Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009
24.11.2009 | 10:36
Hefðum átt að ráða slíkann mann í stað Evu Joly
Mikið hefði nú verið farsælla fyrir íslensk stjórnvöld, að ráða mann eins og Romm Houben til að gramsa í málefnum fjársýslumanna og útrásarvíkinga í staðin fyrir kerlingarnæpuna Evu Joly. En sem kunnugt er, er Eva þessi stórhættuleg kona og til alls vís; henni er t.d. trúandi til að reyna að steypa þjóðskipulagi voru með því að koma öllum helstu máttarstólpum landsins í fangelsi uppá vatn og brauð og innleiða í kjölfarið lenínisma, stalínisma og alsherjargúlag á Íslandi. Og ekki þarf að efa, að Steingrímur J. og Jóhanna Sig. eru mjög fýsandi að koma slíku skipulagi á. Skefjalausar árásir þessara skuggalegu þokkahjúa á skattgreiðendur, kvótaeigendur og lýðræðissinnaða frjálshyggjukapítalista uppá síðkastið benda eindregið til, að þeim sé mjög í mun að koma á fyrrnefndum lenínisma og stalínisma og í þeim efnum njóta þau liðstyrks byltingarkvendisins Evu Joly.
Nei, þá hefði verið betra að fá rólegt fólk, eins og Romm karlinn Houben, til annast rannsókn á hruninu. Það hefði fyrir það fyrsta ekki valdið ókyrrð meðal landsmanna og í öðru lagi hefðu allir fengið kristilega fyrirgefningu á skuldum sínum - nema svokallaður almenningur, sem lifði skefjalaust um efni fram í hugsunarlausri óráðsíu í hart nær 20 ár.
![]() |
Var talinn vera í dái í 23 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2009 | 07:48
Sérstakur götustrákur fer yfir strikið
Það er ekki nema von, að Karli Axelssyni sé algjörlega ofboðið. Enda virðist þessi sérstaki saksóknari vera orðinn margfalt sjálfstæðari en til var ætlast í upphafi. Það var áreiðanlega ekki ætlast til þegar Ólafur Hauksson var ráðinn sérstakur saksóknari, að hann gerði bragð úr ellefta boðorðinu og færi að leika sér að því að leggja góða menn og virðingarverða í einelti.
Það er náttúrlega algjört brot á öllu sem hægt að brjóta, þegar embættismaður, sem skipaður var til að sofa svefni réttlátra fram á skrifpúlt í skítugru kompu einhversstaðar útí bæ, fer að haga sér eins og götustrákur með því að hrekkja og hrella saklaust fólk að ósekju. Slíkir menn eru hreint og klárt illgresi í samfélaginu, sem ber að uppræta og í eldsofninn kasta eins og segir á helgri bók.
Við þessum óskunda Ólafs Haukssonar er aðeins eitt að gera: Leggja embætti sérstaks saksóknara niður og kæra Ólaf þennan götustrák fyrir einelti og fá hann dæmdan til langrar betrunarvistar, öðrum skelmum til varnaðar.
![]() |
Lögmanni Baldurs algjörlega ofboðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.11.2009 | 21:52
Breytist Torgerður í Skallagerði í ljósagöngunni?
Það held ég verði sláttur á Torgerði Katrínu þegar hún skakklappast á stað, með skíðlogandi kyndil í klónum, frá Þjóðmenningarhúsinu klukkan sjö á miðvikudagskvöldið. Ég sé þessa háfættu valkyrju fyrir mér slagandi í fylkingarbrjósti með brúnaljósin svo einbeitt og tindrandi að hæfa myndi blóðmannýgu nauti.
En þrátt fyrir að Torgerður verði eflaust í svellandi vígaham á miðvikudagkvöldið, hef ég vaxandi áhyggjur af þessu uppátæki hennar. Ég hefi nefnilega illan grun um að Torgerði verði fljótlega fótaskortur á leiðinni niður að Sæbraut og missi logandi kyndilinn í höfuð sér og samstundis standi hár hennar vel kembt í björtu báli.
