Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008
17.4.2008 | 07:46
Rugl - kvótarugl?
,,Hluti af ruglinu" segir Þorsteinn Már kvótafursti, um ríflega peningaupphæð sem Glitnir gaukaði að einhverjum norskum þurfaling.
Hinsvegar minnist Þorsteinn Már ekkert á fiskveiðistjórnunarruglið á Íslandi, sem er ekki minnsti hlutinn af fjarmálasukki og rugli síðustu ára. Það er full ástæða til að hvetja samherjaforstjórann til að hjóla í kvótaruglið og upplýsa fólk hvernig sú starfsemi gengur fyrir sig.
Hluti af ruglinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.4.2008 | 21:45
Þorparinn Benedikt og Georg vinur hans
Ó, hvað það er skemmtileg tilviljun að þorparinn Benedikt páfi XVI skuli heimsækja morðvarginn og trúvillinginn Georg Bush fyrstan manna af stétt þjóðhöfðingja. Þetta sýnir, svo ekki verður um villst, að hans heilagleiki er ekkert blávatn og telur ekki eftir sér að gleðja kunningja sinn, sjálfan Erki-Djöfulinn, sem síðast var til heimilis í Helvíti, að því er talið er.
Ekki er að efa, að hinn Heilagi Faðir og Georg Bush munu skrafa ýmislegt gott í bróðerni um aflífun múslima og tilkomumikið sprengjuregn yfir fólk af því sauðahúsi. Þá er ekki ólíklegt, Benedikt XVI, ambassador heilagrar þrenningar á jörðu, syngi Georgi vini sínum hátíðarmessu fyrir dásamlega innrás innrás hans, og hinna viljugu þjóða, í Írak. Á þeirri tilkomumiklu stundu mun engum detta guðlast í hug.
Já piltar mínir, það er ekkert slor að vera innundir hjá hans guðdómlega heilagleika, Benedikt XVI.
Páfi kominn til Bandaríkjanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.4.2008 | 12:17
Bin Ladenstrákurinn og roskna konan
Sko bara litla Laden, hann hefir verið svo forsjáll að ná sér í roskna konu, sem er líklega tryggilega komin úr barneign. Það má með sanni segja, að ekki eru allir karlmenn svo skynsamir, að afla sér kvonfangs í hópi kvenna sem komnar eru við aldur. En menn af Osamabinladenættum láta ekki að sér hæða þegar kemur að merkisatburðum sem skipta máli. Gamli bin Laden er t.d. einhver sú alhroðalegasta grýla sem kapítalistum á Vesturlöndum hefur tekist vekja upp. Og svo er binladengrýlan römm að kröftum, að á hana bíta engin vopn, ekki einusinni kjarnorku- og napalmsprengjur, hvað þá byssukúlur eða tundurskeyti.
En af því að ladenarnir eru eins kröftugir og raun ber vitni, gæti vel hugsast að litli Laden ætti eftir að barna sína öldruðu eiginkonu, jafnvel þó hún sé algjörlega komin úr barneign. Annað eins hefir nú gerst ...
Sonur bin Ladens fær ekki að koma til Bretlands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2008 | 07:19
Áföll, ferðagleði og músagangur
Ætli stórkostleg ferðagleði íslensku ráðherrana stafi af því að þeir séu í ,,áfalli" og ,,viti ekki sitt rjúkandi ráð" eins og fjármálaráðherrarnir sem komu saman til fundar í Wasington um síðustu helgi? Einnig væri gaman að vita hvort okkar ástsæli fjámálaráðherra, Árni M. Mathiesen, hafi verið meðal fjármálaráðherranna sem vissu ekki sitt rjúkandi ráð.
Annars hefur verið hljótt um Árna okkar uppá síðkastið og sem betur fer ekki annað að sjá en hann sé fjarri því að vera í áfalli, hvað þá að rjúki upp af ráðum hans svo heitið geti. Aftur á móti hefur fólk mun meiri áhyggjur af Gjeir Haaarde og Ingibjörgu Sólrúnu natoskörungi. Þau virðast vera lögst út, eins og stundum hendir virðulega heimilisketti, og skeyta í engu þó allt sé að fyllast af músum, og sjálfsagt fleiri nagdýrum, á landsstjórnarheimilinu.
Fjármálaráðherrar í áfalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.4.2008 | 22:24
Dauðinn kallar ...
Það er alltaf sorglegt þegar blað deyr en það er enn sorglegra þegar lifandi og vel rekið blað deyr vegna efnahagserfiðleika í þúsunda mílna fjarlægð og það eru aðstæður sem við bjuggumst aldrei við að mæta," segir Pergament á heimasíðu blaðsins."
Ojæja.
Eitthvað finnst mér það orðum aukið hjá þessum Pergament, að það sé alltaf sorglegt þegar blað deyr. Í sumum tilfellum er það blátt áfram gleðiefni þegar dagblað eða tímarit geyspar golunni. Það er meira að segja ekki fráleitt, að til séu blöð á Íslandi sem mættu og ættu að deyja sínum drottni og það fremur fyrr en síðar.
Hitt er svo annað mál, hvernig í ósköpunum svokallað fríblað vestur í Bandaríkjunum getur orðið bráðkvatt útaf efnahagsástandi á Íslandi. Samkvæmt fréttum var viðkomandi blað, BostonNOW, gert út af fyrirtæki á vegum Baugs, en útgerðin fór fram í Bandaríkjunum og þar er ekki notuð íslensk króna með 15,5% stýrivöxtum og 8,7% verðbólgu, hvað ég best veit.
Hinsvegar liggur eitthvað í loftinu, sem bendir til þess, að farnir séu að myndast kalblettir á útrásarundrunum íslensku. Og það ætti ekki að koma neinum á óvart þó að ein og ein kjúka, eða jafnvel útlimur, fari að detta af útblásnum líkömum útrásarjötnanna á næstunni.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.4.2008 | 19:44
Blóðlaus drengur á hlaupum
Fréttin af Das hinum myrta og stráknum sem hann lét hlaupa allt hvað af tók er afskaplega athyglisverð, en þar stendur meðal annars: ,,Das hefur áður verið sakaður um að misþyrma drengnum. Meðan á 70 km hlaupinu stóð stöðvuðu læknar drenginn eftir 65 km þegar hann var orðinn aðframkominn. Síðar kom í ljós að drengurinn var vannærður, blóðlaus og með háan blóðþrýsting." (mbl.is)
Nú er útaf fyrir sig ekkert mjög undarlegt að hinn fjögurra ára hlaupagikkur væri orðinn ögn þreyttur þegar hann var búinn að hlaupa eina 65 kílómetra. Ég væri meira að segja orðinn hálfdasaður eftir þessháttar harðasprett. Hitt kemur afturámóti meir á óvart, ef hægt hefur verið að mæla blóðþrýsting stráksins, ef rétt er að hann hafi verið með öllu blóðlaus þegar mælingin fór fram.
Umdeildur þjálfari maraþondrengs myrtur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.4.2008 | 17:31
Saknæmt að fá reykeitrun
Eftir orðanna hljóðan í meðfylgjandi frétt, mætti ætla konan og karlinn sem voru í sumarbústaðnum í Þingvallasveit hafi verið handtekin fyrir að vera grunuð um að hafa fengið reykeitrun: (Karl og kona, sem voru í sumarbústað í Þingvallasveit þar sem eldur kom upp aðfaranótt sunnudags, voru handtekin eftir að þau voru útskrifuð af sjúkrahúsi en talið var að þau hefðu fengið reykeitrun.)
Nú má svo sem vel vera, að það sé saknæmt að fá reykeitrun; og þeir sem eru svo óheppnir að fá fjarska mikla reykeitrun séu hiklaust dæmdir til nokkurra ára fangelsisvistar ef glæpurinn sannast á þá. Að minnsta kosti er mér nokk sama hvort viðurlög eru við reykeitrun eða ekki.
Grunur um íkveikju og líkamsárás | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.4.2008 | 12:59
Vandræðagemlingur missir náttúru
Kynlöngunin hvarf í megrunarkúrnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2008 | 12:22
Greindarvísitalan og aðrar vísitölur
Ósköp er að heyra af öllum þessum úrvalsvísitölum, hlutabréfavísitölum, byggingarvísitölum og stofnvísitölum, sem allar eru á niðurleið. Alltaf. Ekki vantar gríðarlegan fjöld viðskiptavísindamanna, hagvísindamanna, stjórnmalaskörunga, löggilta spámenn og annað óviðjafnanlegt vitfólk til að sýsla með allar þessar vísitölur, en án merkjanlegs árangurs. Og ekki hefur ástandið batnað, nema síður sé, eftir að mesti stjórnvitringur þjóðarinnar, fyrr og síðar, að Jóni Sigurðssyni frá Hrafnseyri meðtöldum, fékk þann starfa að berjast við verðbólgur og vísitölur og annan óþrifnað. Er skemmst frá að segja, að bardagi stjórnvitringsins mikla hefur í engu skilað stærri vinningum, en vopnaviðskipti Donkíkóta við vindmyllurnar, sællar minningar hér um árið.
En á meðan stjórnvitringurinn ógurlegi hefur legið í blóðugum slagsmálum við vindmyllur verðbólgu og vísitalna, hafa litlu spámennirnir, sem einnig eru ekkistjónmálaskörungar, flúið af landi brott, með skottið á milli lappana, og átt náðuga daga með löngum slímusetum hjá nafntoguðum, háttsettum morðvörgum víðsvegar um jarðkringluna.
En vel á minnst: Það virðist enginn hafa neinar áhyggjur af sjálfri Greindarvísitölunni meðan hinar vísitölurnar standa í ljósum logum, öllum til skemmtunar nema fjárfestingarsnillingunum, sem einusinni voru álitnir óskeikulir á öllum mögulegum sem ómögulegum sviðum.
Hlutabréfavísitölur á niðurleið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.4.2008 | 11:14
Alsgáðir í annarlegu ástandi
Ósköp er nú hressandi að vakna, með kaffibollann og winstoninn að vopni, við að lesa um hneykslisverk drukkinna manna. Það eina sem vantar er að viðkomandi brennivínsberserkir séu nafngreindir, svo ekki fari á milli mála hvaða sómamenn voru þar á ferð.
Þó finnst mér einhvernveginn hálf óviðkunnanlegt þegar látið er fylgja, að viðkomandi hafi verið í ,,annarlegu" átandi. Það eru nefnilega svo margir í þessu ,,annarlega" ástandi þó þeir hafi hvorki bragðað vott né þurrt af miðtaugakerfiseflandi fæðu. Ég þekki nefnilega fólk sem hagar sér dags daglega eins og það hafi látið ofaní sig einhver andskotans ókjör af brennivínsogdópjukki, en á þó að heita gersamlega alsgáð, og sumt hvert talið til sérlega göfugra bind-ind-ind-indismanna. Ég gæti t.d. vel trúað, að sá er ók á veitingastaðinn Asíu, eins og ekkert væri sjálfsagðara, hafi verið einn að þessum sérlega alsgáðu bindindismönnum á upplýsandi skemmtiakstri niður Lagaveginn.
Hnífamaður handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Í dag tók séra Atgeir fryggðina í misgripum fyrir friðinn
- Á meðan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hve...
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 157
- Sl. sólarhring: 292
- Sl. viku: 1397
- Frá upphafi: 1542657
Annað
- Innlit í dag: 130
- Innlit sl. viku: 1226
- Gestir í dag: 129
- IP-tölur í dag: 127
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007