Leita í fréttum mbl.is

Jósef svívirðir Eið og Íslensku þjóðina

ill2Það má ljóst vera að þorparinn Jósef Gardíjóla ætlar sér að níðast á Eiði okkar Guðjóhnsen ekki síður en þokkapilturinn Fránk Ræjkharð. Það var vægast sagt hræðilegt að horfa uppá hvernig Ræjkharð niðurlægði Eið í gríð og erg með því að hafa hann á bekknum eða hafa hann ekki á bekknum en alls ekki inni á vellinum, leik eftir leik. Nú ætlar óþokkinn Gardíjóla að taka upp þráðinn þar sem Ræjkharð hvarf frá honum og halda áfram að svívirða Eið Smára og þar með gjörvalla Íslensku þjóðina. Svona hraksmánarlegt háttarlag getur stolt þjóð og frjáls ekki látið við gangast til lengdar. Það er einfaldlega nóg komið.
mbl.is Eiður kom ekkert við sögu í 4:0 sigri Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband