Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2015

Krókódílatár

xs1Morgunblaðsgreinin, ,,Hrollvekjusaga", eftir Sighvat Björgvinsson, hlýtur að vera pólitísk saga hans sjálfs. Sighvatur þessi, sem frá blautu bandsbeini hefir verið haldinn alvarlegu krataskitueðli, er einn þessara grjóthörðu hægrigaura sem komið hafa óorði á vinstristefnu með því að krefjast þess að vera álitinn vinstrimaður. Af þeim sökum er pólitskt vafstur hans ein lágkúruleg og ógeðfelld hrollvekjusaga án upphafs en endis.

En nú er ófétið Samfylking bráðum dauð. Hana munu fáir syrgja, nema tilgangslausir pólitískir flóðhestar á borð við Sighvat, Eið Guðnason og Össur Skarphéðinsson. En samt verða tár þeirra yfir moldum Samfylkingarinnar krókódílatár því slíkir labbakútar eru þess eðlis að geta aðeins grenjað krókódílatárum.


mbl.is Ekki deilt í fyrsta sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þekktur maður hrakinn úr Sundlaug Vesturbæjar

kol28.jpgHrakfarir Njáls Fagra sjálfstæðisflokksformanns á Bretlandi minna óneitanlega á leiðinlegar stundir í lífi Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns, eiginkonu hans og vina. Það er ekki nema vika síðan Kolbeinn var hrakinn eins og óvelkominn hundur úr Sundlaug Vesturbæjar og honum fylgt úr hlaði með bæði grjót- og skítkasti. Hann hafði mætt til laugar fullur bjartsýni á mannkynið og fékk sér sæti í heita pottinum, lofandi skaparann með sjálfum sér fyrir heita vatnið og blessaða sundlaugina.

En fljótt var friðurinn úti. Algjörlega óvart og af fullkomnu athugunarleysi missti hann sína hægri hönd efst uppá milli læra kvenkindar nokkurrar sem sat við hlið hans í pottinum. Eins og við manninn mælt, rauk kvensniptin upp með óskiljanlegu offorsi og rak Kolbeini roknahögg á vangann ásamt því að kalla hann mörgum óviðurkvæmilegum og andstyggilegum nöfnum. Þetta uppþot vakti athygli annarra laugargesta, sem ruku til og veittu konunni. Og fljótt heyrðist grimmdarlega karlarödd öskra: ,,Nú, það er þessi helvístis ódámur" og önnur svaraði samstundis: ,,Já, það er helvítis hann, helvítis framsóknaöfugugginn, þjófurinn og lygamörðurinn. Að þessu sögðu, ráku laugargestir Kolbein á brott með svo hræðilegu orðbragði og níðingshætti, að ekki er eftir hafandi á prenti.

Auðvitað var Kolbeini ekki gefið ráðrúm til að taka föt sín, þannig að hann varð að hlaupa nakinn á brott, því að óhræsin létu það verða sitt fyrsta verk að rífa utanaf honum sundskýluna. Skömmu síðar birtist frú Ingveldur í Sundlaug Vesturbæjar og hellti fimm lítrum af skordýraeitri og einum líter af salmíaksspíritusi yfir afstyrmin í heita pottinum.


mbl.is Hröktu Nigel Farage út af krá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varð þungt fyrir brjósti

xd18_1061598.jpgEin vemmileg krataskita, sem var á landsfundi Samfylkingar, tjáði mér símleiðis í morgun, að skítafýlan af Össuri og Jóhönnu hefði verið svo stæk af framboði Sigríðar Ingibjargar, að honum hefði blátt áfram súrnað í augum og orðið þungt fyrir brjósti. Og ef hann þekkti sitt heimafólk rétt, sem hann gerir, þá hafi óþefur af H. Hjörvar verið innanum og samanvið bölvaða fýluna af hinum tveim fyrrnefndu.

En engann þarf að undra rottugang og illan þef í Samfylkingunni, þar sem krataeðlið ræður ríkjum með öllum þeim ósköpum sem henni fylgir. Og eins og endranær, þá þykjast allir saklausir spillingu, undirferli og rýtingsstungum í þessari illa byggðu hjáleigu Sjálfstæðisflokksins og rétta alla skítugu puttana sína upp til Guðs, því tilsönnunar.


mbl.is Segist ekki hafa vitað af framboðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau eiga öll að hypja sig

cap2_1255269.jpgSigríður Ingibjörg með rýtinginn ætlar að íhuga stöðu sína. Ég held hún ætti að gera það. En það þurfa fleiri en hún að hugsa sinn gang. Flokkseigendaklíkur stjórnarandstöðuflokkanna eru meinsemd, sem þarf að farga, sömuleiðis verður að fjarlægja rugluðu undanrennupáfagaukana og lukkuriddaramor sömu flokka. Slík endemi eiga ekki einungis að hugsa sinn gang, þau eiga fortakslaust hypja sig úr allri pólitík og láta sér nægja að stunda sína forheimskandi félagsmálaiðju innan Rótarý- og Lionshreyfingarinnar, eða í Oddfellóreglunni.

Um óþrifnaðarsamtökin sem standa að núverandi ríkisstjórn hirði ég ekki að öðru leyti en því, að ber að steypa af stóli í alþýðubyltingu og ganga svo frá hnútunum, að þau verði ekki endurreist meir.


mbl.is Segist íhuga stöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir félagar í undanrennusamfélagi lukkuriddarana

knifeAlveg dásamlegur félagi hún Sigríður Ingibjörg, lætur meira að segja gamla kexruglaða undirróðursminka hafa sig í reka að oddbrotinn og ryðgaðann rýting í bakið á formannsnefnunni, með þeim afleiðingum að hann orðinn að almennu aðhlátursefni um alla framtíð, ásamt flokki og fénaði. Svona félagsþroski og vinarþel þykir auðvitað til fyrirmyndar í Samfylkingunni, þar sem krataeðlið tröllríður heilsufari fólks eins og ólæknandi geðsjúkdómur sem engin lyf eða læknisráð virka gegn.

cap2Ríkisstjórn hinna ruddalegu auðvaldssamtaka, sem nú situr, er vond, afleit; hún hreinlega svo stórhættuleg að brýn nauðsyn er að steypa henni fyrir ætternisstapa. En því miður er ekkert í sjónmáli til að taka við völdum. Því að þótt ríkisstjórnin sé skelfileg og samfélagsskemmandi, þá er stjórnarandstaðan jafnvel enn hroðalegri með alla sína tómhyggju, innihalds- og hugsjónaleysi og stjórnmálaheimsku. Þess vegna er tillaga Brýgýttu Jónsdóttur um kosningabandalag stjórnarandstöðuflokkanna við næstu alþingiskosningar mikið þjóðráð, því auðvitað eiga krataskiturnar og tómu undanrennudreggjarnar að vera samferða í sinni auðvaldsmerktu eyðimerkurgöngu í átt að sorphaugum kapítalismans.

rev8_1162252.jpgÞað er enginn vafi á því að fólk vill bylta þjóðskipulaginu á Íslandi. Vandinn bara sá, að loddaralýður og lukkuriddarar stjórnarandstöðu flokkanna standa í vegi fyrir byltingu og beita í því sambandi flestum hugsanlegum tegundum af vísvitandi ruglandi og grunnhyggnislegri þvælu, sem vikar eins og villandi svartaþoka á almenning. Að sjálfsögðu eru auðvaldsgrýlurnar í Framsókn og Sjálfstæðisflokknum afar ánægðar með byltingarvinnubrögð leppa sinna í stjórnarandstöðunni. Á meðan alþýða Íslands áttar sig ekki á, að eina raunverulega og raunhæfa byltingin er sósíalísk bylting, geta kapítalistarnir andað rólega og farið sínum fram, enda vita þeir að platbyltingar undanrennukratanna og lukkuriddaranna, eins og Búsáhaldabyltingin sáluga, gera ekkert annað en að festa auðvaldsskipulagið í sessi. Ef fólk vill byltingu verður að skapa farveg fyrir sósíalíska byltingu, að öðrum kosti verða engar afgerandi þjóðskipulagsbreytingar til batnaðar.  


mbl.is Sigríður Ingibjörg góður félagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorgarsaga hins náttúrulausa sósíaldemókratisma

x8gtfzg.jpgÞað er margur misskilningurinn og misráðið í bölvaðri pólitíkinni og fáir þeir, sem hverfa óskaddaðir af hólmi eftir viðskipti sín við þá óartarskepnu; það ætti Ingibjörg Sólrún að vita kvenna best, að Hönnu Birnu ekki undanskilinni. Nú hefur facebook teymt frú Ingibjörgu fram í dagsljósið og fengið hana til að gogga ofurlítið í Samfylkinguna, útaf misheppnuðum landsfundi þeirrar hvimleiðu hopparaklíku. Að vanda leggur frúin sig fram um að virka stórgáfuð á lesendur og skrifar eins og hún sé á leið til útlanda í flugvél með honum Gjeir okkar hérna Hooordý til að leirétta misskilning útlenskra viðvíkjandi stöðu banka og fjármálakerfis á Íslandi.

En það er auðvit að nákvæmlega sama hvað Ingibjörg Sólrún eða legátar af því tagi skrifa eða segja um Samfylkinguna: Þeir láta allir ógert, að minnast á höfuðmeinsemdina varðandi þann flokk og aðra flokka af svipuðu kalíberi. Höfuðmeinsemd Samfylkingarinnar og skydra aðila er hið fræga krataeðli, sem allir kratar gera sér far um að leyna en brýst alltaf út með bakstungum, undirferli, rógi og dularfullusm leikjuskap við erkiauðvaldið þegar minnst varir. Nú stafar ógeðug og undarleg árátta og óheiðarleiki samfylkingarfólks og annarra krataskratta ekki endilega af því að það sé endilega vont fólk, heldur vegna þess að það er haldið sjúkdómi; þessum ólánssömu einstaklingum er sem sagt ekki sjálfrátt þegar kemur að stjórnmálalegu framferði og því fer sem fer.

Ógæfa fólks, sem hadið er krataeðli, virðist í og með stafa af minnimáttarkennd gagnvart öðrum hægrisamtökum, einkum af því að þeir eiga í raun og veru ekkert erindi í pólitík, engin mál, enga hugsjón, ekki neitt. Þessir sjúklingar, krataskiturnar, bæta svo svargráu ofaná dökkbrúnt með því að næra sjúkdóminn, hið veiklaða stökkbreytta eðli, með öfund, illgirni svo að allt hringsnýst fyrir hausamótunum á þeim. Þetta er sorgarsaga hins náttúrulausa sóíaldemókratisma.


mbl.is Framboðið var misráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers að kjósa formann, essska, fyrst klíkan er búin að vera?

spenn2.jpgTil hvers í ósköpunum á að kjósa formann í bráðum dauðri leiðndaklíku? Það hefir ekki neitt uppá sig nema fyrirhöfnina og skömmina. Og að tvö gersemi skuli gera sjálfum sér slíka hneisu, að vilja vera formenn í náttúrulausu , er svo hlægilegt að hætt er við veiklað fólk fái í magann við að horfa uppá þá endemis vitleysu.

Það getur ekki annað verið en að frú Sigríður Inga hafi afráðið þennan frambosðfíflagang í óráði; gæti trúað hún sé með inflúensu, með fjörutíu og eins stigs hita og hafi sloppið úr bólinu og delerað. En auðvitað hafa margir klíkubræður og systur Árna Páls og Sigríðar Ingu gengið af vitinu síðustu daga, útaf strengjabrúðu Kaupfélagsstjórans á Sauðárkróki og ESB, og liggja nú í stöflum í spennitreyjum inni á Kleppi. Það er sem sé ekki nóg með ESB-umsóknin sé dauð og Samfylkingin komin á grafabakkann, heldur eru áhangendur þessara tveggja punkta annaðhvort orðnir galnir eða flúnir af hólmi.

Óvíst er ennþá, hvort einhverjir velviljaðir menn muni ganga í það verk, að reyna að hafa vit fyrir óráðsbrölt Sigríðar Ingu og Árna Páls og komi þeim í skilning um að formennska í dauðum flokki sé embætti sem allir geri gys að og gefi kuldalegum grínurum tilefni til vafasamra og mannskemmandi gamanmála. Betra væri að frambjóðendurnir tveir gangi Framsóknarflokkinn, fyrst þeim þykir svona gaman að pólitísku streði, og hafi með sér sem flesta sína líka. Enda eru Framsókn og Samfylkingin nákvæmlega sömu garðárarnir í grunninn, það er bara einber hégóminn sem skilur skepnurnar að.


mbl.is „Eigum ekki að hræðast breytingar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og laufblöð trjánna titruðu

gun3.jpgÁ lækjarbakkanum nam kerlingarskrukkan staðar og hnusaði útí loftið eins og illa lynt búrtík. Svo gaut hún svínsglyrnum sínum niður í drullusvaðið sem hún stóð í og tautaði eitthvað við sjálfa sig. Þegar hún kom heim eftir langa mæðu, köld og grett, neytti eiginmaður hennar húsbóndavalds síns og flengdi hana eftir að hafa flett uppum hana skítugu pilsinu. Skömmu síðar gekk konan til náða, sæl og glöð.

Morguninn eftir glumdi við hræðilegur hvellur, rúða í stofuglugga sundraðist og kattarafmánin, sem laumaðist um lóðina lá eins og blóðug klessa í grasinu. Það var fingurinn á fyrrnefndri kerlingarskrukku sem tók í gikkinn á haglabyssunni. Manni hennar, sem lá eins og hvert annað óbermi undir sæng, varð svo hverft við er hann heyrði skotgnýinn að hann gerði í rúmið og sreið að því búnu undir það og lá þar sem nár væri í óþrifnaðinum úr sjálfum sér. Enn var úrkomusuddi og laufblöð trjánna titruðu þegar regndroparnir lentu á þeim.

Þegar lögreglan leiddi konugarminn úr húsi tuldraði hún sundurtættar slitrur úr löngu ljóði eftir þekktan ræfil: ,,Nú ek em klædd og kómin á ról, kalt er gjarnan á norðurpól. Kíki undir rúmið öll Kölska börn; þar karlinn minn liggur blauta með görn." Svo stytti upp og sólin fór að mynda sig við að skína.


mbl.is Vill ekki verða forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar einn pólitíkus reiðir stórbrotnar gáfur í útbelgdum þverpokum

x10.jpgBirgitta Jónsdóttir flokkaflakkari, tækifærissinni, píríjati og lukkuriddari er afskaplega gáfaður stjórnmálamaður og slík fyrirmynd pólitískra jagara að til kraftaverka telst. Hún er, sökum óviðjafnanlegs gáfnafars, framúrskarandi slungin við að gera aukaatriði og smámál að risavöxnum pöddum, fullum af lofti. Það hefir hún lært af öðru gáfuðu fólki úr hinum flokkaklíkunum og á óeigingjarnan hátt miðlar hún þessari áunnu visku að litlu hvolpunum sínum, sem éta fróðleikinn svo hratt umm, að við liggur, að þeir frussi tönnunum útum öll gólf þegar þeir taka til máls.

Síðust daga hefir Birgitta svo stungið tólgina svo um hefir munað; á sjálfu Alþingi hrein hún upp eins og kenjótt spurningastúlka, að hún væri bara hætt og farin heim. Auðvitað hætti hún ekki né fór heim. Og í dag heitir það á birgittumáli, að fylgisaukning Píríjata stafi af þeirri ,,aðför að lýðræði og þingræði" sem eitt lítið og hógvært bréf frá utanríkisráðherra til ESB á að hafa valdið.

En eins og aðrar þinglurður af sama kalíberi, þá lætur Birgitta, fyrir stórgreindarsakir að sjálfsögðu, sig litlu skifta þótt laun verkafólks og fleiri á Íslandi séu fyrir neðan velsæmismörk af völdum arðráns; að húsnæðismál séu leikvöllur gráðugra kapítalista; að fáeinir aðilar hafi sölsað auðlindir og matvörumarkaðinn undir sig; að hér ríki sóðalegur kapítalismi sem er grundvallarástæðan fyrir allri óáran sem þjakar almenning. Það má vera, að Bigitta mótmæli því að hún láti raunverulegu stórmálin sig litlu skifta, en það er þá af því að hún er pólitískur lukkuriddari sem býr svo vel að hún verður að reiða gáfur sínar í sórum og útbelgdum þverpokum og stundar pólitíska ruglandi af ráðnum hug.


mbl.is „Ertu ekki að grínast“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins eitt mál á dagskrá

Karl MarxÞað er illa komið fyrir stjórnmálum á Íslandi þegar innantómur, kjána- og þvargaraflokkur eins og Píratar mælast stærstir eða næststærstir í hverri skoðannakönnunuinna af annarri. En það er svosem ekki við öðru að búast í ljósi þess hvernig hinir flokkarnir hafa hagað sér síðustu ár. Við sitjum uppi með sex hægriflokka, mis frjálshyggjuskotna, sem virðast hafa það eitt að markmiði, að vera nógu kapítalískir, udirförulir og lýgnir.

Á morgun hefst landfundur Samfylkingarinnar. Á þeim fundi ætti, að öllu eðlilegu, aðeins að vera eitt mál á dagskrá: Að leggja Samfylkinguna niður. Á næstu landsfundum hinna stjórnmálaflokkanna ætti sama mál að vera það eina sem tekið verði til afgreiðslu. Í framhaldi af tímbæru brotthvarfi þessara handónýtu tækifærissinnaflokka, gæti myndast ráðrúm til að koma á laggirnar róttækum og raunverulegum vinstriflokki, sem segði kapítalismanum og hans fylgifiskum og úrkynjun stríð á hendur. Grundvallaratriði við stofnun slíks flokks væri, að ekki ein einasta hræða sem nú er í forsvari fyrir stjórnarandstöðuflokkanna kæmi nálægt því verki; því fólki er fullgott að finna fjölina sína í Framsóknarflokknum eða Sjálfstæðisflokknum því þar á það heima.

Það er kominn tími til, að allir raunverulegir vinstrimenn, sósíalistar, verkalýðssinnar, losi sig við kapítalíska álagahjúpinn, sem legið hefur yfir öllu og öllum eins og mara í alltof mörg ár, og gangi til þeirra verka að breyta þjóðfélaginu úr gráðugu og samdauna þjófafélagi í yfirvegað samfélag þar sem enginn afsláttur er veittur í sambandi við jöfnuð, heiðarleika, frið og bræðralag.


mbl.is Píratar stærstir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband