Bloggfærslur mánaðarins, júní 2013
14.6.2013 | 19:44
Brynjar, Sigríður Ingibjörg, Silja Bora og Máría Borgargagn öll í keppninni Ungfrú Ísland 2013
Fyrir hönd allra landsmanna, vona ég að prinsessan Siljs Bára Ómarsdóttir sjái sér fært að taka þátt í Ungfrú Ísland, en hún gat sér gott orð fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar þegar hún þaut eins og byssukúla útum alla borg í prófkjörsforvali VG með kjörkassa á bakinu og lét grandalausa einfeldninga kjósa snillinginn Sóley Tomm fílí-romm-bomm-bomm í fyrsta sæti framboðslista auðnuleysingjanna í VG.
Þá vonast ég eftir að frú Ingveldur og Máría Borgargagn verði meðal fegurðarkeppenda, en þær eru að góðu kunnar fyrir að opinbera sitt bera hold við ólíklegustu tækifæri, að minnsta kosti þegar þær eru í góðu stuði.
En rúsínan, eða öllu heldur abelsínan, í pylsuendanum verður eflaust þátttaka mannvinarins Brynsjars Níelíusar þingkonu í Ungfrú Ísland. Brynjar skráði sig í þetta magnaða íþróttamót fyrir þremur dögum síðan og mun stíga á fegurðarpallinn í grádrappaðri íhaldskvennadragt og fækka síðan fötum jafnt og þétt þar til ekkert verður eftir nema skjátan ein, gjörsamlega hárlaus eftir síendurtekna brasilíska vaxmeðferð, sem hófst á miðvikudaginn í síðustu viku.
Og eitt er víst: allt um það verður ákaflega gaman á brussuhlaupinu um ,,titilinn" Ungfrú Ísland að þessu sinni.
Þingkona í Ungfrú Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2013 | 23:55
Hin endanlega lausn á útgerðarmannavandamálinu
Núverandi útgerðaraðall væri um leið vistaður á sambýli, þar sem læknar og gæsluliðar myndu fylgjast með þeim og hafa ofanaf fyrir þeim allan sólarhringinn. Þetta nauðsynlega sambýli yrði reist á Grímstöðum á Fjöllum fyrir fjármuni, sem gerðir væru upptækir hjá liðsmönnum LÍÚ og málaliðum þeirra á Alþingi, í sveitarstjórnum, háskólasamfélaginu og öðrum kvótavarðhundum.
Lifi minning stórmennisins, félaga Hugo Chavez um aldur og æfi.
Útgerðarmenn vonsviknir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2013 | 23:28
Aninmalista organisation i Sverige mun efna til mótmæla
Það hefur lengi verið helsta baráttumál samtaka anímalista í Svíþjóð, að hjónaband manns og skepnu verði lögleitt og að stjórnvöld og almenningur þar í landi líti á það sem hvern annan sjálfsgaðan hlut. Svo dæmi séu tekin, þá hefur Karl Lundqvist búið með elgskú í nokkur ár og ennfremur hefur Jutta Berlinger verið í skráðri sambúð með geithafrinum Trylle í bráðum fjögur ár.
Síðastliðið haust flúði Jutta reyndar í kvennaathvarf eftir að hafurinn Trylle hafði stangað hana í mjöðmina í afbrýðiskasti með þeim afleiðingum að Jutta kastaðist útum glugga á annarri hæð og slasaðist töluvert. En það mun verða eðli góðra hjónabanda, að annað slagið slettist uppá vinskapinn og þá er gjarnan stutt í heimilisofbeldi.
Þá er sagt að presturinn í Ystadsprestakalli, séra Otto Katzlund, sé reiðubúinn, sóknarbörnum sínum til mikillar skelfingar, að gefa saman manneskju og einstakling af annarri dýrategund. Séra Otto segir, að frá sínum bæjardyrum séð, sé allt í lagi að gefa allan andskotann saman, ef vilji hlutaðeigandi sé til staðar. Þess má geta, að séra Otto Katzlund er meðal annars hlynntur fjölkvæni og hann hefur nokkrum sinnum vígt dýr í heilagt hjónaband, þar á meðal fressið Glám og læðuna Línu og mun það vera afar farsælt hjónaband.
Banna kynmök manna við dýr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2013 | 23:29
Brynjar og spurningastúlkan
Við nánari eftirgrenslan, skilst mér að Brynjar Níelíus og spurningastúlkan séu nýkjörnir alþingismenn, og þykir mér að nú sé loks stungin tólgin, þegar svonalagað er kosið á þing af almennum kjósendum. Þessi ósköp segja mér og mínum líkum, að þegar kjósendur eru orðnir svo galnir að þeir kasta atkvæðum sínum á apparöt af þessu kalíberi, sé sem betur fer skammt að bíða endalokanna.
Það er síðan kapítuli útaf fyrir sig, hversvegna í ósköpunum stjórnendur Alþingis láta þessi tvö sitja saman. En kanske hafa stjórnendurnir litið svo á, að það eigi saman sem saman á. Ég vona bara að þetta fari ekki eins og hjá Ólafi Kárasyni Ljósvíkingi og Jasínu Gottfreðlínu Jasonardóttur hér um árið.
- Það verður Hrun, meira segi ég ekki.
Jakkafötin voru keypt í neyð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ef Ólafur Sigurðsson meindýreyðir stendur undir nafni sem meindýraeyðir, þá skýtur hann náttúrlega góðu drammi af eiturgufu inní Alþingishúsið og slær þar með þrjár flugur í einu höggi með því að aflúsa þetta gamla virðulega steinhús af rottum, geitungum og alþingismönnum.
Það verður gaman að sjá, ef Ólafur meindýraeyðir lætur vaða inní Alþingishúsið, þegar hroðanum verður mokað þaðan út og ofaní gám frá Sorpu.
Geitungar og rottur fara á kreik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.6.2013 | 22:05
Dauðaleit stóð yfir í allan dag að Kolbeini og Indriða Handreði
En snúum okkur að öðru og alvarlegara málefni: Í gær stigu þeir kumpánar, Kolbeinn Kolbeinsson og Indriði Handreður, um borð í flugvél á Keflavíkurflugvelli og héldu af landi brott. Undir kvöld vóru þeir á áfangastað, það er að segja í Hamborg í Þýskalandi, nánar tiltekið í götu þeirri sem kennd er við Herbert nokkurn, sem ég veit því miður engin skil á.
Í Herbertstrasse tóku þeir óðar til ópilltra málanna, svo sem Íslendingum hefur löngum verið gjarnt þegar þeir hafa komist út fyrir landsteinana, og þöndu hvurn kvenmanninn af örðum, sem þar búa, af sannri lífslist og kumrandi ánægju.
En í morgun, - í morgun - tóku konur þeirra félaga, þær frú Ingveldur og Máría Borgargagn, eftir því að eiginmenn þeirr vóru á bak og burt og hvergi finnanlegir innan höfuðborgarmarkanna og því síður úti á landi. Biðu þær ekki boðanna og tilkynntu lögreglu og björgunarsveitum um mannahvarf. Lögreglu og björgunarsveitaforingju þótti reynar fyrir sitt leyti fullmikið í lagt og óviðeigandi að flokka óútskýrða fjarveru Kolbeins skrifstofustjóra og Handreðsins undir mannshvarf; týndir hundar kettir væru meira alvöru og áhyggjumál en ósýnileiki fyrrnefndra sómamanna.
Nú, björgunarsveitir lögðu af stað með ólund og hálfum huga til að leita að Kolbeini og Indriða, gengu fjörur og gáðu hvort þeir væru ekki drukknaðir í Reykjavíkurtjörn, litu inná nokkrar knæpur og hringdu í alræmd óreglukvendi og spurðurst fyrir um þá. En allt kom fyrir ekki, enginn hafði orðið var við piltana í svo og svo marga daga.
En nú undir kvöld varð helvískum Handreðnum það á að hringja í kunningja sinn í Kópavogi og tilkynna honum glaðhlakkalega, að nú væru þeir Kolbeinn staddir í Herbertstrasse og væru á stuttum tíma búnir að vinna meira hervirki í Þýskalandi á einum sólarhring en Adólfi sáluga Hitler hefði nokkurn tíma tekist, og var á honum að skilja, að þeir félagarnir væru búnir að gilja svo til allt kvenkyns á Þýskalandi og vildi meina að afrek þeirra væri í fullu samræmi við lúherska trú og kenningu. Þegar samtalinu var lokið, hringdi kunninginn um hæl í Máríu Borgargagn og skipaði henni að afturkalla leitina að Kolbeini og Handreðnum og snúa sér þess í stað til leitarflokka í Þýskalandi til að hafa uppá þeim.
Árla mjög í fyrramálið eiga frú Ingveldur og Máría Borgargagn bókað far til Berlínar og þaðan ætla þær með járnbrautarlest til Hamborgar til standa menn sína að verki. Má búast við miklum átökum og grimmum þegar fundum þeirra ber saman og verða þau eflaust svo harðvítug, að starfstúlkurnar í Herbertstrasse halda að nú sé enn ein andskotans heimstyrjöldin byrjuð í Þýskalandi.
Auðvelt að komast hjá banni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.6.2013 | 00:09
Hugsið yður Kolbeinn og handreðsskrattann drukkna á ferðaþjónustbæli með útsýni yfir kúahóp
Mér er sem ég sæi Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra og vin hans, Indriða Handreð, að drykkju við gluggaboru, sem veitti útsýni yfir kúahóp í fjósi. Soleiðis kallar eru til alls vísir, og þá meina ég: til alls vísir, við slíkar aðstæður.
Um fyrirkomulag á veitingastað, sem veitir drykkfelldum óbótamönnum, eins og Kolbeini og handreðsskrattanum, aðgang að varnarlausum dýrum, er með öllu óásættanleg í ljósi þess hvílíkan öfuguggaverkanaði þeir væru vísir að fremja í slíkum stað með köldu blóði.
Svíður að sjá svarta starfsemi blómstra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á síðasta aðalfundi Sjálfstæðismannafélags Garðabæjar flutti frú Ingveldur erindi sem hún kallaði ,,Hvers virði er meydómurinn." Í þessu frábæra erindi sínu gerði frú Ingveldur nauðsyn á varðveislu meydómsins að þungamiðju máls síns annarsvegar, en hinsvegar ríka áherslu á gildi þess að verða ekki hórnum að bráð. Þá vék hún máli sínu að sérstöku sálarástandi, sem á það til að grípa fólk, ,,hinni ótímabæru kynvillu" en það ku verka á þá er fyrir verða eins og þeir hafi étið gangstéttarhellu.
Í lokakafla erindis síns vék frú Ingveldur að hlálegum meydómsmissi Máríu borgargagns, sem varð þess valdandi að Máría hefur mátt sæta þeim örlögum að verða náttúrulegur brókarsóttargemlingur, kjaftatífa og trunta. En frú Ingveldur hafði kvöldið áður en hún flutti Sjálfstæðismönnum í Garðabæ erindi sitt, komið að Kolbeini, eiginmanni sínum, í óforskömmuðum ástarlífsmökum með Máríu borgargagni um kvöldmatarleytið undir borði í bílskúr frú Ingveldar og Kolbeins.
Niðurstaða erindis frú Ingveldar var því sem sé, að meydómurinn væri í raun einskis virði í nútíma þjóðfélagi og það væri fremur heimskulegt að reyna að halda í hann til þess eins að halda árunni hreinni. Hinsvegar bæri kallmönnum að sniðganga hórinn eins og hverja aðra drepsóttarplágu og leggja sig ávallt í líma við að halda krumlum sínum og öðrum líkamsöngum frá nærbuxum kvenna til að fá ekki það orð á sig að vera nærbuxnafémínístar.
Til hvers er meyjarhaft? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég tel mig vita að þeir frændur myndu kyrja Helguvíkurblúsinn fræga, sönginn sem sökkti bátnum í Sandgerði og nokkra hugljúfa kvótasöngva úr Vestmannaeyjum, fyrir nú utan að misþyrma Göllavísum Ása í Bæ með tilþrifum sem þeim frændum einum er lagið.
Fleiri hætta við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.6.2013 kl. 00:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2013 | 22:11
Skoðun frú Ingveldar og Máríu Borgargagns á aðhaldsfötum
Í dag frétti ég svo af því, að Máría Borgargagn hefði fyrir fám dögum dottið kylliflöt afturfyrir sig í verslun Nóatúns í Hamraborg þegar hún gekk full rösklega á vöruhillu. Við fallið flettust klæðin uppum hana, bæði að ofanverðu og neðanverðu, svo við blasti hverjum manni hve frjálslega hún var til fara innanklæða. Síðar, þann sama dag, lenti Borgargagninu og frú Ingveldi ila saman á kaffihúsi, þegar Máría var að segja vinkonu sinni frá óhappinu í Nóatúni, en þá hrökk uppúr frú Ingveldi, að sér kæmi þetta ekki á óvart vegna þess, að Indriði Handreður, sambýlingur Borgargagnsins, væri ljótur og luralegur og bráðum ónothæfur náttúruleysingi og landeyða. Þegar þessi orð höfðu fallið, slógust frú Ingveldur og Máría Borgargagn þangað til lögreglan kom til skjalanna og skakkaði óeirðinar. Þegar þar var komið sögu, mátti ljóst vera, að nota ekki undirföt, allrasíst þau réttu, þrátt fyrir að aðhaldsföt séu þessa stundina aðalmálið í Hollywood.
Ekkert nema aðhaldsföt á rauða dreglinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 58
- Sl. sólarhring: 133
- Sl. viku: 216
- Frá upphafi: 1539499
Annað
- Innlit í dag: 50
- Innlit sl. viku: 184
- Gestir í dag: 50
- IP-tölur í dag: 49
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007