Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2017

Einkamáladálkar sjálfstæðismanna eru lögverndaðir af stjórnarskránni

xd3.jpgÞið skuluð athuga það, piltar mínir, að þegar liðsmenn Sjálfstæðisflokksins semja skýrslur um liðsmenn Sjálfstæðisflokksins þá kemur aungvum við hvort foringi Sjálfstæðisflokksins sýnir öðru fólki skýrsluna eða ekki. Foringinn ræður því fullkomlega hvenær hann leggur skýrsluna fram til umræðu, ef honum þóknast á annað borð að leggja hana fram. Einkamálabækur sjálfstæðisflokksmanna eru einkamál þeirra sjálfra, enda eru þeir mikið fyrir einkamál, einkaframkvæmdir, einkaframtak og einkavæðingu; þeir eru sem maður segir einkar elskir af péníngum, ekki síst þeim péníngum sem þeim hefir tekist að lauma í skjól á aflandssvæðum. Þessi forréttindi sjálfstæðisflokksmanna ber oss hinum að elska og virða.

x29Í kveld er frú Ingveldur í þungum þönkum útaf nýju ríkisstjórninni, sem væntanlega verður kynnt til leiks næstkomandi þriðjudag. Auðvitað er hún ekki hugsi vegna þeirra engeyjarfrænda, Bjarna og Benza, enda eru þeir sælir heimilisvinir á hennar eigin heimili. Nei, það er þetta fyrirbæri hann Proppi sem hún botnar ekki í. Frú Ingveldi finnst Proppi nefnilega ótúttlegur, eins og rotinpúra, með upplitaðar hárdruslur niðrá axlir, líkastar fráhrindandi tvinnaspottaflækju; hún er þeirrar skoðunnar, að Bjarni og Benzi geti ekki verið þekktir fyrir að draga annað eins himpigimpi í trúðslíki alla leið inní ríkisstjórn Íslands. Það eru takmörk fyrir öllu. Kolbeinn, eiginmaður frú Ingveldar, er aftur á móti hræddur um starf sitt, sem hann þáði sem bitling frá Framsóknarflokknum fyrir óeigingjörn störf sín í þágu framsóknarmanna. Kolbeinn hefir, af gefnu tilefni, illan grun um að Proppi, eða einhver annar skrípalingur, muni nota tækifærið, fyrst Framsókn verður fjarri stjórnarráðinu um hríð, og sópa honum útaf skifstofunni eins og dauðri flugu.

bur6.jpgNú má aunginn ætla, að Proppi hafi aldrei stigið fæti innfyrir dyr á heimili frú Ingveldar og Kolbeins. Það er nú eitthvað öðru nær. Proppi hefur oftar en einusinni sveimað inn til þeirra sæmdarhjóna og sennilega jafnoft fokið þaðan út í loftköstum eftir að húsráðendur höfðu fengið nóg af vingulshætti hans og siðprúðum dónaskap. Til dæmis stimpaðist Proppi á móti þegar Kolbeinn af rómaðri gestrisni sinni ætlaði með hann niður í miðstöðvarkompuna, það endaði með því að Kolbeinn kastaði gesti sínum út eins og olíublautu fuglskvikindi. Þó er huggun harmi gegn, að Benzi hefir sagt frú Ingveldi að Proppi sé ósköp leiðitamur og það sé enginn vandi að láta hann gera hvað sem er, ef rétt er að farið. En einkamál og einkaathafnir sjálfstæðisflokksmanna eru einkaframkvæmdir þeirra sjálfra og aungvum koma þær við öðrum en þeim sjálfum. Það er refsingarvert lögbrot ef óinnvígðum verður það á að hnýsast í stjórnarskrárvarin einkamál Sjálfstæðisflokksins


mbl.is Þykir þetta ekkert óeðlilegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er maðurinn svo forhertur að hann ætlast til að þjóðin trúi þessu?

x38Að sjálfsögðu vísar Bjarni Ben því á bug að hann hafi haldið skýrslunni um afrek Íslendinga á svokölluðum aflandssvæðum, nema hvað? Varla færi maðurinn að viðurkenna svo skuggalegt verk frammi fyrir alþjóð þrátt fyrir að hafa verið með skýrsluna í lúkunum síðan fyrir kosningar. Finnst Bjarna Ben virkilega að hann eigi skilið að komsat upp með svona refjar og útúrsnúninga? Og er Proppi alveg sáttur við að fara í ríkisstjórn með manni sem grunaður er um að fela skýrslu um athafnir auðvaldspésanna á stöðum á borð Panama? - Er Prooppi þessi ef til vill fyrst og fremst að sækjast efir því að verða að almennu athlægi og viðundri hjá þjóð sinni?