Ef þannig fer, að hárstrýið á Torgerði verði eldi að bráð, á liggur ekkert fyrir þessari föngulegu madonnu annað en að verða jafn sköllótt og Steingrímur J. Sigfússon göngugarpur. Eftir slíka útreið er viðbúið að Torgerður verði aldrei kölluð annað en ,,Skallagerður" á sama hátt og mæddir íhaldsmenn kalla Steingrím aldrei annað en ,,Skallagrím" einkum þegar illa liggur á þeim og það liggur oftast illa á þeim þessa dagana.
![]() |
Jóhanna leiðir ljósagöngu á miðvikudag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.11.2009 | 15:56
Hverskonar viðbjóð er verið að gefa í skyn?
Hvað ætli þeir í Matvæla- og Heilbriggðiseftirlitinu eigi við með því, að ,,þeim fyrirtækjum fari fækkandi, sem eru með ófullnægjandi niðurstöður vegna kólígerla"?
Hverskonar viðbjóð er eiginlega verið að gefa í skyn?
Nú skilst mér, að kólígerlar séu ófögnuður, sem á ættir sínar og óðul í mennskum saur. Eru Matvæla- og Heilbriggðiseftirlitið virkilega að segja með penu orðbragði, sbr ofangreinda tilvitnun, að ísprangarar gangi örna sinna í ísblöndur sínar? Og ef sú er raunin, að ísfrömuðir hagi sér á þann hátt gagnvart framleiðsluvöru sinni, þá er ekki nema von þótt spurt sé hvað mönnunum gangi til með slíku framferði. Fara þeir svo djöfullega að ráði sínu til bragðbæta og drýgja hráefni sitt og auka framlegð fyrirtækjana í leiðinni? Eða stafa þessi vinnubrögð af sérlega illu innræti, sem brýst út í sjúlkegri þrá viðkomandi ísmanna til að spilla heilsu viðskiptavina sinna?
Ég hefi aldrei á minni lífsfæddri ævi heyrt af öðrum eins vítishroða og hefi ég þó margt séð og heyrt. Að vísu þekkti ég matsvein á vertíðarbát, sem snýtti sér og pissaði í sósur og súpur, en það var margföld þakkargjörðarhátíð miðað við kólígerlaðan skítaís.
![]() |
Umgengni við ísvélar batnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.11.2009 | 14:08
Átakanlegt skilningsleysi á reynsluheimi karla
Ég fæ, andskotakornið, ekki betur séð en fémínístafraukurnar séu eitthvað ósáttar við hóruhúsasnattið hjá hinum glaðsinna fjármálastjóra KSÍ, hvernig sem á því stendur. Og það er líka kengur í þeim útí stjórn KSÍ, því þær heimta að sú stjórn segi af sér útaf fjármálastjóranum.
Það er eitt og annað útá þessa afgerandi afstöðu Fémínísta til stjórnar KSÍ að setja: Fyrir það fyrsta gera fémínurnar sér enga grein fyrir hvað það er að vera karlmaður og virðast afar fákunnandi um allt sem lýtur að viðkvæmum reynsluheimi karlmanna. Í öðru lagi virða þær að vettugi þá einföldu staðreynd, að það er erfitt að vera einmanna karlkyns persóna í erlendri stórborg, einkum þegar kemur að því að ganga framhjá hóruhúsi eða strípibúllu með eggjandi ljósaskiltum framaná. Í þriðja lagi virðast fémínur afneita því sem í daglegu tali kallast holdlegar fýsnir, því þær taka greddu saklausra karlmenna ekki til greina, sem heilbrigða, náttúrulega hvöt.
Að öllu samanlögðu, er einsýnt, að okkar ástkæru fémínístafraukur líta á fjármálastjóra KSÍ, sem og stjórn KSÍ, eins og hvert annað samansafn saurlífispúnga og pervertista, þrátt fyrir að sök þeirra felist einungis í saklausri gleði fjármálastjórans í góðra vina hópi inná löglegum veitingastað Sviss.
![]() |
Fordæma niðurstöðu stjórnar KSÍ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2009 | 10:37
Þökkum Drottni fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Mikil guðsgjöf er blessaður Sjálfstæðisflokkurinn, fyrir hann ber oss að þakka Drottni af sannri auðmýkt hjartans. Innblásninn af mammonískum guðsanda tókst Sjálfstæðisflokknum að trekkja upp falskt góðæri með groddalegum frjálshyggjukapítalisma, sem hrundi að lokum til grunna. Því skulum vér muna, kvölds og morgna og miðjann dag, að þakka Sjálfstæðisflokknum yfirstandandi kaupmáttarhrap, vaxtaokur, skuldafangelsi og IceSave. Og vér skulum ekki leiðast í þá freisni, að hallmæla Sjálfstæðisflokknum, eða nota ljót orð um Foringja hans og þingmenn, fyrrverandi og núverandi. Þá skulum vér biðja Skaparann um að frelsa oss frá því illa innræti, sem lýsir sér í því að kenna Sjálfstæðisflokknum og hans göfugu hugsjón um allt sem aflaga hefur farið síðustu tvo áratugina.
Og vér verðum ætíð að hafa hugfast, að Sjálfstæðisflokksins á eilíflega að vera mátturinn og dýrðin á Íslandi, og vér eigum að biðja guð peningahyggjunnar og græðginnar um að festa oss það svo rækilega í minni, að vér gleymum því alrei. Amen.
![]() |
Enn lækkar kaupmáttur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.11.2009 | 21:09
Reiddi fram drjúga fúlgu í kosningasjóð
Ósköp er nú gleðilegt að blessuð konan, sem vann árum saman við eignastýringu hjá Gamla Kaupþingi, skuli hafa stýrt smáslatta af aurum beinustu leið ofaní sína eigin buxnavasa. Það kallar maður nú eignastýringu í lagi! Satt að segja gleðst ég heilshugar yfir hverjum og einum sem tókst að ávaxta sitt pund í góðrinu mikla Sjálfstæðisflokksins, þegar dansinn kringum gullslegna hrunakálfinn stóð hvað hæst.
Hinsvegar skil ég í þessum arionísku kaupþingshéðnum, að reka kerlingargarminn frá auðsuppsprettunni, sem henni hafði tekist að opna með dugnaði og eljusemi. Þessháttar helvítis ruddaskap er ekki hægt að fyrirgefa og ég er nokkuð viss um Drottinn fyrirgefur kaupþingshéðunum þetta ólánsverk ekki heldur. Enda liggur ljóst fyrir, að konunni gekk ekki annað til en að græða peninga eins og allir hinir voru að gera. Og sé miðað við tíðarandann, sem ríkti þegar konan stundaði eignastýringu hjá Sigga Einars og Hreiðari Má, er glæpur hennar enginn; þar af leiðir að ódámarnir, sem vísuðu henni úr starfi, eiga að biðja konuna afsökunar, fá henni starf sitt aftur, en skríða sjálfir niður í kjallara og skammast sín þar eins og blauðir hundar.
En fróðlegast væri þó að vita hvernig konan hefur ráðsatafað aurunum sem hún eignastýrði af festu ofaní vasa sína. Ekki kæmi mér á óvart þó hún hefði séð aumur á Sjálfstæðisflokknum og lagt fáeinar milljónir í sí-tóman kosningasjóð Flokksins. Og víst er um það, að péníngar eignastýrðu konunnar hafa síður en svo verið verri en margir aðrir af þeim péníngum sem ratað hafa í Flokkssjóðinn.
![]() |
Fjárdráttur hjá Kaupþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.11.2009 | 14:24
Fágæt lífsreynsla frú Porró í Vík
Ekki get ég ímyndað mér, að Özi Skarp, ræfilstuskan svorna, hafi gott af því að vera mikið innan um útlenska hottintegla af ESB-standi. Við þekkjum hann hér að heiman, vitum öll hvernig blessaður unginn hefur snúist eins og vindhani í öllum málum, og raunar er með öllu óskiljanlegt, að hann skuli ekki fyrir löngu vera hrokkinn uppaf standinum. Og öll erum við sammála um, að Özi eigi að sofa á daginn og blogga á nærbuxunum einum klæða við eldhúsborðið heima hjá sér á nóttinni.
En mikið andskoti held ég að ráðamenn í útlöndum hlægi skelfilega að Öza í hvert skipti sem hann víkur af fundi með þeim og segi sem svo, að ekki sé nóg með að Íslendingar hafi komið sér útúr húsi hjá öllum siðuðum þjóðum, heldur sendi þeir, í þokkabót, trúð til að tala máli þeirra við upplýsta ráðamenn erlendra þjóða. Eða eins og Korrína Porró, hafnarstjóri í Vígó (Vík), sagði eftir að hún var laus við Öza: ,,Þetta er í fyrsta sinn, sem ég hefi hitt strump af holdi og blóði, en fram að þessu hafði ég aldrei séð eða heyrt strumpa nema í teiknimyndum."
![]() |
Össur í höfuðborg spænsks sjávarútvegs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.11.2009 | 21:44
Byltingarhetjuna félaga Hugo til Íslands
Mikið vildi ég að við Íslendingar fengjum að verða þeirrar gæfu aðnjótandi, að fá félaga Hugo Chaves til að stjórna landinu okkar í eins og eitt ár. Hann myndi t.d. ekki hika eitt andartak við að hafa endaskipti á Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum í eitt skipti fyrir öll, sem og glæpaklíkunum sem fengið hafa að þrífast í skjóli þessara tveggja alræmdu samtaka.
Eftir þá hreingerningu gætum við farið að tala um Alvöru Nýja Ísland.
Lifi byltingin bæði á Íslandi og í Suður-Amríku.
![]() |
Idi Amin var ekki svo slæmur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.11.2009 | 09:41
Ráð vil eg yður gefa herra sóknarprestur
Þeir sem þjófstálu glæsivagni yfirsálnahirðisins í Keflavík, eru áreiðanlega afar vandir að virðingu sinni og miklir smekkmenn, sem láta ekki bjóða sér hvað sem er. Þessum mönnum kæmi aldrei til hugar, að taka 15 ára gamla japanska ryðdollu traustataki til að spara sér sporin ef þeir þyrftu nauðsynlega að bregða sér af bæ. Og ef það er rétt, að þjófarnir hafi gert sér ferð í sjálfa kirkjuna og inní skrúðhús til að sækja lyklana að eðalvagninum í frakkavasa musterishöfðingjans meðan hann söng helgar tíðir fyrir framan altarið, er auðsjáanlegt að þar hafa farið gáfaðir menn og sanntrúaðir. Að vísu stendur einhversstaðar á helgri bók, að menn eigi ekki að stela, en slíka smánuni setja menn, sem hafa frá blautu barnsbeini alist upp í þjófafélagi, ekki fyrir sig ef þeir þurfa að komast á þægilegan hátt frá Keflavík til Reykjavíkur.
Hitt er svo aftur annað mál, að það hefur vissulega verið erfitt fyrir sóknarprestinn, að þurfa að ganga alla leið heim til sín eftir að hafa lokið sínum guðrækilegu störfum í kirkjunni. Þessháttar gönguferðir geta verið hættulegar viðkvæmri heilsu fínstillra nútímaklerka. Mér kæmi ekki á óvart þó blessað hymmnaríkisljósið þar suðurfrá sé í dag altekið harðsperrum í fótunum og gangi um gólf álíka stirðlega og Stekkjastaur jólasveinn.
Ef kirkjumeistarinn í Keflavík vill komast hjá annarri slíkri uppákomu, ætti hann að selja eðalvagninn og fá sér hest, sem hann getur teymt með sér inní helgidóminn. Hross er auðvelt að binda við altarisbríkina á meðan eigandi þess sinnir skyldugu helgihaldi, allt uppí yfirgripsmiklar hátíðarguðþjónustur.
![]() |
Fundu bíl sóknarprestsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 52
- Frá upphafi: 1545826
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007