Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2021

Aðfarirnar hafa sértækt skemmtigildi þótt lágkúrulegar séu

vgÞað fór sem mig grunaði, að Brúarlandsundrið mundi hrifsa til sín fyrsta sæti VG í Kraganum, enda lögðu Stenngrimur og Flokkseigendafélagið þunga áherslu á að þannig færi. Hinsvegar telst árangur værðarprestsins Ólafs Góða til kraftaverka, því dagskipun Flokkseigenda var að sturta þeim náunga niður. Tengdadóttir Stenngrims Johoð, hún Una, náði ekki nema þriðja sæti, þrátt fyrir að hin ráðandi öfl í VG hafi krafist þess að flokksmenn á kjörskrá tryggðu henni annað sætið. En þetta er allt í lagi, karlar í fyrsta og öðru sæti er dálítið sem ekki er látið líðast í VG og tengdadóttirin verður færð með handafli upp í annað sæti en þeim Góða verður sturtað niður, nema hann sé tilbúinn að niðurlægja sig með því að taka þriðja sætið.

Það sem upp úr stendur eftir prófkjörsforval VG í Kraganum, að kjósendur þar hafa nú val um að kjósa grínframboð þar sem listi VG er. Það er nefnilega ekki á hverjum degi sem kjósendum stendur til boða að kjósa í sömu andrá Brúarlandsundur og Tengdadóttur. Trúlega fær VG þó aungvann mann kjörinn í Kraganum, en það væri bæði rökrétt og sanngjarnt. Flokksnefnan sem í upphafi var gefið heitið ,,Vinstrihreyfingin grænt framboð" er hvorki vinstri né græn, heldur afdrep og músarhola grasasna og lágkúrugerpa; þessháttar óþverralýð auðvitað enginn vitborin maður.

x26Við skulum þó muna að það er gaman að þessu og hlálegar aðfarir Stenngrims Johoð og Flokkseigendanna hafa visst skemmtigildi, sértækt að vísu, en skemmtigildi samt. Í öndverðu var litið þannig á, að VG væri arftaki Alþðýðubandalagsins sáluga, Sameiningarflokks alþýðu-sósíalistaflokksins og Kommúnistaflokks Íslands Síðar kom svo hið sanna í ljós, sem sé að VG er afkomandi gömlu og geðbiluðu Framsóknarmaddömunnar í móðurætt en borgarastéttarinnar og Íhaldsins í föðurætt og þar með náskylt öllum samherjunum; með öðrum orðum þá er VG baneitraður flokkur, sem best væri geymdur niður á tvöþúsund faðma dýpi í sjó eða jörðu. Þannig er nú það og vér erum þakklát fyrir skrípalæti og sjónhverfingabrall hins úrkynjaða undarennuflokks VG. 


mbl.is Guðmundur Ingi leiðir VG í Kraganum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samtal þrungið mannviti um dauðvona kú

kú4Vér getum treyst því til fullnustu, að þegar últra hægristeggurinn Andrés spjallar við tvo hægrisinnaða vindbelgi, eins og Freðjón Freðjónsson og og Stefán þennan, sem aunginn vill þekkja, er aldrei töluð nein vitleysa. Fyrir örskömmu efndu fyrrnefndir drengir til opinbers samtals, sem var svo þrungið mannviti að skjaldan hefir annað eins heyrst. Í þessu undursamlega samtali, því þetta var samtal, kemur fram að Samfylkingin er svo innilega sameiginlegasta áhugamál þeirra; allir vilja þeir hag Samfylkingarinnar sem mestan og bestan; og allir grétu þeir heitum tárum hlutskipti Samfylkingarinnar eins og langdrukknir óreglupésar, en þeir álíta að margnefnd Samfylking hafi fyllst á síðustu árum af mjög vondu fólki, heimsku, illgjörnu og afar annarlegu á flestan máta.

Ekki er ólíklegt, að Andrés og þeir hafi á réttu að standa varðandi alvarleg innanmein Samfylkingarinnar. Þó það nú væri. Og væri Samfylkingin mjólkurkú, sagði einn þeirra og ekki sá ógáfaðasti, væri hún löngu hætt að gefa af sé nokkra nyt, hvað þá halda kálfi, þannig að einsýnt mætti heita að búið væri að leiða kusu út á blóðvöllinn og slagta henni. En þótt Samfylkingin væri dregin út og henni fargað, þá mundi ekkert frálag verða af henni, því soddan óþverra, sem dauð Samfylking er, er ekki einusinni hægt að nota í hakk eða til að eitra með fyrir ref og mink. Við þetta má bæta, að mikið væru nú Andrés og Stefán Páls fallegt par; þeir ættu að gleðja þjóð sína með því að byrja saman, það er að segja ef þeir eru ekki nú þegar farnir að sænga saman.

En þó svo Samfylkingin drepist út af fyrir kosningar, þá er nokkuð gott pláss til staðar fyrir rotnað og úr sér sprottið krataeðli í sosialistaflokki Gunsa Smára. Þangað geta þjökuð og soltin krataeðlisatkvæði leitað. Fyrir skemmstu sóktu Gunsi og sosialistarnir hans um lóð undir hjáleigu í túnfæti Höfuðbólsins, Valhöllu. Umsókninni var vel tekið og hefir nú Gunsi, ásamt griðkonum sínum og hlaupastrákum, öllum heldur krataeðlissjúkum, komið sér fyrir í Bolholti, steinsnar frá Höfuðbólinu. Þetta þýðir, að fái sosialistaflokkurinn sá arni þingmenn kjörna er hann í nafni krataeðlisins þegar til þjónustu reiðubúinn í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum.


mbl.is Kraumandi óánægja í Samfylkingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efrimillistéttarfémínístarnir yfirtaka flokka af ætt verkalýðs og gelda þá

femma2Þá er efrimillistéttarfémínístarnir búnir að slátra honum Proppa okkar og þókti þeim það lítið verk og auvirðilegt. Herra Marsjall var bókstaflega flengdur og kom fyrir ekki hjá aumingjanum svorna að hafa verið þingmenni fyrir Samfylkingu og Bjarta framtíð og vikapiltur hjá VG og Katrínu. Með þessum glæsilegu úrslitum í Suðurkjördæmi stefnir VG hraðbyri á verða Kvennalistinn endurborinn, en Kvennalistinn var sem kunnugt er háborgaralegt og væmið jukk, sem drapst að lokum úr uppdráttarkveisu og klofningi. Önnur flokksnefna, jafnvel enn ógeðslegri og falskari en VG, gerir líka til tilkall til að verða Kvennalistinn endurborinn, en það er auðvitað Samfylkingin, en þar hafa gírugir efrimillistéttarfémínístar gjört mjög harða hríð að karlkyninu með það markmið í huga að útrýma því óþverrakyni alveg úr flokknum.

Þá er að koma á daginn, að sama sigling er á ,,sosialistaflokki" Gunnars Smára; þar er allt að verða klárt fyrir endanlega yfirtöku hins efrimillistéttarlega fémínísma. Og vegna yfirtökunnar, sem ku óumflýjanleg, fór Gunnsi Smári í kynskiptiaðgerð til að geta verið með í flokknum sínum. Í dag gegnir hann nafninu frú Gunnsa Smári. Fyrsti liðurinn í eðlisbreytingu ,,sosialistaflokksins" var þegar rassaguddurnar þar á bæ efndu til hlálegs klofnings með stofnun fyrirbrigðisins ,,sosialiskir fémínístar" Annar þáttur blekkingariðjunnar var þegar kerlurnar slógu verkalýðshóp sosialistaflokksins af og breyttu nafni hans í ,,stéttahóp sosialistaflokksins". Allur minnir þessi undirbúningur fémínístanna hjá frú Gunnsu Smára á hnignun og úrkynjun VG, en sá flokkur má ekki heyra verkalýð nefndan á nafn og heldur því staffírugur fram að þessháttar lýður sé ekki til. Og Samfylkingin er sama sinnis. En með því að búa til ,,stéttahóp sosialistaflokksins" ná hinar borgaralegur skessur fémínísmans utan um borgarastéttina og slagorð Sjáfstæðisflokksins ,,stétt með stétt" og þá væntanlega hinar hámenntuðu háskólastéttir og atvinnubraskarastéttirnar. 

Því miður hefir efrimillistéttarfémínístunum alveg láðst að taka harðsvíruðustu hægriflokkana yfir. Sjálfstæðisflokkur, Framsókn, Viðreisn og Píratar hafa alveg fengið frið fyrir herleiðingarfíkn efrimillistéttarfémínístanna. Hvernig á þessu stendur er að mestu hulin leyndardómur. Reyndar er fullur samhljómur með fémínístum og kapítalistum, báðir aðilar aðhyllast sama þjóðskipulag, kapítalismann. Þess vegna telja fémmurnar nauðsynlegt að taka stjórnmálaflokka, sem eiga sér rætur í verkalýðshreyfingu og Karli gamla Marx, og gelda þá af því sem þær kalla ,,sósíalískt óeðli".   


mbl.is Hólmfríður leiðir lista Vinstri grænna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rauðsmýrarmaddömur í kontórbúbblu alþýðuhallarinnar

asiÞá er einhver fjárinn farinn af stað í verkalýðshreyfingunni, en þó aðallega hjá skrifstofusjakölunum á ASÍ kontórnum. Svo er að sjá, ef ummæli Ragnars í VG og Villa á Skaganum eiga við rök að styðjast, að efrimillistéttarfémínístarnir, sem hreiðrað hafa um sig á skrifstofum alþýðunnar, hafi laumast bak við þil með fína stöffinu frá atvinnurekendum og samið réttindi og krónur af eigendum lífeyrissjóðanna. Ef þeir heiðursmenn, Raggi og Villi, hafa rétt fyrir sér, er ekki um annað að ræða en að fleygja efrimillistéttarfemmunum á kontórnum út á rassgatinu eins og hvurjum öðrum skítapöddum.

Séu Viljálmur og Ragnar aftur á móti að ljúga upp á virðulegar efrimillistéttarfraukur þá verða þeir að neyast til að flýja land, eða, það sem betra er, fara til fjalla og gjörast útilegumenn við Herðubreiðarlindir eða Fjallabaksleið nyrðri. Okkur bráðvantar útilegumenn til að sýna erlendum ferðamönnum og piltarnir eru ekki ofgóðir til að leggja sitt að mörkum ferðamannaiðnaðarins og hagvaxtarins.

Svo er Vilhjálmur okkar á Skaganum búinn að kæra efrimillistéttarkerlurnar í alþýðuhöllinni og er viðbúið að þær fái ómildan dóm og verði stungið inn. Annars eiga Villi og Raggi ekki að skipta sér af hvað höfðingjarnir hafast að. Að sönnu eru Drífa, Solveig og Halla í höll alþýðunnar sannar Rauðsmýrarmaddömur og eiga illa skap við götudrengi eins og Villa af Skaganum og Ragga, sem áreiðanlega er úr Breiðholtinu. Því er dagljóst og borðliggjandi að komið er að lokaorrustunni, því drengirnir af Akranesi og úr Breiðholtinu eru lagðir til atlögu við maddömunnar á kontórbúbblunni hjá ASÍ. En það er mikil áskorun að hjóla í línulega verkferla í veldisvexti, sem upp eru farnir í fasa í andrúmslofti kontórbúbblunnar, og hugsa í lausnum og heildstæðum efrimillstéttarfémínískum áformum ... Aaammm aaammm, þúst, semsagt tíst ...


mbl.is „Mér er mjög misboðið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Henni hefir farið það afar vel

x34Steinunni Þóru hefir farið afar vel að styðja Sjálfstæðisflokkinn, berjast fyrir hann og elska og virða foringja hans. Enn fremur hefir hún lært að elska Samherja og kvótakerfið af öllu hjarta, einnig frú Andersen, Álaugu Örnu og Jón Gunnarsson. Nú sækist hún af hógværð skörungsins eftir örðu sætinu í Reykjavík norður og suður. Já, hún er í miklum metum hún Steinunn Þóra hjá undanrennuaðlinum hans Stengrims Johoð, en sá aðall hefir átt því láni að fagna liggja allt sitt viðburðarríka líf í bómullarklæddum hitakössum á háskólalóðinni, enda gáfað fólk og gagnslaust.

En ... æjijá - VG er hauslaus flokkur, svona eins og og afturganga sem tapað hefir höfði sínu og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Ég man vel eftir einni afturgöngu af þessari tegund sem skreið innum glugga hjá voldugum Sjálfstæðismanni og varð hans dyggðugur þjónn. Og nú hefir VG farið að dæmi þess hauslausa og gjörst verkfæri í vopnabúri Valhallar. 

Þessa dagana er líka búrtíkaslagur hjá VG í Kraganum, en þar sækja Brúarlandsundrið og tengdadóttir sjálfs Stenngrims Johoð að blessuðu værðarljósinu honum Óla Góða, með það að markmiði að bola honum burt, Stenngrimur þarf ekki lengur á honum að halda. Annar búrtíkaslagur fer svo fram hjá VG á Suðurlandi, þar sem óburðugar og ómyndugar undanrennueignir Stenngrims liggja spriklandi í hlandforinni, ýlfrandi og vælandi, með allt í buxunum og sprungnar blöðrurnar. Er virkilega ætlast til að einhver maður kjósi fénað af þessu tagi?  


mbl.is Steinunn Þóra sækist eftir öðru sætinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið haft við pestargemlinga á flækingi - og fáein nýfrjálshyggjuendemi á Austurvelli

dauðamynd1Þá höfum við fengið sóttvarnarhús við Barronnsstíg, þar sem pestargemlingar á flækingi verða nauðungarvistaðir. Þegar farsóttin verður yfirstaðin verða nautheimskir nýfrjálshyggjusteggir af báðum kynjum vistaðir þarna og ekki sleppt úr fyrr en nýfrjálshyggjuheimskan er runnin af þeim og orðnir færir um að lifa og starfa í siðmenntuðu samfélagi. Í dag söfnuðust fáein nýfrjálshyggjuendemi saman á Austurvelli til að mótmæla sóttvarnarhúsum og afneita tilvist kóvíðsveirunnar en heimta í leiðinni forgang í bólusetningum við kóvíðinu, sem þau segja að sé ekki til. Maður hefir skjaldan vitað önnur eins gáfnaljós.

Þar altsvo ýmislegt fleira kyndugt í framkomu og talsmáta þeirra sem eiga sér þá hugsjón hjartfólgnasta að fá að hleypa kóvíð nítjánda frjálsum á landslýð. Allt í einu er þessu pumpuliði umhugað um að farið sé eftir ströngustu lögum, en þó einskorðast áhugi þessara hugsjónagarpa við sóttvarnarlög og reglugerðir þeim tengdar. Að öðru leyti er þeim fjandans sama um hvort lög og reglugerðir af öðru tagi eru brotnar og eru jafnvel mjög hlynntir slíkum brotum, því lögbrot og glæpir eru svo þénanlegir hagvextinum og einkaframtakinu.

Þetta vita frú Ingveldur og Kolbeinn eiginmaður hennar mæta vel, einnig Máría Borgargagn og Indriði hennar Handreður, þau vilja láta opna sundlaugar og bari fyrir sig; þá eru Brynjar Vondalykt og Óli Apaköttur með á nótunum og hafa sent frá sér yfirlýsingu um að þeir muni deyja einhvern næstu daga ef þeir fái ekki að fara í ræktina hjá World Class, sem málhagir menn eru farnir að kalla Veraldarstéttina upp á íslensku; þá vilja þeir endilega opna svonefnt Bláa lón upp á gátt og segja lokun þess mannréttindabrot og öðrum ónefnum. En Sigurveig Dræsa, þessi dásamlegi hugsjónafræðingur Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Samfylkingarinnar, fjarri góðu gamni, því hún er dauð úr einhverri veiki. Sumir eru á því að Pútín rússlandsforseti hafa látið sína menn eitra fyrir henni, því hún var orðin svo einkennilega gulgræn fyrir andlátið og eftir að hún var önduðu fékk húðlitur hennar á sig neongrænan bjarma ofan á þann gulgræna. Svo eru aðrir sem fullyrða að kerlingarfjandinn hafi drepist úr kóvíð nítjánda, en af hugsjónaástæðum megi það ekki fréttast og verða hljóðbært.


mbl.is Annað sóttvarnahús á Barónsstíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lengi getur Samfylkingin á sig blómum bætt

joliFrá upphafi vega höfum vér verið þess fullviss, að lengi gæti Samfylkingin á sig blómum bætt. Þessi kostulega sérkennilegi félagsskapur efrimillistéttarfémínísta og landsöluspjátrunga hefir upp á síðkastið stundað barsmíðar, af myrkri sjálfseyðingarhvöt og sadisma, á þessum fáu hræðum, sem nennt hafa að hanga þar innandyra.

Nú síðast hefir herra Kjartan Valgarðsson formaður framkvæmdastjórnar leyft sér þann munað, að taka þéttingsfast í hnakkadrambið á framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar, Karenu Kjartansdóttur, pína hana til uppsagnar og starfsloka. Að sjálfsögðu eru aðfarir Kjartans í fullu samræmi við efrimillistéttarfémínísma og krataeðli Samfylkingarinnar og hefir  honum nú þegar verið umbunað gott verk of snjallt af flokksforustunni með vingjarnlegu klappi á kollinn og axlirnar en þó einkum á rassinn, en það er líka mjög í anda efrimillistéttarfémínísmans að klappa blauðum karltuskum á rassinn og láta þá hneggja dálítið.

Og auðvitað getum vér rétt ímyndað oss hvernig lykt, eða öllu heldur óþefur, ríkir í salarkynnum Samfylkingarinnar. Vondur er þefurinn í Framsóknarfjósinu og af Framsóknarfjóshaugnum og enn verri er fnykurinn undir pilsum gömlu Framsóknarmaddömunnar, en hann hefir þó sætan ilman og höfugan í samanburði við hina ónáttúrulegu og svíðandi drulluýldubrækju, sem leggur sífellt af krataeðlissjúklingunum og efrimilliséttarfémínístunum, við þessháttar eiturgös getur venjulegur maður búið nema stutta stund. En Kjartan Valgarðssona, sem ekki er söguhetja í Brennunjálssögu, látið hið Samfylkingarlega réttlæti ríða yfir Karenu Kjartansdóttur og gjört hana atvinnulausa. Hin krataeðlissjúka og fémíníska sosialdémókratía lætur sko ekki að sér hæða fremur en endranær. 


mbl.is Karen hættir hjá Samfylkingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er allt í áttina. Gaman gaman

valholl1.jpgÓsköp er nú gleðilegt fyrir fyrir okkar frábæru kóðvíssinna og frelsishetjur á Íslandi, að kóvíðssmitin skuli virðast vera að taka við sér. Það er afskaplega notalegt fyrir hugsjónafólk um vírusadreifingu, að sjá og fá á tilfinninguna að barátta þeirra er að bera ávöxt. Nú er bara að láta kné fylgja kviði og ausa kóvíðnum af tvíelleftum krafti yfir þjóðina með því göfuga markmiði að koma sem flestum undir græna torfu, eða gera þá heilsulausa. Með lögmönnum skal landann smita.

Á þessari stundu er fjöld vel kóvíðssinnaðra lukkuriddara að hefja baráttu fyrir því að komast á Alþingi. Það kemur ekki á óvart, að þetta hugsjónafólk herjar helst á Sjálfstæðisflokk og Pírata, því það telur það þar sé fyrirstaðan minnst og þeir sem þar eru fyrir séu veikastir fyrir kóvíðsisma, trumpisma, hagvaxtargeðveiki og öfugsnúinni frelsishyggju. ,,Áfram áfram ekkert stopp, allan skítinn í okkar kopp", er hið nýja, vitiborna kjörorð kóvíðsfrelsaranna.

Í kringum háleitar hugsjónir er óhjákvæmilegt að upp rísi trúarsöfnuður, sem telur sig hafa umboð frá guði, í þessu tilfelli Mammóni. Það hefir heldur ekki farið fram hjá nokkrum manni innblásið jarmið og buslubænirnar í kapélánum og skírurum kóvíðsstefnunnar, sem gengur út á að slá sóttvarnir af og hleypa drepsóttinni lausri á almúgann. Í öllum fjölmiðlum eru þessir prestar leiddir fram til að vitna um gúlagið og stalínismann á landamærunum og á sóttvarnarhotélinu. Hvað eftir annað hefir lögmennið Jón, með sjötíu og fimmþúsundkallinn á tímann, birst tárvotur á sjónvarpsskjánum og með ósvikinn helgislepjuklökkva í röddinni og lýst nauðungarvistun á lúxushotéli af áður óþekktri andagift. ,,Af hundingsspottum höfum vér helst næmi og mörg heilnæm eftirdæmi", segir skáldið Megas í einu verka sinna. Í dag er mál fyrir þjóðina að taka þessi orð skáldsins til rækilegrar umhugsunar og viðvörunar.



mbl.is 11 smit innanlands – sex utan sóttkvíar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af ljóðmælum Kolbeins Kolbeinssonar eldri:

,,Þér eldgamli útslitni kerlingarfjandi,
það ætti að reka yður strax úr landi
og skvetta eftir yður skít og hlandi."

kol29Þannig hefst hinn frægi ljóðabálkur Kolbeins Kolbeinssonar eldri, sem hann orkti á kaupfélagsloftinu gegn konu sinni. Síðar töldu drykkjuóðar eiturætur, að bálkur Kolbeins fjallaði í raun og veru um meinta þjóðníðinga og föðurlandssvikara, því það lægi í ,,augum úti" eins og einn þeirra orðaði það, að gnótt væri af dusilmennum og afætum á Íslandi sem verðskulduðu að vera reknir úr landi með skítkasti og bölbænum.

Sjálfur hefir Kolbeinn Kolbeinsson eldri aldrei gefið neinar skýringar á kveðskap sínum, en þær voru í eina tíð mjök hátt skrifaðar í Framsóknarflokknum. Og nú nýlega dró formenni Miðfótunga- og Klausturflokksins ljóðmæli gamla Kolbeins upp úr kistli sínum og blés af honum rykið. Nú, Kolbeini gamla voru sögð tíðindin af miðfótsformenninu og ljóðabálknum þar sem hann situr á dvalarheimili aldraðra með járnstafinn við höndina. Skipti aungvum togum að gamli maðurinn greip til stafs síns og slæmdi honum í hausinn á konunni sem færði honum fréttina. Konan féll í sárt öngvit og var send með sjúkrabifreið á heilsugæslustöð og þaðan á sjúkrihús. Er hún nú sögð dauð, en það er ekki staðfest.

Þá verður að geta þess, að til eru þeir menn sem ólmir vilja láta rannsaka burtsofnun eiginkonu Kolbeins eldri, en þar eru a sög manna ekki öll kurl komin til grafar. Kolbeinn yngri, skrifstofustjóri og framsóknarmaður hefir lengi beitt sér innan kerfisins á móti því að andlát móður hans verði skoðað og hefir hann haft glæsilegan sigur í því spursmáli. Frú Ingveldur, tengdadóttir hinnar látnu, fullyrðir að tengdamóðir hennar hafi verið bölvuð meri og séu Meradali á Reykjanesi nefndir henni til heiðurs. Einnig er nú ljóst, að Miðfótaflokkurinn, sem sem skartar hvítu merhryssi í einkennismerki sínu, hafði leynda bækistöð í Meradölum og fór sú stöð undir rennandi hraun í gær og drapst þar um leið hið hvíta merhryssi, sem þeir Sigmundur og Beggó höfðu tekið svo miklu ástfóstri við. Er harmur þeirra sár og missirinn mikill. Hinsvegar er Kolbeinn Kolbeinsson eldri ósnertanlegur þar sem hann situr á friðarstóli á dvalarheimili aldraðra.

,,Þér útslitna, gaddfreðna kerlingargála,
upp á vegg eins og Skrattann þig ætti að mála.
Svo mælti völvan Vindgapanjála,"
(Höf. Kolbeinn Kolbeinsson eldri


mbl.is Dansað á brúnum nýju gíganna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðin er fallin í pattstöðugildru siðlausra stjórnmálaflokka

Jólasveinn1Jú, Sjálfstæðisflokkurinn er auðvitað ekki stjórntækur og ætti alls ekki að vera í ríkisstjórn, - en það á því miður við fleiri flokka sem sæti eiga á Alþingi. Reyndar er Sjálfstæðisflokkurinn svo slæmur, að undrum sætir að ekki skuli vera búið að leggja hann niður og banna með lögum.

Nú er því miður svo komið, að fyrrnefndur Sjálfstæðisflokkur er farinn að berjast af öllu afli og fyrir opnum tjöldum fyrir því að kóvísvírusinn verði frelsaður og öllum verði heimilt að dreifa honum út um allar trissur, þó svo hætta sé á að vírus þessi drepi og örkuli hálfa þjóðina. Í ljósi þessara óhugnanlegu aðstæðna er ekki nema rétt og sjálfsagt að Svandís og VG snúi sér til stjórnarandstöðunnar eftir liðsinni í baráttunni við drepsóttina, sem Sjálfstæðisflokkurinn vill endilega siga á aumingja fólkið á Íslandi.

En mundi, þegar á hólminn væri komið, vera stuðningur innan stjórnarandstöðunnar við viðunandi sóttvarnir á landamærum og í sóttvarnarhúsum? Á það er aungvann veginn hægt að reiða sig; Píratar og Viðreisn eru hænsnahópar sem eru ofurseldir nýfrjálshyggjuöfgum og Samfylkingin og Miðfótúngar eru eins og þau eru. Þannig má segja að þjóðin er fallin í pattstöðugildru og nauðung firrtra, spilltra og andstyggilegra stjórnmálaflokka, sem iða af Þórðargleði, illgirni og yfirmáta skinhelgi og hroka. Ástandið er sem sagt ekki densilegt og óljóst hvort einhver leið er út úr því fyrr en eftir að hálf þjóðin er dauð og örkumla.


mbl.is Svandís ætti að leita til stjórnarandstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband