Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2023
29.7.2023 | 17:27
Hinn endinn á gosanum
Í morgun birti mbl.is harmagrátinn í gosanum honum Brynjari, en nú um miðjan dag mætir svo hinn endinn á gosanum, sjálfur Nonniboy, burtrekinn úr dómsmálaráðuneytinu á vordögum, og grénjar jafnhátt Brynjari. Þessir óhamingjusömu piltar, segjast vera að springa úr óþolinmæði vegna VG og Kristjáns í Hvalnum. Í millitíðinn voru þeir G.a. Þórðarson og Hlandskeggur úr Grindavík látnir vitna í útvarpinu um nauðsyn þess að spraka VG með Swndeesý, Katrínu og öllu saman til andskotans þar eð málamiðlunarkvóti Sjálfstæðisflokksins væri á þrotum og ekki kæmi til greina að leigja málamiðlunarkvóta hjá Framsóknarmaddömunni eða Samherja.
Gállinn á þessum þessum herramönnum í dag er þesskonar, að þeir virðast ekki munu víla fyrir sér að sprengja ríkisstjórn í loft upp fyrir einn bölvaðan langreð, svo Stjáni í Hvalnum geti tekið gleði sína og farið að leggja aftur inn aura á reikning Flokksins í Valhöllu. Staðan er þannig núna, að sendiherrajobbið, sem Katrín var búin að semja um fyrir sig við Bjarnaben og Sjálfstæðisflokkinn, og framkvæmdastjóraembættið Brussel eða Ravalpindí, sem Swandeesý átti að fá, eru hvort tveggja í uppnámi og fullyrða allir í hinum vegvillta grénjukór Íhaldsins, að ekki komi til greina að jafn heimskar og viðsjárverðar kérlíngar fái nokkuð í sinn hlut, þrátt fyrir óeigingjarnt starf þeirra sem hækjur auðvalds og samherja.
Svo er að sjá hvurnig þetta allt fer, - hvort grátgosarnir halda óhljóðum ínum til streitu, eða kikni í hnjáliðunum og lyppist niður eins og blauðir apakettir. Spá manna, einkum viðurkenndra spámanna, eru allar á þá leið, að þegar veisluglaumurinn hjá frú Ingveldi og Kolbeini er þagnaður, og helgarvíman runnin af veislugestum, þá muni Brynjar, Nonniboy, Hlandskeggur og G.a. Þórðarson skríða þögulir heim og ekki láta sjá sig eða heyra á almannafæri fyrr en frú Ingveldur blæs til næsta helgarsamkvæmis.
Þolinmæðin á þrotum: Miklar ógöngur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2023 | 11:31
Klofningsórar í klofi Flokksins
Mikill öðlingur er hann Brynjar, að gefa sér tíma frá helgarsamkvæmi frú Ingveldar og Kolbeins til ræða stöðu Flokksins og hin skelfilegu vandamál sem að honum steðja. Og þrátt fyrir að karlanginn sé bljúgur og lítillátur þegar kreppu Flokksins ber á góma, óttast klofning hans og hrun, þá veit hann ekkert hver klofningurinn er og enn síður út á hvað hann gengur. Það eina sem Brynjari dettur í hug, klofningarmáli sínu til stuðnings, er að einhverjir ótilgreindir, elliærir belgir, sem eru við það að kafna úr fortíðarþrá, sakni svo gamla Bjarnaben og Óla Thors, sem komu fótunum undir þjóðina með hugmyndafræði Flokksins. Sennilega hafði Brynjar gert betur, að halda áfram að skála við frú Ingveldi, Kolbein, Indriða Handreð og Máríu Borgargagn en að kumra um einhverja altóma vitleysu við Moggalinginn í Hádegismóunum.
Það er náttúrlega fjarri því að gamli Bjarniben og Óli sperrileggur Thors hafi, fyrir hönd Flokksins, komið þjóðinni á lappirnar. Hið rétta er að róttæk verkalýðshreyfing ásamt kommúnistunum Einari Olgeirssyni og Brynjólfi Bjarnasyni tóku Sjálfstæðisflokkinn hágrátandi á milli sín og neyddu hann til að leggja inn á braut nýsköpunar í þágu alþýðunnar. Upp úr því varð Flokkurinn hægfara hægriflokkur, svona spakur krataflokkur með velktan pípuhatt og geðslag gelts fresskattar. En um 1980 breyttist Sjálfstæðisflokkurinn í grénjandi villudýr, einhverskonar géðbilaðan mínk eða melrakka með djöfullega tannpínu, og hóf af offorsi samfélagsleg skemmdarverk, sumir segja hryðjuverk, sem ekki sér enn fyrir endann á.
Þessa dagana bitnar fúllyndi og lífsleiði Brynjars og annarra Sjálfstæðisflokksdrjóla aðallega á VG, af því að ráðherra þess auma flokks bannaði einum stærsta hluthafanum í Sjálfstæðisflokkum að pynta hvali til dauða. Og nú síðast hafa vígamenn flokksins beint skutlum sínum að veslings byskubbsskepnunni okkar, virðis, sem þeir í sínum poletisku géðrofum og tremens, haldi að þessi tiltekni kirkjuhöfðingi sé buslandi og blásandi langreyður eða búrhveli. Já, stúlkur mínar, hún er sannarlega skæð og skemmandi vonda lyktin sen fyllir hvern krók og kima Sjálfstæðisflokksins þessi dægrin Og þó hafa þeir nýjan Bjarnaben til að gamna sér við og gætu sem best fengið Thórsarann Guðmund Andra með sér í lið til að gera dagana viðkunnanlegri í Valhöllu. En drífðu þig nú aftur í veisluna til frú Ingveldar og Kolbeins, Brynjar minn, svo þú bíðir ekki óafturkræfan skaða á viðkvæmri sálu þinni.
Óttast klofning | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2023 | 19:46
Upphaf súrrar sorplyktar.
Sú var tíðin að Reykvíkingar voru svo firrtir að þeir létu sig hafa að kjósa flokks Gnarrsins í svo stórum stíl að þeir sátu upp með þennan ferlega giljagaur sem borgarstjóra í fjögur ár. Auðvitað hafði Gnarrið, og aftaníossar þess í Gnarrflokknum, ekkert til borgarmála að leggja annað en vitleysu og úldna fimmaurabrandara úr pússi Gnarrsins sjálfs. Gnarrflokkurinn var að sönnu afkvæmi nýfrjálshyggjunnar og tómhyggjunnar, enda sá nýfrjálshyggjuprins Samfylkingarinnar, Dagur Bé, sér leik á borði og handsamaði Gnörrin eins og blinda hænuunga og nýtti þau sér til meirihlutavalda í borginni; því má segja, að Dagur hafi haft einræðisvald í Reykjavík á Gnarrtímanum, þrátt fyrir að hafa sjálfur fengið dræma kosningu.
Súrþefurinn sem gamla Gnarrið kveinkar sér nú undan, er meðal annars afleiðing af óstjórnartíð hans undir Samfylkingunni og Degi Bé, og því er ekki nema von að Gnarrið gretti sig og hnerri eins og hvolpur á skítugu baðstofugólfi. Því er svo við að bæta, að Brynjar Vondalykt spáði því á sínum tíma, þegar Gnarrið, Dagur og Holuhjallur voru og hétu, að þeirra örlög mundu verða að kafna í eigin poletisku skítafýlu og verða eftir það minnst í sögubókum, sem einhverrar verstu óværu í Reykjavík síðan Grímur Borgara hvarf af vettvangi fyrir margt löngu. Þykir nú Vondalyktin hafa verið sannpá.
Sem betur fer auðnaðist Reykvíkingum að sópa Gnörrunum og Gnarrflokknum út úr lífi sínu við fyrsta tækifæri. En því miður sitja þeir enn uppi við nýfrjálshyggjuprinsinn Dag Bé, sem tókst bjarga sér fyrir horn eftir síðustu borgarstjórnarkosningar með því að taka hlandþunna vikapilta gömlu Framsóknarmaddömunnar með sér til meirihlutabrúks. Það góða við núverandi stöðu er að góðar líkur eru á hlandsveinar Maddömunnar muni þorna upp á kjörtímabilinu og hverfa eitthvert út í kosmosið, nákvæmlega eins og Gnarrflokkurinn illþefjandi. Eftir það fara Dagur og Samfylkingarskepunar í meirihluta með Sjálfstæðisflokknum, sjálfu Íhaldinu, enda verða Samfylkingin og Íhaldið komið í eina sæng í ríkisstjórn. Þá munum við skemmta okkur við að geta upp á hvor eyðir hvoru, Samfylkingin eða Sjálfstæðisflokkurinn. En hin viðbjóðslega súrusorplykt mun þá sem nú svífa yfir Ráðhúsi Reykjavíkur og Reykvíkingum eins og mökkur.
Súr sorplykt og viðbjóður ekki neinum til sóma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.7.2023 kl. 09:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2023 | 21:56
Öræfaferð frú Ingveldar og Kolbeins fyrr í sumar
Samkvæmt venju fóru þau hjón, frú Ingveldur og Kolbeinn, í sína árlegu stór-fjalla- og öræfareisu um miðjan júlímánuð, ásamt þeim góðum ferðahópi, er saman stendur af úrvalsfólki. Þau vóru heldur ekki að tvítóla við ferðalagið og vóðu þegar upp að Hallbjarnarvörðu og þaðan lá leiðin beint á Fjallabaksleið eystri, hvar séra Atgeir p. Fjallabaksen bað hópinn að staldra við meðan hann færi með ferðabæn og segði þeim frá forfeðrum sínum, sem mann fram af manni bjuggu að þar að baki fjalla og höfðu sína hentisemi á allan hátt.
Ljóst var af frásögn séra Atgeirs p. að forfeður hans höfðu ekki bundið sína bagga sem þeim var skylt að landslögum, og var á honum að skilja, að þessi afskekkta ætt hafði um aldir lifað glaðir við sauðaþjófnað og sifjaspell, þannig að enginn veit lengur hver var afi hvers eða forfaðir og þegar yfirlauk voru Fjallabaksenarnir svo líkir, að þeir voru óþekkjanlegir hver frá öðrum, hvort heldur þeir voru karlar eða konur. Undir þessum fróðleik mærðarklerksins snöri Máría Borgargagn sér undan og gubbaði, en Brynjar Vondalykt rak upp roknahlátur og hrósaði síra Atgeiri með handapati og varafrussi og sagði hann engum líkan.
Í Köldukvísl sauð upp úr, þegar frú Ingveldur reiddist Kolbeini eignmanni sínum og Indriða Handreði og rotaði þá báða. Hún stóð þá sanna að sök að tilefnislausum kynferðismökum bak við stein einn stórann, er þeir höfðu horfið á bak við þeirra erinda, að því þeir sögðu, að ganga örna sinna. Báðir voru drukknir og höfðu kviknað með þeim ástir er þeir sátu á hækjum sínum þar undir bjarginu. Er frú Ingveldur hafði unnið á karli sínum og tækifærisástmanni, heimtaði hún af séra Atgeiri p. Fjallabaksen, að hann bannfærði þessa andskota þar sem þeir lágu í öngviti í eitt skipti fyrir öll; þetta væru viðbjóðslegir menn, sem ekki undir neinum kringumstæðum væri treystandi fyrir húshorn, hvað þá bak við stein, sökum ófyrirleitni, siðvillu og losta.
Ævintýraþráin fleytti þeim þvert yfir landið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er orðið hættulega alvarlegt mál með veslings byskubbsstýrið okkar. Og aunginn veit ennþá hvort við höfum byskubb eða ekki. Síra Baldvin er að vonum æfur af bræði vegna þess arna og farinn að hafa í hótunum um að safna liði og taka Byskubbsstofu með áhlaupi. Í kvöld talaði hann um að nú væri tímabært fyrir byskubbsritarann fara með bænirnar sínar til að undirbúa sig fyrir að vera tekinn til bæna með tveimur hrútshornum; og framkvæmdastjóri Byskubbsstofu ætti von á þvílíkri yfirhalningu, að hymmnarnir mundu rifna yfir hausamótunum á honum.
Klukkan á slaginu sex í fyrramálið mun síra Baldvin upphefja tíðasöng í höfuðmusteri sínu og væntir hann þess að sóknarbörnin mæti unnvörpum, stundvíslega, og meðtaki sakramentin og brýningu um að hefja upp hinn rétta baráttuanda fyrir guðskristni í landinu, og kveði, með snörpu átaki, niður allt guðlast og helgispjöll á byskubbsstofu. Í leiðinni hyggst síra Baldvin syngja prestsmaddömum landsins lof og dýrð, og skipa Drotni alvarlega, að taka í taumana varðandi kvenprestafárið á vettvangi kirkjunnar.
Í síðustu viku jarðsöng svo síra Baldvin einn herlegan skelmi utangarðs. Þetta var andstyggilegur maður í lifanda lífi, að mati síra Baldvins, sem ekkert erindi átti í vígða mold, innan um jarðneskar leifar frómra manna. Þessi þorpari hafði drukkið brennivín, gjört gys að fjármálaráðherra og kosið á móti Sjálfstæðisflokknum. Þá hafði síra Baldvin kunngjört við þetta tækifæri, að hinn burtsofnaðir hefði verið húsbrotsmaður og þjófur, stolið planka af húsbónda sínum og gjört eiginkonu hans barn í óleyfi. Það sæi hver vitborinn maður, að slíkt óhræsi væri ekkert annað en helvítismatur, sem kappakosta ætti að koma í veg fyrir að gengi aftur eftir dauðann, enda hefði þessi þorpari glatað líftórunni við hórdómsiðkan í bælinu hjá alræmdri dræsu, sem einnig væri helvítismatur. Þókti síra Baldvini hafa tekist vel upp við að fela Djöflinum þennan mannaumingja, og sóknarbörnin prísuðu sig sæl og töldu sig hólpin að hafa slíkan kennimann sér til leiðsagnar.
Lög virt að vettugi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2023 | 20:46
Liðsmenn kapítalisma og auðvaldsþjóðskipulags frussa ópíumi yfir fólkið
Fémínísminn er þeirrar náttúru að hann fellur vel að kapítalismanum, efrimillistétt og yfirstétt, - er sem sé afar borgaralegur í sér. Nú um stundir hefur fémínísminn verið ósköp þénugur auðvaldi, kapítalisma, arðræningjum, þ.e. borgarastéttinni sem ágætt ópíum fyrir fólkið í baráttu hennar gegn stéttabaráttu og og róttækum sósíalisma. Og ekki verður annað sagt en að vel hafi gengið að eitra allt hugsanlegt ,,vinstri" á Íslandi með hinu svæfandi fémínístaópíumi, þannig að meintir vinstriflokkar eru gegnsósa eins og fúasprek af hinni lævísu ólyfjan.
Um aðra hugmyndafræði en þá, að halda í hið kapítalíska auðvaldsþjóðskipulag og gæta þess að það raskist sem minnst, er ekki að ræða hjá fémínístunum, enda fémínísminn ekki hugmyndafræðileg hreyfing, ef svo má að orði komast, heldur eins og áður sagði einungis nafn á ópíumtegund. Þeir sem bera fémínístastaglið fram eru undur sérstakir að því leyti, að þeir hafa aungvann húmör, eru annarlegir í fasi, og dags daglega mjög freðnir í andliti eins og þeir séu nýbúnir að gleypa ofan í sig kílógramm af vítissóda.
Eitthvert fyrsta verkið, svo merkilegt sem það nú er, sem gengið var í innan Sosialistaflokks Gunnarssmára, var að kljúfa þann flokksvesaling með því að stofna undrið, sem það kallar ,,sosialiska fémínísta" innan vébanda flokksins. Auðvitað er þetta nokkurskonar apartheit aðgerð, sem miðar að því að drepa málum á dreif og slá ryki í augu fólks og koma í veg fyrir að Sósíalistaflokkurinn virki, komist á legg og fari að skáka auðvaldsfyrirkomulaginu. Hið sama gerðist innan VG og Samfylkingarinnar, en þeir flokkar urðu báðir fémínísmanum hressilega að bráð, þannig að eftir standa einungis tvær óskiljanlega ruslahrúgur, engum til gagns. Sannast sagna er það mál manna, að skjaldan hafi verið upp uppi jafn hörmulega andlausar og fánýtar félagseiningar á Íslandi og fyrrnefndar ruslahrúgur, nema Kvennalistinn heitinn auðvitað.
Tapaði 1,3 milljónum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 21
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 1493
- Frá upphafi: 1542363
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 1315
- Gestir í dag: 20
- IP-tölur í dag: 20
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007