Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2010

Torgerður á fórnaraltarið og Flokkurinn fær englavængi

xdÞað á ekki af Torgerði Kattrínu að ganga, kerlingartötrinu svorna. Ekki var skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis fyrr komin út en grimmir hælbítar voru sestir um heimili hennar með dólgslegu háreysti, fettum og brettum og létu sér ekki segjast fyrr en karl faðir hennar gekk út og talaði yfir hausamótunum á skrílnum eins og sannur fornmaður. Virtist skrílmennum einna líkast að þar færi Njáll bóndi Þorgeirsson að Bergþóshvoli endurborin og lögðu niður skott sín umyrðalaust og tóku fyrirhugaða njáls(torgerðar)brennu af dagskrá.

xd1En Torgerður er ekki sloppin þó götuskríllinn sé á braut. Klukkan 9:30 á þessum fallega vormorgni ætlar æðsta ráð fræðimanna og farísea Sjálfstæðisflokksins að leggja Torgerði á píningarbekkinn og láta hana meðganga að Hrunið mikla sé henni einni að kenna. Að svo búnu verður hún lögð á fórnaraltarið, bannfærð og varpað útí ystu myrkur.

Það er sem sé trú sjálfstæðismanna að verði Torgerði fórnað á altari Flokksskrifstofunnar muni ránfugl Sjálfstæðisflokksins ganga í endurnýjun lífdaga og svífa í hæstu hæðir á englavængjum í stað gömlu fjaðralausu ránfuglsvængjanna.

En Sjálfstæðisflokkinn á að sjálfsögðu að leysa upp og banna með lögum. Í þeim efnum á ríksstjórnin og Alþingi dálítið verk að vinna  


mbl.is Vilja að varaformaðurinn víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkinn á að banna með lögum

alf3Eftir útkomu skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hníga öll rök að því að nauðsynlegt sé að banna Sjálfstæðisflokkinn með lögum. Það ætti öllum að vera ljóst, að það voru hottinteglar Sjálfstæðisflokksins í stjónmála- fjármála- og atvinnulífi, sem ollu Hruninu mikla með hroðalegri starfsemi sinni. Í tilfelli Sjálfstæðisflokksins er ekki nóg að einn eða tveir einstaklingar taki sér leyfi frá þingstörfum meðan mesta rykið er að setjast; allur Flokkurinn verður að fara á sorphaug sögunnar og dvelja þar til eilífðar, slíkir eru glæpir hans gegn landi og þjóð.

Einnig er borðliggjandi, að hækjur Sjálfstæðisflokksins síðastliðna tvo áratugi, Framsókn og Samfylking, verða að hreinsa ærlega til á heimilum sínum, en þau urðu að algjörum spillingarbælum á frjálshyggjutímanum.

En Sjálfstæðisflokkinn verður að leysa upp og banna eins og gert hefur verið við öfgahægriflokka erlendis. Í þeim efnum ættu engar málamiðlanir að koma til greina. 


mbl.is Illugi færði fram sterk rök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílík endemis þvæla í eigninni

vg7Það er raunarlegur misskilningur, ef ekki vísvitandi lýgi, hjá Sóleyju Tomm þegar hún heldur því fram, að sveitarstjórnarkosningarnar í vor verði uppgjör við frjálshyggjuna. Að minnsta kosti er ekki að sjá, að VG ætli að gera upp við frjálshyggjuna, hvað þá kveða hana niður, ef tekið er tillit til oddvita flokksins í stærstu bæjarfélögum landsins, en umræddir oddvitar eru allir sem einn fyrst og fremst fulltrúar hægri aflana í VG, Svavarsarmsins alræmda. Enda lagði Svavrsarmurinn mikla áherslu á að koma ,,sínu fólki" í fyrsta sæti þessara lista. Þá er og vitað að hægra liðið í VG smitaðist sumt hvert af frjálshyggjusýkinni meðan góðæristrallið stóð sem hæst og má í því sambandi benda á að höfuðpaurinn sjálfur, Svavar Gestsson, tók við sendiherraembætti úr krumlunum á Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni á velmektardögum frjálshyggjunnar. Þá er ekki úr vegi að minnast þess, að einvalalið Svavarselítunnar hefur setið í ríkisstjórn í rúmt ár án þess svo mikið sem að blása á margnefnda frjálshyggju, einmitt þessa sömu frjálshyggju sem Sóley Tomm fílí-romm-bomm-bomm segir að eigi að gera upp við í sveitarstjórnarkosningum. Ja, þvílík endemis þvæla í eigninni!
mbl.is VG í uppgjöri við frjálshyggju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar Arinbjörn matsveinn pissaði í súpuna

piss3Það er öllum sem til þekktu enn í fersku minni þegar Arinbjörn matsveinn á mótorbátnum Molduxa var staðinn að því að pissa í súpuna, sem hann hugðist bera á borð fyrir áhöfnina. Þegar Þorgarður skipstjóri Þorgarðsson spurði Arninbjörn útí fyrrnefnda matreiðsluaðferð, belgdi Arinbjörn sig út og sagði Þorgarði að hafa sig hægan þegar alvarlegar ávirðingar væru bornar á fólk; það væri nefnilega helvítis lygi að hann hefði mígið í súpuna. En þar sem Þorgarður Þorgarðsson skipstjóri var og er þeirrar gerðar að sitja ekki aðgerðarlaus þegar smámenni setja sig á háan hest í hans návist, þá læsti hann hrömmum sínum í matsveininn Arinbjörn, bar hann út á dekk og kjöldró hann þrjár reisur áður en hann leysti niður um kauða og flengdi hann á bert rassgatið, en aðrir úr áhöfnini stóðu álengdar og horfðu með velþóknun á afgreiðsluna.

Þessa litlu dæmisögu, sem er að vísu dagsönn, ætti Steingrímur J. að hafa að leiðarljósi í hvert skipti sem hann lendir í skylmingum við hortuga auðvaldsstubba, sem hafa pissað í þjóðarsúpuna.  


mbl.is Biður Steingrím að gæta orða sinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfileg firra

wc1Það væri þokkalegur andskoti ef fjárlaganefnd Alþingis færi að hlaupa eftir athyglissýkisdyntunum í þessum ekkesens Kristjáni (LÍÚ)Kór Júlíussyni og halda fund um mál sem Kristján þessi hefur ekki hundsvit á og fær aldrei hundsvit á, hversu margir fundir væru haldnir fyrir hann um málið.

Það þykir sannað mál, að Kristján Þór (LÍÚ)Kór Júlíusson sé einhver mesti rati sem villst hefur inní sali Alþingis, og er þá Einar Kr. Gvöðfinnsson ekki undan skilin. Frægt varð þegar Krisján þessi læsti sig inni á klósetti í alþingishúsinu, sem ætlað er alþingiskonum eingöngu, og komst ekki út þaðan aftur af því að hann kunni ekki að snúa læsingunni í rétta átt, auk þess sem hann hélt að hurðin opnaðist út en ekki inn, þannig að honum voru allar bjargir bannaðar. Svo varð hann að sofa þarna á salerninu um nóttina. Morguninn eftir, þegar þingvörðurinn opnaði klósettið og sá karlugluna sofandi á gólfinu, sagði hann stundarhátt við sjálfan sig: - Nújá, svo hann er einn af þeim!


mbl.is Fjárlaganefnd fundi um AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamla konan sem dó

piss2Þessi yfirlýsing Hreyfingarinnar minnir mig einna helst á upphaf ljóðsins um ,,Gömlu konuna sem dó." en það hljóðar svo:

Gamla konan sem dó,

hún pissaði á vegginn

og veggurinn hló.

Gamla konan sem dó.

 


mbl.is Undrast dagskrá Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórlygar herra Gallúps Gissurarsonar frá Valhöll

flokkseigendur_786424.jpgEkki þarf mikin speking til að sjá að þessi skoðanakönnun er hreinræktaður tilbúningur og þvættingur frá upphafi til enda. Hver á til dæmis að trúa því að einungis 12-14% landsmanna séu ánægðir með störf frú Álfheiðar Ingadóttur heilbriggðismálaráðherra? Mín tilfinning, og fjölmargra annarra, er á þá leið, að ánægjan og gleðin með frú Álfheiði losi rúm 90%, alls ekki minna. Þá er ekki síður fáránlegt að halda því fram að einhverjar landeyður, sem dubbaðar voru upp til ráðherra fyrir leiðan miskilning, njóti sérstakra visnsælda hjá kjósendum; 50-65% séu ánægðir með ,,störf" þeirra!

Nei, herra Gallúp Gissurarson frá Valhöll, þú skalt gjöra svo vel að ljúga einhverju sem trúlegra er, næst þegar þú opnar trantinn á þér. 


mbl.is Flestir ánægðir með störf Rögnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það fór sem mig grunaði

Ójá, piltar mínir; það fór sem mig grunaði. Um leið og frú Álfheiður Ingadóttir heilbriggðisráðherra tók upp stólpípurnar, samkæmt tillögu minni þar að lútandi, komu ungskottarnir hlaupandi eins og kiðlingar að sáttaborðinu, tilbúnir að semja um hvað sem er, eins og Svavar Sendiherra og Indriði stórsósíalist þegar þeir settust að Icesave-borðinu með Bretum og Niðurlendingum, sællar minningar.

Mér er sagt að heilsubótarfólkið af cócópuffskynslóðinni hafi hrosið hugur við að leggjast á fjóra fætur til að meðtaka úrræði frú Álfheiðar og sé nú reiðubúið að vinna allt að tuttugu og fjórar klukkustundir á sólarhring á Landspítalanum, vilji eiginlega ekki heyra talað um skemmri vinnutíma úr því sem komið er.


mbl.is Bjartsýnni á lausn læknadeilu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Græðgissjúkdóm unglækna er auðvelt að uppræta

pípaÍ þeirri alvarlegu deilu sem upp er komin milli lækna á Landspítalanum, einkum unglækna svo kallaðra, og annarra þegna landsins, er brýnt að gripið verði til afgerandi aðgerða sem duga til lausnar vandamálsins.

Besta ráðið í stöðunni er tvímælalaust að smala unglæknunum saman og setja þeim stólpípu svo um munar. Einnig á að gefa þeim inn blöndu af sápulög og glussa til að mýkja upp mótþróakleprana í belgnum á þeim.

Fólk sem alið er upp á cócópuffsi og hamborgarasósu og í þokkabót menntað til læknisstarfa á kostnað stritandi alþýðu, verður að læra hvað til þess friðar heyrir og gera sér grein fyrir að það er haldið alvarlegum græðgissjúkdómi sem verður að lækna, svo það verði ekki heilsulausir aumingjar til frambúðar. 

Það er náttúrulega til háborinnar skammar, að krakkaskrattar, sem varla eru komin á skottulækningastigið, þrátt fyrir nokkurra ára háskóladund í lækningafræði samfara cócópuffsáti og bjórdrykkju, skuli setja upp stertinn framaní sjúklinga og neita að hjúkra þeim nema fyrir bankastjóralaun. Það er varla við því að búast að það geti orðið fólk úr slíkum gerpum fyrr enn búið er herða þau til alvöru lífsins með stólpípum, laxarerolíu og fleiri meðölum, sem hafa um langan aldur sannað að virka vel í baráttunni gegn græðgi og annarri ódöngun, sem nútímabörn hafa áunnið sér á stuttri ævi í umhverfi upplogins góðæris.


mbl.is Þreifingar í gangi í læknadeilu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dónaskapur á heimsmælikvarða

landi_sekkur.jpgFram að þessu hefur mér skilist að Ferðafélag Íslands væri stórhuga félagsskapur og vandur að virðingu sinni í hvívetna. Nú bregður svo við að þetta vinsæla félag sviptir af sér sauðargærunni og eftir stendur svikull melrakki með kainsglott á vör.

Ferðafélag Íslands ætlar sem sé að hafa skemmtilega skoðunarferð að eldstöðvunum á Fimmvörðuhálsi á morgun og ber fyrir sig frekar slæma veðurspá! Hafið þið, lesendur góðir, heyrt af öðrum eins dónaskap og skepnusakap? Ég er hræddur um ekki. En svo hefur aumingjaskapurinn breiðst útum þjóðfélagið á síðustu árum, að ekki einusinni Ferðafélag Íslands er undanþegið vesaldómnum. Er þá fokið í flest, ef ekki öll, skjól. 

Úr þessu er ekki nema dagaspurmál hvenær landið sekkur alveg. 


mbl.is Aflýsa ferðum á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband