Bloggfærslur mánaðarins, maí 2013
26.5.2013 | 17:00
Kynóðir háskólaborgarar
Og Garcia lét ekki þar staðar numið og bætti við, að sér kæmu úrkynjaðir og öfganáttúraðir háskólaborgarar fyrir sjónir eins og klepraðir útigangshundar, sem hefðu svikið húsbónda sinn og stungið af eitthvert út í buskann í þeirri von að geta svalað auðvirðilegustu fýsnum sínum.
Og rétt er það, að ekki er lengur minnst opinberlega á háskóla og fyrirbrigði tengd þeim, öðruvísi en að inní þá umræðu sé súrrað kynjaþráhyggju, kynjasögum og alskyns furðulegum kynjavillum og kynjagleraugum. Síðast frétti ég að vissar uppþornaðar geimverur væru farnar kenna einhverja uppdiktaða stúdíu sem þær kalla kynjafræði og fjallasr víst um hinar og þessar kynlegar uppákomur, sem sumar hverjar eru tengdar salernisnotkun og salernisvenjum fólks, sem ekki tilheyrir ekki efri-millistétt og yfirstétt. Ekki þarf að taka fram, að geimverur kynjastúdíunnar álíta það mikinn höfuðglæp að lesa ekki bækur og glæpareyfara með kynjagleraugum, en hvað þær meina með þeirri afstöðu veit enginn, ekki einusinni geimverurnar sjálfar.
Ósköp hress
er Helga Bless,
einkum þó á kvöldin,
þegar læða
hittir fress
og greddan tekur völdin.
Ójöfn kynjahlutföll áhyggjuefni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2013 | 15:15
Máría Borgargagn og Handreðurinn eru líka fjallafólk.
Stöku sinnum hafa frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson farið með Borgargagninu og Handreðnum í upplífgandi hálendisferðir, sannkallaðr ævintýraferðir, þar sem óvissan og háskinn hefur ráðið ríkjum við hvert fótmál. Varla þarf að taka fram, að í þessum ferðum hafa þessir ferðafélagar verið vel byrgir af alkohóli, kannabisi, kókaíni og amfetamíni til að auk sér úthald, kraft og skemmtun.
Í fyrrasumar fóru þau öll fjögur í mikla hálendisgöngu, sem átti, samkvæmt áætlun, að taka fjóra daga. Á öðrum degi rákust þau á frönsk hjón, sem þeim var sundurorða við. Frú Ingveldur, sem kunn er fyrir að láta verkin tala, greip í bringuna á hinni frönsku konu og hratt henni öfugri ofaní blautt moldarflag og tók til við að velta konukindinni uppúr drullusvaðinu. Auðvitað ætlaði frakkneski eiginmaðurinn að rétta konu sinni hjálparhönd og skakka leikinn, en þá ruku Kolbeinn og Handreðurinn eins og einn maður á karlinn og hugðust veita helvítinu verðuga ráðningu, helst ráða hann af dögum, enda eru Kolbeinn og Indriði Handreður báðir komir af útilegumönnum og sauðaþjófum að langfeðgatali og blóð þeirra því fljótt að segja til sín upp til fjalla. En fransmanninum tókst með herkjum að rífa sig lausa úr klóm þeirra félaga og tók til fótanna sem mest hann mátti, og þeir á eftir. En því miður lauk þessum ógurlega eltingarleik með ósköpum þegar fransarinn reif öll tólin undan sér er honum mistókst að stökkva yfir gaddavírsgirðingu, sem varð á leið hans. Þegar Kolbeinn og Handreðurinn sáu hvernig komið var fyrir óvini þeirra þótti þeim ekki gustuk að hegna honum meira og sneru því til baka. Stuttu síðar mættu þeir frönsku konunni á harðaspretti niður hlíðarslakka og var hún þá bæði kviknakin og útötuð mold og drullu og sennilega úr öllu sambandi við lífið og tilveruna af hræðslu.
Tveimur dögum síðar varð Kolbeinn Kolbeinsson að neyðast til að ganga örna sinna úti í náttúrunni. Hann valdi sér að fara bak við stóran stein til fremja verk sitt, sem honum tókst að mestu ágætlega. En þegar hann hafði lokið sér af og kominn aftur til ferðafélaga sinna, stóð hálfsubbulegur grasbrúskur uppúr buxnastreng hans að aftanverðu. Þegar Máría Borgargagn, Indriði Handreður og frú Ingveldur sá útganginn á okkar manni lustu þau upp ægilegum hlátri og fylgdu margskonar ógeðslegar athugasemdir í kjölfarið. Á þeirri stundu sór Kolbeinn Kolbeinsson þess dýran og ófrávíkjanlegan eið, að fara aldrei aftur í fjallaferð, ekki einusinni í göngutúr innanbæjar sem væri lengri en fimmtíu metrar. Að svo búnu yfirgaf hann ferðafélagana og stefndi eftir auganu beint til byggða með garsbrúskinn góða eins og dindil uppúr buxnastrengnum.
Vilborg Arna komst á tind Denali | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2013 | 23:31
Frú Ingveldur keypti falsað aspirín og hætti að nota nærbuxur
Þó svo að frú Ingveldur hafi ekki verið sérlega fastheldin á brækur sínar um dagana, þá brá svo við, að eftir átið á falska aspirínstöffinu, hætti hún að brúka nærbuxur og harðneitar að fara í þessháttar flíkur meir. Og þegar einhver spyr hana afhverju hún noti nú ekki í nærbuxur eins og annað fólk, svarar hún því til að slík leiðindafyrirhöfn, að klæða sig í þessháttar hégóma sé fáránlegur óþarfi, því það sé bara til þess að fara úr andskotans nærbuxunum aftur og hún þoli ekki soleiðis tvíverknað.
En maki frú Ingveldar, Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri, lætur sér hátterni konu sinnar í léttu rúmi liggja og rökstyður það á þann hátt, að ef frúin noti aldrei nærbuxur sé engin hætta á að hún gangi jafnvel dögum eða vikum saman í grútskítugum og mjög illþefjandi nærbuxum.
Myndin með þessu bloggi sýnir frú Ingveldi fara úr nærbuxum í síðasta sinn.
Fundu mikið magn falsaðra lyfja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.5.2013 | 22:12
Alvarleg kynvilla stakk sér niður á færeyskum verksmiðjutogara.
Það liggur vitakuld í hlutarins eðli, að draugaskip sjáist ekki nema endrum og eins, því svoleiðis skip sjá aðeins rammskyggnir menn. Þessvegna er þessi frétt um ósýnileika draugaskips algjörlega útí hött, fáránleg, og til þess eins fallin að hræða fólk að óþörfu.
Hinsvegar hafa fjölmiðlar með öllu svikist um að segja frá því að færeyskum verksmiðjutogara var snúið til lands í þessrai viku, þremur vikur áður en ráð var fyrir gert. Ástæðan var að alvarleg kynvilla hafði stungið sér niður í áhöfn togarans, svo skipstjórinn sá sér ekki annað fært er að stefna skipinu undir fullu vélarafli til heimahafnar. Að sögn skipstjórans var ástandið orðið mjög alvarleg og breiddist út meðal áhafnarinnar og beiddist út með leifturhraða eins og skæðasta fuglaflensa eða hjarðsveinasjúkdómur. Talið er að veikin hafi komið með matsveininum um borð og frá honum hafi allar smitleiðir verið opnar. Þegar togarinn kom til hafnar fannst matsveinninn hvergi, en svo kynlega bregður við að hans er þrátt fyrir það ekki saknað.
Meðfylgjandi mynd er af horfna matsveininum, sem ekki er saknað.
Draugaskipið finnst ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.5.2013 | 18:18
Síra Baldvin ætlaði að sækja um Patreksfjarðarprestakall.
Þá er vitað að mektarmaðurinn GJH, nárgranni Patreksfirðinga hefði ætlað sér umrætt prestsembætti en hætt við þegar hann komst að því að sóknarnefndin á Patreksfirði tímir ekki að kaupa messuvín, en hefur látið abelsínudjús duga við altarisgöngur hin síðari ár.
Þrjú vilja þjóna á Patreksfirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2013 | 14:20
Skemmdarvargur á leið í Framsóknarfjósið eða Bófahreiðrið í Valhöll.
Reyndar er lag fyrir þennan kynjamann og skemmdarvarg að ganga í Framsóknar- eða Sjálfstæðisflokkinn með haustinu. Á þeim herragörðum á þessi kyndugi heima. Og eitt er víst, að hann fegi höfðinglegar móttökur bæði í Framsóknarfjósinu og í bófahreiðrinu í Valhöll ef hann bankaði uppá og bæðist vistar fyrir sig, frú Álfheiði og Sendiherrafjölskylduna.
Það vantar allar útfærslur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.5.2013 | 22:10
Strengjapúta gifturíka kaupfélagsstjórans í Skagafirði
Það er ljóst, að gamla Framsóknarmaddaman, sem andaðist fyrir nokkrum árum með dánarvottorði útgefnu af sprenglærðum geðlækni, er gegnin aftur líkt og Þórólfur bægifótur forðum. Ef að líkum lætur, verður draugur Framsóknarmaddömunnar ekki síður hamrammur og viðskotaillur og Þórólfur karlinn eftir að hann fór á stjá eftir að hann var dauður. En um Þórólf bægifót og afrek hans lífs og liðins má lesa í snilldarritinu Eyrbyggju.
En hvernig á því stendur að kvenskörungurinn Vigdís Hauksdóttir skuli ekki fá ráðherrastól undir bláan botninn á sér er með öllu óskiljanalegt. Ástæðan fyrir þessari skammarlegu framkomu við Vigdísi liggur samt trúlega í því að helvísk Framsóknarmaddaman er afar karllæg, þrátt fyrir að vera kvenkyns. Ég geri ráð fyrir að vinkonur mínar, megafémínístarnir, láti nú til sín taka og rétti hlut Vigdísar með öllum tiltækum ráðum, þar með talið heyhvíslum, borvélum og dynamíti.
Gunnar Bragi utanríkisráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.5.2013 | 21:04
Strákarnir hans Fagins aftur komir á sinn stað
Um leið og þjóðin býður strákana hans Fagins velkomna í gamla fangelsishúsið við Lækjargötu, þá þakkar hún afglapanum og ómenninu Steingrími J. og ESB-fáráðlingunum í Samfylkingunni innilega fyrir að gera þjóðinni það kleyft að fá strákana hans Fagins aftur til starfa í stjórnarráðiu.
Hanna Birna innanríkisráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.5.2013 | 11:14
Gvendur galni og slefandi niðursetningar.
Einn var þó sá galli á gjörvileik Guðmundar sýslumanns, sem menn höfðu í flimtingum við ýmis tækifæri, en hann var sá að hann væri vafalaust heimskasti maður sýslunnar, sem honum var trúað fyrir að stjórna, og í ofanálag stórbilaður. Af þeim sökum var hann ævinlega kallaður Gvendur galni, til aðgreiningar frá öðrum Gvendum, en aldrei bara Gvendur eða Guðmundur sýslumaður.
Eitt frægasta verk Gvendar galna var að skipa niðursetning nokkurn hreppsstjóra í sveit einni í Húnavatnssýslu. Niðursetningur þessi var einn af þessum dæmigerðu hreppsómögum, sem víða mátti finna hóstandi í flatsæng í gluggalausri baðstofu á þeim dögum.
Auðvitað leist bændum ekkert á blikuna þegar Þórður niðursetningur í Halakoti var kominn með skjal uppá að hann væri löglegur hreppsstjóri, undirritað og stimplað af Guðmundi Ingjaldssyni sýslumanni. Þeir vissu sem var, að Gvendur sýslumaður var geggjaður og heimskari en sauðnaut ofan af Grænlandsjökli, en að honum myndi detta í hug að framkvæma aðra eins skömm og að gera hóstandi niðursetning að hreppstjóra hafði þó aldrei hvarflað að þeim.
Nokkrum öldum síðar hugkvæmist æðsta embættismanni þjóðarinnar að draga tvo slefandi hreppsómaga uppúr flatsæng frjálshyggjunnar, hrunsins, gjaldþrotanna, spillingarinnar og ómennskunnar og fela þeim að fara með stjórn þjóðarinnar, þvert ofaní allt sem skynsamleg getur talist. Það er víst óhætt að segja að Íslendingum hefur ekki farið fram andlega og siðferðilega síðan Gvendur galni var sýslumaður á Norðurlandi.
Verkið er í höfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 4
- Sl. sólarhring: 64
- Sl. viku: 1476
- Frá upphafi: 1542346
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 1299
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007