Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2024
22.7.2024 | 16:14
Og hr. Thór Múháméð Kóran lætur ekki við sitja að fá sér nýtt nafn
Hr. Múháméð Kóran lætur ekki þar við sitja að taka upp hið hundheiðna nafn ,,Thor", heldur er hann ofan á allt annað genginn í Sjálfstæðisflokkinn. Hann var, laust eftir hádegi í dag, vígður inn í Flokkinn við hátíðlega athöfn i Valhöllu, Bjarniben annaðist vígsluna en G.a. Þórðarson og D. Oddsson þjónuðu fyrir altari. Með öðrum orðum: Frá og með deginum í dag er því Thór Múháméð Kórann gildur og fullur limur í Sjálfstæðisflokknum og þess albúinn að takast á höndur alþingisframboð fyrir málstaðinn.
Og nú er skammst stórra högga í millum hjá embættismönnum flokksins, því trúnaðarlæknir Valhallar, Sjálfstæðisflokksins og Varðar skoðaði Thór Múháméð áður en honum var veitt innganga í Flokkinn og skilaði hann niðurstöðu ransóknar sinnar á tilsettum tíma. Þar kemur skýrt fram, að víst sé téður umsækjandi um flokksaðild fullkomlega galinn og siðvilltur, en þó ekki svo að hann geti ekki tekið að sér hvaða starf sem er innan Sjálfstæðisflokksins. Hr. Thor Muháméð Kóran er því sem stendur á hraðferð upp metorðastiga Flokksins.
En á meðan gullslegnir dýrgripir reka hver af öðrum á fjörur Sjálfstæðisflokksins, allt frá Samherjafirði í norðri til Valhallar í suðri, fjarar hreinlega sífellt undan hinni íslensku sósíalistahreyfingu, en segja má að þar ríki algert örfiri með svo óhrjálegum rekadrumbum og illum dráttum að refar eru fyrir löngu hættir að líta þar við á ferðum sínum eftir einhverju ætilegu. Og þókt nú sé heldur glatt í döprum hjörtum í Valhöllu og nærliggjandi hjáleigum, þá er ekki síðri ofsagleði við völd hjá Thórsurunum, því hvað er einn vænn piltur gangi í Flokkinn hjá því að endurheimta týnda soninn, hann Thór Múháméð? Vér eru öll viss um að sá frændgarður er allur á lofti þessa stundina af gleði, og búið að setja þá frændur, Björgólf Thór og Gwend Andra Thórsson í að slátra alígullkálfinum í fangnaðarskyni vegna heimkomu hins glataða sonar. Og á morgun mun Bjöggi Thór leiða frænda sinn, Múháméð Thór um grænar grundir á Haffjarðarárbökkum.
Kourani breytir um nafn og horfir til Bessastaða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.7.2024 | 12:37
Algerð bylting í menntamálum í sjómáli, þar sem enginn fær að skorast undan skildum sínum
Nú er einsýnt, að ,,skólastarf" í þeirri mynd sem ráðið hefir ríkjum hér á landi um skeið, muni brátt heyra sögunni til. Í stað fémínískrar uppdráttarsýki og skaðmenntunar í skólum landsins verði tekið upp glænýtt menntakerfi, mun ódýra, skilvirkara og umfram allt árangursríkara en það farlama skrímsli sem núverandi kerfi svo sannarlega er.
Fyrir það fyrsta verður samtökum atvinnurekenda, viðskiptaráði og völdum, vönduðum hagfræðingum falið að framkvæma allt skólahald á Íslandi. Öll skólahús landsins verði seld undir aðra starfsem eða rifin. Í stað grunnskóla verði teknir upp farskólar, þar sem börn á aldrinum tíu til tólf ára fái tvisvar til þrisvar sinnum mánaðar kennslu. Kennurum verði tryggður óskoraður réttur til að halda uppi aga við kennslu og að beita þeim refsingum er þurfa þykir á hverjum tíma. Framhaldsnám standi aðeins útvöldum afburðaunglingum af góðum ættum til boða. Í háskólum verði aðeins stundað nám í hagfræði, viðskiptafæði, guðfræði og lögfræði, auk þess sem Náttúrleysingjahælinu í Hveragerði verði leyft að starfrækja lækningaskóla og útskrifa efnilega nemendur með prófgráðu.
Það sér hver maður að með hinni fyrirhuguðu aðferð í menntamálum þjóðarinnar verður þungu oki létt af ríkissjóði og því góða fólki sem hefir umsjón með honum. Samhliða þessum lífsnauðsynlegu breytingum á skólahaldi og skaðmenntun, muni lögð áhersla á atvinnutækifæri fyrir börn og unglinga, og reglur um þegnskylduvinnu barna í einkafyrirtækjum, samdar af atvinnurekendum, viðskiptaráði og hagfræðingum, leidd í landslög og sett í stjórnarskrá. Auðvitað munu breytingar af þessu tagi leiða tímabundna ógæfu yfir þá sem óhjákvæmilega missa spón úr aski sínum, - en því líði verður auðvitað skipað að leita sér að heiðarlegri vinnu eins og annað fólk.
Einsdæmi að ekki séu samræmd próf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.7.2024 | 20:24
Ekki má gleyma gárungunum
Það var svo sem ekki við öðru að búast en hinn skaðmenntaði og meinti bandiríkjafræðingur, sjálf Silja Bora, væri fyrst á vettvang Mogga gamla í kjölfar brottreksturs Bíden forseta. Kérlíngin er ein af þessum fémínísku nýsosialisku númerum, sem hafa hasað sér völl á síðustu árum. Svo má fjandinn vita hvort Silja Bora veit yfirleitt nokkuð í sinn haus um Bíd, Cáméllu og Trumpið, - en það má einu gilda, það er hvort eð er aðeins vitleysa í boði um það fólk, ef fólk skyldi kalla.
En ekki má gleyma því að gárungarnir hafa Silju Boru í hávegum og hafa í flimtingum sér til skemmtunar að ,,Gilja Bara" hafi sagt hitt eða þetta. Einhverju sinni sagði einn af þessum spéfuglum, að Gilja Bara hefði haft þau orð uppi um einn frambjóðanda, að hann ætti skilið að taka kött nauðugan upp við símastaur. Þessi ummæli þóktu ankannaleg og undir beltisstað og var spéfuglinum refsað fyrir með nokkrum kjaftshöggum áður en hann féll í rot. Þar með hafði réttlætið sigrað.
Nú er það svo, að Silja Bora er grunuð um að halda ekki með Trumpinu í bandarísku realpoletikinni, vera sem maður segir á bandi heimsvaldasinnana í Demókrataflokknum, en sá flokkur vera ígildi róttæks sósíalistaflokks í augum nýsosialista á Íslandi. Á Samstöðinni, sem er í eigu Gunnarssmára er mikið gert með Demókrataflokkinn og legáta hans, og amrískmenntaðir nýsosialistar í sosialflokki sama Gunnarssmára, horfa mjög til hjónana Clítón og Óbáma sem hina sönnu sosialista heimssögunnar, auk Thorwaldar Gylfaþornsonar og elliæra lýðskumarans Berní í Sandinum, sem kvað vera skemmtileg blanda af Vilhjálmi Birgis á Skaganum og frú Sæland. En um allt þetta, en lítið meira, mun ungfrú Silja Bora fræða ykkur, lesendur góðir, og leiða ukkur í allan sannleikann um Bíden og hinn vísindalega krataeðli vesturheimskra heimsvaldasinna.
Engar reglur til að takast á við stöðuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það fór þá svona hjá karlræflinum honum Bídi. Þeir settu hann af, bölvaðir refirnir, af eintómri vonsku út í heiminn. Eða hvað? Jú, angans gamli maðurinn er víst orðinn ellimóður og ekki nóg með það: hann kvað vera orðinn elliær, ruglaður og ekkert tolli stundinni lengur í hausnum á honum. En nú er úr vöndu að ráða hjá Demókrataflokknum í Bandaríkjunum, sem nýsoialistar á Íslandi halda að sé í það minnsta hálfgildings kommúnistaflokkur, í það minnsta ógurlega róttækur flokkur til vinstri.
