Bloggfærslur mánaðarins, júní 2014
26.6.2014 | 15:55
Og pestin af honum ætlaði alla lifandi að drepa
Þó tekur útyfir allan þjófabálk að það skuli vera siðlausir lögmannsþorparar, vandlega merktir hrunflokkunum alræmdu, sem græða mest á öllu saman. Þetta minnir á þegar Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri, uppáklæddur í kjólföt og með föðurmorðingja um hálsinn, skeit í buxurnar í mikilli stertimennaveislu hér um árið og pestin af honum ætlaði alla viðstadda lifandi að drepa.
Vill að málinu verði skipt upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.6.2014 | 18:19
Búrtík tannar hækil grátgjarns smádrengs
En ég held ég mæli fyrir munn allra landsmanna þegar ég segi, að eins gott sé að margnefnd Búrtík taki sig ekki til og leggi til atlögu við blessað gluggaskrautið og éti það upp til agna, eins og frændi Búrtíkurinnar, sjálfur Úlfurinn, þegar hann sporðrenndi Rauðhettu og Ömmunni hér um árið. Ef Búrtíkin fremdi það voðaverk, væri eigandinn nauðbeygður til að sækja kindabyssuna og leiða þetta uppáhalds gæludýr sitt bak við hlöðu og kenna því sitthvað um púður og blý.
Björn Valur ræðst að Bjarna Ben. | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.6.2014 | 15:06
Fryggðarvísitala Íslands er einnig í frásögur færandi
Ef einhver reisn væri á Íslendingum værum vér búnir að brjóta undir okkur Færeyjar, Hjaltland og Orkneyjar ásamt Grænlandi og Jan Mayen og í haust væri komið að því að fara með vopnum á Skandinávíu. Eina ljósið í myrkrinu er Framsóknarflokkurinn, en innan hans munu vera í bígerð metnaðarfullar áætlanir um landvinninga og langþráðan hernað; fyrsta opinbera skrefið í þá átt tók lautinant Sveinbjörg þegar hún lýsti yfir stríði Framsóknar gegn moskum og múhámeðstrúarmönnum.
Aftur á móti hefir Ísland verskuldað verið efst á lista yfir fryggðaróðustu þjóðir heims, það hefir fryggðarvísitalan margsannað. Frú Ingveldur, Kolbeinn, Borgargagnið og Indriði Handreður eru öll dásamleg dæmi um fólk sem fullt er af fryggðarvilja og framkvæmir það sem aðrir þora ekki einusinni að hugsa um. Þó er hálf-kynlegt, að Íslendingar séu þau endemis skítseyði og glugghross að taka ætíð fryggðina og friðinn fram yfir mannbætandi og stælandi ófrið. Það hefði gömlu mönnunum í íslendingasögunum þókt lítilmannlegt og til illrar úrkynjunar fallið á sinni tíð.
Ísland er enn friðsælast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2014 | 13:51
Þegar frú Ingveldur Gardal banaði manni sínum
Ég hengdi Mánga minn í nótt með snæri,
svo mér er þungt um hjartarót af trega.
En Mángi heitinn hraut svo gífurlega,
að hér var ekki nokkurt undanfæri.
Um morguninn fengu hundarnir og kettirnir ólseiga steik í árbít, sem þeir þó fyrirgáfu matmóður sinni því hún skenkti þeim ómælt af rauðvínskúti sínum stórum til að skola niður steikinni.
Drap eiginmanninn og eldaði líffærin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2014 | 12:04
Staðreyndirnar gætu orðið skeinuhættar
Ja það er nú það og jamm og já.
Það er svosem ekki borðliggjandi að Valhallartríóið í innanríkisráðuneytinu kæri sig eins mikið um beinharðar staðreyndir í lekamálinu og þau vilja vera láta; að minnsta kosti ekki að allur landslýður viti allar staðreyndir um lekann góða, sem var svo asskoti brillíant og beinskeyttur þegar af stað var farið. Það gæti nefnilega farið gríðarlega (orðið ,,gíðarlega" er uppáhaldsorð innanríkisráðherra) illa með umrætt tríó ef umbúðarlausar staðreyndir lekans kæmu fram í dagsljósið; það kynni að þýða rimla, slagbranda, gaddavír og hnausþykka járnbenta steimsteypta veggi undir yfir og alltumkring fyrir veslings fólkið. Eða eru það máske Reynir Traustason og félagar sem þurfa meir að óttast rimlana og gaddavírinn? Það má víst fjandinn vita. En lekamálið blívur því það er skemmtilegt, gáfulegt og í alla staði dásamlegt.
Þegar margumrætt lekamál komst í hámæli, sagði Máría Borgargagn, sem gjörþekkir leiki borgarastéttarinnar, að ólíklegt væri að allir kæmust óslasaðir frá þessari kyndugu uppákomu, sennilega myndi einhver lenda í steininum, einkum og sérílagi ef staðreyndir málsins næðu að skríða fram í dagsljósið, eða jafnvel í gapastokknum.
Þórey leitar réttar síns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2014 | 11:00
Þegar þeir ætluðu að sprengja frú Ingveldi og Kolbein til Andskotans.
Skömmu eftir Hrunið góða hér á Íslandi ætluðu þeir að koma fyrir ódæmum af sprengiefni við heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar og láta síðan allt klabbið fjúka útí veður og vind ásamt meðfylgjandi hávaða og mannfalli. Á ögurstundu sá frú Inveldur til hryðjuverkamannanna og skarst í leikin. Þrátt fyrir að vera all-ölvuð af hvannarrótarbrennivíni tókst henni að læðast aftanað ódæðishundunum og slá þá gjörsamlega kalda og gera sprengjur þeirra upptækar. Fám dögum síðar hófst styttan af öreigaskáldinu Kristjáni Kristjánssyni á loft með gríðarlegum hvelli og sundraðist útum víðan völl. Var þar komin sprengjan, sem í fyrstu var ætlað að granda frú Ingveldi, Kolbeini Kolbeinssyni og húsi þeirra ágætu. Frú Ingveldur sagði frá þessum atburðum á fulltrúaráðsfundi sjálfstæðismanna í Valhöll og var gerður góður rómur að frásögn hennar og þókti mönnum koma vel á vondann, að stytta af einskisnýtu klámskáldi og kommúnistasvíni færi í þúsund mola í stað orðlagðra sæmdarhjóna sem gjörvöll borgarstéttin hefir velþóknun á.
Sprengjumaðurinn í gæsluvarðhaldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2014 | 21:27
Nú er stóra tækifærið fyrir Eið Smára
Er ofdekraður heima fyrir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.6.2014 | 15:01
Úr Hruni á Hraunið - Eða leggjast út á fjöllum
Þegar hann var handsamaður æpti hann, ,,ég er saklaus, ég er saklaus!" Fyrir réttinum svaraði hann öllum spurningum sem var beint að honum, ,, ég er saklaus, ég er saklaus." Og með þessi orð á vör verður honum stungið inn á Litla-Hraun.
Já hann er ekki orðmargur blessaður fyrrverandi forstjórinn og lítið gefinn fyrir að málfarsflækjur. Þó má telja líklegt að föngunum á Hrauninu muni takast að rugla hann svo í ríminu að hann játi uppúr svefni allar sakargiftir sem uppá hann hafa verið bornar eftir Hrun. En það skiptir varla miklu máli úr þessu hvort hann játar eða neitar, lýsir sig saklausan eða sekan: hann fer á Hraunið ásamt vinum sínum, stórbóndanum og þeim píreygða. Og ef þeir reyna að strjúka, hafa þeir ekki annað uppúr því en að gripnir og skutlað samstundis í Svartholið til einangrunar.
Fyrir þessa ógæfusömu pilta, forstjórann fyrrverandi, stórbóndann og þann píreygða, er nú fátt orðið í stöðunni annað en að fara að dæmi Arnesar Pálssonar og Eyvindar Jónssonar og leggjast út uppi á öræfum eða norður á Hornströndum. Að öðrum kosti verða þeir að láta sé lynda næstu áratugina að gista innan múrsins að Litla-Hrauni.
Hreiðar Már lýsti yfir sakleysi sínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.6.2014 | 11:27
Forsenda góðs réttarkerfis og óhjákvæmilegs réttlætis
Sérstakur saksóknari á heldur ekkert með að vera að básúna yfir landslýð hverjir á sakamannabekknum eru skyldir hverjum í dómarasætunum; þessháttar framferði veikir samfélagsins góðan skikk og grefur undan nauðsynlegri stjórnskipan. Við þessum óláns kjafthætti sérstaka saksóknarans verður ríkisstjórnin að bregðast með því að setja hann af nú þegar.
Ég trúi ekki að þjóðin sé svo illa gerð og andstyggileg, að hún vilji umfram annað sjá sína bestu syni og dætur bak við lás og slá innan um hroðalega glæpamenn. Fangelsin eru ekki fyrir Ólaf Ólafsson stórbónda og hans líka, þau eru fyrir snærisþjófa, slagsmálhunda og dópsprúttara. Þetta verðum við að muna um leið og við gáum að Guði.
Hefði ekki átt að fara í fjölmiðla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.6.2014 | 10:43
Þó fátt sé um fína drætti koma þó fjölmargir kandídatar til greina
Og þó.
Það vill svo einkennilega til, að það munu vera fáein eintök á rjátli sem ekki munu fúlsa við að gjörast forsetar Íslands, hálfgerðir útikamrar að vísu en glæsileg eintök samt. Í fljótu bragði koma nöfn eins og Steingrímur J. Sigfússon, Tryggvi Þór Herberstsson, Jón Gnarr, Þorsteinn Már Samherji og Jón Steinar Gunlaugsson uppí hugan, allt sérkennilegir fuglar kunnir af kúnstum og sjónhverfingum. Úr kvennastétt eru virkilega áhugaverðar til forsetastarfs þær Ingibjörg Sólrún, Hanna Birna ráðherra, Álfheiður Ingadóttir og Hildur Lilliendalh. Þá koma spekingar eins og Egill Helgason, Ingvi Hrafn og Þorsteinn Pálsson vel til greina, svo ekki sé nú minnst á Finn Ingólfsson, Jón Ásgeir og Halldór Ásgrímsson.
Jú, þegar betur er að gáð, þá er bara heilmikið af hugsanlegum forsetakandídötum í sjónmáli. En að þessu sinni verðum við að muna að glopra nú ekki þessu æðsta embætti þjóðarinnar í hendurnar á einhverjum forhertum ódámi sem líklegur er til að neita að skrifa uppá icesave-reikninga framtíðarinnar, eða er á móti auðvaldsapparatinu ESB, eða er líklegur til að slá svikular ríkisstjórnir utanundir með blautum sjóvettlingi þegar þær hafa gert í bólið sitt.
Sækist ekki eftir endurkjöri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 4
- Sl. sólarhring: 62
- Sl. viku: 1476
- Frá upphafi: 1542346
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 1299
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007