Bloggfærslur mánaðarins, desember 2014
31.12.2014 | 16:32
Svona eiga sýslumenn að vera
Skohh Bjarna Ben, sá lætur nú ekki helvíska læknaþrjótana vaða yfir sig. Í dag sagði hann skotturunum að líta í eigin barm og í kvöld mun hann segja þeim að gægjast uppí eigin þarm. Svona eiga sýslumenn að vera. Og í nótt, þegar Bjarni Ben verður farinn að dansa á stofugólfinu hjá frú Ingveldi og Kolbeini Kolbeinssyni, ætlar hann að sverja við nöfn heilags Oddssons og heilags Ásgrímssons, Miltons Fríedmans og Söru Palín, að troða læknaskepnunum með óvægnu handafli uppí sjálfs þeirra þarm. Þá verður klappað og hvíað í stofunni hjá frú Ingveldi og Kolbeini og Brynjar Vondalykt og Máría Borgargagn munu svifta sér úr nærbuxunum og stinga þeim uppí nasirnar á Indriða Handreði.
Og hvað verður um læknanna þegar búið verður að hafa endaskifti á þeim troða þeim í botninn á sjálfum sér? Jú, þeir verða einkavæddir og allir verða svo undur glaðir, jafnt læknar sem Bjarni, Framsóknarmaddaman og frú Ingveldur.
Læknar horfi í eigin barm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.12.2014 | 13:14
Dásamlegir fulltrúar auðvaldþöggunar og auðvaldshattur sem varð sjóhattur
Hvaðan úr fjáranum hafa Eggert Skúlason og ungfrú Bergþórsson þá hugmynd að þau séu skemmtileg, eða geti verið skemmtileg? Slíkir höfuðórar eru ekki beint til þess fallnir að vera gott vegarnesti fyrir væntanlegan ritstjórnarferil þeirra á DV. Hinsvegar eru Eggert og ungfrú Bergþórsson fullboðlegir fulltrúar fyrir úrkynjað afturhald kapítalismans á Íslandi og ríma ágætlega við skemmtilegheitin sem ráða ríkjum á þeim eiturmengandi fjóshaugi. Og erindi þeirra á DV er aðeins eitt: Þagga niður gagnrýni og fréttaflutning af verstu skítmennum og lygalaupum hægriöfgasveitanna á Íslandi, sem DV reyndi að halda uppi í ritstjórnartíð Reynis Traustasonar.
Það er svo sem skiljanlegt, að siðferðilega brenglaðar auðvaldstruntur vilji margt til vinna að skrúfa fyrir alla umræðu og gagnrýni, sem þeim er á móti skapi. Hatrið sem þetta andlýðræðislega yfirstéttarpakk hefur haft á DV, Ríkisútvarpinu, bloggurum og þeim sem láta til sín taka í athugasemdadálkum netmiðla hefur varla farið fram hjá nokkrum manni.
Þegar ég hugsa um nútímaauðvaldsperverta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks sé ég allatf fyrir mér jakkafataklædda auðvaldsbelginn, sem velti sér ofurölvi uppúr moldaflagi á úthátíð um verslunarmannahelgi hér um árið. En þrátt fyrir fullkomið jafnvægisleysi og hverja byltuna af annarri í drulluforinni lét þessi auma skepna sér ekki muna um að ausa svívirðingum, hortugheitum og óbótaskömmum yfir ungt vinnandi alþýðufólk sem þarna var statt, af slíkum sannfæringarkrafti að engum líður úr minni sem vitni varð að athöfnum og munnsöfnuði auðvaldsbelgsins. Þó tókst einum viðstaddra að nappa hatti auðvaldsbelgsins, sem hann missti af hausnum í einni byltunn, og endaði sá ágæti auðvaldshattur sem sjóhattur og gengdi því hlutverki í nokkur ár.
Sá hlær best sem síðast hlær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.12.2014 | 23:56
Þá orkti eitt helsta þjóðskáld þeirra tíma
Um skelfilegan atburð, sem átti sér stað fyrir margt löngu, orkti eitt helsta þjóðskáld þeirra tíma:
Hann litli Jón skaut Gunnu systur sína
á sextán skrefa færi og tókst að hitta,
þá sagði móðir hans, hún stóra Stína:
,,Sá stutti verður einhvern tíma skytta.
Litli Jón er kemur við sögu í ofangreindu ljóði var var þó orðinn fimm ára þegar hann banaði systur sinni. En að tveggja ára piltur skuli vega móður sína og það inni í verslun, tekur út yfir allan þjófabálk; það slær fræg víg yngissveinanna Egils Skallagrímssonar og litla Jóns alveg út. Og þegar Grettir Ásmundarson á Bjargi fláði Kengálu lifandi þegar hann var langt innan við fermingu er eins og sálmasöngur í sunnudagaskóla miðað við ódæðisverk hins tveggja ár snáða í Amríku.
Tveggja ára skaut móður sína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 31.12.2014 kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.12.2014 | 20:15
Frumleg andagift af þessari tegund er blessunarlega fátíð
Leiðinlegt fólk getur aldrei, hvernig sem það rembist og riðar á spóaleggjunum, búið til skemmtilegt blað. Þessum einföldu sannindi hefir Kolbún framsóknarauðvaldsnautur auðvitað aldrei gert sér grein fyrir, enda hefir hún vægast sagt litla hæfileika til þess að gera sér grein fyrir þessháttar. Og þegar við bætist í ritstjóraflóru DV annar eins skemmtikraftur og Eggert Skúlason, sem er eins og gangandi brandari, má segja að þeim sem berjast gegn leiðinlegu fólki, og leiðindunum sem af því stafar, sé öllum lokið. Engum hefir fram að þessu tekist að verða svo frumlegur í hugsun, að gera Kobrúnu Bergþórsdóttur og Eggert Skúlason samtímis að ritstjórum á sama blaði og reyna í leiðinni að ljúga að almenningi að slíkur mannsöfnuður geti framleitt skemmtilegt og trúverðugt dagblað. En sem sem betur fer er andagift eins af þessum toga næst fátíð, nema í auðvaldsframsóknarfjósum sjálfstæðis- oag framsóknarmanna.
Kolbrún ætlar að búa til skemmtilegt blað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2014 | 18:57
Ætti að fleygja tillögunni og tillögumanni beint í Bessastaðatjörn
Hinn stórgáfaði Sigmundur Davíð telur það mikinn feng að fá Sigrúnu Magnúsdóttur til liðs við ríkisstjórnina. Eftir orðum hans að dæma hefur framsóknargriðkonan Sigrún fram til þessa ekki verið í liði ríkisstjórnarinnar, sennilega verið í stjórnarandstöðu með Gvendi litla hans Steingríms sáluga, en frelsast til framsóknarafturhalds á jólaföstunni og hampar nú lífsins kórónu. En hvernig jafn stórgáfuðum manni og Sigmundi Davíð, sem auk gáfna er stórbóndi að einhverri Útirauðsmýri fyrir austan, þykir fengur að því að fá Sigrúnu þessa til einhvers, er þess eðlis að meðalheimskur íslendingur botnar ekki neitt í neinu, fremur en Vigdís Hauksdóttir.
En hvað um það, þá ætlar hinn Mikli Leiðtogi, sem er stórbóndi eins og Óláfur Samskips að Miðhrauni I, að leggja til við forseta Íslands á morgun að margnefnd Sigrún taki við embætti umhverfis- og auðlindaráðherra. Auðvitað á forseti Íslands að hafna þessari sprenghlægilegu tilögu hins stórgáfaða orðuþega og segja honum eins og er, að stjórnmál eigi ekki að vera vettvangur fyrir fíflagang, sérhyggju og fávitaskap og kasta tillögunni og tillögumanninum beint í Bessastaðatjörn, þótt það sé í sjálfu sér mikil vanvirðing við blessuð góðhrossin sem drukknuðu þar á dögunum.
Það verður því glatt á hjalla að heimili Kolbeins Kolbeissonar og frú Ingveldar um áramótin, enda margs að fagna fyrir þau hjónin og stórmenni lýðveldisins.
Hinsvegar er jafnvíst, að fögnuður fólks á alþýðuheimilum verður af öðru kalíberi en gleði Kolbeins og Sigmundar bónda, enda talar fólk á alþýðuheimilinum mest um þjóðfélagsbyltinu þessa dagana.
Sigrún næsti umhverfis- og auðlindaráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.12.2014 | 17:32
Það mun þykja gifturíkast í stöðunni
Nú þykir mér heldur en ekki skammt stórra högga í millum hjá Kolbeini Kolbeinssyni skrifstofustjóra, aðstoðarmanni og framsóknarmanni: Fyrir ekki ýkja mörgum vikum tókst honum með aðstoð frábærra dindilmenna, að steypa undan Reyni Traustasyni á DV og reka hann á vergang og í sömu andrá var kallanginn hann Hallgrímur Thorsteinson ráðinn ritstjóri. Að svo búnu héldu Kobeinn og hans ástkæra eiginkona, frú Ingveldur, hálfsmánaðar veislu að heimili sínu til að halda uppá afrekið. Veisluvikurnar tvær vóru fjölmörg stórmenni hins íslenska lýðveldis tíðir gestir hjá Kolbeini og frú Ingveldi og hurfu sum þeirra á braut nærbuxnalaus og slagandi eins og höfuðveikar kýr úr Framsóknarfjósinu.
Og nú reiðir Kolbeinn Kolbeinsson aftur til höggs, með dyggri aðstoð gifturíkra stórmenna, og rekur Hallgrím kallangann eins og illa siðaðan kleprahvolp útí skammdegismyrkrið. Og ekki minnkar gamanið, ef reynist, að Kolbeinn og hinir gifturíku ætla að gera vinkonu frú Ingveldar, Kolbrúnu Bergþórsdóttur, að ritstjóra DV!
Ekki þarf að efast um að gamla glæpahneigða Framsóknarmaddaman mun rísa upp af bási sínum, þótt farlama sé og elliær, ef húskörlum hennar tekst að landa Kolbrúnu Bergþórsdóttur í ritstjórastólinn. En upprisa gömlu Framsóknarmaddömunnar verður sem betur fer stutt, hún mun leggjast fljótlega aftur niður í básinn sinn og halda áfram að kroppa af sér skítakleprana. Að svo búnu mun DV hverfa fyrir fullt og allt ofaní framsóknarfjóshauginn; það mun þykja gifturíkast í stöðunni.
Ritstjóra DV sagt upp störfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2014 | 10:20
Hervirki sem því dreymir um
Það held ég að framsóknarillyrmin og aðrir fordómasjúklingar og fasistar gleðjist yfir fréttum af íkveikjum í bænahúsum múslíma í Svíþjóð. Slíkar athafnir brennuvarga hjá frændþjóð okkar hlýtur að vera heilmikill innblástur fyrir rasískt illþýði hér á landi og hvetja það til hervirkja sem því dreymir um.
Kveikt í mosku í Svíþjóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2014 | 10:07
Eins og óalandi dýrbítur og skaðræðiskvikindi
Þetta er dálítið merkileg þula hjá Vigdísi Hauksdóttur, ekki síst vegna þess að hún ku vera formaður fjárlaganefdar Alþingis og hefir í þokkabót nokkurra ára þingsetu að baki. Þrátt fyrir þingreynslu, að sjálfsögðu óverðskuldaða, og nafnbótina ,,formaður" fjárlaganefdar virðis algjörlega hafa farið framhjá Vigdísi, að flestar, ef ekki allar, ríkisstofnanir hafa verið skornar gjörsamlega innað beini og rúmlega það, þannig að þær eru á mörkum þess að vera starfhæfar. Flestir hafa til dæmis einhverja nasasjón af ástandinu í heilbrigðismálum landsins, landflótti brostin á í stéttum lækna og hjúkrunarfólks og nú síðast var stóð sjálfur byskubbinn í stólnum og grét hörmulega stöðu kirkjusókna. Á milli stofnanna heilbrigðis og byskubba er síðan urmull af fjársveltum ríkisstofnunum, sem vart er annað eftir af en skjátan ein.
Ef einhverskonar vitglóra af einhverju tagi væri í höfðinu á meintum formanni fjárlaganefndar myndi hann auðvitað ekki orða hlutina með þessum hætti. Heiðarlegra væri af þessum kúnstuga fulltrúa auðvaldssérhyggjunnar, að leggja hreinlega til, að hinar og þessar stofnanir á snærum ríkisins verði lagðar niður og læknum, byskubbi og forsvarsmönnum ríkisstofnanna og starfsmönnum sagt að fara til Andskotans. En auðvitað er útí hött, gjörsamlega fráleitt, að kalla eftir heiðarleika af formanni fjárlaganefndar og flokkssystkynum hans, hvar óheiðarleiki, fals og ruddaskapur er talinn til dyggða, já og gott ef ekki kristindómur.
Þó svo að Framsóknarmaddaman sé sjálf löngu lögst í kör og haldið lifandi af nafninu til með stórum inngjöfum af innistæðulausum kosningaloforðum, fláttskap og sérhyggjuóþrifnaði, og samvinnuhreyfingin og samvinnuhugsjónin komin í vasa forhertra auðvaldsperverta, þá halda talsmenn þessarar auðvirðilegu glæpaklíku því fram, að félagsskapur þeirra, Framsóknarflokkurinn, sé stjórnmálaflokkur, meira að segja miðjuflokkur og félagshyggjuflokkur! Það er varla hægt að ganga lengra í hræsni og ómennsku. Og þegar við bætist í fjóshauginn opinber kynþáttahyggja og fasismi er mál til komið að slá Framsóknarflokkinn af eins og óalandi dýrbít og skaðræðiskvikindi.
Hagsmunaöfl í vegi hagræðingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2014 | 17:53
Dulfróður maður veit hvað þar átti sér stað
Tjahh, það er nú það. Hvað skal segja. En að mér læðist illur grunur.
