Bloggfærslur mánaðarins, mars 2019
3.3.2019 | 19:49
Svo var það félagið sem var upprætt áður en það var stofnað
Ja þeir geta leyft sér að kjósa formennina þessir. Það væri svo sem í góðu lagi ef ekki væru ein samtök í landinu, sem geta ekki með nokkru móti kosið sér formann, hvernig sem að hefir verið farið. Samtök andvana hænsnavina hefir verið skilið út undan og enn sýnist langt í land með að þeir geti farið að vera eins og önnur samtök og félög. Hinsvegar lifa samtök kennitöluflakkara góðu lífi og þar slást menn og konur um formennskuna.
So fréttist að í uppsiglingu væri að stofna félag sem hefði fjölkvæni og manna og dýrabrúðkaup á dagskrá. Og eins og við manninn mælt ruku upp úr rottholum sínum ótal siðferðisfræðingar og dýraverndarsamtök og sitthvað fleira í þeim dúr. Það liðu víst ekki nema þrír dagar frá því fréttin af fyrirhugaðri stofnun ofangreinds félags hvisaðist úr þegar búið var að taka alla stofnmeðlimina úr umferði og koma þeim fyrir annaðhvort á geðveikrahælinu eða í fangélsi. Um miðja nótt var útidyrum Sigurðar Lamba sparkað upp og inn þurstu kolsvartir víkingasveitarfurtar, sem rifu Sigurð Lamba berrassaðann upp úr rúminu og bundu hann hönum og fótum og margvöfðu með reipinu svo hann leit út eins og skrýtin rúllupylsa. Hervöru konu hans keflaði víkingasveitin og tjóðraði við eldavélina á meðan þeir gerðu alvarlega húsrannsókn.
Þar á eftir sparn víkingasveitin, undir leiðsögn Björns Kolbeins hershöfðingja, upp durum hins margfræga flagara og tvíkvænismanns, Sigurðar Breiðfjörðs, og drógu hann nauðugan frá brennivískútnum, sem ekki var nema hálfur, og læstu hann inni í hefbérgi á Kleppi með brjálaðri konu. Og sona vann yfirvaldið, í þágu siðferðis og samfélagsskikks, fumlaust að því að uppræta þjóðhættulega djöfla og graðpúkastóð svo þeir kæmu ekki í framkvæmd félagsstofnun, sem óðar mundi ríða þjóðfélaginu, og þar með góðum siðum og hjartans hógværð, út í skurð og drekkja því þar eins og hvurju öðru hundsspotti sem búið væri að höggva skottið af.
Þorbjörg nýr formaður Samtakanna 78 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2019 | 17:06
Þeir þora ekki að gjöra atlögu að síra Baldvini
Hinsvegar lagði kirkjuþig ekki í að leggja niður prófastdæmi og prestakall síra Baldvins, til þess eru þeir á kirkjuþinginu ekki nægilegir bógar og ekkert gamanmál fyrir litla kalla að eiga reiði og bannfæringu síra Baldvins yfir höfði sér. Kirkjunnar menn og kvinur eru þess enn fullmeðvituð hvernig fór fyrir pokaprestinum sem fór að ybba gogg við síra Baldvin og setja ofan í við hann. Hin lítilmótlega prestsskepna fann sem sé að því við sísa Baldvin að hann væri of katthólskur fyrir Þjóðskirkjuna og það væri mikil ósvinna að bannfæra umkomulaust fólk og neita því um legstað í vígðum reit. Síra Baldvin svaraði að bragði með því að svipta hempunni af pokaprestinum í einu handtaki, leggja hann síðan á kné sér og flengja. Eftir þetta lá pokapresturin í rúmi sínu í kör í fulla 10 mánuði.
Síðan síra Baldvin rassskellti pokaprestinn hefir all-nokkuð af vatni runnið til sjávar og staðan þannig, að ekki er lengur talað í leynum um að færa prestakall hans og prófastsdæmi hans undir annað prestakall og annan prest og nýjan prófast. Nú eru kirkjuþingsfulltrúar og Byskubbstofa dauðhrædd um að síra Baldvi hefji þá og þegar útrás og fari að sölsa önur prestaköll og prófastsdæmi undir sig með ofbeldi og fautaskap og sem því svarar litlum bænalestri og sálmasöng.
Mest eru þó kvenprestar hræddir við hinn himinhrópandi kirkjuhöfðingja og prestahrelli, síra Baldvin, því hann umgengst kvenpresta eins og hvurjar aðrar kisulórur og á það til að setja í þær löppina ef honum þykir þær þvælast fyrir sér. Og ef hann sést nálgast Byskubbstofu í öllu sínu hymmneska veldi, hlaupur byskubbinn út bakdyramegin og felur sig í eihverjum nærliggjandi kjallara. Einna mest var þó um dýrðir þegar síra Baldvin heimsókti bysskubbinn í Landakoti og hans preláta til að rétta hlut drengja, sem katthólskir prestlíngar og erkibysskubbar höfðu fiktað við. Það var að sögn, stórkostleg sjón að sjá þegar krossar, bykarar, patínur, kirkjuklukka, ljósakróna, kertastjakar, skírnarfontur og einn skriftastóll komu fljúgandi út úr húsum á Landakotstorfunni og út á Landakotstún, en á eftir því öllu síra Baldvin dragandi með hægri hendi katthólskan bysskubb á annarri löppinni út úr helgidómnum, en með þeirri vinstri hélt hann í hnakkadrambið á hálf-vansköpuðum kirkjuþjóni, sem síra Baldvin telur sig hafa vissu um að ekki sé allur þar sem hann er séður.
Samþykkt að sameina prestaköll | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2019 | 12:09
Betur má ef duga skal og því tjöldum vér öllu er til er
Ósköp er það nú uppörfandi að sjá að evrópskum saungspekingum skuli lítast sona feyknavel á hinn kommúníska ungdóm frá Íslandi, sem ætlar að skemmta Ísraelsmönnum og Javhe gamla, guði þeirra, með rammíslenskri kveðandi í hatursstíl. Nú þykir næsta víst að Netanjahúú, Gyðinganna æðstaráð, muni bjóða hinum hatandi saungflokk til sín í konungshöllina í Jerúsalem, hvar Heródes kóngur bjó á dögum Jesú Krists, en Jesús þessi var um sína daga heldur gefinn fyrir kommúnístískar konstir og sameignarþjóðfélag.
En betur má ef duga skal. Nú verða Íslendingar að koma því inní ferkantaða hausana á evrópskum saungunnendum, að nú er runnin upp sú tíð að Íslendingar þyggja ekkert minna en fyrsta sæti og sigur í Tel Aviv í vor, annars verður þeim sagt stríð á höndur. Í leiftur-hefndarstíði munu Íslendingar leggja Evrópu og ESB í rúst eins og Kató gamli vildi ganga frá Karþagó. Vér munum ekki einusinni þyrma Dönum og Færíngum í þeim herleiðangri, að ekki sé minnst á andskotans Nojarann.
Og helvíti verður nú gleðilegt fyrir oss að sjá kommúnistaflokkinn Hatara stíga á svið með Gyðingum og Pallastínukörlum og öskra framan í þá boðskapnum, það mundi minna oss á frú Ingveldi þegar henni tekst vel upp, þá hún orgar ókvæðisorðum, dólgsfémínísma og óduldum hótunum framan í ómennið Kolbeins Kolbeinsson, Brynjar Vondulykt og Indriða Handreð. En það er síðast af því fólki að frétta, að hinir þrír síðastnefndu karlmenn, Kolbeinn, Vondalykt og Handreður, hafa lagt fram kæru á frú Ingveldi, þess efnis að hún sé það sem kallast ,,kveldriða", en með þessháttar fólki er óskemmtilet og hættulegt að búa.
Íslandi víða spáð 4.-8. sæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2019 | 11:29
Það fór nú ekki svo densilega hjá honum síðast á Þingvelli
Það fór nú ekki svo densilega fyrir honum Sigmundi Davíði þegar hann villtist síðast á Þingvelli. En fyrst ber að taka fram að Sigmundur þessi Davíð er alltaf að villast og í raun og sann er maðurinn kyrfilega rammvilltur, svo að eigi sér hann til lands. Satt að segja má undrum sæta hvað aumingja manninum gengur herfilega að ná áttum, sjá ljósið. Vér munum víst öll þegar drengurinn sá arni rambaði eins og í leiðslu inn í Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu og verð sér til eilífrar háðungar fyrir framan svenskan fréttaúlf og myndavélar hans; fám dögum síðar var Sigmundur Davíð borin í poka út úr Stjórnarráðshúsinu.
Á Þingvöllum er landslag hrjóstrugt með gjár, sprungur, holur, geilar, skvompur og gjótur. Í slíku landi er auðvelt fyrir villugjarna pilta að misstíga sig og steypast niður í einhverja af þessum andstyggilegu gjótur, sem einlægt eru hálffullar af svo ísköldu vatni að allt kvikt sem í þær fer er steindautt og stirðnað á svo gott sem augabragði. Það er ekki lengra síðan en í sumar leið, að Sigmundur Davíð rolaðist með Kögunarþef í nösum á Þingvöll til að fagna aldarfullveldi Íslands með Stengrími og Grettlu Dönsku, og ekki fór það nú vel hjá honum. Honum var ekið að morgni dags austur um Mosfellsheiði og þegar á Þingvöllinn kom opnaði Sigmundur Davíð bílhurðina og ráfað af augum, næstum luktum, beint út í hraun og hafði innan stundar ekki hugmynd um hvar hann var stadur.
Og á meðan Stengrímu, Danska-Grettla, Katrín og Bjarniben skemmtu sér konunglega á hátíðarpallinum í háborgaralegri snobbvímu, var Sigmundur Davíð höktandi á villugötum út í úfnu hrauni, annað hvort skríðandi eða eða hreinlega á hausnum, eða í því sem næst lóðréttu ástandi, þurrkandi svitann af enninu og úr kríkunum. Svo skelfilegt var þetta ferðalag hins burtrekna, hædda og smáða fyrrum ráðsmanns gömlu Framsóknarmaddömunnar, að hann var næstum fallinn fram að hömrum Almannagjár, rétt við fossinn Öxararár; mátti þar minnstu muna að hann hafnaði í Drekkingarhyl, hvar bersyndugum kinnum var drekkt fyrr á öldum, öðrum til viðvörunua og þeim sjálfum til aðvörunar. Loks fanst Sigmundur Davíð steinsofandi og genginn upp að knjám, blautur, blóðrisa, rifinn og tættur utan í hraungrýtisurð, þá var klukkan orðin tvö eftir miðnætti og hungraðir melrakkar og hrafnar komnir á kreik og staðan öll hin ótryggasta fyrir örþreyttan og niðurlægðan villumann í hrauni.
Sigmundur Davíð á Þingvöllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2019 | 22:48
Rættist úr er á leið og skúffelsið varð minna
Ægilegt skúffelsi er þetta júróvísjón á hvurju ári síðan Waterloo vann fyrir hart nær sjötíu árum. Í fyrra sendi Ísland svo litlaust og leiðinlegt lag, að ljóst var að lengra varð ekki komist á þeirri braut; lagið var so innilega bragðdauft að það hreinlega gufaði upp og gleymdist sama kvöldið og það var orgað í úrslitakeppninni. Í kveld var allt útlit fyrir að úrkynjunarfroða mundir sigra eins og vanalega. En á síðustu stund hljóp á dauðafærið og kommúníska söngsveitin Hatari hafði alla froðudrulluna undir og sigraði.
En kálið verður eigi sopið þó í ausuna sé komið. Nú stendur til að senda kommúninstana til Ísraels til að herja á og móðga þarlend yfirvöld og zíjónísta. Drengirnir eru að sjálfsögðu komnir í lífshættu og sú hætta mun ekki minnka þá út er komið; þeir hafa oft þarna fyrir botni Miðjarðarhafs sálgað stærri nautum en fáeinum ungum kommastrákum frá Íslandi.
Þegar Hatararnir vóru búnir að blása froðufrussinu úr húsi, sögðu þeir sem svo, beint inn í hljónema Ríkisútvarpsins, að með sigri sínum væru þeir skrefi nær að steypa kapítalismanum (Guð láti gott á vita). Ég er næstum viss um, að þetta orðbragð hinna hatursfullu kommonúísta hefur farið herfilega illa í helstu forgangstítur íslenskrar borgarastéttar, auðvaldskamrana, svo sem Katrínu Stengríms, Bjarnaben og hina bólgnu Framsóknarmaddömu sem er nú eins og hún er. Mér er sagt að kérlíngaröspin hún Katrín, stórvinur og elskhugi kapítalistanna, hafi hrokkið svo hryllilega við að aungveu hafi verið líkara en hún hefði gleypt fótbolta og hann stæði grjótfastur í blessuðu kokinu á henni. En ég segi fyrir mig, að það rættist úr júsóvísjóninu þegar leið á kvöldið og skúffelsið varð ekki eins mikið og áhorfðist í fyrstu.
Hatari fulltrúi Íslands í Eurovision | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2019 | 21:18
Byltingarandinn liggur í loftinu, ferskur og heilnæmur
Þau væru ekki að mjálma þetta, þokkahjúin atarna, ef þau væru ekki orðin svona helvíti skíthræddog nú dettur þeim í hug, að verkalýðshreyfingin muni lækka kröfur sínar niður í fátæktarhagfræði stuttbuxnapilta og aflýsa verkföllum, bara ef laun bánkustjóra lækka dulítið. En sennilega verður sæmdarhjúunum ekki að ósk sinni og fyrirsjánlegt að stjórnarnefnan þeirra mun hrynja sem ein skítahrúga í moldarflagi. Framtíð Katrínar og Bjarnaben, sem er líka gluggaskraut og strengjabrúða, liggur í hinum poletískö skurðum, hvurjir fullir eru af óhreinindum og úrgangi kapítalismans.
Nú liggur í loftinu byltingarandi, ferskur og heilnæmur, og fer um lönd og láð eins og frelsandi hönd. Og það er einstaklega vel við eigandi að það sé dóttir Jóns heitins Múla og bróðurdóttir Jónasar, sem leiðir hinn stóra og fjölmenna skara verkalýðsins fram til sigurs og steypir í leiðinni helvítis auðvaldsvellunni og arðræningjastóðinu í gröfina. Það verður líka undursamlegt þegar Gunnar Smári mælir yfir moldum auðvaldsins. Þá má segja, sem forðum var sagt, að nú sé himnaríki í nánd.
Já, víst er ríkisstjónin Stengríms, Bjarnaben og gömlu Framsóknarmaddömunnar vindþurrkuð orðin, veðurbarin og andstyggileg öllu sæmilegu fólki. Þar á móti er dásamlega stutt í að byltingin rífi skreiðarbútana í sig og komi á sósíalisma með innrammað skilirí af Karli sáluga uppi á vegg í hvurri stofu á Íslandi.
Í dag er of seint fyrir kjökurkvikindi og jólatrésskraut borgarastéttarinnar að iðrast og lækka laun einhverra galtómra bánkustjóra.
(Meðfylgjandi mynd er af því þegar endemi auðvaldsstéttarinnar hundskast út úr Alþingishúsinu í síðasta sinn)
Trúnaðarbrestur verði tilmæli hunsuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Jón Sigurðsson soldáti við íslenska herinn
- Í dag tók séra Atgeir fryggðina í misgripum fyrir friðinn
- Á meðan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hve...
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.12.): 35
- Sl. sólarhring: 337
- Sl. viku: 1462
- Frá upphafi: 1542875
Annað
- Innlit í dag: 33
- Innlit sl. viku: 1277
- Gestir í dag: 32
- IP-tölur í dag: 32
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007