Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, desember 2010

Stórmekilegur andskoti

kvotaju_ar.jpgHvernig má ţađ vera ađ listafólk, sem allir sjálfstćđismenn vita ađ vinnur ekki heiđarlega vinna, skuli skila meiri virđisaukaskyldri veltu en en sjálfir kvótagreifarnir miklu, sem mér skilst ađ séu einu mennirnir í landinu sem a) vinna heiđarlega vinnu, b) hafa einir manna vit á sjávarútvegi, c) hafa einir manna vit á reksti almennt og gróđa, d) fá árlega gefins kvóta til ađ braska međ.

En nú er semsé komin fram skýrsla sem sannar ađ listamenn eru ţarfari ţjóđfélaginu en kvótagreifar og barúnar. Og best gćti ég trúađ ađ listamenn hafi umtalsvert meira vit á sjávarútvegi en hin gráđugu kvótaskrípi.


mbl.is Menning velti 191 milljarđi 2009
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Brennsluspritt útí gambrann og síđan hátíđ

naut1.jpgŢađ vćri gaman ađ vita hvađ yfirvöldin ćtla ađ gera viđ ţessa 850 lítra af gambra. Ef ţau voga sér ađ hella ţessum dýrđardrykk niđur er dómsmálaráđherra nauđbeygđur til ađ reka viđkomandi eđjót úr starfi eđa segja af sér ella. Gambri er nefnilega sá drykkur sem hvađ hollastur er og mest kćtandi af öllum drykkjum, ađ malti og abelsíni ekki undanskyldu, og ţjóđlegur er hann og mannbćtandi, ţannig ađ í hvert skipti sem gambra er hellt niđur er ţađ ekki minna en stórglćpur og ţeir er ţađ gera stórglćpamenn og ţjóđníđingar.

Í sporum yfirvaldanna sem hafa gambrann undir höndum myndi ég branda góđum slurk af brennsluspritti útí hann og bjóđa síđan fjölda manns til veislu. Í gamla daga útbjuggum viđ félagarnir svona mjöđ međ mjög góđum árangri og vorum elskađir og dáđir fyrir vikiđ af ţeirri ţjóđ sem umgekkst okkur hvađ mest í ţann tíđ.


mbl.is 1200 lítrar af heimabruggi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Tvö hópsex í sjávarútvegi

drunk2_888246.jpgHér á árum áđur, ţegar Kolbeinn okkar Kolbeinsson var viđ nám í viđskiptafrćđi til ađ lćra til ţjófs, stundađi hann sjómennsku á sumrin. Hvernig sem á ţví stóđ, ţá komst sá kvittur á kreik međal sjómanna ađ Kolbeini vćri mjög umhugađ ađ koma á hópsexi á skipi ţví er hann röri. Er fullyrt ađ Kolbeini hafi í tvígang í löndunarstoppi tekist ađ koma á orgíu í borđsal skipsins og notiđ viđ ţađ ađstođar ţriggja skipsfélaga sinna í annađ skiptiđ og tveggja drukkinna kvenpersóna sem hann hefđi međ fagurgala og öđrum slóttugheitum ađ narrađ međ sér um borđ. Í hitt skiptiđ tóku vélstjórar skipsins og matsveinn ţátt í stóđlífinu međ Kolbeini, og lagđi hann í ţađ sinniđ ţrjár pesónur af kvenkyni í púkkiđ og barst sá leikur útfyrir borđsalinn, međal annars fram í eldhús og útá dekk.

 Í haust, ţegar Kolbeinn var byrjađur ađ undirbúa frambođ sitt til stjórnlagaţings, barst honum, ađ sögn, bréf frá einni konunni sem fyrir áratugum tók ţátt í glensinu í borđsalnum međ Kolbeini. Í ţví bréfi hótađi kona ţessi Kolbeini öllu illu, međal annars ađ birta svívirđuna í öllum tiltćkum fjölmiđlum, ef hann hćtti ekki hiđ snarasta viđ frambođ sitt. Kolbeinn lagđi ţegar niđur skottiđ og hćtti viđ frambođ.


mbl.is Tvćr hópuppsagnir í sjávarútvegi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband