Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Litla títlan, sem okkur er talin trú ...

Það er naumast að litlu títlunni, sem okkur er talin trú um að sé menntamálaráðherra, hefur tekist að grafa upp sérlega ESB-mengað apparat til að gegna stöðu ráðanauts í Menntamálaráðuneytinu. Þetta hlýtur að vera frænka einhvers í ríkisstjórninni eða tengdamóðir.

En hvað sem öðru líður kemst hið nýskapaða ráðanaut aldrei með klærnar á tánum þar sem fyrrverandi ráðanaut hafði hælana, en það var nú líka maður með vigt.

Og mikið held ég litla títlan, sem okker er talin trú um að sé menntamálaráðherrra, hafi slett til höfðinu og gert sig gelgjulega til augnanna, þegar hún var að ganga frá ráðningunni á ESB-apparatinu. En áreiðanlega fellur þessi tilgangslausa ráðning vel í kramið hjá samfylkingarfénu og eigendum þess.


mbl.is Skipuð ráðuneytisstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætti að duga til embættismissis

herra3Mikið helvíti getur hann nú átt góða spretti í hreppsnefnd Reykjavíkur hann Láfi F. Mángason. Hver man ekki eftir þegar hann var, allt í einu, dubbaður upp til borgarstjóra af sínum fyrrum flokkssystkynum í þeim tilgangi einum að gamla auðvaldshyskið í Reykjavík kæmist aftur í meirihluta í hreppsnefndinni. Og allt fór þar eftir bókinni: sjálfstæðismeinsemdirnar spörkuðu Láfa F. veg allrar veraldar þegar þær voru búnar að tryggja sér stuðning hins gjörspillta Framsóknarklúbbs þar syðra.

En Láfi hefur a.m.k. 9 líf eins og kettirnir. Aftur og aftur rís hann uppúr pólitískri gröf sinni eins og illa örtuð og hefnigjörn afturganga og skýtur sendingum í allar áttir, en eimkum þó á fornvini sína í Hrunaflokknum. Nú síðast berast oss fréttir af stórskotaárás hans á hina hvítþvegnu og syndlausu englamær, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Af skefjalausu ofstæki, heimtar Láfi F. að Hanna Birna segi tafarlaust af sér embætti meðan meintir glæpir hennar séu rannsakaðir. Hinsvegar nefnir uppreisnarsteggurinn Ólafur ekki einu orði hvað eigi að gerast eftir að Hanna Birna hefur verið rannsökuð. Má af því draga þá ályktun að Láfi líti þannig á, að sú hreina englamær taki aftur við embætti að rannsókn lokinni, hvort heldur hún verði fundin sek eða saklaus.

En fjári er ég hræddur um, að fallið geti á frjálshyggjuengilinn í borgarstjórastólnum, ef það reynist rétt, að hann sé þinlýst eign Björgólfs nokkurs Guðmundssona, fjáraflamanns og fyrrverandi formanns Varðar, og hafi í þokkabót umgengist Kjartan Gunnarsson í mörg ár. Þessháttar framaferill ætti duga hverjum einasta manni til embættismissis, burtséð frá hvað embætti hann gengdi.  


mbl.is Vill að Hanna Birna víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband