Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2020

Upp til fjalla með beinfrosna grátsöngvara og neikvæðirausara, - vér viljum þá burt

walt.jpgVeit maðurinn ekki að það hefir verið samfelldur frostavetur í atvinnulífinu frá landnámstíð til dagsins í dag? Sennilega er Halldór Benjamín jafn beinfrosinn og gaddaður og atvinnulífið þeim megin borðsins sem arðræningjarnir lifa. Aumingja pilturinn. Þá var nú öldin önnur þá karskir sveinar fór út til að líta á lífið, einkum móðurlífið, en það er liðin gullöld í ævi þjóðarinnar.

En fyrst frostpinnar atvinnurekendasafnaðarins og arðránskúltúrsins er svo óánægðir með hlutskipti sitt og Tórtólureikninga þá er ekki nema rétt að leysa þá undan þessum atvinnurekstrarraunum sínum, því satt best að segja væri öllum atvinnurekstri betur borgið í höndum almannasamtaka, ríkis og samvinnufélaga, en undir forræði grátsöngvara og neikvæðnirausara. Soleiðis menn eru best geymdir uppi á fjöllum, helst innan girðingar. 

Undanfarið hefir sú góða hugmynd verið að gerjast að reka gjörvallan Sjálfstæðisflokkinn upp á öræfi til geymslu svo forðast megi að þeir geri meira af sér en orðið er. Vér vonum að þessi frábæra tillaga fái að þroskast og verða að veruleika. Ekki þarf að hafa áhyggjur af Framsókn meir því gamla Framsóknarmaddaman er bráðum sjálfdauð af sínu eigin frillulíferni. Svo hafa heldur en ekki upplífgandi fregnir verið að berast úr vísindunum, sem sé, að samhliða gerð bóluefnis við kóvíð nítjánda vírúsnum hafa vísiddamenn dottið óforvandis niður á óskeikult efni við krataeðlissjúkdómnum, sem fram að þessu hefir verið álitin ólæknandi. Því má með sanni segja að betri tímar séu í vændum og þúsund blóm sósíalismans fái loks að skjóta rótum svo um munar og ávöxt bera, eins og segir í kvæðinu um litla sósíalistann frá Nazaret, ,,Ó Jésú bróðir besti." 


mbl.is Segir frostavetur fram undan í atvinnulífinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skömm er að sona auðtrúa utanríkisráðherra eins og þessum Gölle

Finnur og GulliÞó það nú væri að Gölle Þ. ,,utanríkisráðherra" trúi því athugasemdalaust að Pútín dólgur hafi eitrað fyrir Navalní kverúlanti með það fyrir augum stytta honum aldur. Auðvitað má G. a. Þórðarson sjálfstæðisflokkstrítill ekki ýja að þeim möguleika að einhver annar en Pútin hafi eitrað fyrir Navalní og fleiri smámennum; fyrst verið er að byggja upp mynd af Pútín og Rússum sem slóttugum eitrurum má auðvitað ekki hvika frá þeirri stefnu því það þarf að hegna Rússaskröttunum og koma sem mestu óorði á þá.

Nú er það svo, að eiturlyfið nóvísjokk er fyrst og fremst barnadóp, notaða meðal annars á leikskólum og grunnskólum upp að fjórtán ára aldri, en eftir það fara börnin að æva sig á heróíni og kókaíni. Því er ekki að leyna, að börnin verða hálf-vönkuð af nóvísjokkinu en þeim mun viðráðanlegri og fúsari til lærdóms. Að ætla Pútíni að eitra fyrir unirmálsbesefum með nóvísjokki er blátt áfram hlægilegt; okkar maður Pútín mundi vitaskuld læða óblandaðri blásýru ofan í þá er hann vildi úr heimi halla, eða bara snúa þá úr hálsliðnum með eigin hendi eins og afsláttarhana. 

Það er ljóst að við verðum fá okkur skárri utanríkisráðherra, eða öllu heldur verðum við að fá okkur utanríkisráðherra, því við höfum verið utanríkisráðherralaus allt yfirstandandi kjörtímabil. Það sér náttúrlega hvur maður að ekki er forsvaranlegt að hafa hafa sona dreng í utanríkisráðuneytinu, sem faðmar að sér óbótamenn úr gengi Trump í Amríku en trúir eiturmorðum upp á grandvarann og ábyrgan landsföður austur í Rússlandi. Sonalagað gengur bara ekki; það væri allt eins hægt að hafa Swabbó Sendiherra fyrir utanríkisráðherra eins og þennan Gölle a. Þórðarson úr Borgarnesi hvaðan Máría Borgargagn er upprunnin líka.


mbl.is Sleginn eftir fregnirnar frá Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnisblað hefir ekkert upp á sig, ráðherra étur það bara

illPuff og piff, það hefir ekkert upp á sig að færa ráðherra minnisblað þar eð ráðherrann étur soleiðis pappírssnepla því ráðherrann er pappírsæta að mennt og upplagi. Ef vér mættum ráða sóttvarnarlækni heilt þá viljum við benda honum vinsamlegast á kaupa heldur minniskubb í ELKO og græða hann í höfuð ráðherra. Ennfremur, fyrst Ísland hefir eignast landamæri, þá væri ráð fá hinum atvinnulausu ferðaþjónustuaðíljum og þrælum þeirra enn atvinnulausari góð skotvopn og sprengjur til að verja hin nýfengnu landamæri. Austur á svörtum söndum gætu þeir skotið niður farfugla og soleiðis drasl sem situr um að bera kóvíð nítjánda inn í landið til að drepa oss.

En svo vér víkjum að léttari og skemmtilegri málefnum þá hefir nú um all-langt skeið legið í láginni að fá Gulla a. Þórðarson til að skipa í eini gusu þau Swabbó Sendiherra, Álfheiði Ingadóttur og Stenngrimm Johoð sendiherra Íslands í útlöndum og sjá þar með til þess að þau megi eyða ævikveldinu umvafin hlýju loftslagi, þjónum og góðum kokkum. Þetta er göfug hugsjón og alveg í samræmi við hinar sosialisku hugsjónir nefndra þremenninga.

Því miður kom upp alvarleg staða að heimili frú Ingveldar og Kolbeins síðastliðinn sunnudagsmorgun. Ásigkomulag Kolbeins var þennan morgun grafalvarlegt, heilsa hans sjúkleg og á honum hafði verið unnin svívirðing, hryðjuverk, ef ekki hermdarverk. Það er hræðilegt að til sé fólk sem fer með samferðarfólk sitt á þann hátt sem Kolbein mátti reyna. Ég veit ekki hvort það sé almennt forsvaranlegt að upplýsa um þá smán og þann glæp sem Kolbeinn varð fyrir; það er ekki víst að saklausir þegnar þessa lands hafi siðferðilega burði til að hlýða á þann lestur. En máske verður umræddur ósómi skráður og birtur síðar, en þangað til vil ég biðja lesendur að vera þolinmóða og draga djúpt andann þar til sagan verður sögð.  


mbl.is Vinnur að minnisblaði fyrir ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verður að kæfa þetta andskotans Ríkisútvarp í næsta skólpræsi eins hvolp

x27Jæja, svo Ríkisútvarpið vildi ekki taka við erindi Samherjanna. Hvað gera þessir drottins krossberar þá? Kannski endar þetta sérstæða klögumál hjá einhverri hundahreinsunarnefnd austur á landi og dagar þar uppi. En það er eflaust allt í lagi, samherjar Samherjanna hljóta að fara kæfa þetta andskotans Ríkisútvarp eins og hvolp sem ekki er hæfur til ásetnings.

Hvað ætli samherjarnir Stenngrimur Johoð og Stjáni Júll geri í þessu vandræðamáli? Þeir eru eflaust allir af vilja gerðir til að rétta hlut Samherja gagnvart bölvuðu Ríkisútvarpinu og stóðinu þar. Og ekki mun sosialistinn mikli, Swabbó Sendiherra, láta sitt eftir liggja að liðsinna Samherjunum, sá gjafakvótarokkur sem hann er. Og sem fyrr liggur allt krataeðlisdótið hundflatt fyrir Samherjunum. Það kæmi ekki á óvart að fyrrnefnd góðmenni og þeirra venslafólk tækju sig til og gæfu Samherja þetta bölvað ekkisins Ríkisútvarp svo það megi nú flyja landsmönnum réttar fréttir í framtíðinni en liggja dautt ella.

Nei, kæru vinir, vér skulum hætta að velta oss upp úr Samherjaraunum en leiða hugann þess í stað að gömlu, aðframkomnu Framsóknarmaddömunni og niðurníddum húsakynnum hennar, sjálfu Framsóknarfjósinu. Þeir svartsýnustu halda því blákalt fram, að nú sé svo herfilega komið að vesling gamla skarið sé farið að berja nestið og brátt verði Framsóknarfjósið ásamt viðbyggingum jafnað við jörðu eða jafnvel brennt á báli eins og hvur annar miltisbrandur. Hvað ætli gerist ef allt fer til Andskotans, Framsóknarmaddaman dauð, Fjósið brunnið og flokkurinn fokinn til hymmna elligar helvítis eftir atvikum?    


mbl.is Engin siðanefnd til að taka við kæru Samherja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband