Bloggfærslur mánaðarins, maí 2015
21.5.2015 | 21:47
Ekki orð um það meir
Engan þarf að undra þótt þótt spangólið, sem hún Máría litla Ólafsdóttir var plötuð til að veina yfir alla Evrópu og ástralíu með, kæmist ekki áfram í söngvakeppninni. Þetta sérkennilega númer er nefnilega það allara versta af mögum íllum sem Ísland hefur boðið uppá á þessari undarlegu tómlistarhátíð hinna biluðu. Og fyrir nú utan hvað lagið er hörmulegt, þá saung telpukindin þar rammfalskt í þokkabót (nema það hafi átt að vera svona annarlegt til að kóróna hryllinginn).
Á heimili frú Ingveldar og Kolbein var sjónvarpið brotið í spón þegar ljóst var að ,,framlagi" Íslands hafði verið fleygt í sorptunnuna. Þau sæmdarhjónin voru semsé orðin alldrukkin þegar úrslitin lágu fyrir og væntingarnar miklar og vonbrigðin að sama skapi hræðileg. Það skal tekið fram, að frú Ingveldur og Kolbeinn, sem og þeirra vinir, sem eru með þeim í kvöld, eru ákaflega illa mjúsíkkalskt fólk og lítið fyrir tónlist. Og dáindismaðurinn Indriði Handreður varð svo svekktur, að hann hótaði í heyrenda hljóði, að reyta af Máríu sinni Borgargagni kærleiksblómin að því að Máría saungvari og nafna hennar hefði klúðrað dæminu og skolað Íslandi niðrum salernisskálina.
Hins vegar saung Sigmundur Davíð hástöfum undir með Máríu þegar hún veinaði Únbrókenið sitt í beinni útsendingu frá landi Mozarts og Adólf sáluga stríðherra. Sigmund Davíð fékk víst þá flugu í höfuðið á dögunum að Únbróken væri framsóknarsaungur, því honum þókti rödd Máríu litlu svo lík rödd gömlu Framsóknarmaddömunnar. En rödd Maddömunnar er sögð stökk, hryglukennd og kostulega skræk á sumum atkvæðum. Auk þess er Máría litla úr Húnavatnssýslunni, sem er mikið vígi framsóknarmanna. En hvað um það: lagið Únbróken lauk vegferð sinni með því að verða útfararsálmur við útför þáttöku Íslands í saungvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva og ekki orð um það meir.
Ísland ekki í úrslit Eurovision | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.5.2015 | 18:43
Samfélagslega heftandi meindýr veifa grýlum sínum og hagfræðifrösum
Nú dregur auðvaldið alla sótrafta á flot, hversu maðksmognir, fúnir og gegnsósa sem þeir eru af langvarandi veru í hinni kapítalísku rotþró. Hver af öðrum trana þessir ólánspésar fram í öllum hugsanlegum fjölmiðlum og öskra hræðsluáróður að verkafólki, sem hefur unnið það eitt til saka, að ákveða að berjast fyrir launum sem komast nær því að nægja fyrir framfærslu. Og ekki stendur á auðvaldsþrjótunum, sem verja forréttindi og völd heilaþveginnar og dauðastirðnaðar yfirstéttar, að veifa öllum hugsanlegum grýlum framan í alþýðuna og hafa í hótunum; þetta hyski mun nefnilega ekki hika við beita öllum hugsanlegum drullusokkabrögðum til að verja sig og sína, þess vegna verður steypa því af stóli og fjarlægja eins og hvern annan óþverra.
Hinsvegar er alþýða manna búin að fá sig fullsadda af illþýðinuu, sem alla tíð hefur deilt og drottnað og stundað visst afbrigði af hreinu þrælahaldi með tilheyrandi niðurlægingu fátæks fullvinnandi fólks. Það er ljóst, að yfirstéttinni, arðræningjastóðinu, á Íslandi verður að sópa af stalli, fyrr getur alþýðufólk ekki um frjálst höfuð strokið. Það er til dæmis lágmark, að málum þjóðfélagsins sé þannig skipað, að lægstu laun dugi auðveldlega fyrir mannsæmandi framfærslu og aðrir verði að gjöra svo vel að aðlaga sig að því sjálfsagða fyrirkomulagi.
En það er fólkið í landinum sem á síðasta orðið, en ekki kapítalískt heilaþvegnir raftar á borð Þorstein Pálsson, Ara Skúlason og önnur þessháttar samfélagsheftandi meindýr, sem berjast af alefli gegn framsókn verkalýðsins í átt til boðlegra kjara, og hrækja verðbólgugrýlum af öllum hugsanlegum tegunum og innantómum hagfræðifrösum í andlitið á fólki í von um að það leggi niður skottið og haldi áfram að vera fangar nútíma þrælahalds.
Í þessu sambandi er rétt að minna enn og aftur á heilræði þjóðskáldsins:
Ráðlegt er að hafa í hakk
hagfræðinga og skítapakk.
Þurfum að brúa bilið með verðbólgu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.5.2015 | 13:58
Blendnar tilfinningar gagnvart Únbrókeni Máríu
Já, spaugararnir hafa gaman að því að heyra og sjá hið soglega spangól, sem gárungarnir kalla ,,framlag Íslands í Saungvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva." Enda er um að ræða eitthvert hroðalegasta útburðarvein, sem illu heilli hefir ratað út fyrir landsteinana. Kunningjar mínir í Evrópusambandinu segja mér, að þetta sérkennilega ,,framlag" sé í hávegum haft hjá drukknum karlrembusvínum, sem grénji af hlátri við að fylgjast með látunum í Máríu Ólafsdóttur á jútúbinu. Aðspurðir hvort þetta sé góð landkynning, segja kunningjarnir, að þeim hafi aldrei dottið orðið landkynning í hug í sambandi við þetta spangól, en efast um að þessi ósköp séu Íslandi, sem slíku, til framdráttar.
Máría Borgargagn er ein fárra, sem ber lofsorð á framlag nöfnu sinnar, og kveðst ævinlega verða undur hot og fari að iða á rassinum þegar hún hlýðir á tónverkið ,,Únbróken." Það hafi, meðal annars, leitt til þess að hún framið óhæfuverk með Kolbeini og frú Ingveldi báðum í einu en Indriði Handreður horft á eins og ekkert væri, enda sé hann bölvaður öfuguggabesefi.
Þá berast fréttir frá Sofíu, höfuðstað Búlgaríu, að Únbrókenið Máríu hafi verið harðbannað þar í ladi fyrir viku með þeim rökum, að Búlgarar hafi ekki smekk fyrir gamansemi af þessu tagi. Vitna þeir og til þess, að spangól heyri hundspottum og úlfum til en ekki menntuðum mönnum sem hafa raun af þessháttar eyrnagaddavír.
María í 20. sæti á YouTube | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.5.2015 | 11:29
Stöðugleiki sem byggir á nútímaútgáfu af þrælahaldi
Það má ekki minna vera en að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn komi yfirstéttinni, auðvaldinu, á Íslandi til hjálpar þegar sýnt þykir að skríllinn ætlar sér ekki makka rétt í kjaramálum. Alþjóðagjaldeyissjóðurinn heldur sem kunnugt er mikið uppá þennan margrómaða stöðugleika, sem byggir á því að stórir hópar vinnandi fólks getur ekki séð sér farborða. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vill að nútíma útgáfan af þrælahaldi sé virt og heiðruð af skrílnum án skilyrða eða einhvers útboruháttar.
Hinvegar kvað vefjast fyrir útsendurum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að útskýra fyrir fullvinnandi fólki, sem vart á til hnífs og skeiðar, hvernig beri að matreiða þennan furðulega stöðugleika svo hægt sé að lifa á honum. Því svo mikið er víst, að stöðugleiki þrælahaldara kapítalismans er með öllu óætur og í sumum tilfellum baneitraður. Það væri því mikið gustukarverk, að einhverjir góðgjarnir menn tækju að sér að reka fulltrúa þessa alræmda kapítalismafélags, sem kallar sig Alþjóðagjaldeyrissjóð, úr landi eins og hverja aðra ólöglega flóttamenn. Ennfremur, að fulltrúum sjóðsins verði snúið við á flugvellinum eins og þrjótum Hellsangels, ef þeir reyna að smygla sér til landsins.
AGS: Launahækkanir ógna stöðugleika | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þeir verða sennilega orðnir fyrsta flokks vinnumenn á Bryggjunni, þeir Hreiðar og Siggi, þegar yfir lýkur og alvanir bústörfum, þ.e.a.s. ef þeir brjóta ekki af sér og verði sendir á Hraunið. Og fyrst svona margir góðir húskarlar Framsóknarmaddömunnar eru mættir til langdvalar á Kvíabryggju, og von á fleirum, ætti að reisa þar fjós og hlöðu og kaupa minnst þrjátíu kýr og tvö graðneyti. Fyrir utan fjósið verður auðvitað opinn fjóshaugur, svo að blessuðum drengjunum getið liðið eins og heima hjá sér. Fyrir eru á annað hundrað fjár á Bryggjunni, þannig að ekkert er að vanbúnaði að dýflissan verði með fjósi og fjóshaug að fyrirmyndar framsóknarheimili.
Hinsvegar eru Snæfellingar uggandi yfir að fá svona marga hirðsveina gömlu maddömunnar til langdvalar á Nesinu. Gamlir íhaldskurfar orðnir órólegir og farnir að gá að sér, en krataskitur komnar í vandræði með blautlegar tilfinningar sínar. Íhaldkurfarnir hafa mestar áhyggjur af því að dólgarnir sleppi út og taki til við að ræna konum þeirra, dætrum og bánkainnistæðum.
Nú síðast spurðist að áhugi Sérstaks saksóknara sé vaknaður á Kolbeini Kolbeinssyni framsóknarmanni, ekki vegna markaðsmisnotkunnar, heldur ólifnaðar Kolbeins og vondra áhrifa hans á aðra framsóknardúdda. Sérstakur hefir nefnilega grun um, að Kolbeinn hafi gert marga góða drengi að nokkurskonar helvítisbörnum og bófum. Sem sé, að Kolbeinn gegni sama hlutverki í undirheimum Framsóknar og Fagin gamli í undirheimum Lundúnarborgar á sínum tíma.
Gætu fengið allt að 9 ára dóm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.5.2015 | 13:47
Utangátta og útúr kortinu eftir brotlendingu
Á þetta að vera gamansem hjá henni Eygló, sem hinir frammararnir kalla ævinlega Glíngló, eða er hún svona gjörsamlega úti á þekju þegar hún talar um að hún vonist eftir lendingu, eins og segir í fyrirsögn fréttarinnar? Mér er nær að halda, að telpan sé utangátta og útúr kortinu, vegna þess að hún er fyrir löngu lent. Á sínum tíma hóf Eygló sig til flugs, en brotlenti því miður stuttu eftir flugtak á ekki geðugri stað en Framsóknarfjóshaugnum, og þar hefir Eygló svamlað síðan.
Á tímabili töldu málsmetandi menn í Framsóknarflokknum, eins og til dæmis Kolbeinn Kolbeinsson, að Eygló væri laumukrati og því vart á vetur setjandi. En þar sem krataeðlið og framsóknareðlið eru svo nauðalík að illmögulegt er að þekkja þau í sundur hafa Kolbeinn og félagar látið kyrrt liggja og leyft Glíngló sinni að svamla í fjóshaugnum að vild.
Samkvæmt akademískum vísindum er öfugmæli að kalla framsóknareðlið og krataeðlið eðli, því í raun eru um hreinræktað óeðli að ræða í báðum tilfellum. Sjúkdómseinkennin eru líkari en allt sem líkt er, nema hvað krataskiturnar eru meira kvaldar af öfundsýki, en það er vegna þess að framsóknarsjúklingarnir eiga sér Framsóknarmaddömuna að móður, en krataskiturnar eru munaðarlausar í hinum kapítalíska ólgusjó.
Vonast eftir lendingu fjótlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2015 | 11:59
Sæmdarpilturinn Elliði
Sæmdarpilturinn Elliði gleymir alveg að geta þess, að mafíur og mafíustarfsemi geta vel þrifist án beinna manndrápa, mansals, nauðganna og hefðbundins vændis. Þá virðist vefjast fyrir sæmdarpiltinum, að Byrgíta taki eitt byggðarlag umfram önnur og sæma það mafíustimpli, þegar staðreyndin er eitthvað á þá leið að einhverskonar mafíustarfsemi er grasserandi um landið þvert og endilangt. En það verður að fyrirgefa Elliða skilningsleysið og barnaskapinn, af því að hann er nú einusinni hávær búrtík útgerðarauðvaldsins, annarra kapítalista og Sjálfstæðisflokksins og er illa samdauna hinum skuggalegu öflum sem hreiðrað hafa um sig á Íslandi. Svo er hann trúlega líka framsóknardrengur, handgenginn gömlu illskeyttu Framsóknarmaddömunni og fjóshaugnum hennar. En Kaupfélagsstjórinn Mikli á Sauðárkróki er gifturíkur töffari, sem stjórnar strengjabrúðum sínum af gríðarlegri fimi og snilld.
Svo má líka vel vera, að Elliði sé reiður Býrgítu fyrir að hafa ekki Vestmannaeyjar efstar á mafíósalistanum; Heimaey sé eyja eins og Sikiley og þar ráði harðskeyttir kapítalistar lögum og lofum, alveg eins og á Sikiley.
Ummæli Býrgítu höfðu líka svo hrottaleg áhrif á Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra, framsóknarmann og skuggaráðuneytisstjóra, að hann hringdi í hysterísku taugaveiklunarkasti í giftiríka kaupfélagsstjórann sjálfan um leið og hann heyrði tíðindinn og spurði ráða hvort og hvað væri best að gera við svínabestið Býrgítu. Kolbeinn var nefnilega hræðilega timbarður þennan dag, miðtaugakerfið rammflækt eins og netatrossa sem togari hefur trollað yfir, eftir að hafa legið í ölæðislosti í tvo daga með Brynjari Vondulykt og Óla Apaketti. Og frú Ingveldur hefir lofað eiginmanni sínum liðsinni í baráttunni við pírataskituna, með því að slá hana utanundir á almannafæri svo hressilega að hún muni eftir því.
Óboðleg samlíking við mafíósa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.5.2015 | 14:51
Gríðarfögur hugjón á spenanum
Það má nú segja, að það sé stór, og umfram allt gríðar fögur hugsjón, að leggja sitt að mörkum í hinni óeigingjörnu nauðsynjavinnu við að brjóta niður grunnstoðir samfélagsin og eyðileggja þær á altari frjálshyggjukapítalismans, því ekki verður við unað að búa við kommúnism í menntamálum. Það er nefnilega svo mikið frelsi fólgið í að almenningur búi við ásættanlega mismunun, því meiri mismunum því betra. Og þótt framlag Tjarnarskólafraukanna sé ekki stórt í einkavæðingarleiknum, þá vita niðurbrotsmenn samfélagins að dropinn holar steininn.
Nú er það svo, að einkavæðingartröll samtímans stunda ekki einkarekstur uppá eigin spýtur, þegar grunnstoðir eru molaðar niður, heldur leggst þetta hugsjónafólk á ríkisspenann og tottar fast. Sameiginlegir sjóðir landsmanna eru látinir borga alla tjarnarskólana, hjallastefnurnar og ásdís-sinnum-höllu heilsubælin. Síðan rukka einkavæðingarskjóðurnar nemendur, leikskólabörnin og sjúklingana að auki. Þetta fyrirbrigði heitir ríkisspenaeinkarekstur og er í raun argasta afturhald, því þeir sem að þessum ófögnuði starfa aðhyllast þjóðskipulag sem var við lýði á nítjándu öld.
Best væri að hinar einkavæddu tjarnarkerlingar og þeirra líkar stunduðu sína samfélagseyðieggjandi einkavæðingu án allra fjárframlaga úr sameiginlegum sjóðum landsmanna. Raunar jaðrar það við óhugnanlega starfssemi, sem ég vil helst ekki nefna hér, að allskonar frjálshyggjukroppinbakar og péníngagéðsjúklingar skuli geta stafnað ójafnaðarfyrirtæki og sótt milljarða á milljarða ofan í ríkissjóð og sjóði sveitarfélaga. Það þarf svo sannarlega að greiða einkavæðingar- og frjálshyggjuafturhaldsslektinu svo vænt rothögg, að það liggji meðvitundarlaust í eigin drullusvaði til eilífðarnóns.
Lítill skóli með stóra hugsjón | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.5.2015 | 11:41
Frelsum Ólaf ...
Nújá, svo Ólafur stórbóndi hefur í hyggju að stökkva burt af Kvíabryggju í miðjum sauðburði undir því yfirskyni að hann sé ekki réttur Óli heldur allt annar Óli. Alveg er dæmalaust dásamlegt hvað elsku vininum getur dottið í hug, því hann, sem stórbóndi og Skipakóngur að Miðhrauni I. Miklaholtshreppi, veit manna best, að meðan sauðburður stendur yfir verður hver og einn, sem vettlingi getur valdið, að standa vaktina. En máske getur Ólafur útvegsbóndi hvorki valdið vettlingi né hjálpað ám að bera blessuðum lömbunum. Hann hlýtur þó, andskotakornið, að geta fært hinum föngunum kaffi og kveikt í sígarettum fyrir þá á meðan þeir tosa lömbin úr ánum.
En hvort sem Ólafur framsóknarmaður Ólafson er Óli eður ei, er óþarfi af honum að vera síkvartandi og kveinandi, því fátt er jafn hvimleitt og hágrátandi framsóknarmaður. Og ekki þarf karlinn að vera óánægður með félagsskapinn á Kvíabryggju - eða vill hann kanske fara á Hraunið?
Þessa dagana er Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður að stofna til undirskriftarsöfunar á netinu undir yfirskriftinni ,,Frelsum Ólaf Ólafsson." Yfir aðgerðinni á að svifa þessi frægi og kraftmikli ,,Free Mandela" andi, sem að lokum frelsaði Mandela karl úr prísundinni á sínum tíma. Kolbeinn hefir fengið Brynjar Vondulykt, sem auk annarra hæfileika er glæsilegt tónskáld og kveðskaparmaður, til að semja hvatningarsönginn ,,Frelsum Ólaf" og er undirbúningur að hljóðritun á verkinu þegarhafinn. Vafalaust mun heimsbyggðin standa á öndinni vegna frelsunar Ólafs útvegsbónda úr hinu alræmda gvantanamói Íslands.
Óskar eftir endurupptöku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 4
- Sl. sólarhring: 63
- Sl. viku: 1476
- Frá upphafi: 1542346
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 1299
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007