Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2024
Ja, nú þykir mér aldeilis týra í tittlingaborg! Er nú ekki nema hvítvínstelpa Sjálfstæðismannaforustunnar farin að reyna að siða annað fólk til? Sú er aldeilis góð. En stóru köllunum í Sjálfstæðisflokknum hennar þykir eflaust fyndið að láta hana hlaupa um með svona siðbótarkjaftæði, sem hún hefir engin efni á að taka sér í munn. Svo hlægja þeir sig alveg máttlausa eftir að hún er búin að freta úr sér dylgjum og ruglandi um Swandeesý aumingjann og VG, fyrir að hafa tekið fram fyrir hendurnar á frekum og heimskum hægridólgum, sem telja einhverja upphefð fyrir sig fólgna í því að murka lífið úr hvölum á heldur hryllilegan hátt. Já.
Hefði Swandeesý hins vegar leyft Stjána í Hvalnum að fara um miðin með eldi og hvalskutlum eftir að opinbert fagráð hafði komist að því að vinnubrögð Stjána við hvalveiðarnar væru fólskulegt dýraníð, þá hefði og væri meira en sjálfsagt að setja hana af, því ráðherra sem leggur blessun sína yfir sóðalegar aðfarir gegn dýrum viljum við auðvitað ekki hafa. Það var því í hæsta máta tilhlýðilegt af Swandeesý að leggja Stjána Lofts á kné sér og kaghýða hann frammi fyrir alþjóð.
Þar með höfum við það alveg á hreinu, að Swandeesý er út frá dýraverndarsjónamiðum hæf til gegna ráðherraembætti, en það Áslaug Arna ekki þar sem ekki verður annað séð en henni þyki ekkert athugavert við tilgangslausar hvalveiðar og þann níðingshátt sem þeim eru samfara. Þess vegna væri viturlegt fyrir Áslaugu Örnu að draga sig í hlé og halla sér heldur alfarið að hvítvínsdrukk, en á því sviði ku sérfræðigáfur hennar ljóma hvað skærast.
Ég hef borið traust til hennar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2024 | 17:30
Er brennuvargurinn í Kópavogi kvenmaður?
Auðvitað hefir lögreglan engar vísbendingar um bílabrennuvarginn í Kópavogi. Náunginn er nefnilega séður vel og lætur ekki ná sér, ekki fremur en þegar hann kúkaði á bílinn við Digranesveg. Hálfdán Varðstjóri og hans menn gætu svo sem reynt að veiða þorparann í net eða sitja fyrir honum eins og búrhveli með skutulbyssu, en trúlega yrði þeim lítt ágengt; brennuskítakallinn er þessháttar, skohh.
Raunar er eins gott fyrir varginn að Hálfdán Varðstjórn hafi ekki höndur í hári hans, því höndur Hálfdáns eru sem kunnugt er aungvar kvenmannshöndur. Sennilega mundi Hálfdán ganga strax frá ódæðismanninum í fangaklefanum á stöðinni, þannig að hann mun hugsa sig tvisvar um áður en hann leysir niðrum sig næst fyrir framan mannlausa bifreið eða leggur að henni eld. Tiltektir Hálfdáns Varðstjóra hafa nefnilega virkað vel sem áreiðanleg forvörn á afbrotafólk og villinga.
Svo eru uppi kenningar, furðu ágengar, þess efnis, að títtnefnd glæpaurt úr Kópavogi sé kona, sennilega úr Garðabæ eða Hafnarfirði. Rökin fyrir því að kona hafi verið að verki eru fyrst og fremst fémínísks eðlis og tiltektir hennar séu ákveðið og nauðsynlegt innlegg í jafnréttisbaráttuna. Það er vel til fundið hjá íslenskri húsmóður, segjum úr Garðabænum, að klæða sig upp á í jólasveinabúning á aðventunni og gera sér ferð í Kópavog til að kukka á bifreið við Digranesveg. Fara síðan aðra ferð í brennuvargsbúningi og kveikja í bílum Kópavogsbúa við Smiðjuveg. Drotin gefi að þessi kvenmaður sé ekki af hinum garðbæska aðli, - það gæti sem sé komið sér illa fyrir háburgeisastéttina í bænum.
Engar vísbendingar um brennuvarginn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Auðvitað ætla frú Sæland og Wintrisprinsinn af Klaustri að semja vantrauststillögu á Swandeesy. Þau eru nefnilega bæði lýðskrumarar og leiðindaskjóður. Eitthvað hofum við orðið vör við skræki og blástra frá Sælandinu vegna blóðmerastands vissra bænda, og hefir á máli kérlíngar mátt skilja að þar væri á ferðinni eitt hroðalegt dýraníð og dýrapíningar af sverustu sort. En þegar Swandeesý aumingjanum verður það á að stoppa tilgangslausar hvalveiðar Kristjáns Loftssonar vegna rökstudds gruns um villimannslegt dýraníð við aflífun hvala á hafi úti, ærist kérlígin svo allt ætlar af göflunum að ganga kringum hana og vin hennar Wintrisprinsinn. Þetta kallast víst á lýðskrumaramáli að vera samkvæmur sjálfum sér.
Og hvernig í ósköpunum stendur á þessum andskotagangi í Sælandinu og Wintrisbarninu? Gæti hugsast að þau haldi að þau fái dulítið að péníngum frá auðvaldskarlinum í Hvalnum til lýðskrumstarfa fyrir Flokk ,,fólksins" og Klausturpartíet? Hvur veit? En af hverju ganga þessir bólgnu lýðskrumarar ekki í eina sæng í stað þess að halda úti tveimur rasískum lýðskrumaraflokkum aumra popúlista? Eða ganga hreinlega í Sjálfstæðisflokkinn eða Framsókn og haft Skaga-Villa, ástmann álvera og hvaladráps, með sér. Nei, það er sennilega betra gera út sína lýðskrumsflokka sjálf og slá um sig með rasísku þvæli og auðvaldsleikjuskap þegar þurfa þykir.
En af hverju frú Sæland vill heldur murka líftóruna úr stórhvelum í öldugangi og veltingi úti á reginhafi en taka merhryssum blóð annan slagið er auðvitað illskiljanlegt og vart á færi annarra en stórgáfaðra heimspekinga að komast til botns í þessháttar hugsunarhætti. Ef umhyggja kérlíngar með blóðmerum er jafn ekta og hún vill vera láta, þá er alveg sérdeilis undarlegt að hún hafi ekki látið til skarar skríða gegn Blóðbankanum og blóðsugunum þar, ennfremur gegn Dracula greifa og hyski hans, sem kvað þamba blóð úr lifandi fólki og skilja það síðan eftir miður sín til lífs og sálar. Já, vinir mínir, það er stundum margt kúnstugt í kýrhausunum á Lýðskrumaraslóðum.
Vantrauststillaga í mótun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2024 | 17:37
Hlauparindill Kvikuprinsessunnar kemur skilaboðum á framfæri
Það kemur nú betur og betur í ljós hvurn mann hinn nýja forusta Samfylkingarinnar hefir að geyma. Þ.e. ef forustu skal kalla, því að með tilkomu nýju forustunnar var engu líkara en Samfylkingin ætti ekki lengur neitt erindi við kjósendur eða þjóðina yfirleitt. En smám saman hefir þó komið á daginn, að nýja forustan er mun hægrisinnaðri en gamla forustan og þókti þó ýmsum sú gamla heldur en ekki með hægri slagsíðu af einum fáráðum jafnaðarflokki að vera.
Upp á síðkastið hefir helsti hlauparindill Kristrúnar formanns, hlustunarduflsdrengurinn, gert mjög í því að ganga í augun á Sjálfstæðiflokknum, ekki síst ofurmennunum þar á bæ, þeim Brynjari Níelssyni og Jóni Gunnarssyni, og er engu líkara en hlauparindlinum atarna þyki mikið við liggja að vinna sig og nýju forustuna í álit hjá höfuðpaurum stjórnmálaarms auðvaldsins. Ekki þarf að fara í neinar grafgötur með, að leið Samfylkingarinnar, sjálfs krataeðlisflokksins, liggur beint upp í bælið hjá Sjálfstæðisflokknum og undir sæng hjá honum. Þetta er nú öll jafnaðarmennskan hjá Kvikuprinsessunni henni Kristrúnu og ,,rannsóknarblaðamanninum" hennar.
Það má fastlega gera ráð fyrir að Jóni Gunnarssyni, Brynjari, og þeim hinum í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, líki einarður og jákvæður málflutningur hlauparindilsins Jóhanns Páls Jóhanssonar um virkjanaspjöll og orkugræðgi auðvaldsins og nú síðast um velvild hans í garð forneskjulegs dýraníðs karluglunnar í hvalnum. Þessu fylgja óduldar kröfur hlauparindilsins og Kvikudrottningarinnar um að Swandeesý og VG verði sparkað af glæsilegu og miskunnarlausu offorsi út úr ríkisstjórninni, en það er auðvitað algjör forsenda þess að Samfylkingin komist greiðlega í ríkisstjórnarsængina hjá Sjálfstæðisflokknum, en það einmitt það sem til stendur hjá Samfylkingunni.
Þungur áfellisdómur yfir matvælaráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2024 | 12:26
Nýfrjálshyggjumaður svalar frelsisþorsta sínum á bifreiðum
Það leikur enginn vafi á að bak við bílabrennuna við Smiðjuveg stendur frjálshuga einstaklingur, svokallaður nýfrjálshyggjumaður. Það er eðli nýfrjálshyggjumanna að kveikja elda, frjálsa elda, sem brenna gjarnan hvað sem fyrir verður. Fyrir Hrun drógu fræknar nýfrjálshyggjuelítur saman mikinn bálköst, sem fuðraði allt í einu upp í einu smáskítaHruni með einkar athyglisverðum hætti og ekki síður athyglisverðum eftirköstum. En þetta var allt saman allt í lagi því frægir sosidemó-framsóknarriddarar einhentu sér af háborgaralegri dyggð í að endurhanna brunarústirnar upp í blóðugar klærnar á nýfrjálshyggjuauðvaldinu, sem þakkaði pent fyrir sig og hófst þegar hana við að draga saman í nýjan bálköst.
En þarna á bílastæðinu við Smiðjuveg var einkaframtakið á ferð í sinni skýrustu og viðkunnanlegustu mynd, enda fuðruðu bílskrjóðarnir upp á augabragði án þess nokkur gæti rönd við reist, alveg eins og þegar einkaframtakið kveikti í bankakerfinu hér um árið. Svo er aftur álitamál hvort hvort brennuvargurinn hefir staðið einn að málum eða hvort hann sé verktaki, eða jafnvel undirverktaki, fyrir annan nýfrjálshyggjumann eða nýfrjálshyggjuelítu. Svörum við þessum áleitnu spurningum verður að sjálfsögðu ekki svarað fyrr en vargurinn verður handsamaður og hann leysir frá skjóðunni.
Samkvæmt leynilögreglu ríxlögreglustjóra, leikur sterkur grunur á, að bílabrennumaðurinn sé sami nýfrjálshyggjunáungi og kukkaði rétt fyrir jól á bifreið við Digranesveg í Kópavogi. Að öllu samanlögðu þá þykir einsýnt að hinum framtakssama nýfrjálshyggjumanni er mjög svo uppsiga við bifreiðar því ef hann getur ekki gert þær alelda þá gyrðir hann kampakátur niðum sig og hefir hægðir á þær. Sumir gætu freistast til að kalla athæfi sem þetta óeðli, sem það náttúrlega er, en ekki má hefta athafnafrelsi eintaklingins, framtaksþrá og rétt viðhorf til pénííínga og framfara, hagvaxtar og virðisauka.
Brennuvargsins enn leitað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2024 | 20:46
Það er mikið starf að vera frú Sæland
Djöfullinn sjálfur. Nú er varla forsvaranlegt lengur að láta kérlínagarálkuna ganga lausa - í það minnsta væri ráðlegt að hefta aðgang hennar að fjölmiðlum svo um muni. Í langan tíma hefir hún barist eins og vitstola gegn því að merar fái að gefa blóð annað slagið en í dag er hún óð út af því að Kristján í Hvalnum fékk ekki að myrða hvali á harmkvælafullan hátt síðastliðið sumar. Það er ekkert samræmi í þessu hjá konugarminum. Hún er eflaust að spila út.
Munum við ekki öll eftir konunni sem varð fræg fyrir að berjast fyrir réttindum minka, sem ólu aldur sinn í grindabúrum og fengu ógéðslegar slettur af einhverju bannsettu drulluhakki að eta einu sinni á dag. Jú, vissulega munum við þá konu. En það vor aftur færri sem vissu að hún píndi mýs og smáfugla til bana heima hjá sér, og át þá sjálf ef hún gat. Á síðari stigum komst upp um illræðisfullt innræti konunnar, sem þá var orðin formaður dýraverndunarfélagsins og búin að fá riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir ósérplægna vináttu sína við kvikindi. En svo eitt kveldið bankaði forsetinn upp á hjá konunni og hafði með sér alla orðunefndina eins og hún lagði sig. Nú forsetinn hrifsaði riddarakrossinn af konunni meðan þeir í orðunefndinni flengdu hana í stofunni á hennar eigin heimili.
Það er þó ekki þar með sagt að frú Sæland eigi riddarakross eða fálkaorðu í handraðanum hjá sér, því fer fjarri, sem betur fer. En Fjandinn hafi það: Það er þá í það minnsta hægt að reka kérlínguna af þingi og skilja Klobbamagg og Hamborgara Tómás eftir munaðarlausa í Alþingishúsinu. Til þrautavara væri svo hægt, ef brottrekstur er óframkvæmanlegur, að afvegaleiða þá gömlu frú inn í Sjálfstæðisflokkinn, eða í skítakompuna til Sigmundar og Beggó, þá væri hún skohh komin heim! Já, það er mikið starf að gráta yfir hlutskipti fátæklinga í ræðustól Alþingis en hlaupa að svo búnu beint í fangið á auðvaldspaurunum og umfaðma þá í bak og fyrir með daðri og dufli.
Kallar eftir afsögn matvælaráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.1.2024 kl. 11:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2024 | 22:07
Gáfað fólk látið ryðja brautina - það er áreiðanlega skynsamlegt
Þau eru sérlega gáfað fólk hún Hildur þessi og hann Vilhjálmur úr Grindavík. Mér sagði skilríkur maður, sem alltaf hefir verið Sjálfstæðisflokknum innan handar, meðan Flokkurinn hefði þvílík greindartröll í fremstu röð innan sinna vébanda þá væri engu að kvíða. Nú hafa Hildur og Vilhjálmur fellt sinn dóm og Swandessý er búin að vera, bara eftir að sópa henni út eins og hverju öðru óartardýri. Það er ekkert gamanmál fyrir eina slitna stelpukérlíngu með bilaðan stjórnmálakompás að lenda í klónum á vitsmunaverum á borð hana Hildi og hann Vilhjálm, sem sumir kalla Vilmjálm út af vælinu og sífrinu í honum.
Þau Hildur og Vilmjálmur eru fortakslaust krossmenn og Kristjánsmenn, einlægir stuðningsmenn Bjarnaben, Davíðs og Haaardý, Hrunsins og elska að heyra kjarnyrtar sögur af Eimreiðarelítunni, Hannesi Kjartani. Og þegar þau segja að aðför Swandeesý að Kristjáni í Hvalnum eru þau í leiðinni að segja okkur að þeim standi á fjandans sama um alla hvali og hvernig svokallaðir hvalveiðimenn murka líftóruna úr skepnum sem ekki hafa gert þeim neitt og engin þörf er á að drepa með fáheyrðum djöfulskap á hafi úti. Svona er nú að vera gáfnaljós á besta aldri í framlínu Sjálfstæðisflokksins - það bjargar miklu er mér sagt.
Í Sjálfstæðisflokknum eru á sveimi sagnir af því hvernig gildir limir í Flokknum, svona eins og Nonnýboy og Brynki Níelsar, hafa kennt sér yngra fólki að eta súrhveli og brösuð hvalþjós. Áslaug Arna, Gölle a. sem ekki er ungur lengur, telpan með langa nafnið, Vilmjálmur og Hildur hafa sést löðrandi í hvalfeiti og brúkað hvítvín, bjór og brennt með þjósnum og sýrurenginu, allt keypt af heimsendingarþjónustu athafnaskálda. Eitt sinn átu þau víst skemmda andarnefnu og fengu í magann og voru borin heim af mönnum í einhverskonar geimfarabúningum, því pestin var geigvænleg af blessuðum litlu ungunum eftir þá máltíð. En lífið er víst ekki alltaf dans á rósum og nú hafa hinir eldri og reyndari sett Hildi og Vilmjálm í að ryðja brautina fyrir eftirminnilegum brottrekstri Swandeesý úr ríkisstjórninni fyrir að að hafa móðgað hvalakallinn Kristján og heldur gróflegan máta.
Ljóst að málið muni hafa pólitískar afleiðingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bölvað kérlíngarrassgatið hún Máría Borgargagn var líka enn á djamminu þegar Guðna brást örendið á Bessastöðum og gafst upp á rólunum. Hún var sem sé ásamt með Handreði eiginmanni sínum í heimsókn á heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar framsóknarmann. Þar var að fornum sið drukkið stíft og gamnað sér frá því á Þorláksmessu og fram yfir áramót. Á sama stað héldu til þessa daga Brynjar Vondalykt, nokkrir ráðherrar, prestar, ríxlögreglustjórar, forstjórar og fjárfestar, og var flesta daga dýrðlega glatt á hjalla. Ég vil ég nú segja að að mikið hafi verið um að sungnir væru jólasálmar á þessari hátíðarsamkomum að frú Ingveldar og Kolbeins, en þeim mun meir hljóðað af lostagleði og vímum.
Þegar Arnar lögmenni Jónsson tilkynnti um forsetaframboð heima hjá sér í Garðabænum var hann nýkominn úr veislu frú Ingveldar þar sem hann lenti í slagsmálum við Vondulyktina og Handreðinn út af forsetaframboðsórum hins fyrrnefnda. Það er mál manna, að framboð Arnars sé skemmdarverkastarfsemi lukkuriddara, sem muni eyðileggja atkvæðaöflun raunverulegs forsetaframbjóðanda Sjálfstæðisflokksins. Enda sagði frú Ingveldur við þetta tækifæri, að framboðsheimska Arnars jafngilti því að Borgargagnið mundi skíta á eldhúsgólfið hjá henni, en svoleiðis tiltektum léti hún ekki ósvarðað af fullum þunga.
Þá hefir frú Ingveldur áréttað, að raunverulegur forsetaframbjóðandi Sjálfstæðisflokksins væri ekki aðeins frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, heldur forsetaframbjóðandi bæði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Af þeirri ástæðu er hvort tveggja rétt og skylt, að koma því í eitt skipti fyrir öll inn í þröngt heilabúið á hægrisinnuðum lukkuriddurunum og óviðurkenndum undirmálskvikindum á því rófi, að í næstu forsetakosningum verður aðeins pláss fyrir einn hægrimann í framboði, því nú skal hið borgaralega stórhægri, Eimreiðarelítan, Engeyingar og samherjar ná Bessastöðum og leggja þá flata undir sig. Áfram áfram ekkert stopp!
Var á djamminu þegar Guðni ávarpaði þjóðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sterkur grunur hefir lengi lengi leikið á að síra Baldvin hafi látið umskera bæði meðhjálpara sinn og sóknarnefndarformann. Áður en til tíðinda dró, hafði kvisast að síra Baldvin hefði haft í hótunum við meðhjálparann ef hann hundskaðist ekki til að láta klippa bölvaða forhúðina framan af leyndarlimstotunni á sér. Það næsta sem gerðist var að meðhjálparinn og sóknarnefndarformaðurinn gjörðust veiklaðir á sama tíma, gengu um götur í keng, voru áberandi fölir og með óútskýrðan handskjálfta. Voru þessi sjúkdómseinkenni rakin til leynilegrar umskorningar þeirra félaga, og þókti mörgum andstyggð þó svo sannanir væru ekki til staðar.
Á sýnódus færði bysskubb umskurðarorðróminn í tal við síra Baldvin. Síra Baldvin yggldi sig og kvaðst ekki svara slefburði, hvort heldur hann væri borinn fram af bysskubbi eða Gróu á Leiti. Þar með var því máli lokið af hálfu yfirstjórnar kirkjunnar. Kérlíngar lögðu sig í framkróka við að veiða hið sanna upp úr eiginkonum meðhjálparans og safnaðarnefndaformannsins, en varð lítið ágengt, þar eð eiginkonurnar brustu einlægt í grát þegar þegar þetta dularfulla mál barst í tal.
Svo barst síra Baldvini til eyrna, að karlskrjóður einn í plássinu, það var víst skólastjórinn, hefði fullyrt frammi fyrir fjölda manns, að síra Baldvin hefði neytt meðhjálparann og sóknarnefndarformanninn til að láta umskera sig ella verða bannfærðir og útskúfað úr mannlegu samfélagi. Að sjálfsögðu fór þetta tal skólameistarans illa í síra Baldvin svo hann afréð að veita manninum ráðningu sem ætti að duga. Því keyrði síra Baldvin krepptan hramm sinn ofan í hausinn á skólastjóranum er þeir mættust á götu. Síðan hefir sólastjórinn verið enn einkennilegra en hann var áður og þókti þó mörgum nóg um ruglið og bullið í þeim manni áður en hann þáði refsinguna að sóknarprestinum.
Lögreglan rannsakar umskurð á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2024 | 20:11
Ólafur Þorn útnefnir frambjóð
Þó svo þjóðin sé í þann mund að losna við gripinn Guðna Th. af Bessastöðum, er ekki þar með sagt að allt fari að vera eins og það á að vera. Fjarri er það. Nú hefir Ólafi Þorn Harðarsyni tekist með hjá Mogga gamla, á fyrsta degi, að flækja þá hugsjónarýru og skoðanadaufu Katrínu Jakobsdóttur inn í dæmið sem hugsanlegan forsetaframbjóðanda! Þetta er ekkert annað en forhertur dónaskapur af hálfu Ólafs, og sýnir ef til vill best hve langt hann er genginn og þrautpíndur í krataeðlissjúkdómnum. Karl anga stráið. En fyrir utan dónaskapinn og siðleysi prófessorsins þá er það heldur billeg lausn á vandamáli að koma leiðinlegum manni út að leiða leiðinlega konupísl inn í staðinn.
En þar með er ekki öll sagan sögð, því ekki er nóg með að Ó. Þorn hafi tilnefnt leiðinlega og óvinsæla Katrínu til forsetaframboðs, heldur berast jafnframt fregnir af því að einhverjir óvitar séu í óðaönn að skora á furðuverkið Lilju Alfredós að fara í framboð. Hvernig í fjáranum stendur eiginlega á því að fullorðið fólk skuli sjá einna helst finna sér forsetaframbjóðendur við hæfi innan óhemju óvinsællar og sóðalegrar ríkisstjórnar? Svarið hlýtur að vera fólgið í þeirri nöturlegu staðreynd að lágkúran og andleysið hefir tekið allt yfir, og það sem verra er: þjóðin á sér augrar undankomu auðið.
Svo eiga dólgasjálfstæðismennirnir eftir að stíga fram og kynna Guffa bílasala og Hannes Hólmstein sem sína frambjóðendur til forseta; og dólgarnir Sigmundur Davíð og frú Sæland draga Írafellsmóra fram sem sinn þjóðlega mann á stól forseta. Eflaust munu einhverjir auðnuleysingjar skora á Agnesi bysskubb að fara í forsetaframboð fyrst búið er að reka hana frá bysskubbsembættinu. Við þessu öllu er svo sem ekkert að gera, ja, nema að skríða undir sæng eins og blauður rakki. Ekki er raunhæft að andlaus yfirborðþjóð fari að dunda sér við byltingarstarfsemi og uppreisnarhjal. Nei nei. En. Niður með Þornið, Tháið, Bessastaði og Hrunelítuna.
Hefði helst áhrif ef Katrín færi í forsetaframboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.11.): 0
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 222
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 192
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007