RæningiEftir því sem fram kemur, þá hafa einhverjir peningakónar bakað Íslandi og Íslendingum verulegt tjón með háttsemi sinni á aflandssvæðum. Milljarða á milljarða ofan hafa þessir þokkapiltar laumast með úr landi eins og forhertir þjófar að nóttu og svikið þar með þjóð sína og svívirt. Og fregnunum af þessum fjöndum á opinberu skýrsluformi stingur fjármálaráðherrann bara í rassvasann og lætur ekki í þær glitta fyrr en búið er að kjósa og ný ríkisstjórn undir forsæti sama fjármálaráðherra er svo gott sem frágengin. Er ekki eitthvað bogið við svona vinnubrögð, almenningur góður?

Karl MarxÞað hafa þeir lengi gert sér grein fyrir, sem viljað hafa vita, að hægrislúbertarnir hér á landi, einkum sjálfstæðisflokksmenn, hafa umgengist samborgara sína eins og þeir ættu allt og mættu allt, og samborgararnir hafa svo sem látið gott heita og kosið samviskusamlega þessi endemi til valda yfir sig. En einhverntíma verður mælirinn fullur. Kapítalisminn og auðvaldsskipulagið eru ekki náttúrulögmál með sjálfvirku réttlæti og ósýnilegri hönd markaðarins. Kapítalisminn er dauðlegt skrímsli, úrkynjað, slóttugt og samfélagseitrandi. Þessháttar ófögnuði eigum við að bægja frá okkur og feta okkur inná brautir mannúðarfulls sósíalisma og fullkominnar mennsku því að það er hægt.


mbl.is „Ég vísa því algjörlega á bug“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugrekki kamraorghestanna

_gust_a_motmaela.jpgÆ ég held það taki ekki fyrir þessa kamraorghesta að hafa fyrir því að mynda ríkisstjórn. Það væri aðeins óþarfa ónæði fyrir forsetann að taka að taka á móti þeirri hjörð og setja í embætti. Því að væntanleg ríkisstjórnarnefna verður hrakin frá völdum fyrir vorið og þá verða þessi skuggalegu samtök sem að henni standa kosin, ekki aðeins útí hafsauga heldur alla leið til Tortólu ug urðuð þar eins og ókræsilegt spilliefni. Ég trúi því að hin öfgahægrisinnaða panamaskjalastjórn þeirra Bjarna, Benza og Proppa verði fyrsta ríkisstjórn lýðveldisins sem verður heilsað með mótmælum, - mótmælum í stærri kantinum, vel að merkja, - sem kann að ljúka með því að engeyjarfrændur og Proppi í eitugrænu jakkafötunum og með hárstrý eins og tvinnaspottaflækju á hausnum svífa eins og englar úti Reykjavíkurtjörn.

x-banziÞað sem vekur mesta athygli er hið sérkennilega hugrekki flokkana sem að nýju stjórninni standa að þora yfirleitt að fara af stað með annan eins óskapnað, gegnsósaðan af hneykslum, kosningasvikum og panamaskjalaómennsku. Það liggur til dæmis ljóst fyrir, að flestir þeir ólánsgemlingar, sem köstuðu atkvæðum sínum á fyrirbærin Viðreisn og Björtu framtíðina, í þeirri trú að þau væru einhverskonar félagshyggjuflokkar á miðjunni, hafa áttað sig á hverskonar dólgasöfnuður er í raun þar á ferð. Hitt er svo aftur annað mál hvernig á ranghugmyndum kjósenda stóð varðandi þessa hægriöfgaflokka fyrir kosningar, en það er vissulega rannsóknarefni útaf fyrir sig.

fire.jpgEn hvað um það, ég spái mótmælum um leið og ríkisstjórn Bjarna Ben tekur við völdum og ég vona heilshugar að ég verði sannspár hvað þetta varðar því heill, siðferðisheilsa og sjálfsvirðing þjóðarinnar er að veði.   



mbl.is Stefnt að ríkisstjórn í næstu viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til þess eru refirnir skornir

x33Já já, það vita allir, aðallega þó þeir sem hafa annað og meira en kvarnir milli eyrnanna, hvurnig á þessari ,,bókun" í Bæjarráði Akureyrar stendur. Aðvitað vill þetta sérkennilega ráð, sem öllu nákvæmara væir að kalla óráð, neyðarbraut í Reykjavík til að geta með hraði losnað við óæskilegar persónur, aðkomuskríl, sem veður uppi í guðlasti og glæpum með hraði frá Akureyri. Í kvöld vantaði þeim til dæmis neyðarbraut til að lenda með guðlausan aðkomumann, sem gerði garðinn frægann við valinkunn guðshús þar nirðra í gærkvöldi. En af því að neyðarbrautin er lokuð fyrir Valsara fyrir tilstuðlan Gnarrsins og Hönnu Birnu sitja Akureyringar uppi með óalandi og óferjandi persónu sem þeir vilja ekki sjá í sínu bæjarfélagi.

Akureyringar eru sem kunnugt er frómir og agaðir og fremja aldrei hryðjuverk heima hjá sér. Hinsvegar hafa þeir lengi mátt búa við það böl að einkennilegir menn og illar konur hafa átt það til að ryðjast í bæinn eins og þjófar að nóttu og spilla þar alsherjarreglu. Hið aðkomna aðkomuhyski hefir gjanan lagt höfuðuáherslu á að spilla æskulýð staðarins, berja heimamenn og kokkála þá auk þess að fara ránshendi hús úr húsi. Svona friðarspilla þarf auðvitað að uppræta fljótt og fagmannlega. Það getur hvur maður sagt sér það sjálfur að lokuð neyðarbraut getur skapað enn meiri neyð og gjört að verkum fullkomiði óvissu- og óreiðuástand verði hreinlega að djöfullegu helvíti.

Annars er það af bókunum sveitarfélaga að segja, að það er aldrei neitt að marka þær og engum dettur í hug að taka þær alvarlega. Enginn veit hvaða tilgangi þessi fíflagangur á að þjóna. Þeir sem setja saman bókanir í hreppsnefndum eru yfirleitt frámunalega andlausir og bókanirnar þurrar og andlausar, án sannfæringar, hvað þá hugsjónar og þýða endranær eitthvað allt annað en orðanna hljóðan segir til um. Ef bæjarfulltrúi vill endilega gera sig að opinberu viðundri og fálkalegum bjálfa þá leggur hann fram bókun. Að öllu samanlögðu ætti hreina auðvaldsbraskarastjórnin sem bráðum tekur við að banna bókanir í sveitarstjórnum að viðlagðri mjög harðri refsingu.


mbl.is Neyðarbrautin verði opnuð á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá er svívirðir musterið skal burtrækur gjörr, á stundinni

fu3Þegar hafa margvíslegar kenningar getgátur gubbast upp á Akureyri og víðar um land um það hvur og hvaðan hann sé hinn andstyggilegi guðlastari, sem réðist eins og hamstola djöfulsbarn á musteri Akureyringa. Allflestir, einkum Akureyringar sjálfir, eru handvissir um að þorparinn sé einn af þessum utanbæjarmönnum sem öfundi Akureyringa af KEA, Samherja og Konráði sjóvíkingaforingja. Aðrir er meira hallir undir að ódámurinn sé óféti utanúr Eyjafirði, sem meðtekið hefir illan anda Múhámeðs spámanns, með öðrum orðum: umskiptingur undir beinum áhrifum frá Djöflinum sjálfum. Í þriðja lagi hafa grunsemdir vaknað um að illvirkinn hafi framið guðlast sitt fyrir hönd Íslensku þjóðfylkingarinnar, sem er mikil flokkur sjúklinga á svokölluðu þjóðfylkingarrófi.

ing23Á einu fyrirmyndarheimili í Reykjavík ríkir þó rafmagnað ástand og viðkvæmt útaf þessum kirkjuskrifum fyrir norðan land. Frú Ingveldur hefir nefnilega bitið í sig að Kolbeinn eiginmaður hennar eigi launson á Akureyri, hvers móðir er, að sögn frú Ingveldar, aumkunarverðast skítadræsa sem gengið hefir laus á gjörvöllu Norðurlandi. Þess meinti launsonur Kolbeins, segir frú Ingveldur að sé auðvitað aumingi í sjón og raun, haldinn ranghugmyndum um gvuð og víli ekki fyrir sér að fremja ódæðisverk gegn skaparanum og frelsaranum og því sé óbermið atarna öðrum líklegri til að ráðast á helga dóma kristinna manna. Kolbeinn vísar afturámóti öllum dylgjum frú Ingveldar á bug; fullyrðir að hann eigi aungvann launson fyrir norðan land og þekki því síður einhverja andstyggilega skítadræsu í þeim landsfjórðungi.

Þegar síra Baldvin frétti af árásinni á musteri Akureyrar lagðist hann þegar í stað á bæn og bað föður andanna afdráttarlaust um að taka í taumana og leiða lögregluþjóna á slóð afbrotamannsins og láta þá handtaka kvikindið og yfirheyra það svo það muni efir því. Eins og við manninn mælt bænheyrði Drottinn þjón sinn og innan skamms var þrjóturinn fallinn í hendur lögregluþjóna, sem kunna að taka á svona fyrirbæri. Nú hefir hinn skriftaglaði guðníðingur verið rekinn burt frá Akureyri og má þakka fyrir að þarbæjarmenn hafi ekki embættað hann samkvæmt lögum og siðum fyrri alda. 


mbl.is Játaði skemmdarverk á kirkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illur grunur vaknaði

kona1.jpgÞegar frú Ingveldur las fréttina af ódæðisverkinu í hesthúsinu var hún fljót að leggja saman tvo og sex og fá út átta. Hún hófst þegar handa og fór yfir fatasafn Kolbeins, rýndi, hnusaði og velti vöngum. Loks fann hún ókennilegt hár í skítugum nærbuxum af kallfjandanum og fann ekki betur en megn merafýla væri af flíkinni. Með sönnunarganið í höndum tók hún á móti eiginmanni sínum, Kolbeini Kolbeinssyni, þegar hann kom grandalaus heim úr vinnunni. Og móttakan sem beið hans var sannarlega vægðarlaus og grimm, því frú Ingveldur tók hann þegar í stað kverkataki með hægri hendi en hina vinstri notaði hún til að bera hið andstyggilega hár uppað augum hans. - Hvað er þetta!? orgaði frú Ingveldur og hampaði hárinu framan í mann sinn. Kolbeini varð að vonum ákaflega hverft við atlot konu sinnar og leið í ómeginn. Þegar hann komst aftur til meðvitundar stóð frú Ingveldur yfir honum eins og tryllt óargadýr og Kolbeinn gat með aungvu móti skilið hvað hún var að garga en skildist þó að eitthvað ógurlegt hafði gerst.

kolb13En þegar Kolbeini loks skildist að eiginkona hans var að bera uppá hann hórdóm sem hefði átt sér stað í hesthúsi var honum eiginlega öllum lokið. -Það þýðir ekki neitt fyrir þig að þræta helvítis andskotans hrossabresturinn þinn, anímalistinn þinn, hræætan þín! grenjaði frú Ingveldur og sparkaði í hreðjar manns síns þar sem hann lá ósjálfbjarga í gólfinu, -ég skal soleiðis troða beislinu uppí andskotans merarkjafinn á þér, djöfuls skepnan, og teyma þig til Andskotans. -Þú ert brjáluð, þú ert brjáluð, þú ert gengin af vitinu, orðin vitfirringur, emjaði Kolbeinn og fann blóðbragð í munninum og var orðinn sáttur við leyfa dauðanum að taka sig og færi sig uppí hin hymmnezku hesthús á hæstu hæðum.

kind1.jpgSvo birtist bjargræðið eins og frelsandi englasöngur. Kolbeinn mundi allt í einu hvað um hvað hár væri að ræða. Hann mundi, að í síðasta fylliríi, þegar hann var að drýgja enn einn hórinn með Máríu Borgargagni þegar Indriði hennar Handreður lá áfengisdauður í stofustólnum, hafði hún eitthvað verið að muldra um að hún væri að fara úr hárunum að neðan. Þarna var skýringin komin og frú Ingveldur rýndi enn fastar á hárið uns hún sannfærðist um, eftir að hafa tekið bæði þef og braggðsýni af hárinu, að það væri úr urtagarði hennar kæru vinkonu Máríu Borgargagni. Þegar ljóst varð hvers kyns var varð frú Ingveldur mjúk á manninn og reisti eiginmann sinn upp og klappaði honum á kinnina og sagði sem svo, að hún hefði líka fundið strá úr rövarskegginu á Brynjari Vondulykt, en það væri nú allt í lagi. - En ef þú vogar þér að fara í hesthús, fjárhús eða fjós til að taka framhjá mér þá verður það þinn bani, skilurðu það afstyrmið þitt, kvakaði frú Ingveldur um leið og hún færi manni sínum drykk. 


mbl.is Ummerki á tveimur hryssum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þó vitlausir séu og vart á vetur setjandi

ulfur-i-saudarg_665314234Það mega íslenskir kjósendur eiga, þó vitlausir séu og vart á vetur setjandi, að þeir notuðu síðustu kosningar til að pakka saman nokkrum últrahægrisinnuðum pappakössum á borð við Össur Sckarp, Árna Pál og hr. H. Hjörvar, sem haft hafa atvinnu af að þykjast vera vinstri menn, og köstuðu þeim saman krumpuðum í ruslatunnuna. Þetta verður að telja vel af sér vikið hjá jafn ráð- og siðvilltum kjósendum og raun ber vitni. 

jóliÖssur Skarphéðinsson tilheyrir ekki neinum vinstrivæng og hefir aldrei gert; hans höfuðból og varnarþing hafa ávallt verið loddaraháttur, innanflokksátök, undirferli og óheiðarleiki. En umfram flest annað er þessi illa þokkaði pólitíski flóðhestur eðlislægur hægridólgur. Loks tóku kjósendur af skarið, töldu nóg komið af fíflalátum Össurar, og ákváðu að fjarlægja hann af fóðrum; hann og hans vinir hafa nú ofanaf fyrir sér með því að snapa gams í hinni pólitísku sorpeyðingarstöð.

xv1.jpgEn þrátt fyrir hlálega útreið Össurar og félaga í síðustu alþingiskosningum, þá lætur þessi hvimleiði lúser sér ekki muna um að hnýta í VG fyrir að hlaupa ekki í ríkisstjórn með kolrugluðum auðvaldssinnaskríl. VG brenndi sig illa á setunni með Össuri og Samfylkingunni í ríkisstjórn á árunum 2009 til 2013 og lái þeim hver sem vill, að þau taki ekki þátt öðrum sambærilegum selskap og mannskemmandi þremur árum eftir að þeirri veislu lauk. Ef Össur, hr. H. Hjörvar og Árni Páll væru ærlegir og heiðarlegir menn mundu þeir ganga í Sjálfstæðisflokkinn eða Viðreisn strax í kvöld og minnast aldrei meir á ,,vinstri væng" (sem ekki er til um þessar mundir,) en einbeita sér þess í stað að sleikja uppí sig molana og slumsið sem kanski hrökkur af borðum burgeisanna. En auðvitað eru ofangreindir grýlupjakkar ekki svo ærlegir og verða aldrei, auk þess sem vandséð er að Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn hafi áhuga á að klína á sig þeim skít að taka við öðrum eins legátum.


mbl.is VG geti sjálfum sér um kennt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Válegar fréttir fyrir suma af miðilsfundi

draugar1.jpg,,Það er vont og versnar stöðugt og verður loks djöfullegra frjálshyggjuhelvíti en orð fá lýst."
Þannig orkti sálmaskáldið góða þegar það kom í gegn á miðilsfundi nú milli jóla og nýárs fyrir milligöngu Friðriks huldulæknis, sem enn lifir góðu lífi. Einn fundargesta spurði þá sálmaskáldið hvað það ætti við. Ekki stóð á svarinu því sálmaskáldið veðraðist upp og svaraði um hæl, að auðvitað ætti það við allar ríkisstjórnir á Íslandi frá því Lúðvík Jósepsson var síðast ráðherra og væri nú svo komið, að innan örfárra daga settist langversta stjórn að völdum sem setið hefði á Íslandi. Síðan útmálaði sálmaskáldið það sem í vændum er af svo innblásinni andagift, að flestir fundarmanna stóðu upp og gengu á dyr, bölvandi og ragnandi með hótanir á vör um að berja miðilinn til óbóta þegar hann vaknaði úr transinu.

Það sem mesta sök átti á geðshræringu þeirra fundarmanna, er á dyr hlupu í fússi, var hve óvirðulega sálmaskáldið talaði um næstu ríkisstjórnarhöfðingja og aðra verðandi ráðherra. Að þeirra mati átti jafn fantalega dólgslegt tal ekkert erindi á kristilegan miðilsfund. Og þegar sálmaskáldið sagði si svo, að íslenskir kjósendur væru svo fáfróðir og heimskir, að þeir finndu aldrei ró í sínum beinum fyrr en þeir væru búnir að kjósa yfir sig þá verstu ríkisstjórn sem í boði væri hverju sinni, þá brugðust fundarmenn hinir verstu við og pökkuðu í vörn fyrir sína menn, stjórnmálaforingjana. En andi sálmaskáldsins lét það ekki á sig fá og bætti um betur með því að lýsa því yfir, að jafnvel hörmungar átjándu aldarinna væru skítapakki sem sem færu illa með atkvæðisrétt sinn of góðar. Að lokum kunngerði sálmaskáldið þingheimi, að það góða við þetta allt væri, að innan skamms tæki almenningur til sinna ráða og ræki næstu ríkisstjórn frá kjötkötlunum með valdi, og það yrða þannig skemmtun sem flestir hefðu gaman af og yrði þjóðinni til margfaldrar blessunar.


kol29Eftir miðilsfundinn tóku hægrifurtar sem á fundinum vóru tal saman og voru sammála um, að sálmaskáldið atarna væri greinilega orðið að illum anda í öðrum heimi, hefði sennilega farið einhverjum ókunnum ástæðum til Andskotans eftir líkamsdauðann og væri ekki vanþörf á að rannsaka það kvikindi og jarðvist þess niður í smæstu smáatriði. Það væri með öllu óskiljanlegt, að eitt vesælt sálmaskáld, vel liðið á sinni tíð, væri farið að leggja stund á byltingaráróður handan móðunnar miklu og léti sér sæma að kalla góða stjórnmálamenn glæpafress, tíkarsyni og djöflamergi. Undir aungvum kringumstæðum mætti munnsöfnuður þessa óvænta liðsmanns Andskotans berast út til almennings, þó hann hafi í lifanda lífi hafi samið ágæta sálma til kirkjusöngs, hvort heldur væri við messur, giftingar eða útfarir. En miðillinn hefir ekki sést síðan fundinum milli jóla og nýárs lauk og enginn hefir minnstu hugmynd um hvar hann er niðurkominn, ef hann er þá yfirleitt nokkursstaðar niðurkominn. 


mbl.is Formenn funda á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá hefði orðið að opna alla glugga

alf3Það var ekki seinna vænna fyrir nýkrýndan forseta íslenska lýðveldisins að hefja hinn riddaralega brand Fálkaorðunnar á loft og reka hann á kaf í barminn á útvöldum sæmdarborgurum sem eiga ekki á afrekaskrá sinni alltof langa lista afbrota í opinberum sakaskrám. Engum sögum fer af væli og voli hinna útvöldu þegar hinn hvassi oddur fálkanálarinnar stakst í bringuna á þeim; í stað þess að fara að hrína að hætti blautbarna urðu sæmdarborgararnir fjarrænir til augnanna og vellíðunarbliki sló fyrir við stunguna, rétt eins og heróínsjúklingar þegar þeir fá skammtinn sinn í einhverju skítugu skúmaskoti heimsins.

fisk3_877461.jpgNú, það virðist vera í frásögur færandi, að nákvæmlega helmingur fórnarlamba Fálkaorðunnar séu kvenkyns og afgangurinn þá væntanlega karlkyns. Hinsvegar eiga erfiðisvinnumenn og konur engann fulltrúa í þessum hópi, enda eru þessháttar persónur ekki sæmdarborgarar. Það hefði að sjálfsögðu skemmt, eða gjöreyðilagt, stemmninguna á Bessastöðum í dag ef svo óheppilega hefði viljað til að ein fiskvinnukerling hefði verið meðal hinna 12 sérstöku; það hefði orðið að opna alla glugga og láta vinda blása gegnum forsetahöllina í marga daga, ef soleiðis kerling hefði slæðst með, til að viðra fiskifýluna burt.

kol6.jpgSvo er Guði fyrir að þakka, að annað hvort eða bæði þeirra sæmdarhjóna, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson, voru ekki boðuð til fálkaorðuinnstungu á Bessastöðum í dag, því að þau væru vægast sagt illa á sig komin í morgun og ekki hefir ástnd heilsu þeirra skánað er á daginn hefir liðið. Að sjálfsögðu er þau sæmdahjón vel verðug Fálkaorðu, riddarakross og stórriddarakross, fyrir frábær störf í þágu lands og sjávar, um það verður ekki deilt. En því miður fara heiðursmerkingar forsetans eingöngu fram á þeim dögum þegar frú Ingveldur og Kolbeinn eru svo þreytt og þjáð af veisluhöldum, að ekki væri gerlegt að láta þau standa í kórréttri röð á stofgólfi Bessastaða. Í stað þess að vera boðuð á fund forseta í dag, hafa sæmdarhjónin eytt nýársdeginum við að kneyfa afréttara og slást á víxl, því mörg álitamál eru óafgreidd á því heimili eftir annasamt gamlárskveld og nýársnótt, þar sem Máría Borgargagn og Brynjar Vondalykt kómu mjög við sögu.  


mbl.is Tólf voru sæmdir fálkaorðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oppþornuðu berin

x25Hann er ekki beint þriflegur, hvað þá gáfulegur, þessi pistill um Brýgýtu, frú Álfheiði, Kolbein Propp og Þ. Saari, enda ekki við því að búast. Fyrir það fyrsta, þá eiga Brýgýta og Þór Saari nokkra sök á að pólitíkin á Íslandi hefir færst til hægri frá Hruni og í öðru lagi er hjákátlegt, ef ekki beinlínir hlandaulalegt, að uppþornuðustu berin í sorptunnu Flokkseigendafélags VG, þau frú Álfheiður og litli Proppi skuli leggja orð í umræddan belg. Og sú var tíðin að frú Álfheiður náði ekki uppí nefið á sér af íllsku og piffaði og piffaði útaf því að Steingrímur hennar hafði sagt einhvern andskotann í umræðum stjórnmálaforingja daginn eftir kosningarnar 2007, sem hún taldi að hafði kostað VG ríkisstjórnarþáttöku. Frú Álfheiði munaði nefnilega í að verða hrundrottning með Gjeiri Haaardý hálfu öðru ári síðar.

x-banziHitt er svo aftur annað mál, að fyrir síðustu kosningar var frágengið af prinsum Sjálfstæðisflokksins að græja saman ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Björtu framtíðarinnar ef þannig verkaðist. Nú stöndum við frammi fyrir þeim ósköpum, að fyrrnefndir skítakamrar eru á barmi þess að kunngjöra ríkisstjórn sína, sem ef að líkum lætur verður einhver sú spilltasta, vitlausasta og óforskammaðasta í sögu lýðveldisins. Það stóð sem sé aldrei til af hálfu Viðreisnar og Björtu að fara í 5 flokka stjórn með Brýgíttu og félögum; hinsvegar munaði Benza og Proppa ekkert um að draga Brýgíttu og Þór Saari á asnaeyrunum bæði fyrir og eftir kosningar með málamyndaviðræðum um ríkisstjórn.

x9byhgg.jpgStjórnmál á Íslandi eru gjörónýt, nema frá sjónarhóli grófustu og öfgafyllstu hægri- og frjálshyggjurassanna, sem eru svo firrtir og geggjaðir í græðgisheimspeki sinni, að þeim munar ekkert um að halda samfélagslegri eyðileggingu sinni áfram af fullum krafti og gleypa allt sem þeir geta torgað. Brýgítu og Þór Saari, og fleira fólk af því kalíberi, væri á þessum tímamótum hollt að gaumgæfa hvern þátt þau eiga sívaxandi hægrihyggju á Íslandi með flumbrugangi, athyglissýki og holtaþokupólitík sinni.  


mbl.is Katrínu eða Óttari að kenna?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband