Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2021

Poletiskir dagar Haralds eru þegar taldir

kol2Auðvitað tekur Haraldur ekki sæti á listanum ef puntudúkka Bjarnaben fellir hann úr fyrsta sætinu. Á sínum tíma kom Haraldur og bjargaði Sjálfstæðisflokknum þegar flokkurinn hafði aungvann í Norðvesturkjördæmi til að hafa í fyrsta sæti. Kjörnefnd stóð frammi fyrir fyrir að hafa annaðhvort aungvann í fyrsta sætinu elligar þá einhvern skammarlegan blábjána eða lukkuriddara af skítbuxnaættum. 

Nú ætlar flokkseigendafélagið, Engeyingar, samherjar og annað illþýði Flokksins að launa Haraldi greiðann með því að setja fótinn all-fast í rassinn á honum og feykja honum eins og dauðum fugli fyrir hin poletisku björg, en þaðan kemur aunginn poletiskt lifandi aftur. Þetta er þó ekki í fyrst skipti sem stórmenni landsins gjöra aðsúg að bóndanum í Rein á Akranesi. Mun lengi í minnum haft þegar djöflar danakonúngs lögðu Jón Hreggviðsson Reinarbónda í járn og hugðust höggva af honum hausinn. En Jón slapp frá íhaldi og auðvaldsbesefum síns tíma af fádæma útsjónarsemi, en Haraldur aumingjanum mun ekki lánast að halda sínu poletiska höfði heldur falla fyrir litlausu gluggaskrauti formanns Flokksins.

Hjá Drotni Alsherjar eru poletiskir dagar flokkshestanna taldir og ekki mun Pokurinn sitja hjá við þá talningu, enda hefir hann verið helstur ráðgjafi svartnættisauðvaldaflokka heimsins. Og Pokurinn hefir þegar vitrast manni einum á Skaganum, forpokuðum íhaldsjálki af verri tegundinni. Er skemmst frá að segja, að Pokurinn tjáði manni þessum, að búið væri að undirrita lokadóminn yfir Haraldi í Rein og telja hans poletisku daga, þeim mun að fullu og öllu um næstu helgi.


mbl.is Haraldur mun ekki þiggja annað sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veraldaraumingjar

x29Í mínu ungdæmi var talað um veraldaraumingja þegar átt var við persónu sem farin var í hundana eða hafði aðhafst eitthvað svo hörmulega auvirðilegt að fólk rak í rogastans. Um dýrkun Katrínar Jakobsdóttur af ætt Thoroddsena þarf ekki mörg orð, svo ógeðfellt sem slíkt athæfi er. Að sjá þetta fyrirbrigði, sem komist hefir til æðstu metorða innan flokks sem kennir sig við vinstri og er að sögn afkomandi Kommúnistaflokks Einars og Brynjólfs og Sameiningarflokks alþýðu, reigja sig og beygja fyrir þorpurum NATÓ, og skvetta sér til og frá eins og fífl framan í þá er þess eðlis fáu er til að jafna.

Ég legg til að vinstrimenn á Íslandi taki saman höndum og sparki þessum fáráðlingi af höndum sér. Nú er loddarinn Stengrimur Johoð, aðalforingi VG, að hverfa af Alþingi og mun héðan af eiga lögheimili að Ruslahaugum Sögunnar, aðrir Flokkseigendur eru komnir að fótum fram eða fallnir í valinn, þannig best fer á að asninn fylgi eyrunum og Katrín fái að svífa í boga yfir höf og lönd og hafna í ásamt öðru skrani af hennar tagi á fyrrnefndum Ruslahaugi.

Óþverraleg svik Katrínar og Stenngrims við þann málstað, sem þau lugu sig inn á og fleyttu þeim þangað sem þau hafa komist, eru þess eðlis, að drykkjulæti Miðfótunga að Klaustri eru eins og ljúfur fuglasöngur miðað dólgshátt þessara siðlausu óþokka. Hinsvegar mega veraldaraumingjarnir Stenngrimur og Katrín sleikja sér að vild upp við alla þá samherja og blóðhunda heimsvaldasinna sem þau vilja, en það er nauðsynlegt að þau geri það undir réttum formerkjum. Þess vegna verða vinstrimenn á Íslandi að afgreiða þetta ólánsfólk fyrir sitt leyti af höndum sér í eitt skipti fyrir öll.     


mbl.is Katrín segir Biden koma sterkt inn í NATO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flettu heldur bara upp nærtækum njósnabókum Gölle minn, það færi þér betur

xd18_1243655.jpgGamansamur piltur Gölle, en því miður er gamansemin aldrei viljandi af hans hálfu því piltur er öldungis húmorslaus, þannig að gullkornin sem hrjóta úr hans munni gera það alveg óvart án allra tengsla við hug og hjarta. Nú þykist hann ætla að fara að athuga njósnir, þó svo ekkert bendi til að hann viti hvað njósnir eru. Má vera að Gölle með atkvæði sínu á Alþingi hafi hann komið á laggirnar eftirlitsiðnaði, sem hefir þann tilgang einan að farða og flikka upp á kapítalismann og bófahjörðina sem framkvæmir þann leiða isma. Ófagurt dæmi um þessháttar iðnað er Fiskistofa, gjörsamlega óþörf að öðru leyti en því að friða fólkið í landinu sem búið er að svipt eign sinni, fiskveiðiauðlindinni.

Það verður eflaust fróðlegt að fylgjast með Gölle við athuganir sínar á njósnum þeirra frelsis- og friðelskandi í USA á íslenskum stjórnmálamönnum. Nærtækara væri þó fyrir Gölle að láta sér nægja að fletta upp njósnabókum Sjálfstæðisflokksins um almenning á Íslandi, en þær skræður eru eflaust aðgengilegar stórmennum eins og Gölle  a. Þórðarsyni.

x33Óvíst er þó, að í njósnabókum Sjálfstæðisflokksins sé að finna frásögn af hrakförum eins flokksnjósnarans. Sá djöfull hafði gert sér að leik að snuðra um sjómann sem ekki hafði annað á samviskunni en að vera illa við Sjálfstæðisflokkinn. Þegar sjómaðurinn komst á snoðir um njósnirnar og uppgötvaði hver njósnarinn væri, fór hann heim til kauða og bankaði. Frúin kom til dyra og spurði gesturinn eftir manni hennar. Þetta var að morgni dags að vori til og sólin skein í heiði. Nú, njósnarinn kom til dyra á náttsloppnum sínum, en annars gekk hann alltaf í jakkafötum og bar virðulegt ættarnafn. Þegar hann sá hver kominn var ætlaði helvískur að skella hurðum og læsa, en sjóarinn laumaði löngutöng sinni aftan í hálsmálið á garpinum og kippti honum út á stétt áður en honum tókst að fella hurð að stöfum. Úti á lóðinni fletti sjómaðurinn sloppnum upp um njósnarann, sleit nærbuxurnar utan af honum og hýddi hann stórflengingu þar til farið var að blæða úr þjóhnöppum hans og hann farinn að missa saur og þvag. Þá kastaði sjómaðurinn njósnaranum út í blómabeð og bað hann aldrei þrífast, annað eins sóðasvín sem hann væri. Að svo búnu fór sjómaðurinn leiðar sinnar eftir vel heppnuð morgunverk í Vesturbæ Reykjavíkur.


mbl.is Bíður eftir svari frá Dönum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar götustrákar æra óstöðuga til hermdarverka

grjótÞetta gat heldur ekki öðruvísi farið. Þegar óstöðugir eru espaðir upp, til dæmis í hatur á Helga Seljan og Ríkisútvarpið, er fátt líklegra en bönd bresti innra með þeim veiku og þeir fara að ógna og hóta Helga og Ríkisútvarpinu. Sem betur fer er fyrrum lögreglforingi húsvörður, eða eitthvað soleiðis hjá ríkisútvarpinu, og hann brá hart við og snöri hið óða fórnarlamb hatursáróðursins gegn Helga Seljan og Ríkisútvarpsins niður og fól það í höndur Hálfdáns Varðstjóra, en það eru eins og kunnugt er aungvar kvenmannshöndur.

En þetta er allt saman gott og blessað, vandinn leystur - í bili - og hinn bandóði kominn blessunarlega undir mannahöndur. Hætt er samt við að siðvilltir götustrákar haldi áfram að efla áróður, sem hefir að markmiði að trylla veikgéðja og einmanna sálir í þeirri von að þeir ærist um of og grípi til heimskulegra óyndisúrræða. Hver man ekki eftir þegar Kolbeinn og Brynjar Vondalykt lugu því að Indriða Handreði að frændi Kolbeins, Arinbjörn Kolbeinsson, margfrægur aumingi, skelmir og flagari, væri í óðaönn þessa dagana og hafa óleyfileg mök við Máríu Borgargagn, eiginkonu Handreðsins. Indriði Handreður varð aldeilis örvinglaður við að heyra þessa frétt, bilaðist og sá rautt. Hann rauk í hendingskasti þangað sem Arinbjörns var von og þaut yfir hann eins og túrbó beltagrafa. Það segir sig sjálft, að Arinbjörn var lengi að ná sér eftir aðför Handreðsins og þurfti hvað eftir annað að láta veita sér áfallahjálp og hann losnaði ekki endanleg úr gifsinu og sárabindunum fyrr en eftir margra mánaða legu. Arinbjörn var alsaklaus af óleyfilegum mökum við Máríu Borgargagn og var því að sama skapi ósáttari við ofbeldið sem hann varð fyrir.

hálf3Mest væri þó gaman að vita hvurnig Hálfdán Varðstjóri meðhöndlaði hatursmann Helga og Ríkisútvarpsins. Ef mér skjöplast ekki því meir hefir Hálfdán iðað í skinninu meðan hann var að undirbúa sig fyrir yfirheyrsluna. Og undirbúningur Hálfdáns Varðstjóra fyrir slíkar helgistundir er ekkert til að gjöra grín að. Í þessu tilfelli trúi ég hann hafi drukkið sér eins og rúmlega hálfa flösku af moðvolgu áquavíti í fyrstu lotu og fengið sér fáeinar línur af hvítu dufti sem hann hefir gjört upptækt hjá einhverjum vandræðamanni. Svo. Svo hefir hann, máske á nærhaldinu einu fata, hrundið dyrum fangaklefans sem geymir hinn bersynduga upp á gátt og haft samstundis fumlaus og öflug endaskipti á þrjótnum og látið hann játa á mettíma. 


mbl.is Handtekinn eftir að hafa hótað RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband