Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008
20.4.2008 | 21:05
Drukkinn páfi skemmtir amríkumönnum
öskra og veina gaman, gaman!" (Disneyrímur höf. Þórarinn Eldjárn)
Ekki er að efa að bandaríkjamenn hafa skemmt sér konunglega af innantómri fávisku sinni við að heyra og sjá Benedikt XVI iðka ræðubrögð sín á Jankí Stadíuminu í Nýju Jórvík.
Og vissulega var páfaþrjóturinn í undarlega góðu skapi í dag; lék á alls oddi enda vel drukkinn af messuvíni sem hann komst í í morgun hjá amrískri byskubsskjátu, sem hefir sérhæft sig í að breyta fjármunum byskubsstóls síns í vín. Það er svo sem ekkert nýtt þó kaþólskir kirkjuhöfðingjar fari svona að því þeir hafa fyrir löngu gefist uppá að breyta vatni í vín eins og Frelsarinn gerði.
Það var víst ógleymanleg sjón fyrir alla viðstadda á Jankí Stadíuminu þegar Benedikt karlinn kom akandi á smábifreið sinni, sætkenndur af messuvíninu, inn á leikvanginn. Þó var enn dýrlegra, þegar hann skreið uppí ræðustólinn og tók til við að segja könum sögur af sjálfum sér þegar hann var hugsjónainnblásinn smádáti í síðari heimstyrjöldinni og barðist eins og ljón fyrir föðurland sitt og foringja. Raunar barnaði karluglan söguna fyrir sjálfum sér með óráðshjali um að hann hefði verið neyddur til að ganga í Hitlersæskuna og að hann hefði síðar strokið úr hernum. En þetta segja nú líka allir þjóðverjar sem eitthvað störfuðu undir merkjum Adólfs sáluga og það er af því að Adólf og þeir sjálfir töpuðu stríðinu.
Í fyramálið er svo viðbúið að hans heilagleiki, Benedikt páfi XVI, verði rottimbraður eftir alla jörvagleðina í dag. En hann þarf áreiðanlega ekki að örvænta, né við að hafa áhyggjur, því byskubinn, vinur hans, lumar áreiðanlega á nokkrum ámum af messuvíni handa honum að hressa sig á og halda þar með uppi ásættanlegum samkvæmisdampi.
Páfi hylltur á Yankee Stadium | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2008 | 16:10
Fiskeldisdrottning í Hallargarði
Það fór aldrei svo, að ekki fyndist Hallargarður (með stóru H-i) á Íslandi. Líklega hefir einhverntíman staðið höll, sem nú er fyrir bí, í þessum garði, sennilega á landnámsöld. Síðustu áratugina hefir á þessum reit heimsins hokrað allmikill timburskáli, reistur af lágþýskum smáaðli, ættuðum úr Slésvík og/eða Holtsetalandi. Nýverið keypti nýríkur unlingur af þessari ætt skálann af því hann veit ekki hvað hann á að gera við öll þau peningaórif sem að honum hafa sótt síðustu árin.
En nú er semsagt risin upp flokkur fólks, sem hefur á stefnuskrá sinni að efna til vinfengis við umræddan Hallargarð. Á myndum af meintum ástaratlotum þessa ljúflega fólks, má meðal annarra, greina Fiskeldisdrottninguna af Straumsvík, sjálfa Álfheiði Ingadóttur, platsósíalista og flokkseiganda. Það er virkilega vel við hæfi, að jafn göfug persóna, af sönnu aðalbornu standi skuli hafa tekið að sér virkan kunningsskap við Garð Hallarinnar.
Hollvinasamtök Hallargarðsins stofnuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2008 | 11:20
Aðilar saurguðu Árnessýslu með viðbjóðslegu framferði
Það er naumast hvað Aðilar hafa látið að sér kveða á Selfossi, sjálfu höfuðvígi stjörnusýslumannsins Stones, í nótt. Og ég sem var farinn að halda að ekki nokkur maður eða Aðili, fullur eða ófullur, þyrði fyrir sitt litla líf að ganga í berhögg við landsins lög í umdæmi herra Stones. En þar hefi ég heldur betur farið villur vega.
Það nær náttúrlega ekki nokkurri andskotans átt, að fólk, í þessu tilfelli Aðilar, skuli voga sér slíka ósvífni að taka uppá að synda um miðja nótt, og það í sundhöll. Svo var þetta óskemmtilega fólk búið að forða sér þegar húskarlar herra Stones komu á vettvang, svo að nú verður herra Stones sjálfur, að eyða sunnudeginum í að leita þessara viðbjóðslegu Aðila, sem saurguðu Sundhöll Selfoss, og þar með alla Árnessýslu, í nótt.
Og til að bæta gráu ofan á svart voru tveir Aðilar teknir moldfullir við akstur bifreiða sinna, svo að segja uppi í nefinu á yfirvaldi árnesinga. Ég er ansi hræddur um að stjörnusýslumaðurinn Stones verði að gera betri bæn, ef honum er umhugað að koma á einhverjum lágmarksskikk á hinu flata Suðurlandi.
Skelltu sér í nætursund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.4.2008 | 11:39
Þrifagemlingar hafa í hótunum
Það hefur aðdrei vantað neitt uppá hjá skoffínunum í atvinnurekendaforystunni að hafa í hótunum við land og þjóð. Nú hóta þessir þrifagemlingar að fara með atvinnustarfsemi sína úr landi, af því að þeim hugnast ekki ástandið sem þeir hafa skapað sjálfir ásamt Sjálfstæðisflokknum, Davíoddsyni og Hanezi Holmstone.
Það færi kanski best á, að hinir græðgisvæddu hótanabesefar hypjuðu sig allir sem einn til síns heima, skattaparadísana þar sem þeir geyma góssið sitt og eiga andlegt og veraldlegt lögheimili. Það er vel hægt að komast af án þessara leiðindapésa og það kæmi enginn til með að sakna þeirra, svo mikið er víst, enda eru þeir ekki hundaskítsvirði, þegar allt er talið.
Hætta á að fyrirtæki flytji út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2008 | 09:08
Heilsað með beittri kló
Fuglarnir flykkjast til landsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2008 | 08:58
Hálfu verra vítisbarn ...
Það ætti varla að koma neinum á óvart þó Benedikt páfi XVI minnist ekki einu orði á Írak í pílagrímsferð sinni til Bandaríkjanna. Enda halda páfarnir og kardínálarnir í Wasington úti stríði, með tilheyrandi stríðsglæpum, sem Benedikt XVI hefur sjálfur velþóknun á.
Því er bara einusinni þannig varið, að kaþólska kirkjubáknið, með þrjótinn og þorparann Benedikt XVI fremstan í flokki, er þó nokkuð mikilvæg undirdeild við hirð Mammons konungs, hins heilaga drottins kapítalismans. Þar á bæ hlægja menn að tautinu í Jesú Kristi, um að ekki sé hægt að þjóna tveimur herrum, Guði og Mammon (Matt. 6,24). Og ekki vefst fyrir Benedikt páfa og Georgi Bush vini hans, fremur en fyrirrennurum þeirra, að troða bæði ríka manninum og úlfaldanum gegnum nálaraugað.
Ónei, Benedikt XVI er ekki kominn til Bandaríkjanna til að velta um ,,borðum víxlaranna og stólum dúfnasalanna." Þvert á móti kann hann vel við sig í ræningjabælum kapítalismans. Enn síður hvarflar að þessum auðvirðilega þorpara, að lesa fræðimönnum og faríseum samtíðar sinnar pistilinn að hætti litla sósíalistans frá Nasaret. Yfirmanni kaþólsku kirkjunnar nægir kjökra dálítið framaní bandaríska ráðamenn um klámiðnað og kynferðilegan öfuguggahátt kaþólska presta. Á honum sannast orð frelsarans: ,,Þér líkist hvítum kölkuðum gröfum, sem sýnast fagrar að utan, en innan eru fullar af dauðra manna beinum og allskyns óþverra. Þannig eruð þér, sýnist hið ytra réttlátir í augum manna, en eruð hið innra fullir hræsni og ranglætis." (Matt. 23,27-28)
,,Vei yður fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér farið um láð og lög til að snúa einum til yðar trúar, og þegar það tekst, gjörið þér hann hálfu verra vítisbarn en þér sjálfir eruð." (Matt. 23,15)
Páfi ávarpar Sameinuðu Þjóðirnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.4.2008 | 18:05
Fannst í REI-mykjuhaugnum miðjum
Nei hvur röndóttur, er ekki nema heillakerlingin Svandís Svavarsdóttir komin leitirnar aftur.
Þessi óvænta upprisa erfðaprinsessunnar, er platsósíalistunum og áttavillta ,,vinstraliðinu" í VG áreiðanlega mikið gleðiefni, þar sem almennt var talið, að Svandís hefði andast óforvandis inn í REI-málið einhverntímann á aðventunni fyrir síðustu jól. En nú hafa platsósíalistarnir og þeir með illvígu kompásskekkjuna í VG semsagt endurheimt sína erfðaprinsessu; hún fannst, góðu heilli, á sömu vígstöðvum og hún hvarf, þ.e. í REI-mykjuhaugnum miðjum.
Og upprisuorð erfðaprinsessunnar voru hreint ekki af verri endanum og einkar viðeigandi, enda í einhverskonar evangelískum frelsunarguðfræðistíl: ,,Það er ekki hægt að bjóða borgarbúum uppá þetta lengur!"
(Ath. upprisuorðin skal lesa með óduldum vandlætingar- og frekjutóni í röddinni)
Ekki boðlegt borgarbúum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.4.2008 | 21:50
Mennsk meindýr, eða hvað?
Það er ósköp kristilegt og fagurt af jómfrú Þórunni umhverfisdjákna að skipa nefnd til sem á að finna út hvernig maður eigi að vera góður við dýrin.
Allt er það gott og blessað sem fram kemur í fréttinni af dýragæskunefndinn þar til að kemur að eftirfarandi setningu: ,,Einnig á nefndin að meta hvort tilefni sé til að setja ákvæði um eyðingu meindýra í lögin." Hver fjandinn sjálfur er eiginlega hér á ferðinni. Eyðing meindýr??? Er verið að gefa eitthvað í skyn, sem ekki er hægt að segja berum orðum? Hvað meindýr átt við? Ef til vill mennsk meindýr? Og þá hver? Þessum spurningum verður umhverfisdjákninn að svara áður en lengra er haldið.
Reglur um aðbúnað gæludýra í lög? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.4.2008 | 19:44
Hárkolluhopp undir drynjandi öskrum
Það eru aldeilis meiri extra-gárungarnir þessir íslensku evróvíjóngaularar. En það skulu eignirnar vita, að afspyrnu leiðinlegt og lélegt lag batnar ekki hætishót þó gert sé við það fábjánalegt myndband fyrir fábjána.
Þó er óneitanlega dálítið grínaktugt, að aðstandendur Thisismylifehörmungarinnar skuli láta hafa eftir sér, að umrætt myndband, sé það fyndnasta og skemmtilegasta sem Ísland hefur sent frá sér. Ég varð þeirrar hamingju aðnjótandi fyrir nokkrum mínútum að sjá bút úr þessu meistaraverki í sjónvarpinu, en þar mátti sjá einhvern hlunk með hárkollu hoppa eins og hann væri vistmaður á vitlausraspítala undir drynjandi öskrum Regínu Óskar og Friðriks Ómars.
Ja þvílíkt skemmtiefni atarna!
Fyndnasta og skemmtilegasta Eurovision myndbandið " | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2008 | 12:15
Hjarðsveinasjúkdómur
Það er skýrt menningarlegt hnignunarmerki, að enginn einstaklingur - segi og skrifa, akkúrat einginn einstaklingur - greindist með hjarðsveinasjúkdóm hér á landi á síðasta ári.
Ég hefi ekki hugmynd um, hvað á til bragðs að taka þegar ástandið er orðið svona skuggalegt, en augljóst er að eitthvað verður að gera. Varla er ráðlegt að eyða tíma í að óska eftir að ríkisstjórnin geri eitthvað í málinu, því hún er ekki til nokkurra nýtilegra hluta brúkleg; ekki nema einhver ráðherrabullan dytti niður á fransóssmit fyrir slysni í útlöndum.
Annars liggur í hlutarins eðli, að landbúnaðarráðuneytið gangi í málið og sjái svo um að, a.m.k. tveir til þrír tugir manna fái kraftmikla hjarðsveinasótt á hverju ári. Við verðum bara að sjá til og vona það besta og að þessum mikilvæga hluta íslenskrar menningar verði bjargað.
Engir greindust með sárasótt á síðasta ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Í dag tók séra Atgeir fryggðina í misgripum fyrir friðinn
- Á meðan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hve...
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 19
- Sl. sólarhring: 173
- Sl. viku: 1259
- Frá upphafi: 1542519
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 1112
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007