Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2020

Fémínístar hyggja á stórátak gegn körlum

ing17Það er óþarflega vægt til orða tekið að fémínístar þoli ekki karlmenn. Hið rétta er að fémínístar hafa örgustu viðurstyggð og viðbjóð á karlkyninu, sem þeir segja að sitji um að nauðga þeim, niðurlægja, þræla út og kasti þeim loks eins og hundshræi í einhverja gjótu eða skurð. Hvað fémínístar ætla sér að gera til að karlmenn verði að siðuðum einstaklengum er trúlega ekki fastráðið, en sagt er að fémínístar hyggi á stórátak í að sarga andskotans gredduna úr kallafjöndunum, en að mati fémínísta greddan undirrót alls ílls í fari karlmanna.

Aunginn veit hvurnig fémínístarnir ætla að bera sig að við að taka ónáttúruna úr körlunum, en vísindafémínístar hafa lengi lagt nótt við dag að reyna að finna upp aðferð gegn greddu karla. Það hefir verið bent á, að áhrifaríkast sé að höggva undan endemunum, en það sé fremur sóðalegt og leiðinlegt í framkvæmd. Þá hafa ýmsar lyfjablöndur verið reyndar, með misjöfnum árangri. Einn kallsauðurinn sem sprautaður var með sona blöndu varð hreint og beint óður; lyfið virkaði nefnilega öfugt við það sem það átti að gera og kallgreyið sprakk af frygð er nú geymdur í leyniherbergi þar sem hann er ekki fyrir neinum.

Þó er sennilega Gottfreð Gottfreðsson læknir og vísindamaður komin lengst í þróun antígreddulyfs. Síðasta sumar varð honum á sú handvömm að sprauta saklausa konu með upplausn sem ætluð var til lægja öldurnar hjá kynóðum dónaköllum. Síðan hefir þessi frú verið óseðjandi og lét vera sitt fyrsta verk eftir heimsóknina til Gottfreðs, að rjúka í fataskápinn heima hjá sér, sópa öllum nærbuxunum sínum saman og bera þær út á lóð og kveikja í þeim og linnti ekki látum fyrr enn brækurnar voru brunnar upp til agna. Síðan hefir þessi kona ekki verið til friðs og gjörðist öfgafémíníst ofan í æðið sem rann á hana við sprautuna Gottfreðs. Það er sem sé allt vont að frétta af árangri fémínísta og Gottfreðs læknis í viðleitni þeirra við að stemma stigu við kynferðisnáttúru karla.  


mbl.is Þola femínistar ekki karlmenn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hálfgerður mr. Bean í framboði í USA og heimsókn herforingjans til frú Ingveldar og Kolbeins

kol30_1225089.jpgHvaða hengilmæna ætli þessi maður sé?, Pete Buttigieg er hann víst kallaður, og furðu líkur meistara Bean. Hann gæti svosem verið hvaða íslenskum stjórnmálaflokki sem er, ekki síst þessum skringilegu félögum sem þykjast vera vinstri eitthvað, en er náttúrlega bara samansafn af loddurum, lukkuriddurum og andlegum ófétum. Okkur skilst að maður þessi, sem er á hugsjónapari við Gunnar Smára, frú Ólsen hjá VG, Thorgerði Katrínu, Bjarnaben og Sigmund Davíð, sé kominn í forsetaframboð í Bandaríkjunum fyrir auðvaldsflokkinn Demókrata, sem fífl á Íslandi halda að sé einhverskonar sosialistaflokkur.

Sem kunnugt er þá fer tveggjaflokka alræði auðvaldsins með öll völd í Bandaríkjunum. Saga þessa tveggjaflokka alræðisflokks, er að mörgu leyti hræðileg. Vopnaðar pólitískar árásir á önnur ríki, morð, arðrán og mafísk glæpastafsemi eru ær og kýr þessa viðundurs, sem því miður allt of margir nytsamir og einfaldir sakleysingjar hafa fallið fyrir. 

Frú Ingveldur og Kolbeinn tóku eitt sinn bandarískan herforingja af Vellinum inn á heimili sitt. Maðurinn skartaði glæsilegu og vel ræktuðu yfirvaraskeggi og var hinn hressasti. Í upphafi heimsóknar sinnar átti Kanakallinn fullt af péníngum, dollararnir og  gægðust upp úr öllum vösum hans og þau sæmdarhjónin og íslenskir vinir þeirra sáu um að dollurunum fækkaði jafnt og þétt í vösum foringjans uns ekkert var eftir. Þegar hinum glaðsinna Bandaríkjamanni varð ljóst að hann átti ekki svo mikið sem túskilding eftir í vösum sínum varð hann bandvitlaus, í dag væri sagt að hann hefði farið í geðrof. Nú voru góð ráð dýr, því fanturinn hafði komist í síma og kallað á lögregluna. Þá hugkvæmdist þeim hjónum að snúa foringjann  niður, með dyggri hjálp Brynjars Vondulyktar, Indriða Handreðs og Máríu Borgargagns, færa hann úr öllum fötunum og raka helminginn af yfirvaraskeggi hans. Þegar Hálfdán Varðstjóri knúði dyra lauk Kolbeinn óðara upp fyrir honum að benti inn ganginn á berrassaðan mann með hálft yfirskegg og sagði að þessi náungi hefði ruðst inn eins og hann væri á sig kominn núna. Hann væri greinilega illa geðbilaður og ætti hvurgi betur heima en á Kleppi, helst í einangrun. Hálfdán Varðstjóri sá í hendi sér, einkum á hinu hálfa yfirvaraskeggi, að allt  væri satt og rétt sem Kolbeinn sagði, maðurinn auðsjáanlega brjálaður, ef ekki sturlaður, og hann hafði svo sannarlega sært blygðunarkennd góðborgara með nekt sinni og voðalegu látæði. Og þannig fór, að Hálfdán Varðstjóri lagði herforingjann í járn og fór með hann með sér á stöðina, en þar fékk sá beri með hálfa yfirvaraskeggið aldeilis að kynnast íslenskum garpi af hálftröllakyni þar sem Hálfdán Varðstjóri var.


mbl.is Buttigieg með flest atkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kerlingarrokkurin vanfær á sjötugasta og sjöunda aldursári

ingv32.jpgEkki lætur hún deigan síga kellíngarrokkurinn hún frú Jóvóvích og hleður niður börnum þó komin sé á gamals aldur. Ellihrum, á sjötugasta og sjöunda aldursári, kjagar hún um vambmikil og ógurleg, komin átta mánuði á leið og barnsfaðernið óljóst eða með öllu óvíst. Svo mikið er þó víst, að ekki er frúin vanfær af völdum trekkvinds eða dragsúgar eins og unga konan í Eyjafirði um árið.

Eins og allir muna, þá fæddi sú eyfirska stúlkubarn, sem hún gaf nafnið Guðrún og var á tabúla skráð Guðrún Trekkvindsdóttir, en hennar sonur var Trekkvindur nokkur Finnsson, sem snemmindis gjörðist morðingi og hvarf vestur um haf og gerðist prestur hjá einhverjum sértrúarsöfnuði og er mikill ættbogi frá honum kominn þar vestra og mun þar vera allmargur misjafn sauður í því safni. Fyrir frú Jóvóvích liggur að ráða fram úr faðerni krógans sem hún gengur með, en þar eru margir kallaðir en einungis einn útvalinn; það hefir sem sé ekki enn sannast að barnungi geti átt tvo feður eða fleiri. Að vísu liggur grunur í landi um tilvik sem eru svo skuggaleg að ekki er forsvaranlegt að nefna þau á nafn.

Og hvað ætli verði þegar frú Jóvóvích verður búin að athafna sig á fæðingardeildinni. Ætli kellígarrokkurinn muni þá ekki lamma sig inn á einhverja knæpuna og finna sér föður að næsta barni sínu. Það er víst orðlaust starfsfólkið á elliheimilinu sem frú Jóvóvích býr og íbúarnir þar svo hneykslaðir að þeir eru löngu hættir að fylgja fötum og allt er í skralli á þessu volaða dvalarheimili aldraðra út af óguðlegu framferði og barneignum frú Jóvóvích. Á elliheimili frú Jóvóvích býr norn, alvöru norn, sem hagar sér einkennilega. Kerlingin sú hefir spáð því, og það margoft, að frú Jóvóvích sé ekki hætt barneignum og sjái hún, þó forspá sé og rammgöldrótt, ekki fyrir endann á frjósemi hinnar rosknu frúar, en margir karlar muni fara flatt á samlífi við hana og sumir þeirra hlaupa fyrir björg, elligar kasta sér fyrir járnbrautarlest.


mbl.is Eignaðist þriðja barnið 44 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar ekki-borgarstjórinn verður fullmektugur og tekur Sorpþróna við Háaleitisbraut til kostanna

valholl1.jpgNú hefir Sathan enn einusinni hvíslað einhverri endemis endaleysunni í eyrað á hr. Eyþóri Arnalds fjármálamanni og ekki-borgarstjóra. Fjármálamaðurinn verður að gera sér grein fyrir, að það kostar pénínga, bein-grjótharða péééníííga, að gjöra vel í sorphirðu og framfaramálum og í því sambandi skipta einhverjar meintar framúrkeyrslur ekki einu einasta máli. 

Ef til vill hefir hr. Eyþór Arnalds fjármálamaður og ekki-borgarstjóri hugsjónir um að láta mafíunni eftir sorphirðumál í Reykjavík að fyrirmynd frægra borga á Ítalíu. Sannast sagna er nóg um mafíur á Íslandi, smáar og stórar, sem eru í fáu eftirbátar þeirra á Ítalíu, að undanskyldum byssulátum, en íslenskar mafíur hafa enn ekki komist upp á lag með að láta vopnin tala, en það stendur væntanlega til bóta. So þegar Dagur og do vilja ekki borga það sem mafíusorpan setur upp, fer sorpið bara beint út á götu og strætin munu fyllast af úrgangi, ýldu og rottum. Þá verður virkilega gaman að lifa hjá hugsjónamönnum eins og honum hr. Eyþóri.

valholl_877018.jpgVið Háaleitisbraut, sumir segja Bolholt, í Reykjavík er ein einkarekin sorpþró, full með óhreinindi og dauðs manns beinum, svo vitnað sé í Frelsarann og guðspjöllin í heilagri ritningu. Fyrir stinnum tíu árum ruku öfgafullir ofbeldismenn að þessari góðu sorpþró og skvettu á veggi hennar eldrauðri málningu, sem var til mikilla lýta á mannvirkinu. Í heila þrjá mánuði vann flokkur manna á vöktum allan sólarhringinn við að hreinsa hina óvelkomnu málningu af sorphúsveggjunum, að sjálfsögðu allt í sjálfboðavinnu því velunnarar Háaleitissorpunnar eru hugsjónamenn og elskir að sorpi, ekki síst sorphugmundum, sumum heldur ókræsilegum og fráhrindandi fyrir suma. Þegar hr. Eyþór Arnalds frjármálamaður hættir að vera ekki-borgarstjóri og gjörist fullmektugur borgarstjóri og Flokksformenni mun hann eflaust láta keyra allan öskutunnumat höfuðborgarinnar inn á Háaleitisbraut og sturta honum beint inn um glugga og dyr Sorpþróarinnar miklu, fyrir aungvann péééníng skattborgara.


mbl.is Ekki áhersla á lykt heldur „lyktir þessa skítamáls“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þær baula eins og nautgripir á hluti sem ekki á að hafa í flimtingum

saudnaut.jpgLaun borgarstjóra Reykjavíkur eru aunginn hégómi og ekki til að hafa í flimtingum. Hinsvegar baula leikskólafraukur á laun borgarstjóra eins og nautgripir og vantar ekkert upp á sanna íslenska fjósastemmningu í þann hóp nema halana; altso að nefndar fraukur væru með kýrhala ofan við rassaskorið til að slá sig með. Fyrir kýróvant fólk, slá blessaðar kýrnar sig með halanum til að fæla frá flugur og önnur skorkvikindi sem sitja um að leggjast á mjólkurskepnur vorar, sjúga úr þeim blóð sér til næringar og skíta síðan í feldinn þeirra í þakkarskyni.

Sem vænta mátti, þá leiddi Bandaríkja-Solveig baul öreigakvenna á Dag borgarstjóra og fórst það verk fjarska vel úr hendi; en sökum halaleysis brúkuðu kérlíngarnar lúkurnar á sér til að skella þéttingsfast á botninn á hvurri annarri og náðu þannig upp góðum takti, sem harmóneraði glæsilega við baulið. Á meðan þessu fór fram grénjuðu leikskolabörnin hamstola í fullkominni einsemd á leikskolunum og voru öll nær lémagna þá að var komið, enda upplifðu litlu greyin sig munaðarlaus einskis manns börn. Og eins og þið vitið þá er öll upplifun, sönn og login, afskaplega mikilsmetin af uppeldissérfræðingum, sem allir eiga það sameiginlega að vera fræðingar að sunnan.

fleng_1051843.jpgEn helvíti verður gaman að sjá hvað Dagur, Hjálmar og Líf gera með baul og rassaskelli leikskolakvenna og Solveigar. Þau færu náttúrlega létt með að taka Bandaríkja-Solveigu og Amríku-Vidda framkvæmdastjóra hennar og kaghýða þau einni góðri stórflengingu og senda þau síðan til síns heima með bölvuð skottin sín millum lappanna. Ef það verður raunin þarf aunginn að hafa áhyggjur af verkfallsbrasi og bauli fáeinna stútungskerlinga á leikskolum. Ef verkafallsfýsnin vill ekki segja skilið við veslings konurnar er ekki annað fyrir Dag og Líf og hin borgarstjórnarbörnin en að panta sjö til átta fjörutíu feta gáma frá Alþýðulýðveldinu Kína, troðfulla með dalvískar leikskolakonur, til að vinna fyrir lítilsháttar laun, að passa krakkaskammirnar meðan foreldrarnir eru í vinnu eða á barnum.



mbl.is Púað á launakjör borgarstjórans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það liggur í augum úti hvurjir þar eru á ferð og yfirvaldið úti á túni

rat1Mikið þó djöfull eru nýfrjálshyggjumelrakkarnir og Píratatíturnar farin að færa sig upp á skaptið. Nú eru þessi óhræsi farin að leika sér að því að stela veðmætum upp úr vösum ferðafólks við fræga ferðamannastaði á Íslandi. Aumingja ferðamennirnir eiga sér auðvitað einskis ílls von úti í sveitum Árnessýslu og grípa svo í tómt þegar þeir ætla að seilast eftir veskinu sínu til að borga veitingar.

Að vísu tókst einum ferðamanningum vel til þegar hann greip frjálshyggjustrák, sem var rétt nýbúinn að stela af honum veskinu. Þetta gerðist við Geysi í Haukadal. Og ferðamaðurinn var ekki að tvítóla við hlutina og fleygði strákdjöflinum af hendi beint ofan í Geysi og hefir ekki síðan til hans spurst. Eitt er þó víst, að hinn forfallni frjálshyggjudrengur mun ekki ræna fleiri veskjum af dalvískum ferðimönnum, og er það vel.

Nú, það gefur augaleið og liggur raunar í augum úti, eins og oddvitaskömmin sagði á góðri stund, að aðfarir nýfrjálshyggjumanna og Pírata á rómuðum ferðamannastöðum fyrir austan fjall eru þaulskipulagðar, enda brotastafsemin forhert og lituð illmennsku, og minnir satt að segja nokkuð á ferðamannaiðnað Björns Haraldssonar í Öxl á Snæfellsnesi. Árnesingum er vissulega brugðið við fregnirnar af hinum auðgunarsjúku vágestum og sakna nú vinar í stað, þar er þeirra ástsælasta yfirvald frá því er land byggðist, Stjörnusýslumaðurinn Stones var tekinn frá þeim fyrir nokkrum árum og færður allar götur suðrðá Reykjaness til að berja niður bófa í þeim útnárarassi. Nú hafa Árnesingar liðónýtt yfirvald, sem ekki hefir hugmynd um hvort það sé að koma eða fara, og nýfrjálshyggjuþorparar og Píratar geta því vaðið uppi og fénýtt ferðalanga að vild sinni við Geysi, Gullfoss og á Þingvöllum. Á Þingvöllum var forðum illþýði hoggið eða því drekkt, en þessháttar starfi er því miður illa af lagður á hinum fornfræga stað, enda veður ólánslýðurinn uppi.  


mbl.is Grunur um skipulagða vasaþjófnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með höfuðið fullt af þoku og kettirnir fá hnerra

TilberiÞað er naumast endemið þetta mannkerti hann þarna Björn Leví, að kasta skít, máske hreinum saur, í saklaust fólk, meira að segja í kvenfólk. Það veitir ugglaust ekki af, að taka í hnakkadrambið á pilti og tuska hann dulítið til þar til öll ónáttúra er úr honum. Drífa Snædal, vinkvendi Solveigar Önnu úr ,,Vinstrigrænum" Stenngríms og Swabbófjölskyldunnar, yfir gaf samkomuhald VG af hræðslu við að vera látin eta skít, hvárt hún heldur vildi eða vildi ekki. Það getur ekki hjá því komist, úr því sem komið er, að jafn skítsælar fraukur fari að fá á sig óorð og uppnefni af þessu hvimleiða skítakúkaveseni sem runnið er á þær.

En svo við víkjum aftur að endeminu sjálfu, Birni Leví, sem ber höfuð fullt af þoku, þá er varla orðum að honum eyðandi, slíkur skítkastari sem hann er. Nú hefir hann reytt Þór okkar hérna Saari til reiði með gálausu tali um Eflingu og Eflingarfólk, sem aunginn skilur, ekki einusinni Þór. Sennilega væri best fyrir Leví að fela sig vel og vandlega og ekki koma fram í dagsljósið fyrr en hættan er liðin hjá, kanski eftir mörg, mörg ár. Það gæti nefnilega verið að Solveig muni gera aðför, með liðsinni grimmar hersveitar leikskolaöreiga, að Leví og jafna við hann reikningana að sjómanna sið.

Og hinir Píratapokarnir ættu líka að láta sig hverfa og láta þokuna geyma sig um stund. Eflaust eru Heimdellingar Sjálfstæðisflokksins boðnir og búnir að skjóta skjólshúsi yfir bræður sína og systur úr tómhyggju- og stjórnleysisbælum Pírata, en þá verða Píratarnir líka að fara í bað og bera á sig ilmkrem og átta sinnum fjóra áður en Heimdellingar hleypa þeim inn á sig. Allt er þetta skítlegt og eðlið, eða óeðlið öllu heldur, eins og það er. Meira að segja kettirnir fá hnerra ef Pírati kemur í námunda við þá. En allt er þetta bölvaður hundsmerarvæll í veslings Pírötunum.


mbl.is Sakar Björn Leví um skítkast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband