Bloggfærslur mánaðarins, október 2010
9.10.2010 | 15:36
Verða hengdir í sínum eigin gálga
Ég fæ ekki betur séð en stjórnmálaelítan á Íslandi, þessar lágkúrulegu sálir og auðvaldssorpþrær, séu með hrottalegum árásum sínum á heilbrigðisstofnanir landsbyggðarinnar, séu með athöfnum sínum að reisa hann gálga sem hún verður sjálf hengd í í fyllingu tímans.
Að ráðast á sambýli þroskahamlaðara einstaklinga minnir óeitanlega á hugarfar hreppsnefndar Sviðinsvíkur, þegar hún af góðsemi sinni og umhyggju fyrir skattpeningum úr vösum Péturs þríhross og betri bænda, komu Hólsbúðar-Dísu fyrir í kró í beituskúrnum hans Jóns morðingja í staðinn fyrir að senda hana suður til lækninga.
Það getur vel verið að íhaldsframsóknarkrötunum, Jóhönnu Sig., Steingrími J., Gutta skátahöfðingja á Skaganum, Bjarna Ben og Sigmundi Daví Kögunnar, þyki einstaklega aðkallandi að vernda viðkvæma skattgreiðendur á borð við Þorstein Má, Granda og Vífilfell gegn lasburða landsbyggðarfólki, öldungum og þroskahömluðu fólki.
Það verður hátíð í ríki réttlátra með rauðum fána að húni og Nallanum þegar ófétin dingla í sínu eigin tréverki.
Hættu við eftir mótmæli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.10.2010 | 15:59
Ögmundur reiðir upp svipuna
Vill almenna lækkun skulda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.10.2010 | 20:43
Afskriftir eru eins og afmæli
54,7 milljarðar afskrifaðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.10.2010 | 14:19
Mótmælin beinast gegn því sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir og hefur afrekað
Ef svo ólíklega vill til, að einhverjir haldi að mótmælin nú snúist að einhverju leyti um að koma Sjálfstæðisflokknum aftur til valda þá er það ekki bara misskilningur heldur óyggjandi vísbending um að þeir hinir sömu séu frámunalega illa greindir og það svo að jaðrar við beinan blábjánahátt og í þokkabót svo illa gefnir að til stórundra má telja.
Mótmæla- og reiðialdan sem nú hefur sest að, beinist að langmestum hluta að Sjálfstæðisflokknum, störfum hans fyrr og nú og þeim gildum sem sá flokkur hefur staðið fyrir, svo sem, græðgi, lygum, ójöfnuði og slóttugheitum, að ógleymdu því að Sjálfstæðisflokkurinn er samtök yfirstéttarinnar gegn verkalýðsstéttinni, samtök sem draga dám af mafíustarfsemi og öðru slíku sem að öllu jöfnu dafnar vel í skjóli auðvaldshyggjunnar.
Mótmælin beinast líka að fáránlegu sleifarlagi núverandi ríkisstjórnar gagnvart ríkjandi kerfi auðvalds og fjármagnseigenda, sem birtist meðal annars, svo fátt eitt sé nefnt, í svikum hennar varðandi afnám kvótakerfisins í sjávarútvegi, skuggalegu pukri svokallaðra ,,skilanefnda bankanna," Icesavehneykslinu og spillingarvesaldóminn að geta ekki hunskast til að draga þá fjóra fyrrum ráðherra fyrir landsdóm sem ,,Atlanefndin" mælti með að væru kærðir. Enhafa verður í huga, að öll þessi skítugu mál eru til komin vegna Sjálfstæðisflokksins og þeirra sjórnmálaafla sem lagst hafa svo lágt að gerast hækjur Sjálfstæðisflokksins.
Ég heyrir ekki betur en að nú kalli fólk eftir byltingu. Byltingu sem gangi milli bols og höfuð á spillingarsamtryggingunni og hinum mafísku baktjaldahefð stjórnmálanna. Og þeir eru margir sem vilja ekki láta staðar numið í þetta sinn fyrr en fullur sigur hefur unnist. Andi Marx og Engels svífur yfir öllum vötnum á Íslandi í dag.
Líta mótmælin öðrum augum nú | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2010 | 09:30
Tímamótaávarp frú Ingveldar á haustþingi sjálfstæðisflokkskvenna
Frú Ingveldur, eiginkona Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra, nýkomin heim úr Laufskálarétt, sat að vanda haustþing Landssambands sjálfstæðiskvenna, en hún hefur löngum verið aðaldriffjöðrin í starfsemi Landsambandsins. Eftir hina merku ræðu Bjarna Benediktssonar á haustþinginu, kvaddi frú Ingveldur sér hljóðs og flutti gagnmerkt ávarp sem vakti gífurlegan fögnuð fundarmanna. Meira að segja formaður flokksins gat ekki haldið aftur af tilfinningum sínum og kleip frú Ingveldi í rassinn í virðingar og þakkarskyni þegar hún gekk framhjá honum á leið til sætis eftir ávarp sitt.
Í ræðu sinni lagði frú Ingveldur sérstaka áherslu á eftirfarandi: Að með aðförinni að Gjeir Haaarde, þeim áferðarfallega, strangheiðarlega heiðursmanna, væru mannréttindi brotin á mjöf grófan hátt, ekkert úrræði væri fyrir hann til að áfrýja dómnum sem hann fær, þrátt fyrir að hin pólitíska ofsókn á hendur honum standist ekki mannréttindaákvæði Sameinuðu þjóðanna. ,,Aðvitað er málið allt rammpólitískt" sagði frú Ingveldur. ,,Lögin um landsdóm, frá 1483, eru úrelt; búið er að blása skelfilegu hatri í brjóst þjóðarinnar þar eð ásakanirnar á Gjeir helgast af hefnigirni og illum hug, sem er alveg hræðilegt þar sem ekki var um ásetningsbrot að ræða hjá Gjeir Haaarde."
Máli sínu lauk frú Ingveldur með því að fullyrða, að ef Sjálfstæðisflokkurinn snérist ekki hart til varnar væri veruleg hætta á að allir fyrrverandi og núverandi máttarstólpar og frammámenn flokksins yrðu hnepptir í lífstíðarfangelsi af kommúnískum djöflum og öfundsjúku illþýði.
Harma aðför að Geir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.10.2010 | 22:46
Þegar eggin flugu fríð ...
Þegar eggin flugu fríð
famaní þing og klerkalýð,
glæddust vonir um góða daga,
gæftir til sjós og blóm í haga.
Blæddi úr eyra prestsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.10.2010 | 21:08
Vísvitandi lygi og óþverraskapur
Hvað mál ætli það séu sem Ragnheiður Elín heldur að almenningur sé óánægður með að þingmenn séu að ræða? Mér dettur í hug að fyrrum aðstoðarmaður Gjeirs Haaarde eigi við Landsdómsmálið. Ef ég hef á réttu að standa, get ég frætt Ragnheiði Elínu um það, að almenningur var ekki óánægður með að til hafi staðið að draga fjóra hrunráðherra fyrir Landsdóm; almenningur er hinsvegar mjög óánægður með að alþingismenn höfðu ekki, sökum grófrar spillingaráráttu, döngun í sér til að ákæra alla fjóra.
Auk þess væri Ragnheiði Elínu hollt að halda því til haga, þegar hún er í fjölmiðlaviðtölum, að Sjálfstæðisflokkurinn hennar á langmesta sök á uppboðahryðjunni sem nú gengur yfir. Að kenna núverandi ríkissjórn alfarið um það ástand er hvort tveggja í senn, vísvitandi lygi og óþverraskapur.
Verðum að koma okkur að verki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.10.2010 | 20:17
Nú er Steingrímur hræddur, skíthræddur
Það má merkja á orðum Steingríms að hann er hræddur, - skíthræddur. Hræddur við fólkið í landinu, hræddur við alþýðuna, hræddur við sína eigin flokksmenn.
Fyrir nokkrum dögum var strengjabrúðum Steingríms og flokkseigendafélags VG sparkað á einkar glæsilegan hátt útúr stjórn VG í Reykjavík. Það var mikið áfall fyrir hinn Mikla Formann. Í gær varð heyrinkunnugt að Landsbanki Íslands, sem er í eigu ríkisins og á forræði ríkisstjórnarinnar, hefði fellt niður skuldir hjá fjölskyldufyrirtæki Halldórs Ásgrímssonar á síðasta ári. Og í dag rigndi eggjum og mjólkurvörum yfir þingheim og aðrar yfirstéttarfígúrur milli Dómkirkju og Alþingishúss.
Það er því ekki nema von að Steingrímur sé hræddur. Hann skynjar að pólitískt líf hans hangir á bláþræði og ekki er lengur neitt rúm fyrir hann að beita venjubundnum hroka sínum og yfirlæti.
Óánægja vegna skuldavanda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2010 | 16:26
Fátæka konan og Skinneyjarþrjóturinn
Það er auðvitað nauðsynlegt að senda hátt í tug lögregluþjóna til að snúa niður fátæka konu sem mótmælir niðurfellingum á skuldum auðmanna inni í sjálfu auðvaldsmusterinu Landsbanka Íslands. Nauðsynin á öllum þessum fjölda löregluþjóna til að slást við eina konu helgast af sjálfsögðu af því að svona konur, bláfátækar og stórskuldugar, eiga það til að vera djöflinum sterkari, vísar með brjóta niður banka á augabragði og stórslasa fjölda manns.
Á meðan fátæka konan var handtekin sat Halldór Ásgrímsson, sæll og rjóður í kinnum, í sínum kerfisverndaða sessi hjá Norrænu þingmannanefndinni, eða hvað sem apparatið heitir sem hann þiggur laun hjá. Enda fékk fjölskyldufyrirtæki hans fellda niður tvo og hálfan milljarð hjá Landsbankanum í fyrra.
Ekki veit ég, fremur en annar almenningur, hvernig á því stendur að þrjóturinn Halldór Ásgrímsson fær að sitja óáreittur í vernduðu umhverfi í skjóli Norrænna þingmenna. Það er raunar óskiljanlegt að þessum margfræga vandræðamanni skuli ekki hafa verið fyrir löngu sveiflað öfugum út á götu á skottinu eins og hverjum öðrum óalandi og óferjandi apaketti.
Réðist inn í Landsbankann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 56
- Sl. sólarhring: 131
- Sl. viku: 214
- Frá upphafi: 1539497
Annað
- Innlit í dag: 49
- Innlit sl. viku: 183
- Gestir í dag: 49
- IP-tölur í dag: 48
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007