Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2014
30.4.2014 | 17:48
Sanngjarnir menn vilja láta hengja óbermið án dóms og laga
Auðvitað er tiltæki melludólgsins, að nefna hórubæli sitt eftir heiðursmanninum Stráss-Khan, viðbjóðslegra en orð fá lýst og ekki nema von að Stráss-Khan bregðist ofsareiður við. Það er einróma skoðun sanngjarnra og góðgjarnra manna, sem hafa kynnt sér málavöxtu, að stjórnvöld í Belgíu eigi að handsama melludólginn og hengja hann umsvifalaust án dóms og laga og leggja eld að hóruhúsi þessa svívirðilega manns.
Nú er komið uppúr dúrnum, að bölvaður hórmangarinn atarna er einn af þessum stæku öfgafullu samfylkingarmönnum sem hafa beint samband við höfuðstöðvar ESB í Brussel (við könnumst við soleiðis villiminka hér á Íslandi). Þetta samband við ESB er að sjálfsögðu illyfirstíganleg hindrun fyrir Stráss-Khan í viðleitni hans til að ná fram sjálfsögðu réttlæti í þessu dæmalausa máli.
Strauss Kahn í mál við hórmangara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2014 | 11:49
Harðsvírað og mannskætt illfygli
Það er því hreint með ólíkindum, að til skuli vera fólk sem fagnar komu þessa mannhatursfulla vágests.
Krían kom á sumardaginn fyrsta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.4.2014 | 11:27
Ég tel mig vita hver þar var að verki
Ef mér skjátlast ekki því meir, þá hefur þetta annaðhvort verið frú Ingveldur eða Máría Borgargagn sem drýgði þennan hryllilega glæp. Að reykja inni á flugvélarklósetti! ... ekki nema það þó. Síðast þegar Máría Borgargagn reykti inni í taðhúsi flugvélar, sté flugstjórinn sjálfur fram á vígvöllinn og flengdi Borgargagnið á bert rassgatið fyrir framan alla farþegana. Það sem eftir var ferðarinnar lét hún lítið fyrir sér fara, en flugfreyjurnar urðu að leggja kalda bakstra á þjóhnappana á henni svo ekki hlypi bólga í þá.
Af flugferðum frú Ingveldar er það að segja, að skjaldan hefur annar eins flugdólgur í kvenmannsmynd flogið um loftin blá. Karlkyns flugþjóni svipti hún með hreðjataki uppí sætið til sín og lét hann kynnast því hvað íslenskar valkyrjutruntur geta gert þegar galsi er í þeim. Síðan þessi atburður gerðist hefir flugþjónninn verið algerður öryrki og ekki mönnum sinnandi.
Ölvuð reykti á salerni í flugvél | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2014 | 14:59
Nýjasta útgáfan af framsóknarlistanum - tvær dásamlegar viðhafnarskessur komnar á blað
Í stað Gvöðna og Gnarrsins dró skuggaráuneytið uppúr pússi sínu dásamlegar heiðursskessur, sem bera svipmót gömlu Framsóknarmaddömunnar í hverjum andlitsdrætti. Önnur þeirra hefur að vísu legið í gröf sinni um hríð, en það gerir ekkert til því Framsókn er, ekki síður en Guði Almáttugum, allt mögulegt.
Nýjasta útgáfan af 11 efstu sætunum á lista Framsóknarflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 2014 hljóðar því svo í Maddömunnar heilaga nafni:
1 Jónína Bjartmarz tengdamóðir
2 Ólafur Ólafsson bóndi og útgerðarmaður Miðhrauni I
3 Finnur Ingólfsson hitaveitumælaeigandi
4 Alfred Þorsteinsson snillingur
5 Halldór Ásgrímsson
6 Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri
7 Valgerður Swerrisdaugther framsóknarkona
8 Páll Pétursson framsóknarmaður
9 Alfred Þorsteinsson orkuveitusérfræðingur
10 Björn Ingi Hrafnsson núllognix
11 Jónas Jónsson fyrrverandi ráðherra, þingmaður, ritstjóri, skólastjóri o.s.frv.
Guðni gefur ekki kost á sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2014 | 18:53
,,Róttæklingarnir" Sóley og freðýsurnar í Undanrennulandi
Og nú veður Sóley Tomm fram á foraðið ásamt nokkrum freðýsum sem tákna framboðslista VG og með slepjulegri velþóknun Flokkseigendafélagsins og boðar einhvert undanrennugums, sem hún og hennar slekti kallar ,,róttækar" og ,,ábyrgar" tillögur fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. En svo einkennilegt sem það er, þá liggur hreinlega ekkert eftir frú Tomm á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka, hvorki róttækt né óróttækt. Það er því satt að segja aumkunarvert, en þó umfram allt hægilegt, þegar þessi lukkuriddari kemur skeiðandi með freðýsurnar sínar og boðar róttækni.
Vinstrihreyfingin grænt framboð er ekki vinstrisinnuð samtök eins og nafnið gefur til kynna, heldur tækifærissinnuð hægriklíka. Þessi óféti hafa hin síðustu ár lagt nótt við dag í að koma óorði á alla raunverulega vinstrimennsku, sósíalisma, og hefur því miður orðið vel ágengt í þeim efnum.
Vinstri græn munu hugsa um börnin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.4.2014 | 16:32
11 efstu sætin á listanum skipa ...
2 Ólafur Ólafsson bóndi og útgerðarmaður Miðhrauni I
3 Finnur Ingólfsson péééníngamaður
4 Alferd Þorsteinsson snillingur
5 Halldór Ásgrímsson
6 Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri
7 Valgerður Swerrisdaughter framsóknarkona
8 Páll Pétursson framsóknarmaður
9 Alfred Þorsteinsson hitaveitusérfræðingur
10 Björn Ingi Hrafnsson
11 Jón Gnarr framsóknarmaður
Svo sem sjá má af ellefu efstu sætunum, verður listi Framsóknar í Reykjavík svo firnasterkur að enginn mun standast honum snúning. Rauðhærður, digur og lattelepjandi stórspekingur úr 101 umdæminu lét eftir sér, þegar hann sá listann, að það að skipa Alfred Þorsteinsson bæði í fjórða og níunda sæti væri það eitursnjallasta sem sést hefði í íslenskri pólitík. Tvöfaldur Alfred í borgarstjórn Reykjavíkur væri ávísun á að minnsta kosti tvíellefta endurreisn höfuðborgarinnar og mörg og margföld heimsmet í góðæri borgarbúa.
Segir niðurstöðuna liggja fyrir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.4.2014 | 14:09
Misskilningurinn um Katrínu platstjórnmálamann
Katrín Jakobsdóttir hefur aldrei verið annað en þægilegt gluggaskraut Flokkseigendafélgs VG, flotið eins og hálfsokkinn vatnssósa spýtukubbur með þeim straumum sem flokkseinendunum hefur þóknast í það og það skiftið. Sem varaformaður VG var hún handónýt, og þegar átökin voru sem mest í flokknum var hún verri en engin, þrátt fyrir að venjan sé að varaformaður flokks eigi að stilla til friðar órói er innanflokks og hafa í heiðri að sanngirni sé gætt. Og sem formaður flokksins er hún að sjáfsögðu handónýt líka.
Þá virðast þátttakendur í könnununni halda að Katrín þessi standi við eigin sannfæringu. Það er stórmerkilegt vegna þess að ,,eigin sannfæring" Katrínar hefur aldrei legið ljós fyrir. Mér er til efs að Katrín hafi heldur einhverja pólitíska sannfæringu, að minnsta kosti hefur hún þá gætt þess vel að halda henni leyndri; skoðannadeyfð og skoðannaleysi hefur fram til þessa einkennt stjórnmálaferil þessarar strengjabrúðu flokkseigendafélags VG og engar líkur sjáanlegar að það breytist nokkurntíma. Eitt sinn undanrenna, alltaf undanrenna! er kjörorð pólitískra vafstrara sem eru af sama loddarakalíberi og formaður VG. Það eina sem grillir sæmilega í varðandi Katrínu Jakobsdóttir, er að hún er hægrisinnuð, þó hún geri sér ekki grein fyrir því, og góður liðsmaður þeirra sem telja að ríghalda verði í kapítalismann því hann sé eilíft náttúrulögmál sem Drottinn hafi skapað um leið og hann blés lífsandanum í nasirnar á Adami karlinn og Evu konu hans.
Katrín sterk og Jón Gnarr heiðarlegur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2014 | 12:11
Eðli þessara auðvaldsútibúa er eitt og hið sama í grunninn
Flokkar auðvaldsins hafa aldrei nema eitt markmið: að viðhalda núverandi stéttarskiftingu, standa vörð um hagsmuni þeirrar forréttindastéttar sem hefur tögl og hagldir í valdakerfinu í krafti peninga, og skiftir þá engu máli hvort viðkomandi auðvaldsflokkar eru gerðir út af Engeyjarættinni, Kaupfélagi Skagfirðinga, Árna Páli, Steingrími J., Gvendi Steingríms, Birgittu eða Sveini Andra. Eðli þessara auðvaldsútibúa er eitt og hið sama í grunninn.
Sveinn Andri áfram í fótgönguliðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.4.2014 | 23:21
Hinir siðlausu Bíbirfeðgar eru óalandi vágestir hvar sem þeir koma
Á stuttum tíma hefur maður heyrt margar ljótar sögur af þeim Bíbirfeðgum, hverja aðra hroðalegri. Má af þeim sögum ætla, að þeir séu gjörsamlega siðlausir og í þokkabót nærbuxnalausari en góðu hófi gegnir.
Þegar undirskriftasöfununni um brottrekstur Bíbirs var hrundið úr vör í Bandaríkjunum orkti þjóðskáld Repúblíkanaflokksins eftirfarandi baráttuvísu:
Þú ungi útlifaði strákéttlingsfjandi:
Það ætti að reka þig srtax úr landi
og skvetta á eftir þér skít og hlandi.
Vildu reka Bieber úr landi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2014 | 19:39
Ungt hæfileika- og hugsjónafólk
Ljóst er að flest hefur aflaga farið í uppeldi barnanna með hasshausana. Þau hafa ekki kynnst vendinum sem skildi í uppvextinum. Þó er ekki of seint, að taka bölvaða ormana og kaghýða þá, já og foreldra þeirra líka.
Reyktu gras á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 21
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 1493
- Frá upphafi: 1542363
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 1315
- Gestir í dag: 20
- IP-tölur í dag: 20
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007