Bloggfærslur mánaðarins, september 2011
29.9.2011 | 14:10
Frekar þann versta en þann næstbesta
Nú er komið á daginn, eins og margir óttuðust, að Steingrími J. og þinflokki hans er alls varnað. Það er nákvæmlega sama hvar borið er niður: öllu er snúið á hvolf, í þessum kostulega þingflokki, með tíu þumalputtum og einni rasshendi formannsins, sem að öðru leyti hefur haft drjúgan starfa við að siga búrtíkum sínum út og suður og uppskorið aðhlátur almennings að launum.
Og nú hefur Steingrími og flokkseigendafélaginu hugkvæmst að feta í fótspor Snæfríðar Íslandssólar, sem valdi sér fyrir eiginmann þann versta þrjót sem fundinn varð á Íslandi í þá daga, í stað þess að taka hinum næstbesta, fyrst sá besti stóð ekki til boða.
Það kom sem sé uppúr dúrnum í morgun að Steingrímur og hans lið hafði valið sér fyrir þingflokksformann hávaðasömustu og grimmustu búrtík formannsins, en hún er sem kunnugt er hálftannlaus, staurblind, heyrnarsljó og með skert lyktarskyn, nema þegar LÍÚ-höfðingjar eru nær, en þá bregður ætíð svo við að hin frækna búrtík verður furðu stillt og skilningarvit hennar verða tví- og jafnvel þríelleft af skerpu.
Já, ógæfu VG verður allt að vopni. Nú er engin von lengur að úr rætist með flokkinn. Og í næstu kosningum verður það ekki hlutskipti Steingríms J. og hans áhafnar að draga atkvæði um borð í flokksskútuna, heldur munu þeir, er hafa yfir atkvæðunum að ráða, þ.e. kjósendur, draga fleytu VG niður á hafsbotn fylgisleysis.
Sjá hér hve illan enda ótryggð og svikin fá ...
Björn Valur þingflokksformaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.9.2011 | 22:20
Fólskuleg árás á fjármálaráðherra
Það er varla hægt að lesa annað útúr orðum formanns Fjárlaganefndar, Oddnýjar Harðardóttur, en að henni finnist Steingrímur J. hinn versti skaðræðisgripur og óráðsíugemsi, sem verði að hafa undir einstaklega sérstöku eftirliti. Hún vill sem sé að nauðsynlegt sé að skilgreina og afmarka heimildir fjármálaráðherra sem hafi verið of rúmar í kjölfar hrunsins. Með þessu er hún auðvitað að segja, að Steingrímur hafi farið afar frjálslega með fjármuni ríkissjóðs og spilað eins og ábyrgðarlaus gamblari á hinar rúmu heimildir sem hann telur sig hafa haft hingað til.
Svona hryllilegur munnsöfnuður verkar á mann eins og þegar laungrimmur rakki ræðst óforvandis að vegfaranda og bítur hann af alefli í lærið. En í þessu tilfelli á sá er fyrir árásinni varð, sem betur fer, duglegar búrtíkur sem þekktar eru fyrir að hika ekki við að hefna fyrir ófarir húsbónda síns og spara þá hvorki vígtönnur sínar né raddbönd.
Nú má till sanns vegar færa, að marg- og ofnefndur Steingrímur hafi harla þykkan skráp, sumir segja að karlinn sé einn allsherjarskrápur yst sem innst eða javnvel þurkuð grásleppuhvelja, en ég á bágt með að trúa að manngarmurinn sé svo samansúrruð skrápflækja að hreinmeyjarleg orð Oddnýjar fjárlagformanns nái ekki að koma af stað einhverskonar garnaflækju innaní honum. Því tel ég einsýnt að fjármálaráðherra hlaupi kapp í kinn og bregði brandi sínum og reyni að höggva hina óorðvöru kvenpersónu úr launsátri, hels í spað.
Ég spái því, ef Steingrímur veltur ekki bráðlega um sjálfan sig á dansgólfi kapítalismans, að pólitískur frami Oddnýjar Harðardóttur muni finnast sundurtættur í sorptunnunni heldur fyrr en áætlað var.
Heimildir ráðherra of rúmar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.9.2011 | 18:44
Hefðu fleygt henni út á skottinu
Þeir eru gamansamir órabelgirnir í flokkahópi ,,vinstri grænna" í Norðurlandaráði að gera háborgaralegu íhaldskerlinguna Álfheiði Ingadóttur að formanni þessa kynduga flokkahóps.