Það er ekki einleikið að tvívegis, með örstuttu millibili, skuli vera komið á jeppa inní Gufuneskirkjugarð og spólað þar af alefli á leiðum garðbúa þannig að hjólförin ná langleiðina niður á kistulok þeirra. Hver ásetningurinn er með þessum aðförum veit ég að sjálfsögðu ekki, en dulfróður kunningi minn segir, að ekki sé um að villast, að þarna hafi átt að fara fram upprisa, átt hafa að vekja upp draug til vinna uppvekjaranum ýmis einkennileg verk honum til hagsbótar.
Nú er það ekkert nýtt á Íslandi að menn reyni að vekja upp draug og er slík iðja síður en svo óalgengari nú til dags en fyrr á öldum. Að vísu er almennt illa þokkað að vekja upp draug og þykja uppvakningar óhugnanleg fyrirbæri, enda oftar en ekki hin verstu fól. Til dæmis er talið sannað, að fádæma illmenni úr Valhöll hafi vakið Frjálshyggjudrauginn uppaf fjöldagröf í Mesapótamíu, en það illyrmi hefir á síðustu áratugum lagt margar þjóðir í álög og óþrifnað.
Hinn dulfróði kunningi minn segist svo sem vita hvaða þrjótar hafi verið að verki í Gufuneskirkjugarði, hann þekki nefnilega handbragðið á þessum ósköpum. Ef honum skjátlist ekki því meir, þá hafi þeir félagar Brynjar Vondalykt og Óli Apaköttur verið þar á ferð og ekki gengið gott til. Þessir andskotans ónáttúrubesefar séu á höttunum eftir uppvakningi, sem hægt sé að nota í pólitískum tilgangi. Ennfremur að Apakötturinn og Vondalyktin hafi verið gerðir út til ódæðisins af enn meiri og voldugri ónáttúrubesefum. Það er því eins gott fyrir almenning, að sjá í gegnum sjónhverfingar stjórnvalda og pólitíska reimleika á næstunni, ef útsendurum þeirra hefir tekist að vekja upp óstöðugar sálir sér til fulltingis.
Ók yfir leiði af aulahætti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.12.2014 | 23:42
Írís flugfreyja og stórkostlegasta vinkona hennar
Það má með sanni segja að Írís Guðmundsdóttir flugfreyja sé um það bil heimsfræg fyrir sínar svæsnu matarveislur, að minnstakosti heimsfræg í Hafnarfirði og ef til vill einhverjum af nærsveitum Hafnarfjarðar. Hitt vita færri, sem betur fer myndi margur segja, að Írís Guðmundsdóttir og frú Ingveldur eru það sem kallað er aldavinkonur, og hefir aldrei fallið minnsti blettur á þá unaðslegu vináttu. Það var til dæmis frú Ingveldur sem kokkaði saman sashimiréttinn í jólasveinaglösunum, en sú grútarkássa gerði heldur en ekki stóra lukku í standandi veitingapartíi ársins nú í desember.
Vinátta Írísar og frú Ingveldar hófst fyrir nokkrum árum í flugferð til Istanbúl, en í þeirri ferð var Írís flugfreyja en frú Ingveldur farþegi. Kanske er fullmikið í lagt að taka þannig til orða að frú Ingveldur hafi verið farþegi í þessari ferð, hún var í það minnsta ekki venjulegur og siðaður farþegi; orðið flugdólgur væri sönnu nær að lýsa athöfnum hennar og ráðslagi. En hvað um það, þegar frú Ingveldur var búin að terroríséra að því er virtist allt og alla í flugvélinni og ekki annað sýnt en að hún yrði handtekin á Istanbúlflugvelli og varpað í tyrkjafangelsi og kærur og málaferli yfirvofandi, þá sté fram flugfreyjan Írís Guðmundsdóttir og gekk í ábyrgð fyrir frú Ingveldi. Á það var fallist af hálfu flugstjórans, Eiríks Frankensen, með því eina skilyrði að frú Ingveldur léti fyrir berast í farangursgeymslu flugvélarinnar á leiðinni heim.
Þegar frú Ingveldur skreið illa til reika útúr farangurslestinni á Keflavíkurflugvelli tók Írís flugfreyja á móti henni, skælbrosandi aftur fyrir endajaxla, færði hana inná flugstöð þar sem Kolbeinn eiginmaður frú Ingveldar beið hennar æfur af bræði. Þegar Kolbeinn sá konu sína ætlaði hann umsvifalaust að leggja á hana hendur, en þá sté Írís flugfreyja enn og aftur fram til varnar frú Ingveldi og nú með því að slá ofbeldissegginn Kolbein Kolbeinsson í rot. Síðan hefir frú Ingveldi verið afar vel til Írísar Guðmundsdóttur flugfreyju.
Eitt flottasta áramótapartíið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.12.2014 kl. 00:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Í dag tók séra Atgeir fryggðina í misgripum fyrir friðinn
- Á meðan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hve...
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 12
- Sl. sólarhring: 167
- Sl. viku: 1252
- Frá upphafi: 1542512
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 1106
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007