Sennilega setja þeir glyðruna Hillarý í framboð í staðinn fyrir Bídinn, hún er sögð ógn friðsamleg, rithöfundur og gríðarlegur sosialist, að mati nýsosialista. Kristrún krataeðlis er sögð skotin í henni og gamlir framsóknarlarfar liggja með nefið í götunni fyrir henni. Meira að segja litlir, digrir íhaldsprumsdrengir kunna að meta Hillarý að verleikum. Hins vegar kemur ekkert í veg fyrir að hinn nýskotni Trumpur verði forseti, það er sem maður segir: Guðs vilji. Ekki einusinni frú Cámílla Harrís, sem er ein getur haft roð í Trumpinn, seisei nei. Amen.
Til viðbótar er það af þeim elliæra og galna Bídi að segja, að hann ætlar að verja því sem eftir er af forsetferli sínum í að athuga með gleymda vini og kunningja og leika sér að því að geta upp á hvað þeir heita. Kannski villist kallinn til Íslands til að heilsa upp á samherja sína hér á landi? Það væri nú fjarska gaman fyrir Gunnarsmára að fá Bídirinn í þáttinn ,,Rauðaborðið" hjá sér á Samstöðina - þeir gætu sem best farið yfir ógnarlega vinstriróttækni Demókrataflokksins og Smárinn sagt gamla manninum, minnislausum og úti að aka, frá nýsosialiskum áherslum nýsosialista á Íslandi og stórkostlegum áhuga þeirra á bandarískum stjórnmálum, ekki síst á Demókrataflokknum.
Biden dregur framboð sitt til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2024 | 17:54
Herra ríkissaksóknari, nú er nóg komið
Nú er nóg komið. Herra vararíkissaksóknarinn hefir nú gjört sig að slíkum últra taðvamba fyrir framan alþjóð að fordæmalaust er. Það verður að taka manninn úr umferð nú þegar áður en hann eyðileggur orðspor landsins um alla framtíð. Það er sem sé mikið í húfi núna.
Það er til dæmis sérlega ámælisvert af vararíkissaksóknara að veitast eins og raun ber vitni að óhörðnuðum unglingi, eins honum syni Swaneesýar, með illmælgi og hrottaskap. Það er sagt að drengurinn hafi farið að gráta undan svarragangi og fólsku vararíkisaksóknara og sé óhuggandi. Þeir segja að hann hafi rassskellt barnið. Auk þess er aðalríkisáttasemjari alveg eyðilagður yfir þessari uppákomu.
Á meðan þessu fer fram skrifa allrahanda dólgar og djöflar óhróður um bláfátæka útlendinga í blöðin og kjamsa á meintum glæpum þeirra, nauðgunum, morðum og þjófnuðum, og öðru lúalegu atferli sem ekki einusinni Andskotanum mundi nokkru sinni koma til hugar að taka sér fyrir hendur að fremja. Sumum er jafnvel farið að gruna að þessir náungar gangi ekki heilir til skógar, að þeir séu einhverskonar smá-nasijónalhitlerar, sem finnist nú loks tímabært að skríða út úr rottuholunum sínum og leyfi fólki að dást að gáfum þeirra og andlegu atgervi. En það er eftir sem áður algerlega ófært að láta vararíxsaksóknara valsa um eins og honum hefir þóknast upp á síðkastið.
Segja Helga hafa gert sig vanhæfan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2024 | 10:48
Bídur, Trumpið og íslenskir nýsosialistar
Það er heldur lakara, ef rétt reynist, að spilaborg Bídirs bandaríkjaforseta sé að hrynja ofan í hausinn á honum svona rétt fyrir kosningar. Bídur forseti er sem kunnugt kaldur karl, sem hrasar í tíma, en einkum þó ótíma, niður tröppur húsa og landganga flugvéla eins og trúðfífl eða ofurölvi drykkjurútur sem fengið hefir sér of mikið neðan í því. En Bídur á sér, þrátt fyrir allt, sína eindregnu aðdáendur, sem elska hann og dá sem einn dáindisgóðan vinstrimann og sosialist.
Til dæmis eru nýsosialistar á Íslandi ákaflega hrifnir af Bídi, telja hann mankynsfrelsara og Demókrataflokkinn hans aldeilis vel heppnaðan sosialkratískann framsóknarflokk, gott ef ekki kommúnískan. Svona eru nýsosialistar dagsins í dag vel að sér stéttabaráttufræðunum og sosialiskri díalekt. Allir sem einn. En svona okkar á milli sagt, þá hafa fémínístar og útvatnaðir nýsosialistar gengið af sósíalísku hreyfingunni á Íslands dauðri, en það er eitthvað sem Mogga, Sjálfstæðisflokknum og krötum tókst aldrei þrátt fyrir endalausar tilraunir til þess, þökk sé Silju Boru, Höllu Gunnars og Gunnarismára.
Á meðan höfuðhetjan Bídur veltist um tröppur og troðninga og Trumpur andskoti hans liggur skelfingu lostinn og eyrnaskotinn undir rúmi, ráfa aðdáendur þeirra á Íslandi um með spekingssvip á trýnunum og ræða nýjustu vendingar og horfur í bandarísku forsetakosningunum á spámannslegan hátt, eins og þeir séu einhverjir andskotans jesæjar eða habakúkar úr Gamla testamentinu. Sennilega er Bídur forseti á leiðinni í ruslatunnuna, það þarf enga spámannshæfileika til að sjá það og eyrnaskotni sperribelgurinn Trumpur, með þúsund kærur á hælunum, verður aftur forseti Bandaríkjanna. Svo verðum við bara að sjá til hvernig nýsosialistunum á Íslandi gengur að samsama sig Trumpinu, en eflaust mun það ganga eins og í sögu ef ég þekki þá rétt.
Biden á eftir að sjá alla spilaborgina hrynja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.7.2024 | 21:31
Hvað hefði Frelsarinn gert?
Aldeilis virðingarvert framtak hjá Samtökunum No Borders Iceland að hafa fyrir því að klöngrast með þrjá fána upp í turn kirkjunnar hans Hallgríms eitins Péturssonar á Skólavörðuholti og breiða þá þar til þerris út um opna glugga sem þar eru. Því miður gasprar svokallaður ,,starfsmaður Hallgrímskirkju" um að fánarnir hafi ekki verið til sýnis á turninum nema í fimm mínútur, sem er víst eitthvað málum blandið, og kyrkjan hengi ekki upp aðra fána en þann íslenska og ,,þá sem sýna kristileg merki". Það er nú það.
Já, það er nú það. Hvaða ,,kristilegu" merki ætli það séu sem leyfð eru á fánum utan á Hallgrímskirkju? Eru það fánar með uppteiknuðum ásjónum bysskubbanna Agnesar og herra Ólafs Skúlasonar? Fá taudulur með myndum af því þegar Jésús hafði endaskipti á bröskurunum í musterinu, Sjálfstæðisflokksmönnum hans tíma, og hratt þeim út eins og halaklipptum hundum? Eru máske myndir af hinum kristilegu krossferðum og galdrabrennum leyfilegar - en ekki þjóðfáni þess lands sem Jésús Kristur lifði og starfaði í?
Svo er það krossinn, þetta sérkennilega tákn kristninnar. Það er dálítið kostulegt, að merki þessara trúarbragða sé frumstætt morðtól, sem sagt að hafi verið notað til að aflífa þann sem áminnst kristni er sögð snúast um. Hvernig litist mönnum á ef Kristur hefði verið deyddur með fallöxi eða hengdur í gálga með snæri? Þætti þeim ekki geðugt að hafa turna guðshúsa sinna krýnd með fallöxinni eða gálganum? Væri ekki, þegar á allt er litið, eilítið huggulegra og meira viðeigandi að tilbeiðslu- og embættismusteri litla sósíalistans frá Nazaret skörtuðu hamri og sigð í stað andstyggilegra morðtóla? Svo getum við líka spurt okkur að því hvort Jésús hefði stutt þann óskiljanlega gjörning gömlu nýlenduveldanna að ræna landi í Palestínu undir evrópska Zíónista, sem segjast vera gyðingar, og fara með báli og brandi um lönd innfæddra áratugum saman?
Taka ábyrgð á palestínsku fánunum í Hallgrímskirkju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2024 | 14:13
#jechiedanslaElliðaá ...
Ekki höfði íslenskir af fémínísku efrimillistéttarstandi fyrr frétt af hinum merka verkefni vina sinna í París, #jechiedanslaSeine, eða #égskítíSignu, en þær gösluðust fylktu liði fram á bakka Elliðaár í Reykjavík og hófu þegar í stað taðfarir í hina merku laxveiðiá höfuðborgarbúa. Sumar vóðu út á grynningar í miðri á og rifu þar niðrum sig og sendu lorta með straumnum í átt til sjávar. Okkar dásamlegu og röggsömu fémínístar eru nefnilega einlægt með á nótunum og tileinka sér nýja tískustrauma frá menningarborgum ,,sem við berum okkur saman við" og eru strax mættir á vettvang til að kynna helstu nýjungar umheimsins í virkum mótmælum.
Reyndar hefir tiltæki okkar ástsælu og skaðmenntuðu efrimillistéttarfémínísta ekki náð neinni athygli, nema hjá þeim sjálfum. Lögreglan hefir ekkert aðhafst, en dómsmálaráðherra kom tiplandi til þeirra á árbakkann fyrir hádegi og heilsaði vinkonum sínum með smeðjulegu brosi, en afþakkaði þátttöku í hægðaveislunni að öðru leyti. Þegar borgarstjórakérlíngin í París fór að synda í Signu kviknaði áhugi hjá femmunum þar í bæ að fleyta kukk í átt að kerlíngunni svo hún mundi hugsa sig tvisvar um áður en hún léti verða af að baða sig aftur upp úr ánni. Því miður vantar alveg að borgarstjóranefnan í Reykjavík fari að leggja leið sína í Elliðaárnar til að synda, en til þess er sá piltur helst til lítill bógur; hann er sagður hræddur við að verða innkulsa og drukkna í miðri á.
Nú bíðum við bara eftir því að efrimillistéttarfémínistarnir okkar á Elliðaárbökkum og út í miðri á, frelsi geirvörturnar líka svo áhorfendur fái að sjá bæði skituna og vörturnar frelsaðar við árnið og sumarsól. Okkur þyrstir einnig fréttir af því hvort fémínurnar af ,,upper middle class" með ,,harmful education" í höfðinu færi út kvíarnar og setji á hægðir í fleiri laxveiðiár. Þær gætu sem best auglýst atburðina undir slagorðum á borð við ,,Kúkum í Kjarrá", ,,Niðurgangur í Norðurá" og ,,Skítum í Skaftá".
Synti í Signu þrátt fyrir hótanir um hægðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2024 | 20:32
Um skuggalega náunga og guðlegt eðli hins heilaga Flokks
Skuggalegur náungi Helgi Magnús og komst í kast við Múhámeð Kóran og það í illu. Aumingja karlinn. Múhámeð Kóran er sem kunnugt hið versta fól og hann lét sér ekki muna um að ofsækja Helga Magnús í hefndarskyni fyrir eitthvað sem hann taldi að Helgi Magnús hefði gjört á hluta sinn. Nú þarf enginn að velkjast í vafa um að Múhámeð Kóran er heldur veikur maður, - satt að segja er hann ugglaust fársjúkur eitthvað á sinninu. En Helga Magnúsi er fjárans sama um bágborna andlega heilsu Múhámeðs og er yfir sig sáttur með að sjúklingurinn verði vistaður í fangelsi næstu átta árin. Þetta minnir á sögur góða dátans Sveiks af réttlætinu í dómskerfi Austurríska keisaradæmisins á dögum heimstyrjaldarinnar fyrri.
Nú, það er skammt stórræðanna á milli hjá Helga Magnúsi vararíkissáttasemjara, því hann hefir nú látið þau boð út ganga að aftur skuli reynt að koma Semu Erlu og Maríu Lilju bak við lás og slá, helst í átta ár eða lengur. Þessi þrifatilraun vararíkissaksóknara virðist gerð að undirlagi föður einnar af helstu stórkanónum Sjálfstæðisflokksins, Diljár Mistar. Sakarefnið er náttúrlega voðalegt: Sem sé að reyna að bjarga saklausu fólki undan drápsfýsn morðóðra Zíónista, sem þykjast vera Gyðingar og gett ef ekki Ísraelsmenn í þokkabót. Að það kunni að kosta tvær konur fangelsisvist að bjarga mannslífi er dálítið sérkennilegt og gæti kostað langvarandi heilabrot að koma slíku réttlæti heim og saman.
Já, hann er skuggalegur náungi hann Helgi Magnús og hálfvegis kostulegt að slíkur sólargeisli í réttarkerfi skuli yfirleitt vera vararíkissaksóknari. En Íslendingar eru öllu vanir þegar kemur að fjölskrúðugum athöfnum hins þrískipta valds í landi þeirra. Í þetta þrískipta vald hefir einlægt verið raðað Sjálfstæðisflokksmönnum í stórum hópum, rétt eins og að í Sjálfstæðisflokknum búi hið eina rétta og sanna réttlæti, sem hafið er yfir allan vafa og enda úthlutað af Gvuði. Hitt er svo aftur annað má hver þessi Gvuð Sjálfstæðisflokksins er. Ekki er ólíklegt að þar sé kominn gamli geðvondi og hefnigjarni Jahve, sem hrelldi fátæklinga sem stöðugt hótaði þeim dauða og djöfli. En það getur líka fullt eins verið að Gvuð Sjálfstæðisflokksins sé bara þessi venjulegi skósveinn hins gamla í neðra, Mammón, sem helst til margir hafa gjört að kóngi lífs síns og dýrka eins og heiðingjar reðurtáknmyndir.
Verði að bregðast við breyttum veruleika | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2024 | 22:52
Auðvitað þykir Sælandinu ekkert athugavert við að varpa fárveiku fólki í dýflissuna
Það er ansi sérkennilegt að konugarmur, sem fer fyrir stjórnmálaflokki, sem það kalla Flokk fólksins, skuli skuli taka jafn ógeðslega afstöðu og raun ber vitni gagnvart veikum manni, sem íslenska dóms- og lögreglukerfið var svo fallegt í sér og hákristilegt, að dæma í fangelsi og loka inni á Litla-Hrauni. Hinum kunna lýðskrumara, frú Sæland þykir ekkert athugavert við að kasta sjúklingi í dýflissuna. Svona maður á greinilega ekkert annað skilið, að hennar dómi, en að vera rekin úr landi, út á Guð og gaddinn, og fluttur eitthvert þangað sem frú Sæland og Kjörísprinsessan þurfa ekki að frétta neitt af afdrifum hans.
Hérna áður og fyrr þókti ekkert sérlega mannborulegt að úthýsa vegmóðu fólki. En þeir voru því miður til sem ráku fólk, sem hvergi átti höfði að halla, af höndum sér, kannski út í opinn dauðann og var andskotans sama þókt persónur sem þeir úthýstu fyndust dauðar á víðavangi skömmu síðar eða aldrei. Af þessum úthýsurum eru ugglaust þær aumu mannfýlur komnar í beinan karllegg eða kvenlegg, sem riðið hafa röftum hér á landi og eru fræg fyrir að hafa sóðalega og úrkynjaða útlendingaandúð og mannfjandskap í farteskinu. Þessum vesölu, lýðskrumandi fígúrum, sem eru í raun fátt annað en hræsnin, illgirnin og heimskan, munar auðvitað ekkert um að klöngrast niður á Alþingi, eða vaða eins og flóðhestar inn á fjölmiðla, og orga þar upp innblásnum ræðum um kjör fátæklinga, aldraðra og öryrkja með tilheyrandi krókódílatáraflóði, í sömu andrá og þeir reka heimilislausa öreiga úr landi eða fangelsa fársjúka menn.
Ekki veit ég hvað það er sem rekur lýðskrumara og valdastreðara til að fremja óhæfuverk eða gera út á lágkúru og lægstu hvatir mannskepnunnar sér til framdráttar. Ekkert samfélag þarf á slíkum ónytjungum og illgresi að halda. Svo lið var í eina tíð stundum kallað veraldaraumingjar eða smámenni og þóktu ekki í húsum hæfir hjá sæmilega siðuðum mönnum. Og fjölmiðlarnir? Já, svo eru það fjölmiðlarnir sem eiga alltaf nóg rúm fyrir andstyggðar- og heimskuboðskap úthýsaranna og mannhataranna. Hvað gengur þeim til? Hvað er siðferði þeirra langt fyrir neðan meðallag? Hvern fjárann á þetta óskiljanlega dekur við þvílík samfélagseyðileggjandi endemi að þýða?
Þá væri þessi Mohammed Kourani farinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 10
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 235
- Frá upphafi: 1539526
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 202
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007