Bloggfærslur mánaðarins, mars 2014
3.3.2014 | 16:01
Byrluðu þeim drykk sem var fullur af ESB-bakteríum

Eflaust munu fréttahaukarnir, fjaðra- og vængjalausu, fá ágæta umönnun þegar þeir verða orðnir örorkuþegar; gerðarlegar konur með bera rauðbólgna handleggi munu heimsækja þá daglega og mata þá eins og aligæsir; skipta um pampers á botninum á þeim; skúra gólfin hjá þeim; og gæta þess að þeir séu í ullarsokkum og með trefil svo slái nú ekki að þeim.
Upphafið að ógæfu fréttamannanna á Ríkisútvarpinu má rekja til þess, sagði mér skilvís maður, að óþokkar úr Samfylkingunni byrluðu þessum greyjum drykk sem var fullur af ESB-bakteríum. Þessar ofboðslegu bakteríur fóru að sjálfsögðu beint í höfuðið á fórnarlömbunum, sem aftur leiddi til þess, að þeir hafa þaðan í frá ekki komið frá sér óbreglaðri og hlutlausri frétt.
![]() |
Ef þið klippið ekki allt til |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |

Öllu alvarlegri tíðindi, sem þjóðin ætti að gaumgæfa áður en hún heldur áfram að rífa kjaft, eru hraksmánarleg veikindi Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra. En Kolbeinn Kolbeinsson hefur ekki verið mönnum sinnandi í um það bil hálfan mánuð; kveinkar sér stöðugt með dæsingum og hvalablæstri; fer í tíma og ótíma með bænakvak, ýmist tileinkað Guði Almáttkum eða ,,ErkiDjöflinum í helvítis Helvíti" eins og hann orðar það.
Fróðir menn í sálvísindum og geðlæknisfræði eru nokkuð samdóma um að krankleiki Kolbeins eigi rót sína að rekja til bilaðs dálætis hans á Evrópusambandinu, sjálfu ESB. Nú er fjarri, að Kolbeinn sé eini sjúklinguinn hér á landi sem þjáist af alvarlegum ESB-geðkrabba. Samkvæmt niðurstöðu úr rannsókn, sem birt var fyrir skömmu í kanadísku læknablaði, kom í ljós að um það bil tuttugu og fimm prósent íslensku þjóðarinnar hafi smitast af þessum illvíga sjúkdómi, fyrir utan þá sem þegar eru dauðir úr honum. Það er nefnilega líka komið í ljós, að ESB-geðkrabbi er ekki aðeins illvígur sjúkdómur heldur er hann í þokkabót svo lífhættulegur, að hver sá sem smitast af þessum óþverra mun geyspa golunni, fyrr eða síðar.
Í morgun, þegar ESB-geðkrabbasjúklingurinn Kolbeinn Kolbeinsson mætti til vinnu, brutust sjúkdómeinkennin út í því að hann réðist með háværu bölvi, svívirðingum og hótunum á skrifstofustúlkuna Yrzu Dögg; sakaði hana meðal annars um að neitað, aðfaranótt síðasta sunnudags, að taka þátt í þrísommi með honum og frú Ingveldi, en brugðið sér hálftíma síðar í samkonar leik með Máríu Borgargagni og djöflinum Indriða Handreði. Þá hótaði Kolbeinn henni að hýrudraga hana vel og vandlega um næstu mánaðarmót og seja hana að svo búnu Brynjari Vondulykt, því alræmda sóðakvikindi.
Af þessu geta menn séð, að ekki hefur verri farsótt en ESB-geðkrabbasýkin herjað á Íslendinga síðan stóra-bóla var og hét, en hún lagði að því talið er þriðjung landsmanna í gröfina. Ekki er því að undra, að aðstandendur Kolbeins Kolbeinssonar óttist að hann andist úr veikindum sínum áður en vorið gengur formlega í garð á því herrans ári 2014.
![]() |
40,9% styðja ríkisstjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.3.2014 | 22:08
Glæsilegasta dæmið um frábæran íslenskan stjórnanda

Eitt sinn var Valdór Pálsson, fyrrum háseti hjá Þorgarði, spurður að því hvernig stjórnandi Þorgarður hefði verið. - Hann hræðilegur, í einu orði hræðilegur, svaraði Valdór og tárin byrjuðu að streyma niður veðurbarðar kinnarnar á honum. - Þessi djöfull í mannsmynd, hélt Valdór áfram þegar hann var búinn að þurrka sér um augun, - rak okkur eins og hunda útá dekk þótt brotsjóir og hoskeflur æddu stanslaust yfir skipið og lét okkur draga netin þar til allt var búið. Og ef honum þótti ekki ganga nógu vel rak hann byssuhlaupið útum brúargluggann og hótaði að skjóta okkur eins og flækingsketti ef við létum ekki höndur standa framúr ermum. Og á lokadaginn barði hann flesta okkar til óbóta og sagðist drepa okkur ef við mættum ekki í snarhasti þegar hann boðaði til næsta úthalds.
Þegar Valdór var spurður að því hvort þeir hefðu ekki fiskað mikið og hvort hann hefði ekki haft rífandi tekjur þegar hann var með Þorgarði, svaraði Valdór því til, að hann hefði aldrei vitað hvað þeir fiskuðu mikið, en það hefði sennilega verið mikið. Og peninga hefði hann sjaldan séð þrátt fyrir háskann og þrældóminn sem Þorgarður hneppti hann í, því Þorgarður skipstjóri hefði tekið megnið af hlut skipverja uppí ýmsikonar vanrækslusyndir sem hann demdi á menn við öll hugsanleg tækifæri. - Enda var látið mikið með þennan óvætt innan LÍÚ og hann gerður að sérstökum heiðursfélaga þar á bæ þegar helvítið hætti á sjó, seldi útgerðina og settist að í þjónustuíbúð fyrir aldraða þar sem hann gerði allt vitlaust í hverri viku uns hann var flæmdur úr landi af Félagi eldri borgara og félags- og dómsmálaráðuneytinu.
Hinn mikli fyrirmyndarstjórnandi, Þorgarður Þorgarðsson, tók sig sem sé upp í elli sinni og flúði til Spánar með taugabilaða konu sína og málverkið af Agli Skallagrímssyni og settist að nálægt hóruhúsi einu í grend við höfnina í Barcelónu.
![]() |
5 leiðir til að vera frábær stjórnandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Það hafði nefnilega verið mikill glaumur og gleði um borð í togaranum á útleiðinni og gerðu menn margt fallegt sér til skemmtunar og unaðarauka. Um það bil sem veislugnýrinn náði hámarki tókst svo slysalega til, að nokkrir hásetanna tóku sjálfan mataveininn og aðstoðarkokkinn og neyddu þá til kynferðislegra athafna, en þá var togarinn kominn út á Halamið og slóaði þar uppí ölduna, því það var komið að þeim þætti veiðiferðarinnar að bíða eftir að færi að renna af mannskapnum svo hægt væri að hefja veiðar.
Þegar brennivínið uppdrukkið og allar töflurnar étnar, var trollið loks látið fara og allt datt í dúnalogn. En þá tók annað vandamál við og lítið betra: yfirmatreiðslumeistarinn var enn ofsareiður vegna hinnar svívirðilegu meðferðar sem hann og aðstoðarmaður hans höfðu orðið fyrir, og lokaði, með fulltingi aðstoðarkokksinns, borðsalnum fyrir dekkjöxlunum. Þess í stað slakaði hann matnum í skópfötu útum einn brúargluggann og máttu hásetarnir gera sér að góðu allan túrinn, að nota lestarlúguna fyrir matarborð og slafra þar í sig kræsingarnar, sem matsveinninn var svo hugulsamur að elda fyrir þá.
![]() |
Snæddu kvöldverð á stóra sviðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.3.2014 | 13:35
,,Það verður stríð, meira segi ég ekki"

![]() |
Þetta er stríðsyfirlýsing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.3.2014 | 12:49
Kunnur góðborgari illa haldinn af kvenrembusótt

Í gærmorgun var heilsufar Kolbeins með þeim hætti, að frú Ingveldur sá sér ekki annað fært en að kalla til lækni. Svo skemmtilega vildi til, að það var sjálfur doktor Gottfreður Gottferðsson, sem vitjaði sjúklingsins. Og Gottfreður Gottfreðsson hafði engann áhuga á að liggja á skoðun sinni viðvíkjandi sjúkdóminn og sjúklinginn. - Þetta bölvað kvikindi er komið með kvenrembusótt, andlega skitu og stökkbreyttan framsóknarvísrus. En það er engin hætta á, því miður, að hann drepist úr þessum fjanda, því hann er aumingi og ræfill, eins og þú veist manna best frú Ingveldur mín. - Já, svaraði frú Ingveldur, - ég hefi alltaf vitað að þetta er þrælmenni og bófi, uppfullur af brenglun og viðurstyggilegu óeðli.
Svo fór doktor Gottfreður að hlusta sjúklinginn alvarlegur á svip. - Nei hvur andskotinn, tautaði Gottfreður þegar hann beindi hlustunarpípunni að kviðnum á Kolbeini. - Ég held að kalldjöfullinn hljóti að hafa étið heilan árgang af tímariti nærbuxnafémínísta ofan í sig. Og sjáum til, snúðu þér á magann rafturinn þinn, ég ætla að hlusta á þér rassgatið. Kolbeinn velti sér orðalaust á belginn svo læknirinn gæti kannað þennan áríðandi líkamshluta á vísindalegan hátt. Á meðan doktorinn hlustaði afturendann á viðfangsefni sínu krossbölvaði hann og rak upp hlátursrokur á víxl. Svo hringdi hann á sjúkrabíl og skipað sjúkraflutningamönnunum í Guðs bænum að aka þessum sóttargemlingi í hvelli uppí sveit og loka hann inni í fjósinu hjá öfugugganum honum Freysteini bónda að Aurskriðuvöllum.
![]() |
Karlahúmor sem beinist að konum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.3.2014 | 21:15
Hér áður og fyrr átu menn og drukku uppúr sorptunnum og urðu af því feitir og hraustir

En nú er önnur öldin en áður var þegar á misjöfnu börnin þrifust best og vöndurinn þókti besta uppeldistækið: Úrkynjum, afkynjun og ókynjun er víst staðreynd meðal yngri kynslóðanna sökum cocopuffsneyslu, undanrennudrykkju og tölvubrenglunar. Þegar svo þessi grey reyna að leika eftir forfeðrum sínum að éta og drekka uppúr ruslatunnum þá drepast þau eins og pöddur sem lenda í skordýraeitri.
![]() |
Drakk viskí úr ruslafötu og lést |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2014 | 20:50
Vér þekkjum brennuvarginn, þjófana og hinn sofandi mann, og einnig hina frómu sómamenn

En hvurn fjárann á að fyrirstilla að amast við mönnum sem vildu selja fólki stolna skatgripi í Kringlunni? Er þessi Kringlu-skratti kanski ekki verslunarmiðstöð? Hefur enginn selt þar þjófstolið góss áður? Er nema von að spurt sé? Ekki veit ég betur en valinkunnir sómamenn hafi prangað út kvóta, öðru nafni fiskveiðiheimildum, í Kriglunni, og áttu þeir þó ekkert umfram pétur og pál í fiskinum í sjónum. Ekki voru valinkunnu sómamennirnir handteknir af lögreglunni fyrir þessa þýfissölu, - ónei þeim var hampað fyrir að vera kaldir karlar með vasana fulla af pééénííígum.
Drotni sé lof og dýrð fyrir að hafa gefið Íslandi landstólpana Haffa Frænku, Trugga Fokk og Brynjar Vondulykt.
![]() |
Reyndu að selja þýfi í Kringlunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.3.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 47
- Frá upphafi: 1545616
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007