En kanske má virða meðlimum flokkahópsins það til vorkunnar að hafa ekki hugmynd um hvern mann Álfheiður þessi from Iceland hefur að geyma og hverskyns sú pólitík er sem piffast á milli eyrnanna á henni. Hefðu þeir haft hugboð um það hefður þeir eflaust ekki verið seinir á sér að fleygja frú Álfheiði hægrikvinnu á skottinu útúr húskynnum vinstrigræna flokkahópsins og óskað þess að slíkur kvenmaður mætti hvergi þrífast.
Álfheiður formaður flokkahóps vinstri-grænna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.9.2011 | 14:22
Rorra meðvitundarlausir í kvótadái
Hvernær hefur heyrst af því að íbúar á suðurfjörðum Vestfjarða hafi staðið upp á fundum um sjávarútvegsmál og gengið á dyr til að mótmæla glæpsamlegu fiskveiðistjórnunarkerfi?
Aldrei.
Hvenær hefur þetta fólk sýnt þeim sem barist hafa gegn kvótakerfinu á þeirra heimasvæði samstöðu?
Aldrei.
Ónei, þvert á móti hafa sveitarstjórnirnar á sunnanverðum Vestfjörðum lagst svo lágt að verja umrætt fiskveiðistjórunnarkerfi með kjafti og klóm þrátt fyrir að þetta eyðingarkerfið hafi nánast gengið af þessum byggðarlögum dauðum.
En hvernig stendur á því að sveitarstjórnir suðurfjarðanna hafi gerst hatrammir varðhundar kvótakerfis sem hefur leikið þær svo grátt?
Jújú, vegna þess að hin vesælu sveitarsjórnargrey kusu fremur að þóknast forystu Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins en íbúunum á svæðinu, auk þess sem allmörg af þessum furðulegu eintökum voru að gæta sinna þrengstu persónulegu hagsmuna í ,,kvótaeign.
Það skýtur því skökku við að þetta fólk skuli alltíeinu ranka við sér útaf vegarlagningu inná Barðaströnd eftir að hafa rorrað meðvitunarlaust í kvótadái í tuttugu þrjátíu ár.
Reyndar hafa fjölmargir íbúar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps staðið upp vegna kvótakerfisins, en þeir hafa langflestir staðið upp til að flytja burt af svæðinu þar sem orðið var óbúanlegt fyrir þá þar.
Gengu af fundi með Ögmundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.9.2011 | 22:06
Margrét villt inní ófélegum framsóknarfélagsskap.
Þingsályktunartillaga um fjölda ráðuneyta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.9.2011 | 21:26
Forsetagrýlur Alþingis í grettukeppni
Afskaplega er það nú fallegt afspurnar, að forsetar Alþingis skuli nota aðstöðu sína til að fara í grettukeppni á bak þeim sem eru að myndast við að kreist uppúr sér einhverja visku í ræðustóli hverju sinni. Það hlýtur að vera athyglisvert að sjá Ástu Ragnheiði reka útúr sér tunguna og afmyndast til augnanna þegar Jón Bjarnason, vinur Samfylkingarinnar, er að tilkynna þingheimi að ekki komi til greina að svíkja stefnu VG og kjósenda sinna í ESB-umsóknarframhleypninni.
Þá er áreinalega framúrskarandi grínaktugt að horfa uppá frú Álfheiði Ingadóttur verða öll ein skorpin vandlætingarfýlugrýla í framan og frussa og piffa þegar hún situr í forsetastóli og Lilja Mósesdóttir er að flyja ræðu um karakterbresti og svik Steingríms J.
Nú bíð ég vongóður eftir að forsetar Alþingis útvegi sér langa, oddhvassa nál til stinga í rassinn á ræðumönnum sem þeir eru ekki að skapi.
Sakaðir um að misnota þingsköp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.9.2011 | 10:02
Eins og sönnum tækifærissina sæmir.
Það er af sem áður var þegar tækifærissinninn Össur mátti ekki vatni halda af hrifningu á Ólafi Ragnari og studdi hann í einu og öllu gegn Svavari Sendiherra, Steingrími og Álfheiði í Alþýðubandalaginu. Í dag hefur dæmið snúist við og nú styður Össur, eins og sönnum tækifærissina sæmir, Steingrím með ráðum og dáð en hatast að sama skapi við félaga Ólaf Ragnar.
Og eitthvað er minni Össurar ruglingslegt þegar hann vísar í innanflokksátök í Alþýðubandalaginu fyrir 30 árum þar eð umrædd átök hófust ekki að marki fyrr en nokkru seinna og lauk ekki fyrr en fyrir rúmum áratug þegar Alþýðubandalagið hvarf af sjónarsviðinu.
Eftir að Alþýðubandalagið var úr sögunni, stofnaði fjölmennur hópur fólks VG utanum róttæka vinstristefnu. Hinsvegar misskildi Steingrímur stofnun VG, annaðhvort óafvitandi eða vísvitandi, því hann virtist telja að flokkurinn væri stofnaður utanum hann sjálfann og hefur enda hagað störfum sínum í samræmi við það. Í staðinn sitjum við hin uppi með handónýtan flokk, dauðvona af innanmeinum sem öll eiga rót sína að rekja til Steingríms formanns og han nánasta samverkafólks.
Stórskotaliðsárásir forseta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2011 | 19:03
Það bíður stór óplægður akur eftir verkamenn taki til starfa
Þá er ekkert um annað að ræða fyrir Guðfríði Lilju en að fylgja því fast eftir að þetta mál komist á hreint. En Guðfríður veit líka flestum betur hvern mann Gunnarsstaðarmóri hefur að geyma og ennfremur að þessi framsóknarvomur er hálli en áll og sést ekki fyrir þegar hann þarf að bjarga eigin skinni.
Þó væri sennilega affarasælast fyrir Lilju að binda endi á samskipti sín við Gunnarsstaðamóra í eitt skipti öll, enda verulega mannskemmandi að vera í nábýli við þann náunga þó ekki væri nema daglangt, hvað þá árum saman.
Hinsvegar bíður stór óplægður akur á vinstrivængnum eftir að Guðfríður Lilja og annað gott fólk taki þar til starfa, en það helgast af því að hér á landi er enginn vinstriflokkur til staðar.
Ég vil fá á hreint hvað átti sér stað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.9.2011 | 18:12
Löggildingarstofan Lex
Fyrst lögmansstofan Lex segir að það sé allt í lagi með Illuga skörung Gunnarsson þá er áreiðanlega allt í lagi með hann. Á sama hátt er Sjóður 9 fullkomlega heilbrigð góðgerðastofnun, sem hefur komið fjölmörgu fallegu til leiðar.
Nú er það svo, að Íslendingar eru stálheppnir að eiga jafn göfuga löggildingarstofu og lögmannsstofuna Lex, sem getur gefið út heilsufarsvottorð eins og herlæknanefnd á dögum góða dátans Svejks.
Á þessum alvarlega tímapunkti sem við nú lifum væri gott ráð hjá Samfylkingunni að leita til lögmannsstofunnar Lex og falast eftir vottorði uppá að það sé merki um sérlega góða heilsu að vera haldin óbilandi ESB-þráhyggju og landsöluhneigð.
Illugi aftur á þing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.9.2011 | 20:21
Sá sem sparar vöndinn hatar son sinn
Eru ekki nema aumingja blessuð andlausu börnin að krefjast þess að morknaður strákhjallur, Bíbir heyrðist mér þau kalla hann, komi til Íslands. Maður á varla orð yfir lágkúrunni.
Ef krakkaskrímslin hefðu farið í kröfugöngu gegn óbótavekum Sjálfstæðisflokksins, hefði ég tekið ofan. En að krefjast Bíbirs til Íslands, nei takk, þessháttar fólska er ekki afsakanleg og æsku landsins til ævarandi skammar. Ojbara.
Þetta skammarlega framtak hins illa uppalda æskulýðs sýnir þó umfram allt að foreldrar landsins hafa sparað vöndinn hin síðustu ár svo um þverbak keyrir. Það er engu líkara en forsjármenn nútímabarna hafi svikist um að læra heilæðið góða, sem allir foreldar ættu að læra fyrst af öllu í uppeldisvísndum: ,,Sá sem sparar vöndinn hatar son sinn, en þeim sem hann refsar elskar hann."
Þá ber Bíbirsgangan grunnskólum landsins illa söguna, svo ekki sé meira sagt. Enda hafa lýsisgjafir og áflog kennara við nemendur verið gerð burtræk úr skólum landsins, en þess í stað tekinn upp almennur vesaldómur og klapp á koll þeirra nemenda sem uppvísir verða af reykingum á salernum lærdómssetranna, klámkveðskap og drykkjskap á skóladansleikjum. Já.
Já.
Vilja Bieber til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 4
- Sl. sólarhring: 64
- Sl. viku: 1476
- Frá upphafi: 1542346
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 1299
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007