Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2015
Síðan Ríki íslams ruddi sér til rúms í fjölmiðlum vestrænna kapítalista, hefir vegur Al-kaída nánast hrunið (sbr. Hrunið á Íslandi 2008) og Ósama heitinn bin Laden heyrist ekki lengur nefdur á nafn, hvað þá Saddámur sálugi Hússein, en áminnstir heiðursmenn og uppeldissynir USA, ESB og NATO voru nefndir að illu einu að meðaltali þrisvar hvor í öllum fréttamiðlum Vesturlanda um árabil. Aðrar eins grýlur hafa skjaldan verið uppi í hugarheimi offíséra og kóngalýðs í Evrópu og Amríku síðan félagi Stalín hvarf á vit feðra sinna.
Og Greiningardeild Ríkislögreglustjóra hér uppá litla Íslandi lætur ekki sitt eftir liggja og boðar komu Ríkis Íslams, hryðjuverk, mannfelli og slaverí. Við skulum ætla, að í greiningardeild ríkislögreglustjóra veljist afar greindir menn og konur, við hinir sauðsvörtu trúum bara ekki öðru. Svo ógurlega greindir og stórgáfaðir hljóta húskarlar og griðkur greiningardeildarinnar vera að þeim er ekkert hulið; þau sjái gegnum stokka og steina og alla leið inní innstu hugarfylgsni morðóðra hryðjuverkaberserkja, hversu vel sem þeir hafa dulbúið sig. Það er ekki amalegt að eiga Ríkislögreglustjóra með röntgensjón og alsjáandi greiningardeild.
Reyndar hafa glöggskyggnir menn með alvöru sjón séð bæði Ósama og Saddam annað slagið á förnum vegi á höfuðborgarsvæðinu. Þeir kumpánar ku vinna almenn störf þar um slóðir frá átta til fimm, annar á leikskóla en hinn á bifreiðaverkstæði og eru vel þokkaðir af samstarfsfélögum sínum. Um helgar fara þeir á vertshús til að eltast við kéllíngar, því þá þyrstir í að eignast eiginkonur, börn og friðsælt heimili.
Hryðjuverkamenn fara um Ísland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2015 | 18:45
Upprisinn kollsteyputöffari í endurnýjun lífdaga
Næsthelsti uppáhaldsstjórnmálamaður frú Ingveldar, Gjeir okkar hérna Hooordý, má muna tímana tvenna, ef ekki þrenna eða ferna. Karlinn sá er ekkert blávatn, enda starfaði hann frjálhyggjuvæðingu, einkavæðingu og græðgisvæðingu um árabil með fjarska góðum árangri. En einn góðan veðurdag hrundu allar þessar væðingar og góði árangurinn varð að vondum árangri, eiginlega að einhverskonar voðaverki. Auðvitað varð Gjeir veikur þegar niðurstaðan varð almenningi heyrinkunn og valt einsog heypoki úr háum sessi forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins. Það var mikið fall. Ekki bætti úr skák þegar hann var dreginn eins og krimmaódámur fyrir Landsrétt, sem kvað upp þann úrskurð að hann væri afglapi.
En nú er öldin önnur, vinafélag Gjeirs kom honum á loft aftur og sendi hann til USA þar sem hann situr nú fyrir á myndum með Barrakki bandaríkjaforseta. Reyndar skyggir Reykjavíkurbréf Moggans um síðustu helgi á gleði hins upprisna kollsteyputöffara og velunnara hans, en þar var, eftir því sem heimildir herma, minnst á leiðinlegt og leynilegt símtal þar sem Gjeir mundaði símtólið á öðrum endanum en seðlabankastjóri á hinum og umræðuefnið var ógurlegt lán til dauðvona banka, sem hafði fám árum áður verið einkavæddur til Framsóknarmaddömunnar og flokks hennar. Ekki er að efa að það var voðalegt og þungbært símtal og bergmálið af því mun sennilega uppi meðan land verður í byggð.
Í morgun þurstu frú Ingveldur og Kolbeinn eiginmaður hennar og framsóknarmaður heim til nágranna þeirra hjóna og báru hann þungum sökum, meðal annars að stunda slúður og þvætting um menn og málefni sem honum varðaði ekki um. Hótuðu frú Ingveldur og Kolbeinn nágrannanum að leggja hann og fjölskyldu hans í rjókandi rúst ef hann drægi ekki slúður sitt og illmælgi til baka og héldi síðan kjafti þaðan í frá.
Geir hitti Obama í Hvíta húsinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2015 | 20:11
Rasismaglöðu fordómafólin
Miðað við lýsingu á háttarlagi þessara voluðu bræðra okkar í Drotni, þá eiga þeir heima á sjúkrahúsi hjá géðlæknum og sálvísndamönnum en ekki í gæsluvarðhaldi bak við lás og slá. Að loka fárveikt fólk inni í einagrunarklefa undir vörslu rassbreiðra fangavarða er mjög frumstæð villimennska og af sama meiði og vesalings mennirnir í ISIS. Að saksóknari og aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu skuli mæla með slíkum vanvitaskap árið 2015 er hvort tveggja í senn, sorglegt og alvarlegt.
Og ekki er lánlegra að fylgjast með hinum rasismaglöðu fordómafólum, sem fram til þessa hafa haldið til í sínum fráhrindandi rottuholum, en hafa síðustu misseri skriðið fram í dagsljósið ásamt þeim munnsöfnuði sem heyrir til frumstæðum villimönnum með sjúk viðhorf til meðbræðra sinna. Þessir kónar, af báðum kynjum, eru drjúgir með sig, slá um sig með kallmannlegum ruddaskap hvernig eigi að meðhöndla þetta útlenda glæpahyski, sem sé með ísmeygilegum hætti að reyna koma sér fyrir í okkar Guðsútvalda og hreina víkingalandi með það eitt fyrir augum að fordjarfa land og þjóð og gera oss að þrælum í barbaríinu. Í þokkabót láta hin fákunnandi rasistaræxni í veðri vaka, að þau séu sérstaklega handgenginn Guði, hvaða guð sem það nú er, og umburðarlynd framúr hófi, gáfað og vel menntað. Ömurlegara hyski er varla hægt að hugsa sér ...
Óheppilegt að þeir gangi lausir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.2.2015 | 18:52
Í Edens fínum rann
Á laugardaginn síðasta skarst alvarlega í odda millum vinkvennana, frú Ingveldar og Máríu Borgargagns, og mátti maður ganga undir manns hönd að enginn var veginn eða myrtur í þeim ógnvekjandi svarragangi. Deilan hófst með því að Máría Borgargagn rifjaði upp meint hórdómsbrot sambýlismanns síns, Indriða Handreðar, með frú Ingveldi. Lýsti Máría með fáeinum vel völdum orðum lostalegu framferði frú Ingveldar og hvernig henni tókst að fá Handreðinn til við sig. Frú Ingveldur brást illa við vitnisburði vinkonu sinnar og sagði viðstöðulaust með höstugum róm frá þeirri hræðilegu upplifun, að koma að Máríu, Kolbeini og Brynjari Vondulykt, öllum berrössuðum, undir reinsróvernum úti í bílskúr í viðbjóðslegum kynferðisathöfnum, sem vóru svo viðbjóðslegar að sjálfum Erkidjöflinum í Helvíti hefði aldrei hugkvæmst þvílíkur hroði og óþverri.
Eftir þessi fyrstu orðaskifti vinkvennana hefði mátt ætla að þær sættust á jafntefli og viku samtali sínu að öðrum og viðkunnanlegri málefnum eins og aðförinni að Hönnu Birnu og múslímadaðri vantrúarmanna. En það var öðru nær. Máría Borgargagn stökk uppá nef sér útaf meintu ástarfari hennar, Kolbeins og Vondulyktarinnar í bílskúrnum og brá frú Ingveldi um kynvillu og öfuguggahátt af stærðargráður sem áður var óþekkt. Við þetta mótlæti elfdist frú Ingveldi kapp og þeytti eldhússtóli í átt að Borgargagninu, en missti marks og þaut stóllinn útum stofuglugga eftir viðkomu á kviðnum á Viggu Sleggju, sem skrapp í allri sinni lengd saman í hnút og kastaðist síðan endilöng á sófaborð, með annað brjóstið uppúr hálsmálinu, og setti um glös og flöskur og eina kókaínlínu sem átti að fara uppí nösina á Óla Apaketti. Síðan brast á allsherjarbardagi í húsinu.
Þegar orrahríðin hafði staðið drúga stund og mannfall enn drýgra, náði frú Ingveldur snöggu hálstaki á Viggu Sleggju og hótaði á sömu stund að hengja þessa andskotans ekkisens dræsu undir eins ef stríðandi aðilar legðu ekki niður vopn. Féll þá allt í ljúfa löð, en frú Ingveldur sleppti takinu af Sleggjunni, en gat þó ekki stillt sig um að hárreyta hana dálítið og sparka í hana um leið og hún hratt henni frá sér. Síðan sungu viðstaddir kvæðið þar sem ,,skandalarnir í Edens fínum rann" koma fyrir.
Hótanir og ökuskírteini til Vantrúar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2015 | 19:05
Sá kostur vænstur að skríða undir stélið á Brynjari
Það er meira helvítið hvað platvinstrititturinn, úlfurinn í sauðargærunni, Steingrímur þeirra Joð, gerist ætíð skapvondur, að ekki sé sagt froðufellandi galinn, þegar einhver leyfir sér að tala um rannsókn á endurreisn Gamla Íslands. Það er aungvu líkara en þessi rammkapítalíski Mammons þjónn hafi étið ofaní sig sig einhverja krassandi ólyfjan, svo suddalegt er hamsleysi hans og svarragangur þegar ,,endurreisnarstarf" hans ber á góma.
Og þó að Steingrímur telji þann kost vænstann að skríða undir stélfjaðrirnar á Brynjari Níelssyni á þessum tímapunkti þá mun það skammt duga ef vel meinandi fólk tæki sig til og rannsakaði framferði hans og Ögmundar hins tvöfalda, eða öllu heldur margfalda, innan VG, óheiðarleik þeirra svik og loddarahátt. Í það minnsta er hætt við að niðurstaðu úr slíkri rannsókn myndi verða framúrskarandi illþefjandi og krassandi. Ef til væri Dómstóll alþýðunnar færu þessir kónar að sjálfsögðu umsvifalaust í gapastokkinn öðrum pólitískum óheilindagemlingum til viðvörunnar.
En Steingrímur er ógeðvær maður, uppfullur af eigingjörnum metnaði og leiðinlegur að sama skapi. Honum munaði ekki um að svíkja eigin flokk og kjósendur hans til að fá ráðherrastól undir berandann á sér. Honum hefur heldur aldrei munað um að grafa undan eigin flokksmönnum á bak við tjöldinn eins og lævís melrakki og síðast en ekki síst eiga samherjarnir í LÍÚ hauk í horni þar sem Steingrímur J. Sigfússon er.
Að sjálfsögðu ættu melrakkarnir sem stálu VG til að fullnægja eigin borgaralega hégóma að skammast sín og biðja fyrrum flokksmenn og kjósendur fyrirgefningar á framferði sínu. En því miður kunna þessi undirförulu skepnur ekki að skammast sín og munu heldur aldrei læra þá list, enda hafa þær ekki hæfileika til þess.
Sigmundur snúi sér að öðru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2015 | 16:32
Andinn yfir Gunnari Braga og fýlan úr Framsóknarfjósinu
Svo mikið er víst að ekki er andinn yngri yfir hausamótunum á Gunnari Braga en flugi rússnesku sprengiflugvélanna. Raunar fullmikið sagt að einhver andi sé yfir jafn aldlausum manni og þessum Gunnari Braga annar en gamalkunna fýlan úr Framsóknarfjósinu og gifturíka kaupfélagsstjóranum sem gerir Gunnar Braga út til einhverra dularfullra verka. Og auðvitað þorir utanríkisráðherrann ekki að ybba framsóknarpáfagauksgogginn sinn við sendiherra Rússa, enda myndi sá sendiherra ekki seinn á sér að hafa endaskifti á garminum og hýða hann eins og leiðinlegt krakkaskrípi.
Þá hafa áhyggjur Kolbeins Kolbeinssonar af Gunnari Braga ekki legið í láginni. Til dæmis hefir Kolbeinn verið miður sín, jafnt ódrukkinn sem drukkinn, útaf dularfullum ferðum ráðherrans til Úkraínu, sem Gunnar Bragi kallara alltaf Úkranínu eða Úraníu. Og Kolbeini er vorkun, því mannfénaðurinn sem utanríkisráðherrann hefir verið að heilsa uppá í henni Úraníu sinni eru alræmdir valdaræningjar og glæpasteggir með sóðalegar og mannskemmandi stjórnmálaskoðannir.
Nú er von framfarasinnaðra manna, að næst þegar Rússarnir koma á sprengiflugvélunum sínum, þá lendi þeir á Reykjavíkurflugvelli og taki Gunnar Braga með sér til Rússlands og geri hann þar að geitahirði austrí Síberíu. Aðrir eru þeirrar skoðunnar, að betra væri að rússaflugvélarnar hendi nokkrum vel völdum sprengjum niður á þakið á Framsóknarfjósinu og afmái það af yfirborði jarðar ásamt fjóshaugnum og púkastóðinu sem þar hefst við.
Gamaldags andi yfir flugi Rússa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2015 | 10:45
Brauðfóturinn okkar í forsætisráðuneytinu
Það er naumast gáll á brauðfætinum okkar í forsætisráðuneytinu þessa stundina. Nú vill kallkjökrið fá ,,erlenda aðila" til að reyna að rétta hlut Víglund Þorsteinssonar eftir Brynjar Níelsson sveikst undan merkjum og kvað uppúr með að plögg jarlsins af Vallá væri best kominn í klóakinu eins og hver annar skeinispappír.
Ef svo einkennilega skyldi til takast, að Sigmundur Davíð fái ,,erlenda aðila" til að skoða endurreisn bankanna, væri tilvalið fyrir hann biðja þessa ,,aðila" sína að rannsaka lungun, lifrina og nýrun í Framsóknarflokknum, heilabú gömlu Framsóknarmaddömunnar og smáþarma, en einkum þó og sér í lagi vinganginn í görnunum á Kaupfélagsstjóranum á Sauðárkróki, Halldóri, Finni, Ólafi á Miðhrauni I. og Sigga Einars sem ekki var fullur í fréttatíma sjónvarpsins.
Eflaust fær litli húskarlinn Framsóknarmaddömunnar ekki nokkurn ,,erlendan aðila" til að gramsa í innyflum Framsóknarfjóssins nema gegni himinhárri þóknun fyrir sérlegt óþrifaálag sem óhjákvæmilega fylgir því skítverki. Hitt er svo annað mál, hvort nægilega margir séu fylgjandi því að fleygja péníngum í þessu árferði í einhverja erlenda framsóknarlubba, sem forsætisráðherra lýðveldisins hefur hug á að fá til að finna góða niðurstöðu fyrir sig og Vallárskrögginn.
Vill rannsókn erlendra aðila | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2015 | 18:41
Uppákoman hjá unga parinu ekki einsdæmi
Þessi skemmtilega uppákoma hjá unga parinu er sem betur fer ekki einsdæmi hérlendis. Að minnsta kosti fóru Máría Borgargagn og Indriði Handreður í sumarbústað sinn ein saman og höfðu með sér kannabis, sveppi, kókaín og romm. Skifti engum togum, að klukkustund eftir að þau komu bústaðinn keyrði eiturnautnavíman um þverbak hjá þessum viðkunnanlegu sambýlingum. Indriði Handreður og ungi maðurinn í Borgarbyggð og hjóp strípaður hring eftir hring kringum sumarbústaðinn meðan Borgargagnið klöngraðist alveg jafn strípuð uppá þak sumarbúsataðrins og lét þar öllum illum látum. Voru læti hennar svo ill, að ekki var við hæfi barna að horfa uppá þau ósköp og látbragðið var þess kyns að varðaði við hengningarlög.
En þegar Handeðurinn hafði hlaupið kringum sumarbústaðinn í stinna þrjá klukkutíma hné hann niður og bærði ekki á sér hálfan sólarhring. Afturámóti staulaðist Máría Borgargagn niður af þakinu þegar Handreðurinn var lagstur í dvala og fór að viðra sig uppvið manninn í næsta bústað. Það framtak Máríu gerði heilmikinn usla, því kona mannsins tók heimsókn Máríu óvenju illa upp. Daginn eftir var sorg í ranni Máríu Borgargagns og Indriða Handreðs því hún var víða klóruð á kroppnum eftir klær nágrannakonunnar en hann hræðilega sólbrunninn eftir að hafa legið í öngviti nakinn í sömu stellingu úti í brennandi sólinni.
Borðaði hassís og hljóp um nakinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2015 | 17:55
Fortakslaust mesta lágkúra sem heyrst hefur hér á landi
Sannast sagna var síðasta Söngvakeppni sjónvarpsins fortakslaust mesta lágkúra í kveðandi er sést og heyrst hefir hér á landi. Og í samræmi við hryllinginn sem tónskáld og flytjendur buðu uppá sigraði lélegasta og verst flutta lagið. Þetta væri auðvitað gott og blessað ef ekki fylgdi með í kaupunum að þennan óviðjafnanlega óþverra á að veina og öskra á alþjóðlegum vettvangi í keppni við tónsmíðar frá menntuðum þjóðum; er mál manna að þarna sé í uppsiglingu mesta hneysa, ef ekkert verður að gert, sem yfir íslensku þjóðina hefir dunið að fornu og nýju.
Já það er ömurlegur vitnisburður um lágmenningu Íslendinga, að nú eigi að senda til útlanda skerandi vein, sem fram til þessa hafa verið eignuð stungnum grísum eða trylltu kvenfólki sem er að falla fyrir björg.
Síðstliðið mánudagskveld gerðust þau býsn þegar frú Ingveldur gekk örna sinna, að hún rak upp sambærileg vein og framin eru í vinningslaginu vegna þess að hún var með harðlífi. Kolbeinn maður hennar gaf kveinstöfum frú Ingveldar engann gaum því hann hélt að hún væri að syngja nýja júróvísíjónlagið. En fólkið í næsta húsi heyrði neyðarópin og hringdu unsvifalaust á lögregluna, því þau héldu að Kolbeinn væri að myrða eiginkonu sína. Skömmu síðar óðu fjórir strakassaðair lögregluþjónar inn til þeirra hjóna og handtóku Kolbein án frekara málalenginga og lokuðu hann inni, en hirtu ekki um frú Ingveldi hvar hún sat hljóðandi á salernisskálinni.
Friðrik Dór fékk fleiri stig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er algjör óþarfi fyrir nokkun mann að fara úr límingunum útaf jafn hundleiðinlegu og ómerkilegu fyrirbæri og Gnarrinu; það eina sem er merkilegt við fyrirbærið er hin innantóma og andlausa múgsefjun sem verið hefur kringum það. Og að vígðir klerkar skuli ekki hafa vit á að láta aulaspekina í Gnarrinu eins og vind um eyru þjóta, er varla ásættanlegt. Mig minnir að það hafi verið geðbilaður þýskur heimspekingur á öldinni fyrir þá síðustu, sem gaf út dánarvottorð á Guð, þó svo hann hafi hvorki haft líkið í höndunu né vísað á það. Samskonar er speki Gnarrsins og þess geggjaða í Þýskalandi og engu við hana að bæta.
Hin dekkri hlið á gnarrismanum er svo tómhyggjan, sjálfhverfan og uppskafningin, sem hóf innreið sína fyrir alvöru í stjórnmálunum á Íslandi með lýðhylli þessa framúrskarandi heimskulega og þrautleiðinlega isma, sem spratt eins og krabbameinsæxli útúr sjúku sálarlífi borgarastéttarinnar, þ.e. Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og kratahænsnanna.
Daginn sem Jón Gnarr var gerður að borgarstjóra í Reykjavík, lýsti frú Ingveldur því yfir að þetta væru ekki eins vond tíðindi fyrir Sjálfstæðismenn og einhverjir létu í veðri vaka: Gnarrið væri nefnilega prýðilegur millileikur meðan Stóri Bróðir, Sjálfstæðisflokkurinn, væri að ná vopnum sínum aftur og hefjast til fyrri metorða í borginni. Þetta var skarplega hugsað hjá frú Ingveldi og því miður hárrétt. Á eftir R-lista moðsuðunni kom vandræðaskáldskapurinn um Ólaf F. og Hönnu Birnu, þar á eftir gnarrisminn og í kjölfarið á honum múslímapæjurnar í Framsóknarflokknum. Þessi vegferð sýnir að vísu að lengi getur vont orðið enn verra, en að lokum mun höfuðdjásn borgarastéttarinnar, sjálfur Sjálfstæðisflokkurinn, standa með pálmann í gráðugum lúkunum.
Prestar fara á límingum yfir Jóni Gnarr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 46
- Sl. sólarhring: 121
- Sl. viku: 204
- Frá upphafi: 1539487
Annað
- Innlit í dag: 43
- Innlit sl. viku: 177
- Gestir í dag: 43
- IP-tölur í dag: 42
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007