitir Ísrael stuðningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þú ert of öfgafullur, eða ertu bara fullur? Vinátta Ingibjargar og Kondólessu eru líka öfgar. Kondí er diplómat, Ingibjörg er bara plat á heimsreisu.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.6.2008 kl. 20:19

2 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Vilhjálmur. Þegar þú talar um öfgamenn ert þú svo sannarleg að kasta steini úr glerhúsi. Ég held að það sé augljóst öllum heilvita mönnum, sem lesa blogsíðu þína. Þú gerir mikið af því að kalla  menn öfgamenn, gyðingahatara, hryðjuverkamenn, stuðningsmenn hryðjuverka, og stuðningsmenn ætlunarverka Hitlers, sem gera það eitt að reyna að koma með málefnanlega umræðu á blogsíðu þinni og leiðrétta lygaþvæluna, sem þú lepur upp frá áróðursmaskínu Ísraela á síðunni þinni.

Þegar þú síðan gefst upp með að hrekja það, sem þeir segja enda um sannleika að ræða þá lokar þú fyrir aðgang þeirra að síðunni. Þú ert ekki að reka málefnanlega umræðu á síðunni þinni heldur ert þú að reka áróðurssíðu og lokar á alla, sem skemma fyrir áróðrinum.

Sigurður M Grétarsson, 4.6.2008 kl. 21:20

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Kæri Vilhjálmur, ég er hvorki fullur né öfgafullur. Það eru víst nógu margir um að halda slíkum merkjum á lofti þó að ég taki ekki þátt í þeim leik. En Ingibjörg Samfylkingar yljar mér vissulega um hjartarætur með tiltektum sínum eftir hún varð ráðherra.

(Athugasemd: Orðið, ,,ráðherra," hér fyrir ofan, er kvenkyns nafnorð og beygist: ráðherra, ráðherru, ráðherru, ráðherru.)

Jóhannes Ragnarsson, 4.6.2008 kl. 21:30

4 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sigurður M Grétarsson úr Kópavogi, þar sem ástandið er ekki miklu betra en á Gaza, farðu yfir á blogg Johnny Rebels, nýnasista sem er á svipuðu stigi og þú http://rebel.blog.is/blog/rebel/entry/559664/ og alveg sammála þér um heimsmálin og hann hatar Ísraelsríki á sama hátt og þú "vinstri maðurinn" . Það er styttra á milli öfganna en maður heldur.

Þar er mættur nasisti og gyðingahatari, sem kallar sig Skúla, sem skrifar m.a.

"Þú ert ágætur, Villi littli, og einhvern tímann munu hendur mínar umlykkja þig "

Kannski er þessi Skúli líka slappur í stafsetningu, en ég held nú samt að boðskapurinn sé klár. Hann ætlar einhvern tíma að setja lykkju um háls mér.  Nú skildi hann eftir lykkju sem heitir IP-tala og hana mun ég hér með biðja forráðamenn bloggsins að rannsaka og sjá til þess að maðurinn á bak við hana verði settur í samband við tilheyrandi yfirvöld sem ber að rannsaka menn sem eiga í eins miklum vanda  og þessi Skúli með IP töluna.

Nú þykir mér bloggheimur vera orðin heldur öfgafullur. En kannski viltu hjálpa honum Skúla Siggi minn?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 5.6.2008 kl. 05:40

5 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Vilhjálmur. Það koma rugludallar inn á allar blogsíður og er sjálfsagt mál að loka á þá. Sérstaklega á það við þegar um hótanir er að ræða hvort, sem þær eru dúlbúnar eða ekki.

Þú ert hins vegar einn af þeim, sem lokar á menn fyrir það eitt að vera þér ósammála um málefni Ísraels og Palestínu og þá sértaklega þá, sem færa málefnanleg rök fyrir sínu máli, sem erfitt er að hrekja vegna þess að þau eru sannleikurinn í málinu. Reyndar hefur þú fyrst stundað það að kalla menn alls konar ónöfnum algerlega að ósekju áður en þú lokar á þá. Ég hef séð mörg dæmi á bloginu og á öðrum spjallþræðum þar, sem slíkir menn hafa talað um það. þar fara menn, sem eru algerlega lausri við öfgar of koma með málefnanlega umræðu í málinu og eru þar með velkomnir á allar umræðusíður um málefnið þó þeir séu óvelkomnir á nokkrum áróðurssíðum eins og þinni.

Hérna tekur þú dæmi um einhvern Skúla, sem er með hótanir í þinn garð. Getur þú vísað í einhver skrif frá mér þar, sem ég hóta einhverjum? Þú hefur kallað mig gyðingahatara, terrorista, hryðjuverkamann, öfgamann og sagt mig sammála ætlunarverki Hitlers. Getur þú bent á einhver skrif eftir mig, sem bakka þessar fullyrðingar þínar upp?

Einnig væri gott að þú færðir rök fyrir því að ummæli Sveins Rúnars Haukssonar, sem þú vitnar í á síðunni þinni séu gyðingahatur eins og þú fullyrðir þar. Það er ekki einu sinni minnst á gyðinga í þessari grein. Þetta er aðeins málefnanleg og verðskulduð gagnrýni á grimmdarverk Ísraela. Hvernig færð þú það út að þetta sé "gyðingahatur"? Ekki vitna í eitthverja nefnd, sem flokkar gagnrýni á Ísrael undir gyðingahatur vegna þess að gagnrýni á þjóðríkið Ísrael getur aldrei, sem slíkt flokkast undir hatur á trúfélgi gyðinga.

Þetta er bara einhver nefnd, sem styður Ísraela og er að hjálpa þeim við að gera lítð úr gagnrýnendum þeirra með því að ata þá auri.

Sigurður M Grétarsson, 5.6.2008 kl. 11:21

6 Smámynd: Skattborgari

Vilhjálmur er fylgjandi málfrelsi ef það hentar hans skoðunum og skoðunum Ísraels virðist vera. Johhnny Rebel var öfgafullur eins og Vilhjálmur er helsti munurinn á þeim 2 er að Johnny Rebel leyfði allar athugasemdir hvort sem honum líkaði þær eða ekki.

Skattborgari, 10.6.2008 kl. 22:57

7 Smámynd: Skattborgari

Íran á ekki að fá að koma upp kjornorku vopnun en það var mun meiri ástæða til að stoppa Ísrael í því.

Helsta ástæða þess að Iran er að hugsa um kjornokuvopn er að því að þeir eru hræddir við usa. Ef ég er hræddur við að nágranni minn ráðist á mig til að drepa mig þá fæ ég mér auðvitað skotvopn til að verja mig þetta er bara stærri skali mun stærri. 

Skattborgari, 10.6.2008 kl. 23:52

8 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Æjá, ég er enn ekki búinn að gleyma hvernig til tókst þegar hryðjuverkaríkið BNA réðist inn í Írak á þeirri forsendu að koma í veg fyrir að Saddam sálugi Hússein kæmi sér upp kjarnorkuvopnum. Enn hafa engin merki fundist um kjarnavopnagerð Saddams heitins, þess í stað hafa glæpamennirnir í Washington leitt ólýsanlegar hörmungar yfir Írak.

En hvað áttu við, Einar Einarsson, þegar þú segir, að ,,athyglisvert sé að fylgjast með skrifum manna sem gæla við gyðingahatur en kalla það stuðning við Palestínu"? Hverjir eru þessir menn og hvernig kemur gyðingahatur þeirra fram?  

Jóhannes Ragnarsson, 11.6.2008 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband