Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2016
25.1.2016 | 21:40
Kverúlant á kné Kára
Kári karlinn var ekki lengi að hafa endaskifti á blessuðum sjálfstæðisflokkskverúlantinum honum Pavel litla í Kastljósinu í kvöld. Þvílíka risaflengingu fær fólk því miður alltof sjaldan að sjá í beinni útsendingu. En þar eð sjálfstæðisflokkskverúlantar sem ekki eru komnir nema úr annarri stuttbuxnaskálminni hafa mikla nautn af því að vera hýddir fyrir framan alþjóð þá er ekki nema sjálfsagt að óska Pavel til hamingju með ráðninguna sem Kári veitti honum.
Einusinni var lúskrað á svona sjálfstæðisflokkspilti fyrir framan heilt kvenfélag af því hann var staðinn að því að gægjast innum glugga hjá kvenfélagskonum þegar þær voru að funda. Þegar kvenfélagskonurnar fóru að tala um þennan atburð sín á milli kom í ljós að það sem þeim þótti undarlegast við þetta allt var hvað drengnum þókti gott að vera rassskelltur. Sumar kvennanna voru á því að strákfjandinn hafði sært blygðunarkenn þeirra gróflega þegar hann var hýddur en aðrar lögðu áherslu á að allir af hans sauðahúsi sýndu þessi merki við sömu aðstæður.
Þegar fram liður stundir varð drengurinn, sem flengdur var fyrir framan allar kvenfélagskonurnar, gildur limur og eftirsóttur. Hann komst snemma í vinfengi við frú Ingveldi og Kolbein eiginmann hennar Kolbeinsson og hefir síðan verið eins og viðhengi á heimili þeirra og unnið mörg stórvirki í anda þess hugsjónaheimilis. Að sjálfsögðu er það Brynjar Vondalykt sem við er átt hér og misbauð, þá hann var æskumaður, 150 grimmum kvenfélagskerlingum með lostafengnum tiltektum undir dynjandi barsmíð á beran bossann.
Pawel segir tölur Kára ekki réttar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2016 | 19:32
Skrifstofusjakalar og hagfræðidraugar hafa rænt samningsrétti launafólks
Ef ég skil rétt þá er þetta SALEK samkomulag einungis samkomulag nokkurra auðvaldssinnaðra verkalýðsrekenda við auðvaldið þar sem óbreyttir félagsmenn stéttarfélaganna, sem þó hafa samnigsréttinn alfarið í sínum höndum, komu hvergi nærri, voru ekki spurði né virtir viðlits fremur en dauðu skordýrin í gluggakistum kontórista ASÍ. Með þessu hafa skrifstofusjakalarnir og hagfræðidraugarnir hjá ASÍ rænt verkafólk samningsréttinum, sem að er nokkuð sem aldrei má líða undir nokkrum krigumstæðum. Ef þessar subbur fá að komast upp með þetta rán er tilgangur stéttarfélaganna í uppnámi og eins gott að leggja þau niður sem fyrst.
Það er vísu haft eftir yfirsjakalanum á ASÍ kontórnum að farið verði í atkvæðagreiðslu um ,,vinnumarkaðsmódelið" sem hann er þó farinn að vinna eftir á næsta ári! Hverskonar ruddaskapur og ráðbrugg er þetta eiginlega? Er manngarmurinn galinn eða er hann einfaldlega svona ófyrirleitinn? Af hverju á andskotanum er ekki búið að fleygja þessum þrifagemlingi og hinum auðvaldssleikjunum á kontórnum úr fyrir lifandis löngu? Á fátækt erfiðisvinnufólk skilið að þurfa að halda þessum gripum uppi á margföldum launum verkafólks; það getur sem best lifað án leiðsagnar þessara leppalúða.
Og heldur yfirsjakalinn virkilega að launafólki sé það sérstakt baráttumál að auka greiðslur í lífeyrissjóðabáknið? Ef svo er þá er það mesti misskilningur hjá sjakalanum. Það hefir verið að koma æ betur í ljós á síðustu árum að ,,lífeyrissjóðirnir" atarna eru fyrst og fremst hugsaðir sem fjárfestingasjóðir fyrir hið kapítalíska hagkerfi sem allrahanda gamblarar og penigapervertar geta sótt í. Réttast væri að launafólk gerði þessa fjárfestingasjóði Andskotans upptæka notaði þá til að byggja upp mikið réttlátara samfélg en við búum við núna.
Sýnilegt með hærri launum í veskið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mörgum þókti býsna skelfilegt að horfa uppá strákana okkar í handboltalandsliðinu fyrir fám dögum á Evrópumótinu í Pólandi. Þarna kjögðu þeir um völlinn vambsíðir og skrefstuttir og veltust á hliðina af minnsta tilefni. Gamall maður sem var svo ólánssamur að setjast fyrir framan sjónvarpið þegar einn þessara leikja stóð yfir spurði í forundran hvaðan úr fjáranum þessir drengir hefðu verið dregnir því það væri eins og þeir hefðu verið geymdir árum saman á hæli. Og kona hans bætti við að fótaburður þeirra væri eins og mörgæsa en þó væru mörgæsirnar mun spengilegri.
Það er auðvitað ekki við góðu af búast af landsliði sem dragnast áfram eins og þreyttur og þunglamalegur forsætisráðherra á leið í bólið. Enda vóru drengirnir rassskelltir þvers og kruss eins og þeir höfðu til unnið, kjöldregnir og tættir í sundur af útlenskum ribböldum sem höfðu aungva meðaumkun með srtákunum okkar, sem ekki eru lengur strákarnir okkar heldur ólánsdelar og ruslahaugamatur.
Meira að segja frú Ingveldur varð foxíll yfir frammistöðu drengjanna og kallaði þá öllum illum nöfnum meðan á útsendingum frá leikjunum stóð og orðum sínum til áréttingar sló hún Kolbein mann sinn í rot þar sem hann sat sætkenndur í húsbónastólum sínum. Af þessu má sjá að hrakfarir handboltalandsliðsins hratt af stað heimilisofbeldi með tilheyrandi ónæði fyrir áfallahjálparteymi þjóðarinnar.
Þráðurinn er slitinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2016 | 16:51
Baldur að Bessastöðum að því tilskyldu að ...
Auðvitað væri verulega skæslegt að fá blessaðan öðlinginn hann Baldur Þórhallsson á Bessastaði, að því tilskyldu að þar sé rekinn voldugur og þjóðlegur búskapur. Það væri ekki minna en dásamlegt fyrir höfuðborgarbúa, sem og aðra landsmenn, að taka sér lystitúr útá Álftanes um helgar og sjá hinn vaska ESB-pilt úr háskólanum stunda gegningar að vetrum, dreifa taði um velli, slóðadraga eða berja taðið með kláru að vori og sveifla orfi og ljá eins dansmær um hásláttinn. Að hausti tæki svo við smalamennska, réttir og heimaslátrun ásamt sláturgerð og blóðpönnukökum. Þá væri Baldur trúboði orðinn þjóðlegur framsóknarkrati með tóbaksdósir og neftóbaksklút uppá vasann.
Eflaust væri auðvelt að selja ferðamönnum aðgang að því að sjá ,,stjórnmálafræðinginn" sem breyttist í einagraðan bóndadurg utan ESB og alls heimsins mjalta kýr uppá gamla mátann, hleypa til ánna á aðventunni, sparka hænsnunum af eggjunum í hænsnakofanum eða leiða yxna kú undir griðunginn. Hinsvegar er ómögulega að segja hvað gæti orðið um hann Felix ef Baldur gerist húskarl og smali að Bessastöðum með öllum þeim flórmokstri og hlaupum eftir rolluskjátum sem þeirri vegsemd heyrir til. Felix er óttalega óbóndalegur og hætt við að blessaðar skepnurnar verði sturlaðar af hræðslu ef Baldur færi með hann með sér í fjós og fjárhús.
Svo fer velferð Baldurs og Felixar auðvitað mikið eftir því hver verður húsbóndi að Bessastöðum eftir að félagi Ólafur Ragnar bregður þar búi. Nú ku Framsóknarmenn og Sjálfstæðishetjur leita dyrum og dyngjum að hæfilegri persónu til að stýra búi og þá væntanlega Baldri húskarli að Bessastöðum. Leit þessi gengur að vonum illa því að bæði er að framsóknar- og íhaldsjálkar eru einkar illa búmannlega vaxnir nú til dags og þá er ekki síður til trafala að þeir hafa leiðindaorð á sér fyrir bánkarán og aðrar ófélegar tiltektir. Er örvæntingin orðin svo mikil í leitarflokknum að þegar leitarmenn eru drukknir tala þeir fullum fetum um að vekja löngu liðnar sjálfstæðishetjur uppúr gröfum sínum með forsetaframboð í huga; eru þar ekki minni persónur nefndar til sögunnar en byskubbarnir Brynjólfur Sveinsson og Jón Vídalín ásamt þeim Gretti Ásmundarsyni, Jónasi Hallgrímssyni og Njáli bónda Þorgeirssyni að Bergþórhváli, en hvort nefdir heiðursmenn hafi verið hallir undir íhaldsframsóknarmennsku er síðan annað mál.
Baldur og Felix á Bessastaði? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2016 | 13:37
Því þambaði hún ekki bjórinn áður en hann féll á tíma?
Það er sorglegra en tárum taki að Brynhildur Pétursdóttir skuli ekki hafa þambað allan jólabjórinn sem gekk af fyrst henni þykir svona mikil sóun af því að hella honum niður. Þessístað rambar hún eins og vofa uppí ræðupúlt Alþingis og hrín yfir því óréttlæti heimsins að jólabjór megi aðeins drekka á jólum annars skuli honum sturtað í holræsið. Þó held ég hafi lyfts örlítið á henni brúni þegar fjármálaráðherra fór að gráta með henni þó svo hann hafi ekki, svo menn viti, reynt að dæla í sig afgangsbjórnum sem var tortímingunni að bráð.
Annars þarf enginn að hafa áhyggjur af afdrifum jólabjórsins sem landsmönnum tókst ekki að drekka sig vitlausa af. Hinn útrunni jólabjór fór nefnilega að stórum hluta í áfengisgeymslu frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns og á þeim bæ er áfengi ekki hellt niður viljandi. Afgangurinn lenti svo í öruggum höndum fólks eins og Máríu Borgargagns og Indriða Handreðs, Brynjars Vondulyktar og Óla Apakattar. Og á ýmsum útvöldum stöðum til viðbótar er enn verið að skála í jólabjór.
Já það er sannarlega hryggilegt að þingdraugum með grátstaf í kverkunum skuli ekki hafa auðnast að slafra í sig öllum þeim jólabjór sem framleiddur var fyrir síðustu jól. Það bendir til að ekki fylgi mikil einurð gráthljóðum þeirra. Sem betur fer er stutt í páskabjórinn og þá fær frú Brynhildur Pétursdóttir, sem og hinn grátbólgni fjármálaráðherra, tækifæri til að sanna hvað í þeim býr þegar baráttan verður hvað hörðust við að klára ölið áður en það fellur á tíma og hverfur klókainu á vald.
Fáránleg sóun á jólabjór | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2016 | 13:00
Albúin í næsta bankaránsleiðangur
Og bankaránin halda áfram, þrátt fyrir að slangur af bankaræningjum séu nú þegar bak við lás og slá og fleiri á leiðinni, sem í kaldhæðni sinni kenna sig við sjálfstæði, eru þess nú albún að fara í næsta bankaránleiðangur, sem á þeirra máli kallast ,,sala á eignarhlut ríkisins í fjármálakerfinu." Reyndar láta húskarlar gömlu Framsóknarmaddömunnar sem þeir séu tregir til að fara þennan ránsleiðangur, en maður tekur nú mátulega mark á því enda samþykkti það lið heimild til fjármálaráðherra til að selja tiltekinn hluta af eign Landsbankans á þessu ári ásamt því að ríkið fái greiðslur af umræddri ,,sölu". Hinsvegar virðast þingmenn Björtu framtíðarinnar hans Gvöndar Steingríms og Pírataspottin til í ferðalagið því að þeir, eins og aðrir auðvaldsþrælar og frjálshyggjustuttbuxnaspjátrungar, telja að ,,ríkið eigi ekki að vera vasast í að reka banka eða yfirleitt nokkuð annað" eins og það heitir á máli þessarar manntegundar. Og menn eiga eftir að sjá Samfylkinguna setja sig í grundvallaratriðum uppámóti bankaránum af þessu tagi.
Víst er að í aðdraganda bankaránsins verða settar upp margar og miskræsilegar sýningar til að blekkja kjósendur og afvegaleiða. Forsmekkinn af veislunni hafa menn þegar fengið í Borgunarsketsinum og annað verður vafningalaust í sama anda, eða ölluheldur, sama andleysinu. Það er því augljóst að kjörnir ráðamenn okkar eru þegar teknir til við að skíta í nyt almennings í landinu, svo notað sér orðalag sem hæfir varknaðinum. Það er síðan spurning sem eftir á að svara hvort sami almenningur muna láta enn eina ránsferð auðvaldsins yfir sig ganga.
Verður að fara réttar boðleiðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2016 | 15:01
Hefir meiri áhuga á að vinna skemmdarverk á samfélaginu, helst óbætanleg
Það vita flestir sem vilja á annað borð vita að núverandi hæstvitrtur menntamálaráðherra, Íllugi Gunnarsson, hefur engann áhuga á menntamálum og hefir aldrei haft. Hinsvegar virðist þessi veslings ráðherra hafa þeim mun meiri áhuga á að vinna skemmdarverka á samfélaginu, helst óbætanleg, með einkavæðingarbraski. Það er sem sé fjallgrimm vissa Ílluga að best sé að fela Hjallastenunni og öðrum menntafúskurum af sama tagi að koma samfélagslegareknu menntakerfi fyrir kattarnef á sama hátt og hann, Bjarni Ben og Stjáni Júl bíða í ofvæni eftir að færa Ásdísi Höllu heilbrigðiskerfið.
Og auðvitað ætla húskarlar og griðkonur gömlu Framsóknarmaddömunnar að sigla einkavæðingarskútunni til hafnar með Ílluga og Bjarna og selja í leiðinni, eða öllu heldur gefa frændum og sínum og vinum, hlut ríkisins í fjármálastofnunum. Þetta er að vísu hugsjón við hæfi lágmenningardrjóla auðvaldsins sem hvergi kunna betur við sig en í haughúsum peningahyggjunnar, græðginnar og ójafnaðarins. En það er svo sem ekkert nýtt þó skrípakallar og kellingar Framsóknarmaddömunnar flaðri eins og lúsug hundstík fyrir húsbændum sínum á höfuðbóli auðvaldsins; það sama gera krataskiturnar líka hvenær sem það er í boði skríða fyrir harðsvíruðust péníngahyggjuöflunum.
En þó að núverandi ríkisstjórn standi fyrir fátt annað en aukna ómenningu, yfirgang péníngaperverta, glæpi gegn alþýðu og forheimskunarvæðingu þá eru hjónin frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður hæst ánægð með ríkisstjórnina og minnast hennar undantekningarlaust í borðbænum sínum áður en þau leggja steikina og rauðvínið sér til munns. Enda hefir frú Ingveldur lofað auðvaldsgyðjurnar Margréti Pálu og Ásdísi Höllu auk ríkistjórnarinnar í aðventuhugvekjum í kirkjum landsins og í fyrirlestrum á menningarkvöldum Heimdalls fyrir að þær ætli að frelsa þjóðina frá því að reka heilbrigðis- og menntkerfi, því soleiðis auðlindum sé best borgið í braskaraklóm fjárfesta og annarra einstaklinga sem kunna að kaupa og selja auðlindir.
Hið opinbera fann upp kjarnorkusprengju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2016 | 19:26
Hasshundurinn Kölski og meinleg örlög hans
Það má svo sem vera að einhver lögregluprjónn hafi verið leystur tímabundið frá störfum. Þessháttar smáskítlegheitum skipti ég mér ekki af og er nákvæmlega sama hvort umræddur náunga er að störfum eða leystur frá störfum eða, sem langlíklegast er, að hann sé ekki til, tilvist hans sé skröksaga og uppspuni frá upphafi til enda. Þá stendur mér nákvæmlega á sama hvort persónan Sigríður Björk Guðjónsdótti, sem sögð er lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, er til í raun og veru eða einugis skáldsagnapersóna í höfðinu á einhverjum sjálfstæðismönnum.
Aftur á móti man ég vel eftir hasshundinum Kölska sem starfaði að fíkniefnarannsóknum innan lögregluembættisins á höfuðborgarsvæðinu og var loks rekinn úr starfi fyrir ýmsa glæpi, svo sem eins og spillingu, yfirhylmingu, rangar sakargiftir, líkamsárásir og mjög alvarlega kynferðislega áreitni. Til að byrja með gekk allt í haginn hjá Kölska, hann kom uppum marga eiturlyfjasmyglara, burðardýr og eiturætur. Þegar frá leið fór að bera á einu og öðru dularfullu í fari Kölska. Hann kom í veg fyrir að hroðalegar glæpabullur væru handteknar, lék sér iðulega við hundtíkur grunaðra eiturnautnamanna og reyndi ítrekað að koma sök á æðstu menn og konur þjóðarinnar, einkum á Keflavíkurflugvelli þegar þeir vóru að koma frá útlöndum. Á sama tíma fór að falla grunur á hann um að laumast aftanað málsmetandi fólki þegar aunginn sá til og misþyrma því.
Þó tók samt steininn úr þegar frú Ingveldur lagði fram kæru á Kölska fyrir ruddalega áreitni af kynferðislegum toga. Þá sá ráðherra lögreglumála sér ekki annað fært en að dæma þennan fræga fíkniefnahund til dauða. Er það eina dæmið um að sá ráðherra tæki ákvörðun í starfi. Það vóru einhver skítmenni úr götulöggunni sem fengnir voru til að myrða Kölska og það gerðu þeir af einstaklega fólskulegri varmennsku inni á klósetti knæpunnar Meyjarvölsi.
Lögreglumaður leystur frá störfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2016 | 08:09
Áhrifa af andláti Davíðs gætir líka á Íslandi
Andaður er sætlega í hárri elli Davíð okkar hérna Bowie frá Brixton. Hann kunni aldrei að meta davíðskuna en mat framsóknarmennsku þeim mun meir. Nú blakta 10 svartir fánar í Lundúnum, sem þó hefðu átt að vera tólf því það er auðveldara að reikna út kostnaðinn í tylftum. En hvað um það þá er Davíð okkar látinn og farinn til Guðs sem gefi honum eilífa sælu á Hymmnum með strengjaslætti og syntisæserum.
Þegar Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður frétti nú í morgunsárið af andláti Davíðs svelgdist honum á afréttaranum og fékk af því svo slæmt hóstakast að hann var næstum dáinn eins og Davíð. Og afréttarinn frussaðist yfir eldhúsborðið og uppá vegg. En Kolbeinn var ekki af baki dottinn því þegar hann náði andanum aftur tók hann til við afréttarann þar sem fyrr var frá horfið; hann er nú á leið til vinnu sinnar nokkuðu ölvaður og sorgmæddur úr hófi fram, en þó ekki svo að geti ekki ekið bifreið sinni sjálfur.
Ekki var Kolbeinn fyrr horfinn úr húsi en Brynjar Vondalyk var kominn inná gólf heima hjá honum þeirra erinda að nauðga frú Ingveldi. Sem betur fer varð þessum illa skelmi ekki kápan úr þvi klæðinu því frú Ingveldur tók hraustlega á móti og tókst fljótlega að koma rothöggi á hann. Þar næst hringdi frú Ingveldur í Kolbein mann sinn og bað hann snúa aftur heim og hirða upp hræið af Vondulyktinni og koma því fyrir á öruggum stað.
David Bowie látinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er ekki nema sjálfsagt og eðlilegt að Mikjáll Múr fái að mynda hvernig eðalfangar á Íslandi kneyfa rauðvín og éta steikur í dýflissunni til að sýna Amríkönum hvernig koma á fram við fanga. Að umboðsmaður Alþingis sé að snuðra í soleiðis hlutum er auðvitað afleitt og ber vott um átjándualdarhugarfar. Svo hefði verið ósköp gaman ef Mikjáli kvikmyndagerðarmanni hefði borið gæfa til að mynda reiðnámskeið fanga, sem illu heilli var af slegið af mannvonsku einskærri.
Vitað er fyrir fyrir víst að hvurgi er betra að taka upp menningarlegar fangelsismyndir en á Kvíabryggju þar eð birtuskilyrði þar eru slík að aumustu refsfangar líta út eins og bánkagróssérar og mikilsvirtir útvegsbændur. Svo er alltaf fróðlegt að heyra hvernig fangar tala um aðra fanga af þessum unaðslega kærleik sem brestur á þegar menn eru mettir af rauðvíni og nautasteik. Niðurstaðan er því sú, að upptaka Mikjáls á ástafari og neysluvenjum kvíabryggjufanga er ekkert minna en þjóðþrifaverk og framúrskarandi landkynning.
Mátti Moore mynda á Kvíabryggju? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 7
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 232
- Frá upphafi: 1539523
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 199
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007