Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
30.12.2008 | 17:29
Geðug fegrunarnefnd atarna
Geðug fegrunarnefnd atarna, verkuð og soðin í kokkhúsinu í Valhöll. Það held ég verði ljóta hundbelgjarglásin sem hún skilar af sér um bankahrunið, það er að segja ef hún skilar nokkurntímann nokkru af sér. Ég er fjandi hræddur um að þarna sé á ferðinni fyrirbæri af sömu tegund og Fjármálaetirlitið og Fiskistofa, semsé: Sígild hvítflibbaþvottastöð.
Hvernig í ósköpunum stendur á að almenningur á ekki einn einasta fulltrúa í þessari nefnd? Jú, nefndinni er ekki ætlað að upplýsa almenning um neitt sem við kemur bankatrallinu mikla. Almenningur á bara að halda kjafti og borga skemmtunarkostnaðinn.
Rannsóknarnefndin fullskipuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2008 | 23:19
Vér óskum eftir kínverskum bændum til Íslands
Við romsuna um viðskipti Kínverja og Afríkumanna er því að bæta, að Íslendingar hafa líka átt í viðskiptum við vini okkar þarna suðurfrá. Við höfum selt Afríkufólki herta þorskhausa og beingarða í miklum mæli, ásamt ýmsu öðru smálegu. Og Íslenskir höfðingjar hafa ekki látið þar við sitja: þeir hafa sent Afríkumönnum sjómenn til að stunda fiskirí. Það stefnir því allt í ægilegt kapphlaup milli Kínverja og Íslendinga um yfirráð í sjálfri vöggu mannkynsins, Afríku.
Nú, svo er orðið afar dauflegt í sveitum Íslands: Þar sem áður var búið á hverjum bæ liggur nú við landauðn, hver hreppurinn af öðrum er annaðhvort hálftómur eða galtómur. Það yrði mikil blessun ef Kínverjar vildu vera svo vinsamlegir að senda út hingað svo marga bændur að allir dalir landsins yrðu fullir af kínversku lífi og fjöri.
Flytja út bændur til Afríku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2008 | 21:10
Drottinn blessi og varðveiti
Engar ólögmætar færslur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Hvern fjandann á það að þýða hjá Efnahagsbrotadeildinni að vísa umræddu máli til Fjármálaeftirlitsins? Er það liður í fela ófögnuinn fyrir almenningi? Gerir fólk sér almennt grein fyrir að Fjármálaeftirlitið er fyrst og síðast förðunarstofa fyrir gjörspillt og glæpsamlegt kapítalískt efnahagskerfi, líkt og Fiskistofa er fegrunarverkstæði fyrir kvótakerfið og kvótaþrjótana í LÍÚ? Þessar glæsilegu stofnanir eru einungis til að verja ríkandi kerfi og gefa því heilbrigðisvottorð sem engin innistæða er fyrir, en ekki til að hafa eftirlit með og stöðva misferli eða annann ósóma innan vébanda hins heilaga auðvaldskerfis.
Það góða er, að byltingin bíður handan við hornið og þegar hún hvolfist yfir verður hreinsað út svo um munar ...
Gátu ekki tapað á samningunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2008 | 14:53
Álskrukka hædd með oflofi
Það er þekkt aðferð að hæðast að fólki með því að hlaða það oflofi. Ég fæ ekki betur séð en dómnefnd svo kallaðrar ,,Frjálsar verslunar" hafi brugðið á leik þegar hún ákvað að útnefna álskrukkuna Rannveigu Rist mann ársins 2008 því oflof dómnefndarinnar um álskrukkuna er í slíkum himinhæðum að til fullkominnar stórháðungar má telja. Fyrir nú utan hversu hlægilegt það er að gera einfaldann lepp alþjóðlegs auðhring að manni ársins í íslensku atvinnulífi. Þvílíkt glens, þvílíkt gaman! Pírumpáruð álskrukka maður ársins!!! Meira að segja Spaugstofan hefur ekki yfir að ráða nægileguhugmyndaflugi til að láta sér detta slíkann súrrealisma í hug.
Ef einhver á skilið titilinn ,,maður ársins í atvinnulífi" þá hlýtur slíkur einstaklingur að koma úr röðum fiskverkafólks eða sjómanna.
Rannveig Rist maður ársins hjá Frjálsri verslun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2008 | 13:47
Hagspekiblábjánar með pungaprófsgráðu frá ,,háskólum.
Þeir eru ekki hættir í helvísku morgunkorninu sínu blábjánarnir í Glitni. Hvað þarf eiginlega að gerast svo spámenn frjálshyggjunnar láti sig hverfa af vettvangi? Ég er farinn að halda að það verði að draga þessar skepnur út á skottinu og færa þær endurvinnsludeild Sorpu svo að þeim lærist að halda kjafti í eitt skipti fyrir öll.
Það þarf enga hagspekiblájána með pungaprófsgráðu frá ,,háskólum" til að greina ástandið sem uppi er. Sökudólgurinn er kapítalisminn. Það kemur út á eitt hve mörgum viðskipta- og hagspekingum hið kapítalíska ,,háskólasamfélag" ungar út, kapítalisminn mun aldrei ná því takmarki að verða stöðugur, eilífur og fólki bjóðandi; hann er dæmdur til mistakast svo frumstæður sem hann er. Efnahagskreppum er engan veginn hægt að líkja við uppáfallandi náttúruhamfarir, þær eru órjúfanlegur fylgifiskur kapítalismans - þjóðfélagslegar farsóttir sem enginn möguleiki er á að losna við nema þjóðfélagskerfi auðvaldsins verði afnumið.
Ár efnahagshamfara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2008 | 09:41
Axlar-Jón
Ósköp held ég axlirnar á honum Jóni okkar hérna Ásgeiri yrðu signar ef hann tæki alla ábyrgðina af eigin gjörðum á bakið. Ég hef bara enga trú á að strákanginn hafi nægilega sterkar axlir og hryggsúlu til að halda öllum þeim býsnum uppi; hann myndi ekki einusinni þola að taka eins og eitt akkeri af lúxussnekkju á áxlirnar, hvað þá meir.
En eitt gæti Jón Ásgeir þó gert sér til vegsauka, án þess að skaða stoðkerfi líkama síns, en það er að læra að skammast sín. Það gæti hugsast að einhverjir virtu það við þennan hraðskreiða hlaupastrák að hann sýndi eitthvað af sér sem líktist iðrun.
Jón Ásgeir tekur dóma nærri sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2008 | 09:00
Frú Kondomlessa á leið í íslensku utanríkisþjónustuna
Frábær kona frú Kondomlessa Ræs og veit hvað heiminum er fyrir bestu. Auðvitað hefur hún lög að mæla þegar hún segir að ,,brátt muni fólk þakka Geogi Bush velgjörðir hans í þágu mannkyns." Þó það nú væri. Georgi Bush verður seint fullþakkað framlag hans til morða og sríðsglæpa í fjarlægum löndum, það eru mikil afrek sem síst ber að forsmá. Og í stjórnartíð Georgs hrundi kapítalisminn út um víðan völl og sér ekki enn fyrir endann á þeirri guðsblessun.
En nú líður senn að því, að hin elskulega kona, Kondomlessa Ræs, verði atvinnulaus því ekki ætlar þorparinn Óbama að nýta sér starfskrafta hennar og reynslu. En sem betur fer á Kondomlessa vinkonu sem er jafn frábær og hún sjálf, en þar á ég að sjálfsögðu við jabnaðarjúnkuna I. Sól Gýrszladóttur sem er sannkallaður haukur í horni þegar vinkonur hennar eiga hlut að máli. Það væri allsengin goðgá þó frú I. Sól tæki sig til nú um áramótin og skipaði hina atvinnulausu Kondomlessu sendiherra Íslands í einhverju valikunnu landi. Það yrði mikill vegsauki fyrir Ísland á alþjóðavettvangi og stórbrotið bjargráð í þeim voðalegu þrengingum sem auðvaldsskipulagið hefur kallað yfir þjóð vora.
Bush verður þakkað, segir Rice | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.12.2008 | 21:59
Félagi Stalín er ennþá hér
Það ætti svosem engum að koma á óvart þó félagi Jósef Stalín sé talinn til helstu mikilmenna Rússlands, fyrr og síðar, og sé vinsæll þar eystra eftir því.
En hræddur er ég um að Davíð Oddsson og Gjeir Haaarde, að maður tali nú ekki um Halldór Ásgrímsson og Finn Ingólfsson, nái því seint hafna í einu af þremur efstu sætunum í kosningu um vinsælasta ,,sögulega" íbúa Íslands.
Stalín kjörinn þriðji vinsælasti Rússi allra tíma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.12.2008 | 17:44
Krónhirtir væru upplagðir á Suðurnesjum
Það var heldur betur að Ferðamálasamtök Suðurnesja stungu fingri í rangann þumal þegar þeim datt í hug að sleppa hreindýrahjörð lausri á Raykjanesi. Það vill svo til að við eigum nóg af hreindýrum austur á landi og við þann villidýrastofn þarf engu að bæta.
Afturámóti eiga Ferðamálasamtök Reyknesinga að einheda sér í að panta þrjá skipsfarma af krónhjörtum til að lífga uppá eyðimörkina hjá sér. En þó verður stjórn Ferðamálasamtakanna að pasa sig vel á krónhjörtunum þegar búið verður að sleppa þeim lausum því kvikindin eru blóðmannýg og stórhættuleg. Ég get ekki hugsað þá hugsun á enda ef einhver krónhjörturinn tæki sig til og færi að elta formann Ferðamálasamtaka Suðurnesja með það í huga að stanga úr honum líftóruna. Þá væri betur heima setið en af stað farið.
Ef Suðurnesjamenn hafa einstakann áhuga á að auðga dýralífið hjá sér væri tilvalið fyrir þá að fá sér breska rauðrefi eða bara einhverja skemmtilega músategund sem ekki er mannskæð.
Vara við hugmyndum um hreindýr á Reykjanesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Í dag tók séra Atgeir fryggðina í misgripum fyrir friðinn
- Á meðan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hve...
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 18
- Sl. sólarhring: 172
- Sl. viku: 1258
- Frá upphafi: 1542518
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 1111
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007