Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Rammi Sódi

kol2Á meðan rokkarar kyrjuðu sinn klakametal vestur á Ísafirði, lenti Kolbeinn okkar Kolbeinsson í einhverjum verstu hremmingum lífs síns fram að þessu í Reykjavík.

Þannig háttaði til, að á föstudaginn langa buðu frú Ingveldur og Kolbeinn tveimur alræmdum frjálshyggjumönnum heim til sín í hádegisverð. Á borðum var nýsoðinn blómur ásamt mörgum tegundum áfengis. Tóku frjálshyggjumennirnir hraustlega til matar síns, einkum eftir að frú Ingveldur lýsti því yfir að blómurinn væri verkaður úr fáeinum kommúnistum sem Kolbeinn bóndi hennar hefði jagað fyrir nokkrum dögum. Gerðu frjálshyggjumennirnir góðan róm að spaugsemi frú Ingveldar og gröðguðu í sig blómurnum og skoluðu niður með koníaki og rommi. Að hádegisverði loknum þökkuðu frjálshyggjumennirnir fyrir sig með því að fletta frú Ingveldi og Kolbein klæðum.

Þegar gestirnir töldu sig hafa leikið gestgjafa sína nægilega grátt, kvöddu þeir með virktum og sögðu Kolbeini Kolbeinssyni að skilnaði, að nú hefði hann loksins komist að því hver Rammi Sódi væri. Því miður varð Kolbeini engin huggun að kveðjuorðum gestanna því hann hefur grátið látlaust síðan, þrátt fyrir að frú Ingveldur hafi lagt kalda bakstra að botninum á honum á teggja tíma fresti.


mbl.is Rokkhátíðin aldrei verið stærri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru að framkvæma uppgjörið og reikningsskilin?

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Það er hverju orði sannara hjá herra Karli byskubi, að þessa dagana standi yfir tími uppgjörs og reikningsskila, reynslutími fyrir Íslendinga sem þjóð. Hinsvegar er langt í frá útséð hvort þjóðin muni standast prófraunina sem hún stendur frammi fyrir eða falli með skömm. Því miður er eitt og annað sem bendir til að sú stétt manna, sem leiddi þjóðina fram af hengifluginu, starfi nú um stundir af miklum eldmóði við að framkvæma uppgjörið og reikningsskilin sem herra Karl gerði að umræðuefni í páskamessu sinni. 

Síðastliðið vor reyndi almenningur á Íslandi að gera það sem í hennar valdi stóð til að með því að víkja sekustu gerendunum að hruninu til hliðar í Alþingiskosningum. Eftir kosningarnar tók ,,hreinræktuð" vinstristjórn við völdum og var það ætlun manna í upphafi að hún léti sverfa til stáls gegn óaldarlýðnum sem hafði svo gott sem sökkt landinu. Reyndar er kenningin um ,,hreinræktuðu vinstristjórnina" afar athyglisverð og kómísk. Hvernig stærðfræðiglöggir menn hafa komist að því að hægriflokkur (Samfylkingin) plús útvatnaður vinstrikrataflokkur (VG) geti orðið að ,,hreinrækaðri vinstristjórn" er í besta falli hlægilegt; slíkar reikningskúnstir hafa tæplega sést hér á landi síðan Sölvi Helgason reiknaði hvíta tvíbura í þeldökka konu úti í Afríku forðum daga.

En hvað sem líður útreikningum geggjaðra stjórnmálafræðinga og álitsgjafa, þá er staðreyndin sú, að undir handarjaðri ,,hreinræktuðu vinstrstjórnarinnar, er gamla hrunaauðvaldið að endurreisa sig, svo sem glöggt má sjá á endureinkavæðingunni í bankakerfinu. 

Það er því óhætt að taka heilshugar undir með herra Karli, að nú standi yfir reynslutími fyrir Íslendinga sem þjóð. Ef þjóðin fer þannig að ráði sínu, að hún láti gjörspillt samtryggingarkerfi stjórnmálamanna og gráðugustu hagsmunaaðilana komast upp með að skola reikningsskilunum og uppgjörinu niður um klóakrör ómennskunnar, var til lítils barist með pottum og pönnum í fyrravetur.  


mbl.is Menning hræðslu og tortryggni sækir á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íhaldskerlingin og frjálshyggjubeyglan

drunk4Það hlýtur að vera verðug dægrastytting fyrir íhaldskerlinguna Álfheiði Ingadóttur, flokkseiganda, að standa í bréfaskriftum við uppþornaða frjáshyggjubeyglu eins og Steingrím Ara Arason. Sem betur fer þarf enginn að taka samskipti þeirra alvarlega og því síður að láta sér detta í hug að eitthvað itrænt sé þar á ferðinni. Bæði eru þau kerfisböðlar innan ramma sama auðvaldskerfisins; róa á sömu fúagaleiðunni úr sömu víkinni. Þessvegna skiptir engu máli þó þessi grey skiptist á bréfum í fúkyrðastíl.

Hinsvegar er nægileg ástæða borðliggjandi til að efna til alvöru byltingar gegn öllum þessum álfheiðum og steingrímum-örum með það að markmiði að rífa spillingarillgresi þeirra upp með rótum. Oft var þörf, en nú er nauðsyn.  


mbl.is Ráðherra ætlar að áminna forstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Villingarnir í Flónahreppi

fool4Ekki er að sjá að hinir alræmdu villingar í Flónahreppi séu að baki dottnir í viðleitni sinni við að koma Urriðafossi kattarnef, þrátt fyrir að Umherfisráðuneytið hafi slegið á klærnar á þeim; gert þá afturreka með sín skuggalegu áform í þágu auðvalds og afturhalds.

Og nú ætla villingarnir í Flónahreppi að bæta um betur og höfa mál á höndur umhverfisráðherra, líkalega með það fyrir augum að koma hinni göfugu Swandeesy Svavars í tugthúsið fyrir að trufla þá við að sökkva landi. En flónahreppsnefndin gat svo sem sjálfri sér um kennt þar eð hún hafði tekið við einum 30 sifurpéééningum frá leppalúðunum í Landsvikjun til að standa straum af einhverjum djöflinum, sem þeir af sérstæðri kímnigáfu sinni kölluðu ,,skipulagsvinnu" og þar með fært umhverfisráðherranum í hendur tilefni til að sparka ærlega í rassgatið á þeim.

Fari svo að villingunum í Flónahreppi takist að sjóða saman kæru á Swandeesy, á hún ekki um annað að velja en að svara þeim um hæl með orðum mannsins sem hótað var með púðri og blýi: -Við hittumst á höggstokknum! 


mbl.is Skipulag við Þjórsá auglýst aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband