Leita í fréttum mbl.is

Karlskröggur hleypur undir stætisvagn sér til heilsubótar

liggÞað sem er tvímælalaust merkilegast við þessa skemmtilegu frétt er, hvað þessi eldri skröggur var að gera með að hlaupa eins og blindur hani fyrir strætisvagn. Enda koma á daginn, að hann hafði ekkert útúr því annað en að verða undir strætisvagninum og stórslasa sig. Þáttur læknisins er ekki síður aumkunarverður. Sá góði maður á fulla sök á að bílnum var stolið af honum því hann lét undir höfuð leggjast að taka lyklana með sér þegar hann hljóp til að snuðra utaní gamla skrögginn, sem hreyfði sig ekki par eftir að strætisvagninn hafði afgreitt hann. Eini maðurinn sem var með fullu viti á staðnum var náttúrlega sé er stal bílnum; það er sko drengur sem kann að hugsa rökrétt og brást hárrétt við á ögurstundu. Og hvað átti hann annað að gera þegar hann sá læknisflónið hlaupa í brott frá bifreiðinni eins og hann væri með ErkiDjöfulinn á hælunum? 
mbl.is Stal bíl læknis sem hlúði að slösuðum vegfaranda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband